Morgunblaðið - 18.02.2008, Síða 30
30 MÁNUDAGUR 18. FEBRÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ ER EKKERT
ERFITT AÐ VEIÐA...
MAÐUR HALLAR SÉR
BARA AFTUR OG KASTAR
SÍÐAN ÖSKRAR MAÐUR
ÞANGAÐ TIL HJÁLP BERST
SÚKKULAÐIMOLI OG
KLAPP Á BAKIÐ
HVER ER
LÆKNINGIN
VIÐ RANGHUG-
MYNDUM? GAMLI,
GÓÐI
KALLI
ÉG VAR ALDREI HRIFINN AF
ÍS Í BRAUÐFORMI, EN ÞÁ
FANN ÉG NÝJA
LEIÐ TIL AÐ
BORÐA HANN
ÉG BÍT BOTNINN AF OG
SÍÐAN ÞEGAR ÍSINN
VERÐUR LINUR ÞÁ SÝG ÉG
HANN ÚT
ÞAÐ GETUR ORÐIÐ FREKAR
SUBBULEGT OG ÓGEÐSLEGT.
SÉRSTAKLEGA ÞEGAR
BRAUÐFORMIÐ ER ORÐIÐ
BLAUTT OG ÍSINN ER
KOMINN ÚT
UM ALLT
MATUR ÆTTI
AÐ VERA
NÆRINGA-
RÍKUR OG
SKEMMTI-
LEGUR
ÞESS VEGNA
VILJA
TÍGRISDÝR AÐ
MATURINN
ÞEIRRA SÉ Á
HLAUPUM
HELGA, MEINDÝRAEYÐIRINN
VILL FÁ AÐ VITA HVAR MAURARNIR
HAFA VERIÐ AÐ HALDA SIG
ÞESSAR
KEPPNIR ERU
SVO ASNALEGAR!
ÞÆR ERU BARA
FYRIR ASNALEGA
SNOBBHUNDA!
ÞAÐ STENDUR HÉR AÐ
SÁ HUNDUR SEM
VINNUR KARLAKEPPNINA
FÁI Í VERÐLAUN
STEFNUMÓT MEÐ LASSÍ
AFSAKIÐ...
HVAR GET
ÉG SKRÁÐ
MIG Í ÞESSA
ÆÐISLEGU
KEPPNI?
KRAKKAR, VERKFALLIÐ ER
BÚIÐ! ÞIÐ GETIÐ LOKSINS
FARIÐ Í SKÓLANN Á MORGUN!
FRÁBÆRT!
VIÐ ÆTLUÐUM EKKI AÐ
SEGJA ÞETTA...
ÉG LOFA AÐ
SEGJA ENGUM
EKKI HAFA
ÁHYGGJUR,
ELSKAN. ÞAÐ Á
EKKERT SLÆMT
EFTIR AÐ GERAST
AF HVERJU
LÍÐUR MÉR ÞÁ
EINS OG ÞAÐ
SÉ KVIKNAÐ
Í HÚSINU
KÓNGULÓARMAÐURINN
HEFUR ÖRUGGLEGA KOMIÐ
TIL L.A. Í LEIT AÐ MÉR
AÐ FINNA DR. OCTOPUS VERÐUR
ÞAÐ SÍÐASTA SEM HANN GERIR
EKKI LANGT FRÁ...
dagbók|velvakandi
Rassskellta svíður í rassinn
UNGUR handknattleiksmaður hér í
Hafnarfirði mátti þola rassskellingu
eftir að hafa leikið sinn fyrsta lands-
leik. Það er jú einu sinni siður á þeim
bæ. Nokkrum dögum síðar sveið
hann enn í rassinn! Þetta virðist
vera meinið hjá Samfylking-
armönnum í Reykjavík, þá svíður
enn í rassinn eftir skellinn frá þeim
félögum Óla og Villa. Þeim er mikið
umhugað um að menn axli ábyrgð en
gleyma því að þeir áttu sjálfir stóran
þátt í því sem nú er farið að kalla
REI-hneykslið. Eini flokkurinn sem
er með hreinan skjöld í þessu máli
eru Vinstri grænir. En það dugir
greinilega ekki Svandísi Svav-
arsdóttur sem er að springa úr reiði
og mætti því halda að hún hafi feng-
ið sinn skerf af rassskellingunni. Það
merkilega við þetta mál er að or-
sakavaldurinn, Sjálfstæðisflokk-
urinn, virðist ætla að skaðast mest af
þessu skrítna máli þrátt fyrir að
hafa náð völdum í borginni á nýjan
leik. Fylgið hrynur af þeim. Höf-
uðpaurinn, Björn Ingi Hrafnsson,
hafði vit á að láta sig hverfa þó að
hann bæri öðrum ástæðum við,
þ.e.a.s. hinu einstaka hnífamáli
Framsóknarflokksins. Vilhjálmur
hefði átt að gera slíkt hið sama og
mun væntanlega gera það þegar bú-
ið er að finna nýtt starf fyrir hann.
Vilhjálmur var um árabil fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
sveitarfélaga og vann þar gott starf
og naut trausts og virðingar. Honum
er því ekki alls varnað. Dagur B.
Eggertsson gengur um eins og ný-
þveginn heilagur maður nýstiginn
upp úr ánni Jórdan, en það er skarn
undir skinni hjá honum eins og öðr-
um fulltrúum Samfylkingarinnar.
Vonandi endist Ólafi borgarstjóra
heilsa til að klára verkefnið sem til
var stofnað og sjálfstæðismönnum
að ná vopnum sínum á nýjan leik.
Með kærri kveðju úr kratabælinu.
Hermann Þórðarson
Nepótisminn
Hinn 12. febrúar sl. birtist í Morg-
unblaðinu grein eftir bæjarstjóra
Bolungarvíkur um byggðastefnu við
Austurvöll og í dreifbýli. Í úrdrætti
sem birtur var með greininni var tal-
að um „nepótismann“ og hætti ég þá
að lesa enda erindið auðsýnilega
ekki ætlað hverjum sem er. Ég verð
að viðurkenna að ég er ekki mjög
sleipur í dönsku þannig að ég veit
ekkert hvað þessi sjúkdómur heitir á
íslensku og því vart dómbær um efn-
ið.
Er hugsanlegt að Morgunblaðið
geti þýtt svona flott erlend orð og
sett þýðinguna í sviga þannig að eft-
ir sem áður sjái allir að greinarhöf-
undur er hámenntaður og for-
framaður?
Virðingarfyllst,
Lúðvík Vilhjálmsson
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Á Íslandi lifa tvær tegundir skarfa, dílaskarfur og toppskarfur. Þeir eru
fiskætur og flinkir veiðifuglar. Áður fyrr vísuðu þeir sjómönnum á fisk
meðan engin fiskleitartæki voru til.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Hraukur, hrókur eða sæhrafn
FRÉTTIR
Á FÖSTUDAG, 15. febrúar, var
formlega stofnuð Rannsókn-
arstofa í íþrótta- og heilsufræðum
við íþróttafræðasetur Kennarahá-
skóla Íslands á Laugarvatni. Við
athöfn í húsakynnum KHÍ á Laug-
arvatni var markmið og hlutverk
þessarar nýju rannsóknarstofu
kynnt og skrifað undir samning
vegna stofnunar og rekstrar.
Tilgangur með Rannsókn-
arstofu í íþrótta- og heilsufræðum
er að eiga frumkvæði að og efla
rannsóknir á sviði íþrótta- og
heilsufræða og veita rannsókn-
arþjónustu og ráðgjöf. Einnig að
standa fyrir ráðstefnum, mál-
þingum, námskeiðum og útgáfu á
sviði íþrótta- og heilsufræða.
Erlingur Jóhannsson, prófessor
og ábyrgðarmaður Rannsókn-
arstofunnar, segir, að nú þegar sé
unnið að verkefnum, sem snúist
um hreyfingu grunnskólabarna
og framhaldsskólanema og auk
þess sé stórt verkefni í gangi
varðandi þjálfun aldraðra. Sagði
hann, að þá yrði um að ræða ýmis
verkefni tengd afreksmennsku og
stefnt að því að tengja rannsókn-
arvinnuna sem mest við gras-
rótina.
Samið Erlingur Jóhannsson, forstöðumaður Íþróttafræðaseturs KHÍ á
Laugarvatni og Ólafi Proppé rektor KHÍ innsigla samkomulagið.
Rannsóknarstofa í
íþrótta- og heilsufræðum