Morgunblaðið - 18.03.2008, Page 8

Morgunblaðið - 18.03.2008, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÁ ÁRSBYRJUN hafa orðið 35 vélsleðaslys hér á landi og hefur slysunum fjölgað síðustu ár sam- hliða aukinni vélsleðaeign. Sam- kvæmt upplýsingum frá lögreglu hafa alls 358 einstaklingar slasast í vélsleðaslysum síðustu tíu ár og sex látist frá aldamótaárinu 2000. Þetta kemur fram í samantekt Forvarnahúss Sjóvár, sem hvetur vélsleðafólk til að sýna fyllstu að- gætni um páskahátíðarnar. Er þar m.a. minnt á að þótt GPS-staðsetn- ingartæknin sé góð geti óná- kvæmnin verið frá 3-11 metra. Þá sé mikilvægt að halda hópinn breyt- ist veður skyndilega og halda kyrru fyrir verði einhver viðskila. Morgunblaðið/Ómar Á ísbreiðunni Mörgum þykir ómissandi að fara á vélsleða um páskana. Hvetur vélsleðafólk til að sýna fyllstu aðgætni um páskana FORMLEG opnun Fótaaðgerða- skóla Íslands fór fram hinn 29. febrúar sl. Skólinn er hluti af snyrtiakademíunni í Kópavogi og eru 10 vaskar konur fyrstu nem- endurnir. Margir góðir gestir glöddu skól- ann með nærveru sinni á opn- unardaginn, þeirra á meðal Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, en hann og Kristín Gunnarsdóttir, skólastjóri skólans, klipptu á borða og opnuðu skólann formlega. Klippt Gunnar I. Birgisson og Kristín Gunnarsdóttir Fótaaðgerða- skóli opnaður VÍSINDASIÐANEFND hefur ráðið dr. Eirík Bald- ursson í starf framkvæmdastjóra nefndarinnar. Eiríkur lauk fil. kand. prófi frá Gautaborgarhá- skóla árið 1979 með áherslu á vísindafræði en fé- lagsfræði og hagfræði sem aukagreinar. Að námi loknu starfaði hann hjá rannsóknaráði ríkisins og vísindaráði til ársins 1994. Eiríkur vann hjá mennta- málaráðuneytinu frá árinu 1994 þar sem hann hefur starfað lengst sem sérfræðingur á skrifstofu vísinda- mála ráðuneytisins og árin 1997-2001 gegndi hann stöðu vísindafulltrúa hjá fastanefnd Íslands hjá Evr- ópusambandinu. Hann hefur frá árinu 2004 verið ritari Vísinda og tækniráðs. Hjá vísindasiðanefnd starfa þrír menn. Starfsemin hefur farið vax- andi undanfarin ár og samkvæmt nýrri reglugerð um störf hennar er ljóst af umfang starfseminnar á enn eftir að aukast á næstu árum. Til starfa hjá vísindasiðanefnd Eiríkur Baldursson GUÐNI Ágústsson, formaður Fram- sóknarflokksins, hélt stjórnmála- fund á Kanaríeyjum um helgina og sóttu hann um 360 manns. Guðni kvaðst á fundinum hafa áhuga á að styrkja eldri borgara til þess að dveljast á Kanaríeyjum að vetri til. Margir sjúkir, sem væru þar, hættu töku á ýmsum dýrum lyfjum og hlyt- ist af því sparnaður. Guðni á Kanarí KISTAN.IS efnir til málþings um netmiðla í dag, þriðjudag, kl. 16.30- 18 í Reykjavíkurakademíunni, Hringbraut 121. Framsöguerindi heldur Gauti Sigurþórsson menningafræðingur en hann hefur sérstaklega kannað nýjustu þróun í heimi fjölmiðla í tengslum við störf sín í Bretlandi. Elín Hirst, fréttastjóri RÚV- sjónvarps, og Pétur Gunnarsson, ritstjóri Eyjan.is, munu taka þátt í pallborðsumræðum. Þröstur Helga- son stýrir umræðum. Rætt um netmiðla Í KVÖLD, þriðjudag kl. 20, heldur Femínistafélag Ísland karlakvöld á Grand Rokk undir yfirskriftinni: Andfemínismi – er í lagi að hata femínista? Erindi flytja: Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi, Katrín Odds- dóttir, sérfræðingur í mannrétt- indum, og Atli Gíslason alþing- ismaður. Fundarstýra er Magga Pé. Karlakvöldið er hluti af 5 ára af- mælisdagskrá Femínistafélags Ís- lands. Karlakvöld STUTT „SKATTADAGUR“ verður á morg- un, 19. mars, í Alþjóðahúsinu og þá munu laganemar Háskólans í Reykjavík ásamt sérfræðingum frá Deloitte aðstoða erlenda einstakl- inga við gerð skattframtala frá kl. 9:00 til 21:00. Sl. ár hefur Lögrétta, félag laga- nema við Háskólann í Reykjavík, boðið innflytjendum upp á lög- fræðiaðstoð þeim að kostn- aðarlausu. Í ljós kom að á því tíma- bili sem skattgreiðendur skila framtölum sínum annaði kerfið ekki því að aðstoða alla þá sem þurftu framtalsleiðbeiningar. Var það kveikjan að samstarfi Lög- réttu, Alþjóðahúss og Deloitte. „Skattadagur“ í Alþjóðahúsi FERMT var í þjóðkirkjunni í Hafnarfirði á sunnudag og var það fyrsta fermingin, sem þar fer fram eftir þær miklu endurbætur, sem á henni hafa verið gerðar. Prestar voru þeir Gunnþór Þ. Ingason og Þórhallur Heimisson. Var myndin tekin við athöfnina í fyrradag. Morgunblaðið/Eggert Fyrsta ferming eftir endurbætur Verð: 5.980,- Verð: 12.990,- „VIÐ teljum að þetta sé jafn öruggt og nokkuð getur verið í þess- um efnum,“ segir Júlíus Jónsson, framkvæmda- stjóri Hitaveitu Suðurnesja (HS) um getu fyrir- tækisins til þess að afla orku fyrir fyrsta áfanga álversins í Helguvík. Í tilkynningu frá HS segir að samn- ingar við Norðurál um útvegun ork- unnar liggi fyrir og allt bendi til þess að auðvelt verði að standa við samn- inga. Hlutur hitaveitunnar í orkuöfl- un fyrir fyrsta áfangann verður á bilinu 100-150 MW. Nú þegar fram- leiðir hún 175 MW sem samningar gilda um en þar af eru samningar lausir fyrir 35 MW árið 2011. Gufuöflun fyrir þriðju vélina í orkuverinu á Reykjanesi er að sögn Júlíusar langt komin, en sú vél verð- ur 50 MW. Þá er á teikniborðinu að vinna önnur 50 MW úr 700 sekúndu- lítrum 200°C heits affallsvatns á Reykjanesi og að ráðast í gerð 35-50 MW virkjunar við Eldvörp. Rannsaka fjögur svæði Fyrir annan áfanga virkjunarinn- ar þarf samkvæmt samningi að af- henda önnur 100-150 MW, segir í til- kynningunni. HS hafi rannsóknarleyfi á fjórum svæðum sem samanlagt séu talin geta gefið af sér 400 MW afl. Þess sé vænst að rannsóknarboranir geti hafist í lok ársins en unnið sé að skipulagsmál- um með viðkomandi sveitarfélögum í þeim málum. Einnig segir Júlíus að skv. upplýs- ingum frá Orkuveitu Reykjavíkur, sem einnig hefur samið við Norðurál um afhendingu raforku til Helguvík- ur, sé ráðgert að framleiða um 300 MW árin 2010-2011 á Hengilssvæð- inu. Samningur OR, sem samþykkt- ur er af stjórn fyrirtækisins, geri því ráð fyrir aðeins þriðjungi þess magns til Helguvíkur. „Við teljum því ekki tilefni til að halda því fram að mikil óvissa ríki um orkuöflunina,“ segir Júlíus. Segir ekki óvissu um orkuöfl- un HS fyrir álver í Helguvík Júlíus Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.