Morgunblaðið - 31.01.2008, Qupperneq 19
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 19
Hef ég ekki séð þennan einhvers staðar áður?
Þessu velti Össur fyrir sér þegar hann sá El-
ton John í Abu Dhabi í síðustu viku. Svona
gæti einhver hugsað sem pantar sér tíma hjá
heimilislækni á Akureyri í næstu viku …
Læknirinn sem við er átt heitir Jón Pálmi Ósk-
arsson. Þótt sá sem þarf læknishjálp hafi búið í
útlöndum í mörg ár gæti hann samt kannast
við kappann; frá því Pálmi var í sigurliði MA í
Gettu betur á RÚV um árið. Hafi hann flutt frá
útlöndum í fyrra, eftir langa dvöl, gæti hann
þekkt Pálma frá því í Meistaranum hjá Loga á
Stöð 2 og hafi „sjúklingurinn“ bara komið
heim í haust eftir mörg ár í útlandinu, gæti
hann hafa séð Pálma í Útsvari á RÚV, en þar
sló hann í gegn í liði Akureyrar ásamt Erlingi
Sigurðarsyni og Arnbjörgu Hlíf Valsdóttur.
Það er ekki allt búið enn. Segjum sem svo að
hinn meinti veiki maður komi í fyrsta skipti á
ævinni til landsins á morgun, skelli sér í
Broadway um kvöldið og þurfi svo að leita til
læknis á Akureyri eftir helgi, gæti hann samt
kannast við Pálma! Í Broadway verður nefni-
lega á morgun Húsvísk tónlistarveisla þar sem
fluttar verða dægurperlur Björgvins Halldórs-
sonar. Allt Þingeyingar sem koma fram, eftir
því sem ég best veit, nema einn … Ekki vildi
betur til en svo að einn söngvaranna forfall-
aðist og hver heldur þú, lesandi góður, að hafi
verið beðinn um að hlaupa í skarðið? Jú,
ónefndur heimilislæknir á Akureyri hef ég
heyrt! Hann hefur nefnilega lært að syngja og
starfaði á Húsavík um tíma meðan á námi stóð.
Sannarlega fjölhæfur maður, Pálmi. Hann hef-
ur líka gaman af íþróttum og var meira að
segja íþróttafréttaritari Morgunblaðsins á Ak-
ureyri um tíma fyrir mörgum árum.
Kannski ekki alveg Akureyrarbæjarlíf, og þó;
ég horfði á leikinn á Akureyri! Samgleðst
Björgólfi með sigur West Ham á Liverpool í
gærkvöldi en ferlega voru mínir menn í Rauða
hernum slakir … Hvað er eiginlega í gangi?
Ferðafélag Akureyrar býður upp á hvorki
meira né minna en 47 ferðir á nýbyrjuðu ári.
Félagið kynnir í kvöld það sem er í boði á fundi
í Ketilhúsinu. Athöfnin hefst kl. 20.00. Har-
aldur Örn Ólafsson, pólfari með meiru, verður
á fundinum með myndasýningu og frásögn um
magnaðar ferðir sínar á Mount Blanc, Kilim-
anjaro, Mount Everest og ekki síst á norð-
urpólinn. Aðgangseyrir er 1.000 kr. og er kaffi
og meðlæti innifalið.
Árvakur/Skapti Hallgrímsson
Þekki ég þennan? Erlingur Sigurðarson,
Lappi og Pálmi Óskarsson læknir með meiru.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Pétur Stefánsson sótti sér orku íyrkingarnar:
Gegni ég minni matarhvöt
milli ortra kvæða.
Ég er að sjóða súpukjöt
sem ég ætla að snæða.
Ármann Þorgrímsson er mikill
matgæðingur:
Best finnst mér að borða kjöt og borða
mikið
fituhreinsað finnst mér svikið
floti helli yfir spikið.
Þá Friðrik Steingrímsson í
Mývatnssveit:
Horað kjöt er haldlítið og hunda fæða
síst menn á þeim sinum græða,
sælkerunum þraut og mæða.
Hjördís Þráinsdóttir fór í
afmælisveislu og kvöldmaturinn
var eftir því:
Fínast kaffi fékk og vöfflur fylltar rjóma.
Gef ég þessu góða dóma.
Kristján Eiríksson stendur í
framkvæmdum heima hjá sér og
eldhúsnautnirnar sitja á hakanum:
Þá ykkur gengur allt í vil í eldhússtússi
að heiman nú ég held í fússi
því allt er rifið, rist og tætt, mín rósemd
farin,
svo ég fer á Sjávarbarinn.
Þá Sigrún Haraldsdóttir:
Óttalega er Eiríksson nú illa farinn;
huggun sækir hann á barinn.
Kristján svaraði:
Álasaðu ekki mér þótt út ég rasi.
Ég sé til lands á sjötta glasi.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Fía,
frá Sandi í Aðaldal sá þegar
spaugilegu hliðina á þessum
orðaskiptum:
Stjáni í fússi fór á bar
fullur mjög hann gerðist þar
hitti konur hálffullar
hlýlegust þó Sigrún var.
Davíð Hjálmar Haraldsson velti
fyrir sér hvort þetta væri ekki
prentvilla hjá Fíu:
Stjáni í fússi fór á bar
fullur mjög hann gerðist þar
hitti konur hálffullar,
á herðablöðum Sigrún var.
Sigrún kom með aðra
skýringu:
Þurft ég hefði styrkan staf
og stuðning um valta tána.
Því gerst ég hefði ölvuð af
áfengri návist Stjána.
Fía svaraði hins vegar
Davíð Hjálmari:
Eitt sinn full ég fór á bar
fyrstan hitti ég Davíð þar.
Út ég slapp þó umrætt sinn
á eftir fann hann gluggann minn.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af mat og
barnum
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Verð:
1.720.000 kr.
Se
x ö
ry
gg
isl
of
tp
úð
ar
ES
P s
tö
ðu
gl
eik
ak
er
fi
Hi
ti
í s
æt
um
CD
og
M
P3
sp
ila
ri
Te
ng
i f
yr
ir
iP
od
Þr
ír
hö
fu
ðp
úð
ar
að
af
ta
n
Ra
fd
rif
na
r r
úð
ur
að
fr
am
an
og
af
ta
n
Fja
rs
tý
rð
sa
m
læ
sin
g
Þo
ku
ljó
s
Hæ
ða
rs
til
lin
g á
ök
um
an
ns
sæ
ti
Hr
að
as
til
lir
(c
ru
ise
co
nt
ro
l)
og
m
ar
gt
fl
eir
a
Rí
ku
leg
ur
st
að
al
bú
na
ðu
r:
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
-
0
7
-1
0
0
7
Mánaðarleg útborgun: 17.200 kr.*
Komdu og eigðu stefnumót við Skoda Fabia.
Þú finnur strax að leitinni er lokið.
*M.v. 30% útborgun og bílasamning til 84 mánaða.
Árleg hlutfallstala kostnaðar: 6,57%.