Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 27

Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 27 Atvinnuauglýsingar Norræn nýsköpunarsamvinna er í mikilli þróun og í brenni- depli hjá aðilum atvinnulífsins, stjórnvöldum og fjölmiðlum. Nordisk InnovationsCenter gefur tóninn á þessu sviði og vill skapa sér sýnilegri stöðu bæði gagnvart hinu opinbera og einkum atvinnulífinu. Sem framkvæmdastjóri skapar þú for- sendur fyrir þessa vinnu í erilsömu starfi sem einkennist af þverfaglegum samböndum við aðila í nýsköpunarumhverfi Norðurlandanna og einnig víða í Evrópu. Tvö meginmarkmið stofnunarinnar eru að hvetja til ný- sköpunar í atvinnulífinu og vinna að virku atvinnulífi án landamæra á Norðurlöndunum Stofnuninni stýrir eigin stjórn með einum aðila frá hverju Norðurlandanna með reynslu úr atvinnulífinu og opinbera geiranum. Stofnunin leggur árlega fram verkefnalista sem hljóðar upp á 120 millj. norskra króna og þar starfa 16 manns. Helstu verkefni nýs framkvæmdastjóra verða: • stýra þekkingarmiðstöð með starfsfólki frá öllum Norðurlöndunum • gera stofnunina að leiðandi aðila í norrænu nýsköpunarsamstarfi • þróa samstarf við helstu nýsköpunaraðila á Norðurlöndunum • styrkja sýnileika og prófíl stofnunarinnar og þróa áfram samvinnu við aðila í norrænu atvinnulífi • þróa áfram gott samstarf við Norrænu ráðherranefndina • styrkja og þróa samstarf við aðra norræna aðila á þessu sviði Háskólamenntun er áskilin og vald á ensku og einu af skandinavísku málunum, bæði munnlega og skriflega. Auk þessa eru gerðar eftirtaldar hæfniskröfur: • góðir samstarfshæfileikar • skipulagshæfni og reynsla af áætlanagerð • reynsla af stjórnun í mannauðs- og þekkingarfyrirtækjum og atvinnulífinu og innsýn í nýsköpunarstarf í atvinnulífinu • reynsla og þekking á pólitísku starfi og ferlum, hæfni í mannlegum samskiptum og að geta hrifið fólk með sér Norræna nýsköpunarmiðstöðin býður upp á áhugavert starfsumhverfi í stöðugri þróun þar sem vinnur starfsfólk frá öllum Norðurlöndunum. Skrifstofa stofnunarinnar er í Osló og gera má ráð fyrir töluverðum ferðalögum. Laun samkvæmt samkomulagi. Ráðið er í stöðuna til fjögurra ára með möguleika á framlengingu. Nordisk InnovationsCenter eða Norræna nýsköpunarmiðstöðin er leiðandi stofnun í norrænni samvinnu. Verkefni miðstöðvarinnar er að stuðla að samkeppnishæfara atvinnulífi á Norðurlöndum með því að hvetja til samvinnuverkefna á sviði nýsköpunar. Þetta markmið skal nást með sköpun nettengsla, samvinnuverkefnum, fjármögnun þeirra og kynningu á niðurstöðum. Norræna nýsköpunarmiðstöðin heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Miðstöðin er staðsett ásamt Nordforsk og Nordisk Energiforskning í nýju skrifstofuhúsnæði miðsvæðis í Osló. Forstjóri Nýsköpun - Norðurlönd - Alþjóðavæðing Fyrirspurnum má beina til Harald Hjerø hjá Mercuri Urval í síma 0047 975 59 023. Umsóknarfrestur er til 22. febrúar 2008. Sendið stutta umsókn ásamt ferilskrá, seinna þarf síðan að senda vottorð og meðmæli. Fullum trúnaði er heitið. Sækja skal um stöðuna á netinu, starfið er merkt "NO- HHJ-18026" á www.mercuriurval.no. Skólavefurinn Skólavefurinn leitar eftir kröftugum einstakl- ingum í úthringiátak. Unnið er á kvöldin á virkum dögum. Hentar vel fyrir skólafólk. Byrjunarlaun 1.300 kr á tímann. Sendið umsóknir á skolavefurinn@skolavefurinn.is. Upplýsingar í síma 869 3333 á skrifstofutíma. Samherji hf. óskar eftir vélaverði á Þorvarð Lárusson SH-129. Menntun og hæfniskröfur  Lágmarksréttindi VV Upplýsingar um starfið gefur Sigurður Ólafur Þorvarðarson skipstjóri, sími 854 5675 og 660 8445 Samherji er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með víðtæka starfsemi víðs vegar um Evrópu. Samherji hf hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum verksmiðjum í landi. Hagfræðingur á hagfræðisviði Seðlabanka Íslands Seðlabanki Íslands auglýsir lausa til umsóknar stöðu hagfræðings á hagfræðisviði bankans. Hagfræðisvið annast rannsóknir og greiningu á þróun efnahags- og peningamála, gerir þjóðhags- og verðbólguspár og tekur þátt í mótun stefnunnar í peningamálum. Hagfræðisvið hefur m.a. umsjón með útgáfu Peningamála og enskri þýðingu þeirra, Monetary Bulletin. Verkefni hagfræðingsins verða m.a.:  Að fylgjast með framvindu efnahagsmála, greina gögn og skrifa um niðurstöður.  Tilfallandi rannsóknarverkefni og ráðgjöf á sviði þjóðhagfræði.  Þátttaka í öðrum verkefnum hagfræðisviðs eftir atvikum. Áskilið er a.m.k. meistarapróf í þjóðhagfræði og lögð er áhersla á að umsækjandi hafi þekkingu og áhuga á efnahagsmálum. Umsækjandi þarf að hafa gott vald á mæltu og rituðu máli, bæði íslensku og ensku, og hæfileika til að setja fram fræðilegt efni á skýran hátt. Auk þekkingar á hefðbundnum hugbúnaði væri það kostur ef umsækjandi hefði góða þekkingu á notkun hugbúnaðar til tölfræðigreiningar og hagmælinga. Umsækjandi þarf að hafa góða samskiptahæfileika og vera reiðubúinn til hópvinnu af ýmsu tagi. Upplýsingar um starfið veitir Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur, í síma 569 9600. Umsóknum skal skilað fyrir 22. febrúar 2008 til rekstrarstjóra Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Bókari / Endurskoðandi Lítil endurskoðunarstofa óskar eftir að ráða traustan starfskraft sem getur samið árs- reikninga og unnið almenn störf við bókhald og endurskoðun. Til greina kemur löggiltur endurskoðandi með frekari möguleika í huga. Til greina kemur hlutastarf og/eða sveigjan- legur vinnutími. Viðkomandi þarf að sýna nákvæmni í starfi, þjónustulund og sinna verk- efnum af kostgæfni. Kapp er lagt á þægilegt og gott vinnuumhverfi. Umsóknir óskast sendar á jon@vsk.is. Raðauglýsingar 569 1100 Fáðu sms-fréttir í símann þinn af mbl.is Atvinnuauglýsingar • augl@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.