Morgunblaðið - 18.02.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 9
FRÉTTIR
NordicTrack
TM
NAUTILUS TM
iðunn
tískuverslun
Laugavegi 51, s. 561 1680
Lagersala
60%
afsláttur
af öllum
vörum
ÞETTA gekk betur en nokkru sinni
fyrr,“ segir Jóhann Hlíðar Harð-
arson, markaðsstjóri Háskólans í
Reykjavík, um Háskóladaginn, sem
haldinn var á laugardaginn. Þar
kynntu háskólar landsins, alls átta
talsins, námsframboð sitt fyrir
næsta skólaár.
Á nýju Háskólatorgi Háskóla Ís-
lands kynntu allar deildir Háskólans
og Kennaraháskóla Íslands náms-
framboð sitt í grunn- og framhalds-
námi, en námsleiðirnar eru hátt á
fjórða hundrað talsins. Þá veittu
námsráðgjafar leiðsögn og ráðgjöf,
auk þess sem ýmsar þjónustustofn-
anir kynntu starfsemi sína.
Í Ráðhúsinu kynntu sex háskólar
námsframboð sitt; Háskólinn á Ak-
ureyri, Háskólinn á Bifröst, Háskól-
inn á Hólum, Háskólinn í Reykjavík,
Landbúnaðarháskóli Íslands og
Listaháskóli Íslands.
Loks kynntu danskir skólar fram-
haldsnám í Danmörku í Norræna
húsinu.
Betra að vera á sama svæði
Jóhann segir að milli þrjú og fjög-
ur þúsund manns hafi mætt, eins og
gert hafði verið ráð fyrir. Hann seg-
ist ekki telja að aðsóknarmet hafi
verið slegið, en framkvæmdin hafi í
ár verið með miklum ágætum.
„Okkur sem unnum að þessu
fannst frábært að vera í svona mik-
illi nálægð hvert við annað, og sam-
starfið gekk mjög vel,“ segir Jó-
hann, en síðastliðin þrjú ár hafa
kynningar Háskóla Íslands farið
fram á heimavelli hans meðan hinir
hafa kynnt framboð sitt sameig-
inlega í Borgarleikhúsinu.
„Við sáum að mjög mikið streymi
var á milli Háskólatorgs og Ráð-
hússins, fólk kom frá öðru svæðinu
með poka með námsbæklingum yfir
á hitt svæðið.“
Jóhann segir að þótt stærsti
markhópurinn sé ungt fólk að út-
skrifast úr framhaldsskóla komi nú í
miklu meira mæli eldra fólk sem vilji
kynna sér meistara- og framhalds-
nám auk endurmenntunar, enda hafi
framboðið á því sviði aukist umtals-
vert.
Aukna samkeppni milli háskóla
segir Jóhann vera til góðs, samstarf
milli skólanna sé líka mjög jákvætt.
Skólarnir tapi ekki nemendum hver
til annars en þeim hafi fækkað sem
fari utan í nám.
Árvakur/Árni Sæberg
Mannslíkaminn Læknavísindin og heilbrigðisgeirinn almennt heilla marga, enda er barist um hvert sæti í námi
því tengdu, ýmist með inntökuprófum eða samkeppnisprófum við lok fyrsta misseris.
Kennaranám Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir frá
kennaranámi. Lög um sameiningu KÍ og HÍ taka gildi 1. júlí á þessu ári.
Í HNOTSKURN
»Yfir 500 námsleiðir á há-skólastigi voru kynntar á
laugardaginn, óhætt er að segja
að framboð háskólanáms hér
hafi aldrei verið fjölbreyttara.
»Háskólarnir átta verða meðkynningu á Akureyri hinn 27.
febrúar, á Egilsstöðum 28. febr-
úar og á Ísafirði 5. mars.
Háskóladagurinn fór fram á Háskólatorgi HÍ og í Ráðhúsinu á laugardag
Betri en nokkru sinni fyrr
Um 3-4.000 manns
kynntu sér nám
átta háskóla
PÁLL Gunnar
Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftir-
litsins, er undr-
andi á ummælum
Sigurðar Jóns-
sonar, fram-
kvæmdastjóra
Samtaka verslun-
ar og þjónustu
(SVÞ), í Morgun-
blaðinu á laugar-
daginn þess efnis að hann sé
óánægður með sátt sem SVÞ gerðu
við Samkeppniseftirlitið.
Í sáttinni fólst að SVÞ greiddu
eina milljón króna í stjórnvaldssekt
og viðurkenndu að hafa gerst brot-
leg við samkeppnislög þegar þau,
ásamt Samtökum iðnaðarins, beittu
sér fyrir því að aðildarfélög þeirra
samræmdu lækkun á virðisauka-
skatti fyrir tæpu ári. Sigurður sagði
SVÞ einungis hafa reynt að tryggja
að skattalækkun yfirvalda á matvæl-
um gengi vel fyrir sig og skilaði sér
til neytenda.
Óskaði sjálfur eftir sátt
„Það kemur á óvart að fram-
kvæmdastjóri SVÞ lýsi því yfir að
hann sé ósammála sátt sem hann
sjálfur óskaði eftir og undirritaði, að
hann telji núna að ekkert samráð
hafi átt sér stað. Í málinu höfðu SVÞ
tvo valkosti, annars vegar að taka til
varna í málinu og láta eftir atvikum
reyna á niðurstöðuna fyrir áfrýjun-
arnefnd og þess vegna dómstólum og
svo hins vegar höfðu þau þann kost
að óska eftir sátt og þau völdu að
óska eftir sáttinni,“ segir Páll Gunn-
ar.
„Í sáttinni felst að SVÞ viður-
kenna samkeppnishamlandi samráð
sem fólu í sér brot á samkeppnislög-
um. Þau féllust á að greiða sektir og
skuldbundu sig til að tryggja að brot
af þessu tagi ættu sér aldrei aftur
stað. Þessi viðbrögð framkvæmda-
stjórans nú, eftir að málinu er lokið,
hljóta þess vegna að verða Sam-
keppniseftirlitinu umhugsunarefni.“
Aðgerðir sköðuðu samkeppni
Páll Gunnar segir það liggja fyrir
að aðgerðir SVÞ hafi að engu gert
það samkeppnislega tækifæri sem
skapaðist fyrir aðila á markaðnum,
svo sem til þess að veita hver öðrum
verðsamkeppni í kjölfar virðisauka-
skattsbreytinganna. Aðgerðir SVÞ
hafi augljóslega haft skaðleg áhrif á
samkeppnina.
Hvað varðar ákvörðun upphæðar
sektarinnar segir Páll Gunnar að
horft hafi verið til þess að SVÞ ósk-
uðu eftir sáttarviðræðum og játuðu
brot á lögunum. Þannig hafi þau
stytt rannsókn og málsmeðferð.
Framkoma SVÞ
umhugsunarefni
Páll Gunnar
Pálsson
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111