Morgunblaðið - 18.03.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 18.03.2008, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á ÍSLANDI er skóli án aðgrein- ingar yfirlýst stefna skólayfirvalda og grunnskólum ber skylda til að starfa samkvæmt henni. Meg- ináherslan er að tryggja fullgilda þátt- töku allra nemenda og jafnrétti til náms (Stefna fræðsluráðs Reykjavíkur um sér- kennslu, 2002). Starfs- fólki í skólum er jafn- framt ætlað að tileinka sér viðhorf og þekk- ingu sem samræmast stefnu um skóla án að- greiningar og starfa samkvæmt þeim. Það er því ljóst að gífurleg krafa er gerð til fag- mennsku kennara. Endurmenntun er nauðsynlegur liður í starfi kennarans til að hann eflist og bæti sífellt nýrri þekkingu ofan á reynslu sína. Framhaldsnám grunnskólakennara á sviði skóla- mála er eitt grundvallaratriði þess að grunnskólinn geti risið undir þeim kröfum sem lagðar eru á herðar hans og haldi áfram að vera einn af hornsteinum samfélagsins. Allar rannsóknir sýna fram á að þekking og viðhorf kennara skiptir mestu máli þegar kemur að framþróun stefnu um skóla án að- greiningar. Flott og dýr aðstaða, s.s. ný skólahús, sérhannaðar bygg- ingar, tæki og tól eru nær einskis- verð ef starfsfólk skóla býr ekki yfir nægilegri þekkingu, þjálfun og réttu viðhorfi. Það er því mikilvægt að kennarar sem leggja metnað sinn í að starfa eftir Aðalnámskrá geti með góðu móti bætt við menntun sína og þekkingu til að velferð nemenda sé ávallt í forgrunni. Jafnframt skiptir máli að átta sig á að fagleg þekking kennara byggist á því að vera sífellt móttækilegur fyrir breytingum og hrinda burt hindrunum sem koma í veg fyrir þátttöku allra nemenda. Því verða kennarar markvisst að lesa sér til, sækja námskeið og ræða saman um nýja þekkingu og lausnir. Eftir þriggja ára kennslu fannst mér nauðsynlegt að fara í fram- haldsnám til að geta betur mætt þörfum nemenda minna. Ég valdi sérkennslufræði vegna þess að í raun þurfa allir kennarar að sinna sérkennslu í dag inn í hinum al- menna bekk og einkum umsjónarkennarar. Námið er frábært og tekur á mörgum þátt- um sem ég hafði áður ekki haft kunnáttu til að bregðast við. Fram- haldsnám í sér- kennslufræðum ætti í raun að vera hluti af grunnnámi allra kenn- ara því krafa um hæfni þeirra er sífellt að aukast. Það ætti vissu- lega að skila okkur betri þjónustu fyrir nem endur og foreldra. Kennarar geta sótt styrk til náms á tvenns konar vettvangi. Annars vegar til þess sveitafélags sem þeir starfa hjá og hins vegar til Kenn- arasambandsins. Styrkirnir geta verið fólgnir í ákveðinni upphæð fyr- ir ákveðnar einingar og verkefni eða sem laun yfir einn vetur fyrir fullt nám. Eftir þrjá vetur í þessu námi ásamt fullri kennslu hef ég náð að ljúka 30 eininga diplomanámi. Það vita allir sem hafa reynt að slíkt álag er nokkuð slítandi og varla boðlegt fjölskyldu manns nema bara í ákveð- inn tíma. Ég ákvað því að sækja um launað starfsleyfi til Reykjavík- urborgar og Kennarasambandsins til að geta lokið við námið á einum vetri og komið fílefld aftur til starfa. Í umsókninni fjallaði ég um brenn- andi áhuga minn og áherslur sem hafa það eitt að markmiði að skila betri þjónustu við börn og foreldra. Ég lagði ríka áherslu á að menntun mín myndi skila sér í beinum sam- skiptum við nemendur og ég hefði mestan áhuga á almennri kennslu. Ég tel mikilvægt að kennarar sem sækja framhaldsmenntun haldi áfram að starfa á „akrinum“ en hverfi ekki eingöngu í störf ráðgjafa og nefnda þó að það sé auðvitað mik- ilvægt einnig. Það er skemmst frá því að segja að ég fékk synjun frá báðum aðilum. Forsendurnar voru þær að ég hefði ekki kennt í 10 ár en það er sett fram sem skilyrði til að umsóknin sé svo mikið sem lesin yf- ir. Hefði umsókn minni verið synjað á þeim grundvelli að hagur nemenda hefði fyrst og fremst verið hafður að leiðarljósi og hvað kæmi þeim best gæti ég ekki gert við það nokkrar at- hugasemdir enda eigum við alltaf að stefna að því að gera skólann og starfsfólk hans betur í stakk búið til að þjónusta nemendur. Ungir kenn- arar sem hafa kennt í þrjú til sex ár hafa viðað að sér mikilvægri reynslu og eru því oft afar tilbúnir að bæta við sig framhaldsmenntun. Þessir kennarar eru í flestum tilvikum ferskir í starfi, frjóir í hugsun og starfa af miklum krafti og elju. Að sama skapi eru þeir að eignast og ala upp börn og því mikið að gera hjá þessum kennarahópi. Þess heldur á að styðja þennan hóp í að sækja sér aukna menntun því það skilar sér til baka. Að sjálfsögðu á að meta hverja umsókn með það fyrir augum að bæta grunnskólann og skila árang- ursríku og faglegu skólastarfi undir formerkjum stefnu um skóla án að- greiningar. Það getur ekki gerst með því að skilyrða kennara til að kenna í a.m.k. 10 ár áður en þeir eiga raunhæfa möguleika á að fá launað starfsleyfi. Slíkar forsendur eru letj- andi og ófaglegar og grunnskólanum sannarlega ekki til framdráttar. Stuðningur við fram- haldsmenntun kennara: Einkennileg skilyrði Helga Helgadóttir skrifar um stöðu ungra kennara sem hyggja á framhaldsnám » Fjallað er um stuðn- ing við unga kenn- ara sem vilja sækja sér framhaldsmenntun. Sveitarfélögin og KÍ setja það sem skilyrði að hafa kennt í 10 ár. Helga Helgadóttir Höfundur er grunnskólakennari, nemi í sérkennslufræðum við KHÍ og þriggja drengja móðir. MORGUNBLAÐIÐ er nokkuð sérstakur fjölmiðill. Í aðra röndina er það málgagn Sjálfstæðisflokks- ins en þegar vafi leikur á því hvort sjónarmið flokksins fara saman með sjón- armiðum ritstjóra blaðsins, þá nýtur ritstjórinn vafans. Prinsipp af þessu tagi eru okkur vinstri grænum vel kunn. Það er t.d. bjargföst trú okkar að náttúr- an eigi að njóta vaf- ans þegar um fram- kvæmdir í viðkvæmri náttúru landsins er að ræða og vafi leik- ur á um áhrifin. Það er því engin sérstök ástæða til að gera athugasemdir við prinsippið sem slíkt, enda fara lesendur ekki í grafgötur um að eftir því er unn- ið á ritstjórn Morgunblaðsins. Það er hins vegar full ástæða til að gera athugasemd við sjón- armiðin sem hreyft er í Reykjavík- urbréfi Morgunblaðsins 16. mars sl., þar ræður för einhver und- arlegur taugatitringur ritstjóra blaðsins í garð okkar vinstri grænna, sem er svo sem ekki nýr af nálinni. Í bréfinu sakar hann okkur um skort á pólitískum kjarki til að taka afstöðu gegn Samfylkingunni, jafnt á Alþingi sem í borgarstjórn, enda séum við í „sálrænum fjötrum“ gagnvart henni. Nú er það öllum lesendum ljóst að Samfylkingin er í ríkisstjórnarsam- starfi við Sjálfstæð- isflokkinn og Vinstri- hreyfingin – grænt framboð ber enga ábyrgð á því samstarfi. Það liggur svo sem ekki fyrir hvort rit- stjóri Morgunblaðsins var hafður með í ráð- um við ríkisstjórn- armyndunina en ekki er það nú líklegt, ef marka má tóninn í skrifum hans. Hvað ritstjóranum gengur til með því að leita með þessum hætti eftir stuðningi okkar vinstri grænna í baráttu sinni gegn sam- starfsflokknum Samfylkingunni skal ósagt látið en þó má ætla að þar liggi undir djúpstæð löngun ritstjórans til að sjá okkur vinstri græn í einni sæng með Sjálfstæð- isflokknum, helst sem víðast, og ekki síður vonbrigði ritstjórans yf- ir því að ekki tókst að fá Svandísi Svavarsdóttur til að svíkjast undan merkjum í samstarfi þriggja borg- arstjórnarflokka fyrir skemmstu og taka að sér ömurlegt hlutverk núverandi borgarstjóra til að koma Sjálfstæðisflokknum aftur að stjórn borgarinnar. Varðandi ávirðingarnar sem rit- stjórinn setur fram gagnvart okk- ur í Reykjavíkurbréfinu skortir mikið á að VG fái að njóta sann- mælis. Þingflokkur Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs hef- ur beitt sér af hörku í öllum þeim málum sem nefnd eru í Reykjavík- urbréfinu; s.s. varðandi Evrópu- sambandsaðild og þátttöku Íslend- inga í hernaðaraðgerðum hvers konar, þ.m.t. ferð utanrík- isráðherra til Afganistans. Ekki hefur heldur staðið á þingflokki VG að gagnrýna áframhaldandi stóriðjuuppbyggingu og stefnu- leysið í náttúruverndar- og lofts- lagsmálum. Um þetta vitna bæði umræður á Alþingi og ummæli einstakra þingmanna í fjölmiðlum. Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð mun hér eftir sem hingað til veita ríkisstjórninni aðhald og gagnrýna einstaka ráðherra fyrir hvaðeina sem stríðir gegn þeirri pólitík sem við berjumst fyrir, sama hvort þeir koma úr Sjálf- stæðisflokki eða Samfylkingu. Þessi ríkisstjórn hefur ekki fengið og mun ekki fá að ryðja einkavæð- ingu braut í heilbrigðis- og menntakerfinu án þess að svara fyrir þær gjörðir á Alþingi Íslend- inga. Hún mun ekki fá að fórna fleiri náttúrugersemum á altari stóriðjunnar án þess að þurfa að svara fyrir það á Alþingi Íslend- inga. Hún mun heldur ekki fá að leiða þjóðina lengra inn á braut hernaðarhyggju eða múra hana inn í innsta kjarna NATÓ- samstarfsins án þess að svara fyrir það á Alþingi Íslendinga. Þing- flokkur VG mun í þessari baráttu nota öll tækifæri sem bjóðast burt- séð frá því hvað ritstjóra Morg- unblaðsins finnst um frammistöðu okkar í þeim efnum, og burtséð frá því hvort þeirri baráttu okkar verða gerð sanngjörn skil á síðum Morgunblaðsins eða ekki. Um pólitísk tækifæri Kolbrún Halldórsdóttir gerir athugasemdir við Reykjavík- urbréf Morgunblaðsins » Þingflokkur VG mun í þessari baráttu nota öll tækifæri sem bjóðast burtséð frá því hvað ritstjóra Morg- unblaðsins finnst um frammistöðu okkar í þeim efnum … Kolbrún Halldórsdóttir Höfundur er þingmaður Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. SIGURÐUR Kári Kristjánsson, alþingismaður sýnir mér þann heiður að kalla mig „kappsfullan Evrópusinna“ sem beiti almenning blekkingum í grein sem Morg- unblaðið birtir á miðopnu sinni. Ástæða þess að alþingismaðurinn ber mig þessum þungu sökum er sú að ég hafði eftir Olli Rehn, um- sjónarmanni samningaviðræðna við ríki sem sækja um aðild að Evr- ópusambandinu, að EES samning- urinn næði til þriggja fjórðu hluta lagasetn- ingar ESB. Rehn sagði að viðræður um hugsanlega aðild Ís- lands að Evrópusam- bandinu gætu tekið skamman tíma enda þyrfti einungis að ræða málefni sjávar- útvegs- og landbún- aðar. Sigurður Kári er lærisveinn Davíðs frænda míns Odds- sonar. Saman notuðu þeir „smjörklípuaðferðina“ á al- þingi hér um árið þegar Sigurður Kári spurði hve stóran hluta lög- gjafar ESB Ísland hefði tekið upp. Svar þáverandi utanríkisráðherra var vandað í alla staði og fylgdi mikil talnaruna sem er uppistaða greinar Sigurðar Kára. Davíð var á sínum pólítíska ferli snillingur í því að skipta um umræðuefni þeg- ar honum hentaði: að beina athygl- inni að aukaatriði til að beina at- hyglinni frá kjarna málsins. Í Matthildarþáttunum stórsnjöllu í útvarpinu kallaði hann þetta hné- aðferðina í eftirminnilegum brand- ara. Mér dettur ekki í hug að fara að rökræða við Sigurð Kára um fjölda laga og reglugerða. Sigurður Kári má mín vegna eyða ævi sinni í að telja öll lög og jafnvel ólög Evr- ópusambandsins. Lög og gerðir ESB eru margvísleg og Ísland tek- ur að sjálfsögðu ekki upp reglur um ólífurækt og lestarsamgöngur svo dæmi séu tekin. Nóg er það samt: Evrópusambandið tekur ákvarðanir um allt sem viðkemur innri markaðnum og lýðveldið Ís- land hefur álíka áhrif á mótun slíkra laga og hver annar þrýsti- hópur í Brussel. Túlkunin á EES samningnum hefur breyst frá því hann var samþykktur. Þeim sviðum sem nú eru talin tilheyra innri markaðnum hefur fjölgað, þannig að til dæmis flestallt sem skiptir máli í umhverf- ismálum er ákveðið í Brussel. Hvað sem talnaleik Sigurður Kára líður er staðreyndin sú að vilji Íslendingar móta sína eigin framtíð, gerum við það með því að ganga í Evrópusam- bandið þar sem við deilum fullveldi okkar með öðrum þjóðum í stað þess að afhenda þeim það. Hver þjóðin á fætur annarri hefur geng- ið í Evrópusambandið á und- anförnum árum. Getur Sigurður Kári útskýrt fyrir mér hvers vegna ekki einu einasta sjálfstæðu ríki hefur svo mikið sem dottið í hug að gerast aðili að EES samn- ingnum? Samkvæmt skilgrein- ingum þingmannsins hafa þessi ríki verið að afsala sér fullveldi sínu. Samkvæmt skilgreiningu hans og fylgismanna hans eru Stóra-Bretland, Þýskaland og Frakkland sem sagt ekki fullvalda ríki! Hefur einhver sagt Brown, Sarkozy og Merkel frá þessu?! Davíð frændi minn fékk Tryggva Herbertsson á sínum tíma til að reikna kostnað við aðild Íslands að Evrópusambandinu. Tryggvi reiknaði og reiknaði, rétt eins og Sigurður Kári telur nú og telur, ákaft hvattur áfram af frænda mínum í Svörtuloftum. Svo mikið hamaðist Herbertsson að hann komst að því Ísland myndi greiða meira til Evrópusambandsins en nokkurt ríki hefur nokkru sinni greitt þangað. Í skýrslu Evrópunefndar for- sætisráðherra eru reikningskúnstir Tryggva hins vegar gleymdar. Í skýrslu nefndarinnar sem Björn Bjarnason stýrði er komist að þeirri niðurstöðu að nettógreiðslur okkar til ESB verði sáralitlar og sé kostnaðurinn við aðildina að EES dreginn frá – kunni ESB að vera ódýrara en EES. Þetta er ekki mín niðurstaða heldur niðurstaða Björns Bjarna- sonar dómsmálaráðherra og sam- nefndarmanna hans úr öllum stjórnmálaflokkum. Ég skil vel reiði Sigurðar Kára yfir því að sí- fellt fleiri samflokksmenn hans hafa snúist á sveif með aðild að Evrópusambandinu. Ég vísa því á bug að ég hafi reynt að beita al- menning blekkingum. Hins vegar ætla ég ekki að erfa þennan mál- flutning við alþingismanninn enda ljóst að það hlýtur að taka á taug- arnar að verja stefnu sem fært hefur okkur hæstu vexti og hæsta matarverð á byggðu bóli. Ég ráð- legg mínum gamla kunningja Sig- urði Kára að lesa Evrópuskýrslu Björns Bjarnasonar því þar kemur fram að kostnaður við ESB aðild er ekki umtalsverður, engar þjóðir eiga heimtingu á fiskveiðiheim- ildum við Ísland og að tollavernd landbúnaðar standist ekki til lengdar burtséð frá ESB. Vonandi skilur Sigurður Kári að Ísland á aðeins einn kost og hann góðan: að ganga í Evrópusambandið. Sigurður Kári og hnéaðferðin Eftir Árna Snævarr Árni Snævarr »…það hlýtur að taka á taugarnar að verja stefnu sem fært hefur okkur hæstu vexti í heimi og hæsta mat- arverð á byggðu bóli. Höfundur er sagnfræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.