Morgunblaðið - 31.01.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. JANÚAR 2008 39
Eftir Helga Snæ Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
ÞEGAR hugsað er um Grundarfjörð
á Snæfellsnesi er alþjóðleg kvik-
myndahátíð ekki það fyrsta sem
kemur upp í hugann. Þó verður ein
slík haldin þar helgina 22.-24. febr-
úar. The Northern Wave Int-
ernational Film Festival heitir hún
og stefnt að því að hátíðin verði að
árlegum viðburði.
Í ár verður lögð sérstök áhersla á
hin ýmsu form stuttmynda, þ.á m.
leiknar, „kvikar“ (animation), til-
raunakenndar sem og stuttar heim-
ildarmyndir og tónlistarmyndbönd.
Í dómnefnd hátíðarinnar eru þau
Hilmar Örn Hilmarsson tónskáld,
Kristín Jóhannesdóttir kvikmynda-
gerðarkona og Mark Berger, sem
kemur sérstaklega frá San Frans-
isco. Veitt verða þrenn verðlaun á
hátíðinni, þau hæstu 100.000 kr. fyr-
ir bestu stuttmyndina, 70.000 kr.
fyrir næstbestu stuttmyndina og svo
60.000 fyrir besta myndbandið.
Berger hefur unnið til fernra ósk-
arsverðlauna fyrir hljóðvinnslu, m.a.
fyrir Apocalypse Now og The Engl-
ish Patient. Hann mun halda fyr-
irlestur á hátíðinni um reynslu sína
úr kvikmyndaheiminum. Berger
hefur starfað með ekki ómerkari
leikstjórum en George Lucas og
Francis Ford Coppola.
Spænsk menningartengsl
Dögg Mósesdóttir er skipuleggj-
andi hátíðarinnar og Grundarfjörður
er hennar heimabær. Dögg er ný-
flutt aftur til Íslands eftir fimm ára
búsetu í Barselóna á Spáni þar sem
hún nam og starfaði við kvikmynda-
gerð. Í Barselóna skipaði hún for-
valsnefnd fyrir hátíðina með fyrrum
skólafélögum sínum úr kvikmynda-
skólanum CECC. Á endanum urðu
70 stuttmyndir frá 15 löndum fyrir
valinu og þær verða allar sýndar á
hátíðinni.
„Það er mjög auðvelt að fá stutt-
myndir á svona hátíðir, það er erf-
iðara að fá lengri myndir og kostn-
aðarsamara. Ég hef mikinn áhuga á
stuttmyndaforminu, ég held að það
sé mikil framtíð í því út af allri þess-
ari tækni, t.d. YouTube og svo er
hægt að horfa á myndskeið í iPod-
um og farsímum. Ég vildi vekja at-
hygli á þessu formi, á Spáni er rosa-
lega mikill markaður og menning
tengd stuttmyndum, þær eru sýndar
á undan bíómyndum og diskar gefn-
ir út með bestu stuttmyndum Spán-
ar og þeir seljast alltaf upp á hverju
ári. Ég held að málið sé að Íslend-
ingar eru ekki vanir að horfa á stutt-
myndir, finnst þetta ekki vera
myndir,“ segir Dögg.
Hátíðir á borð við The Northern
Wave International Film Festival
geti bætt úr þessu. Spænskar stutt-
myndir verða m.a. sýndar og
spænska hljómsveitin Appledog,
sem á myndband á hátíðinni, mun
spila fyrir gesti á opnunarkvöldinu,
22. febrúar. Dögg segir þá mikla Ís-
landsaðdáendur og tónlist sveit-
arinnar bera keim af íslenskri.
Kvikmyndagerðarfólk og -áhuga-
menn ættu ekki síður að vera
spenntir fyrir komu og fyrirlestrum
Mark Berger en honum kynntist
Dögg í gegnum tengdaforeldra sína.
Berger vann hljóðið við Journey to
the Center of the Earth 3D, sem hin
íslenska Anita Briem leikur m.a. í.
Leyndardómar Snæfellsjökuls
Berger hafði mikinn áhuga á því
að sjá Snæfellsjökul og bauðst kjörið
tækifæri, að fara á hátíðina og upp-
lifa leyndardóma jökulsins um leið.
Dögg hvetur alla til að heimsækja
Grundarfjörð og njóta þessarar
menningarveislu utan höfuðborg-
arsvæðisins. Ekki sé vanþörf á því
að hressa sig við í svartasta skamm-
deginu. Sjálf sé hún að uppgötva á
ný sínar heimaslóðir, fegurð
fjallanna og þá ekki síst með hjálp
spænskra vina sem sótt hafa bæinn
heim og unnið að stuttmyndinni
Eyju í leikstjórn Daggar.
Fyrirtækið Bílar og fólk mun
ferja fólk frá Reykjavík, BSÍ, á há-
tíðina og veita 30% afslátt af far-
gjöldum þá helgi. Þá verða hótel
bæjarins einnig með tilboð fyrir há-
tíðargesti. „Því fleiri því betra,“ seg-
ir Dögg að lokum, full tilhlökkunar.
Lífið er ekki bara fiskur í Grund-
arfirði.
Stuttmyndaveisla Úr spænsku stuttmyndinni Silouettes eftir Diönu Toucedo sem sýnd verður á hátíðinni.
Fleira í boði en fiskur
Morgunblaðið/Valdís Thor
Stofnandi hátíðarinnar Dögg Mósesdóttir kvikmyndagerðarkona er
bjartsýn á framtíð stuttmynda og þekkir vel til þess kvikmyndaforms.
Alþjóðleg kvik-
myndahátíð verður
haldin í Grundarfirði
í febrúar
Dagskrá hátíðarinnar og ýmsar
upplýsingar má nálgast á
www.northernwave.is og
www.myspace.com/ice-
landnorthernwave.
- kemur þér við
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?
Sumarbústaðir
í mauk í frostinu
Jón Baldvin og Bryn-
dís fjárfesta á Spáni
Norður-Íshafið getur
opnast á næsta áratug
Konur missa
vinnu, störf verða
til fyrir karla
Dýrara að tryggja
lúxusbílana
Línur skýrast
í Bandaríkjunum
Símanúmer Ríkislögreglustjórans
breytast 1. febrúar 2008
Ríkislögreglustjóri
Skúlagötu 21
Sími 444 2500 - Fax 444 2501
Almannavarnadeild
Sími 444 2500 - Fax 562 2665
almannavarnir@rls.is - www.almannavarnir.is
Alþjóðaskrifstofa
Sími 444 2540 - Fax 444 2541
Bílamiðstöð
Sími 444 2596 - Fax 444 2597
www.rls.is rls@rls.is