Morgunblaðið - 18.02.2008, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 18.02.2008, Qupperneq 16
Langtímamarkmið óskast Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is GÓÐ aðsókn var að málþingi um út- rás íslenskrar listar og menningar sem Útflutningsráð Íslands og Bandalag íslenskra listamanna, BÍL, stóðu fyrir fimmtudaginn sl. undir yfirskriftinni Út vil ek. Meginumræðuefni fundarins var hvernig hægt væri að gera íslenska list að útflutningsgrein sem skila myndi áþreifanlegum, fjárhags- legum hagnaði. Darriann Riber, ráðgjafi hjá al- þjóðasviði dönsku listastofnunar- innar, vakti athygli á því að styrkir væru nauðsynlegir ef gera ætti list að útflutningsgrein og þá bæði frá ríki og einkaaðilum. Slíkar styrk- veitingar þyrftu að vera markvissar og skipulagðar. Þarf að vera áhugi fyrir hendi Bergur Ebbi Benediktsson, verk- efnisstjóri við ráðgjöf og fræðslu hjá Útflutningsráði Íslands, sat þingið og segir ljóst af máli Riber að dansk- ir listamenn virðist búa við skipu- lagðara umhverfi hvað varðar op- inbera styrki og samhæfðar aðgerðir í þessum málum. Bergur segir að komið hafi fram í máli gesta að þrátt fyrir að mikið og gott starf væri unnið vantaði hugsanlega upp á markmiðasetningu til lengri tíma, hnitmiðaðra og heildrænna skipulag þegar kæmi að styrkveitingum og aðkomu stórra fyrirtækja. Ágúst Guðmundsson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, sagði margt áhugavert hafa komið fram hjá framsögumönnum. Riber hafi m.a. bent á að raunveru- legur áhugi þyrfti að vera til staðar í landinu á útflutningi listar og menn- ingar en jafnframt þyrftu að vera gagnkvæm skipti, þ.e. að viðkom- andi land fengi tækifæri til að senda eitthvað til Danmerkur á móti því sem Danmörk sendi þangað. Mikil áhersla sé lögð á það, hjá hennar stofnun, að hafa samband við við- komandi land og ræða við réttar stofnanir. „Hún nefndi dæmi af dönskum rithöfundi sem var sendur til Ástralíu að kynna verk sín en það mættu bara Danir og nokkrir frá sendiráðinu. Það var í raun ekki búið að spyrja að því hvort einhver hefði áhuga á viðkomandi rithöfundi,“ segir Ágúst. Þetta hafi honum þótt áhugaverður punktur. „Mér finnst stundum eins og við séum fyrst og fremst að hugsa um hvað okkur finnst athyglisverðast hér en spyrj- um ekki hvað fólki í viðkomandi landi, sem við erum að senda verkin til, finnst athyglisvert.“ Þá hafi það einnig verið athygl- isvert að vöxtur menningartengdra atvinnugreina næmi 15% á ári í Dan- mörku. Stundum vont að vera íslenskur Einar Bárðarson umboðsmaður fjallaði um reynslu sína af slæmri umfjöllun um Ísland á gengi lista- manna og tók þar dæmi af Nylon- sönghópnum. Auglýsingaherferð fyrir smáskífu sveitarinnar hefði far- ið fyrir lítið vegna umfjöllunar í breskum fjölmiðlum um hvalveiðar Íslendinga. Einar fjallaði einnig um reynslu sína af því að fá fjárfesta til að setja peninga í útrásarverkefni á sviði lista, hann hefur m.a. náð að safna miklu fé fyrir verkefni sem snýr að útgáfu og kynningu á Garðari Thór Cortes í Bretlandi. Ágúst segist sjálfur hafa kynnst því hvernig útflutningur á íslenskri list gæti fært landinu tekjur þegar hann gerði þættina um Nonna og Manna. Þeir slógu í gegn í Þýska- landi og fjölgaði þýskum ferðamönn- um mikið á Íslandi í kjölfarið. Halldór Guðmundsson bókaútgef- andi og rithöfundur benti á að ís- lenskar bækur væru í mikilli sókn á erlendum mörkuðum um þessar mundir, en ákveðin ládeyða hefði ríkt í þeim efnum allt frá lokum seinna stríðs og fram á 8. og 9. ára- tug síðustu aldar.  Málþing um útrás íslenskrar listar og menningar var vel sótt  Rætt um skort á hnitmiðaðra skipulagi í styrkveitingum og aðkomu stórra fyrirtækja Árvakur/ Árni Sæberg Fyrir tuttugu árum Ágúst Guðmundsson leikstjóri og Nonni og Manni, þ.e. Garðar Thór Cortes og Einar Örn Einarsson árið 1988. 16 MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING FJALAKÖTTURINN sýnir tvær kvikmyndir í Tjarnarbíói í dag. Annars vegar er það franska myndin Hrossaþjóf- arnir, en tónlist Jóhanns Jó- hannssonar hljómar í henni. Hún er sýnd kl. 17 og 22. Hins vegar er það Melónuleiðin sem er raunsæ og óhugnanleg mynd úr smiðju leikstjórans Branko Schmidt. Hún er sýnd kl. 20. Sýningar fara fram án hlés og auglýsinga. Félagsgjald í Fjalaköttinn er 5.000 krónur og veitir aðgang að öllum myndum Fjalakattarins til 24. mars. Stakir miðar eru seldir í miðasölu á 850 krónur. Nánar á www.filmfest.is. Kvikmyndir Hrossaþjófarnir og Melónuleiðin Úr Hrossaþjóf- unum. OPINN fyrirlestur verður haldinn í myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laug- arnesvegi 91, kl. 12.30 í dag. Þar mun myndlistarmaðurinn Ólöf Nordal fjalla um eigin verk. Ólöf stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands og lauk síðan mast- ersprófi frá Cranbrook Aca- demy of Art, Michigan og MFA frá höggmyndadeild Yale Háskólans í New Haven, Bandaríkjunum. Ólöf hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis sem og erlendis. Aðgang- ur að fyrirlestrinum er ókeypis og öllum heimill. Myndlist Ólöf Nordal fjallar um eigin verk Ólöf Nordal MIKIL kátína lá í loftinu fyrir seinustu TKTK-tónleika þegar flytja átti tvær myndrænar og afar prógrammvænar tónlist- arperlur. Salurinn í Kópavogi var þéttsetinn af börnum og foreldrum þeirra, en meðan sum börn spjölluðu hátt og snjallt um efni verkanna og upplifanir sínar af því sem fram fór göptu önnur af sleginni aðdáun og gátu ekki slitið augun af sviðinu. Í lang- flestum tilvikum virtist skemmtanagildið a.m.k. vera á háu stigi. Bæði verk efnisskrárinnar voru hér sett í smekklegan kammerbúning. Í sömu andrá og klarinettan hóf gönguna í Mynd- um á sýningu steig Sigurþór Heimisson fram í gervi aldraðs manns með loðhúfu og staf og hreif tónleikagesti með skemmti- legum leiktilþrifum sínum.Hljóð- færaleikarar náðu að túlka æs- inginn og spennuna í tónlistinni með miklum ágætum, t.d. í dansi hænuunganna, þrátt fyrir örlít- inn stirðleika í hröðum köflum. Ákafur áhugi yngri kynslóð- arinnar fór ekki framhjá neinum þegar röðin var komin að ófreskjunni Baba Yaga. Maður gat rétt ímyndað sér hrifningu barnanna hefðu þau heyrt sömu stefin í fullblásinni útsetningu Ravels. Áfram var haldið með smjörið eftir að búið var að virða fyrir sér borgarhliðið mikla í Kiev. Sigurþór brá sér í hlutverk sögumanns og gerði öllum sögu- persónum eins ástsælasta barna- ævintýris fyrr og síðar góð skil. Áhuga og næmi barna fyrir tón- list er alltaf jafn magnað að sjá og þökk sé TKTK-tónleikaröð- inni státar Kópavogsbær líklega af einu vandaðasta tónlistarupp- eldi á höfuðborgarsvæðinu. Vandað tónlistar- uppeldi TÓNLIST Salurinn, Kópavogi Kennarar úr Tónlistarskóla Kópavogs fluttu Myndir á sýningu eftir Modest P. Mussorgsky og Pétur og úlfinn, op. 67, eftir Sergej Prokofiev. Flytjendur: Pamela De Sensi flauta, Eydís Lára Franzdóttir óbó, Rúnar Óskarsson klarinett, Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagott, Emil Friðfinns- son horn, Sigurþór Heimisson leikari. Laugardaginn 2. febrúar kl. 13. TKTK-tónleikaröðin bbbnn Alexandra Kjeld Í LISTASAL Mosfellsbæjar stóð yfir til 16. febrúar samsýning á verkum Júlíu Emblu Katrínardóttur og Þórunnar Björnsdóttur. Þórunn er menntuð í hljóði og myndlist og hefur m.a fengist við hljóðmyndir og gjörninga ásamt því að vera tónlistarmaður. Verkið sem hér um ræðir ber titilinn Klukkustundir og samanstendur af upp- tökum úr daglegu lífi átta einstaklinga sem síðan eru spilaðar inni í upphangandi pappakössum sem sýningargesturinn getur svo stungið höfðinu inn í og hlustað. Hugmyndin hljómar vel en hljómurinn í verkinu minnir helst á þegar einhver hring- ir óvart í mann án þess að vita af því og maður heyrir óm af lífi einhvers nánast óþolandi lengi og getur ekki sagt honum að leggja á. Auðvitað getur sýningargesturinn hætt að hlusta og þegar staðið er í miðju rýminu blandast upptökurnar saman ásamt þeim umhverfishljóðum sem salurinn sjálfur býður upp á. Verk Júlíu Emblu sem ber titilinn Af lífi og sál er annars vegar skúlptúr sem vísar í hjólabrettamenningu og hins vegar myndbandsverk sem inniheldur efni frá ýmsum ferðalögum og er ætlað að gefa til- efni til hugarflugs. Myndbandið nær enda að lyfta upp huganum og er sérlega skemmtilegt í samspili við kringlóttan glugga listasalarins sem sýnir lífið fyrir ut- an safnið. Í heildina nær sýningin þó ekki flugi þrátt fyrir ágætan efnivið, hvorki sjónrænt né hugmyndalega. Heildarupplifunin sem innsetningin byggist á nær ekki að vera nógu afgerandi til að verða áhugaverð né eftirminnileg. Sumar hugmyndir virka ein- faldlega mun betur orðaðar á blaði en í raunveruleikanum og einblöðungurinn sem fylgir sýningunni er upplýsandi og til fyr- irmyndar. Ómur af hversdagslegri tilveru Árvakur/RAX Listasalur Mosfellsbæjar „Verkið sem hér um ræðir ber titilinn Klukkustundir og sam- anstendur af upptökum úr daglegu lífi átta einstaklinga.“ MYNDLIST Listasalur Mosfellsbæjar, Kjarna, Þverholti 2 Sýningu lokið. Þórunn Björnsdóttir og Júlía Embla Katrínardóttir bbnnn Þóra Þórisdóttir STÓRSVEIT Reykjavíkur heldur tónleika í Ráðhúsi Reykjavíkur annað kvöld kl. 20:30. Stjórnandi og höfundur tónlistar verður að þessu sinni hin þýska Maria Babtist, en hún hefur vakið mikla athygli í Evrópu á undanfrörnum árum. Maria hefur m.a. samið fyrir og stjórnað þýsku útvarpsstórveit- unum í Köln og Hamborg. Sömuleiðis hefur Stórsveit danska ríkisútvarpsins flutt verk eftir hana. Babt- ist er prófessor í tónsmíðum við Hanns Eisler tón- listarháskólann í Berlín og virkur djasspíanóleik- ari. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Tónlist Stórsveitin og Maria Baptist Maria Baptist

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.