Morgunblaðið - 18.03.2008, Side 29

Morgunblaðið - 18.03.2008, Side 29
í hjarta okkar og munum passa elsku ömmu Ingu Möggu fyrir þig og við vitum að Guð mun passa þig uppi á himninum. Þín elskulegu afabörn Haukur og Margrét. Góður drengur er fallinn frá svo allt of, allt of snemma. Við hérna megin sitjum eftir og spyrjum hissa hvers vegna í ósköpunum. Er það virkilega sanngjarnt að Magga mág- kona sé aftur orðin ekkja aðeins 50 ára. Ég sem þessar línur skrifa hef þó alltaf verið þakklát þessum þarna uppi fyrir að senda Peter Jones til Grímseyjar þegar Lalli bróðir var fyrirvaralaust kallaður í burtu frá Möggu sinni, Þóru og Kára. Ekki voru nú allir alveg sáttir þeg- ar Pétur kom með stóra, hlýja faðm- inn sinn. Þá er ég fyrst og fremst að tala um gamla Óla Bjarnason en fljótlega tókst Pétri að vinna hug og hjarta Óla gamla. Ég minnist þess þegar Pétur var að róa á trillunni sinni í Grímsey hvað pabbi fylgdist vel með hvernig gekk. Hann kom glaður frá bryggjunni í Grímsey og sagði ,,Það var bara gott fiskerí hjá Pétri mínum í dag“ eða: ,,Þetta var ekki nógu gott hjá Pétri mínum, bara to hundrað kíló“. Já, Pétur kom til Grímseyjar með stóra faðminn sinn og gekk börnun- um hans Lalla í föðurstað. Stundum fannst mér hann full-harður uppal- andi en þegar Helgi Pé bættist í hóp- inn skildi ég hvað Pétur var að gera því Helgi Pé, sem var strax mjög duglegur, fékk nákvæmlega sama uppeldi. Þegar nú er komið að sárri skilnaðarstund hópast minningarnar fram. Ég minnist þess þegar Magga og Pétur komu í ferminguna hjá Jóni Gauta. Allt átti að vera klárt og þau áttu bara að vera gestir en eitthvert hugboð sagði mér að biðja Pétur að aðstoða kokkinn sem hann og fúslega gerði. Það átti að nota sherrý í sós- una og auðvitað var það keypt eins og allt annað fyrir veisluna þá arna. Fljótlega eftir að matseldin hófst hringdi kokkurinn og sagði að það vantaði meira sherrý. Auðvitað fór ég á stúfana og reddaði meiru. Þegar ég svo kom með sherrýið hvíslaði Pétur að mér: ,,hann vera fullur“ og þá skildi ég í hvað sherrýið hafði far- ið. Já Pétur var listagóður kokkur enda útlærður í henni stóru London og víðar. Þegar Pétur veiktist síðastliðinn áramót tókst mér að heimsækja hann inn á gjörgæsluna. Þá kynnti ég mig eiginlega sem systur hans. Kannski þá skildi ég hvað þessi góði drengur hafði verið í mínu lífi, Hann hreinlega kom í staðinn fyrir Lalla bróður. Núna vil ég þakka Pétri hvað honum tókst listavel uppeldið á Þóru, Kára og Helga Pé. Ég bið góðan Guð að styrkja Möggu mágkonu í hennar sálar sorg, börnin þeirra og barna- börnin sem svo sannarlega eru að missa af stóra, góða faðminum hans Peters Jones. Birna mágkona. Esku besti afi minn Núna ertu kominn til englanna á himninum og ég á eftir að sakna þín svo mikið. Ég er ennþá svo lítil að ég er ekki alveg að skilja að þú komir ekki aftur til mín. Í dag þegar mamma spurði hvort ég vissi hver væri að koma að ná í mig til að passa mig kallaði ég „afa“ og var þvílíkt glöð því ég held að þú komir alltaf aftur til mín því þú hefur alltaf komið aftur þó svo að ég sjái þig ekki í ein- hverja daga. Betri afa en þig er ekki hægt að hugsa sér og aldeilis margt sem við höfum gert saman þennan stutta tíma sem við höfum haft. Ekki eru allir jafn heppnir og ég að fá að hafa afa sem einkabarnapíu en eftir að þú fórst í veikindafrí frá vinnunni hafðir þú endalausan tíma til að passa mig. Ekki þótti mér það leiðinlegt enda al- gjör afastelpa og snerist þú í kring- um mig allan tímann sem ég var hjá þér og dekraðir við mig. Þú gerðir allt sem ég bað þig um að gera, enda ég nett ákveðin, og hlógu amma og mamma oft þegar ég náði í púðana í sófann fyrir þig til að setjast á til að kubba með mér og setti þá á gólfið inni í litla herbergi og kallaði svo „afi didja“. Þú varst ekki lengi að hlýða mér og ég skellti svo hurðinni á eftir okkur því amma mátti ekki vera með. Þú varst líka alltaf duglegur að fara með mig í alls konar ferðir í bílnum þínum og fannst mér ekkert skemmtilegra en þegar þú fórst að sýna mér dýrin. Mér fannst nú ekk- ert smá gaman síðasta sumar þegar ég fór að keyra með þér og pabba og mömmu í Flateyjardal. Það var nú aldeilis löng ferð og þið fullorðna fólkið ekki viss um að ég gæti setið svona lengi í bílnum en ég sannaði nú annað. Við skemmtum okkur svo vel enda fékk ég að prófa að keyra bílinn hjá afa í sveitinnni auk þess sem mér fannst svo fyndið þegar afi keyrði í alla pollana og vatnið skvettist út um allt. Þegar ég fluttist suður í haust saknaði ég þín og ömmu mikið og fékk að koma alein í heimsókn til ykkar og það var ekkert smá gaman. Núna er ég orðin stóra systir og er svo ánægð að þú hafir fengið að sjá litla sæta bróður minn áður en þú fórst frá okkur. Ég vildi óska að þú hefðir fengið að vera lengur hjá okk- ur systkinunum og litli bróðir hefði fengið að kynnast því hvað þú varst frábær afi. Þar sem ég er svo lítil og á svo erfitt með að skilja þetta allt saman veit ég að pabbi og mamma eiga eftir að hjálpa mér að muna allar þessar góðu stundir okkar saman en minninguna um þig varðveiti ég í hjarta mínu. Ég lofa að passa ömmu mína voða vel og veit að litli bróðir á eftir að hjálpa mér þegar hann stækkar. Þú varst besti afi sem hægt er að hugsa sér og ég mun alltaf elska þig Þangað til við hittumst á ný – þín afastelpa, Angela Mary. Í dag er til moldar borinn á Ak- ureyri Peter Jones, vinur okkar, sem lést langt fyrir aldur fram. Peter Jones var fæddur í Middlesboro í Englandi 26. janúar árið 1953. Um hans barnæsku vitum við ekki mikið, en ungur að árum fór hann að vinna fyrir sér og ferðaðist víða og vann í ýmsum löndum. Hingað til Íslands kom Peter fyrir tæpum 30 árum og byrjaði sjómennsku frá Patreksfirði. Þar reri hann á línubát en ekki var hann lengi þar og upp úr 1980 fer hann út í Grímsey þar sem hann vann til sjós og lands. Í Grímsey kynntist Peter sambýliskonu sinni, henni Ingu Möggu sem þá var orðin ekkja með tvö lítil börn en Lalli heitinn maður hennar féll fyrir björg korn- ungur maður. Það er stundum erfitt að skilja lífsins gang. Nú er Inga Magga fimmtug að kveðja sambýlis- mann sinn til 25 ára og áður hafði hún kvatt eiginmann sinn. Þetta er órétt- látt. Peter og Inga Magga fluttust til Akureyrar árið 1987 og komu sér fyrir í Þorpinu en þá höfðu þau eign- ast soninn Helga. Peter hóf störf hjá Hitaveitunni og vann þar til dauða- dags. Hann varð fljótt trúnaðarmað- ur starfsmanna enda afar réttsýnn maður og heiðarlegur. Peter hafði mikinn áhuga á knattspyrnu og starfaði mikið í knattspyrnudeild Þórs og var þar formaður um árabil. Hann var mikill Liverpool-aðadáandi og fórum við nokkrir saman í fót- boltaveislu til Liverpool fyrir tveim- ur árum þar sem Peter var farar- stjóri og þar var hann á heimavelli. Peter var mikil barnagæla; sáum við það vel á því hvað yngsti sonur okkar laðaðist að honum enda var Peter honum alltaf afar góður. Peter eign- aðist fjögur barnabörn en það yngsta er fætt þann 3. mars síðastliðinn og sá hann litla vininn tvisvar sinnum. Barnabörnin löðuðust að afa sínum enda var hann afar ljúfur og góður við þau. Peter vinur, við ætluðum til Englands í vor að kíkja á fótbolta. Ég veit að ef ég fer þá verður þú með mér, ég mun sakna þín. Inga Magga, Þóra, Kári, Helgi, barnabörn og aðr- ir aðstandendur, djúpar samúðar- kveðjur. Bjarni, Fríður og Hjörvar. Góður vinur er nú fallinn frá langt fyrir aldur fram og margar minning- ar um samverustundir koma upp í hugann. Mér er mjög ljúft að hugsa um sjóferð sem ég fór eitt sinn með Pétri til að skoða hafís sem var við Grímsey. Það var sól og rennisléttur sjór, við skoðuðum hafísinn í bak og fyrir og renndum fyrir fisk í leiðinni með góðum árangri. Þegar fór að líða á sjóferðina fór hungur að gera vart við sig, þá dró Pétur upp nesti sem hann hafði tekið til og viti menn, úr varð þessi dýrindis veisla. Já Pétur var snilldar kokkur og þær voru ófá- ar veislurnar sem hann kokkaði bæði í Grímsey og fyrir Íþróttafélagið Þór þar sem hann vann mjög óeigin- gjarnt starf og sinnti félaginu af alúð. Síðastu stundirnar sem ég átti með Pétri voru á jólaballi Gilættarinnar og þar ræddum við mikið saman og meðal annars bílamálin en Pétur var að hugsa um að fá sér jeppa. Nú vona ég að hann rúnti um heima og geima með afa Nunna eins og þeir gerðu svo oft meðan báðir lifðu og höfðu un- un af. Það er sárt að kveðja góðan vin á besta aldri sem átti svo margt ógert með konu sinni, börnum og afabörn- um, en lífið heldur áfram í stórri fjöl- skyldu sem Pétur var mjög svo stolt- ur af. Stundin líður, tíminn tekur toll af öllu hér, sviplegt brotthvarf söknuð vekur, sorg í hjarta mér. Þó veitir yl í veröld kaldri, vermir ætíð mig, að hafa þó á unga aldri eignast vin sem þig. (Hákon Aðalsteinsson.) Elsku Magga, Þóra, Kári, Helgi og fjölskyldur, megi góður guð veita ykkur styrk og blessa ykkur og minningu Péturs um ókomna tíð. Hannes Arnar og fjölskylda. Peter Jones, félagi okkar í stjórn knattspyrnudeildar Þórs, er látinn langt um aldur fram. Við viljum minnast hans með nokkrum orðum. Ferill hans hjá knattspyrnudeild Þórs hófst hjá unglingaráði þar sem hann gegndi formennsku. Síðan tók hann við sem formaður knattspyrnu- deildar í eitt ár. Að því loknu tók hann sér stutt hlé áður en hann kom aftur inn í stjórn knattspyrnudeildar, þar sem hann hefur setið síðan síð- astliðin 9 ár. Á þessum tíma kom hann að hinum ýmsu störfum hjá knattspyrnudeild auk stjórnarsetu, t.d. liðsstjórn, aðstoð við heimaleiki, vinnu á Pollamótum, umsjón með stuðningsmannaklúbbi og fleira. Hann átti við veikindi að stríða síð- astliðin tæp tvö ár en starfaði með okkur af bestu getu. Það var hans vilji að fá að standa í brúnni eins lengi og hægt var. Peter var einn af þess- um félögum okkar sem ómetanlegt er að eiga að. Hann var einn af þeim sem gera Íþróttafélagið Þór að því sem það er. Fyrir störf sín hafði hann hlotið bæði silfur- og gullmerki Þórs. Í dag kveðjum við Peter og send- um eiginkonu hans, börnum og öðr- um aðstandendum innilegar samúð- arkveðjur. F.h. knattspyrnudeildar Þórs, Unnsteinn, Edvard, Sveinn, Halldór, Sævar, Þórólfur, Ragnheiður og Hannes. Í sorginni ómar eitt sumarblítt lag, þó er sólsetur, lífsdags þíns kveld. Því er kveðjunnar stund, og við krjúpum í dag í klökkva við minningareld. Orð eru fátæk en innar þeim skín það allt sem við fáum ei gleymt. Allt sem við þáðum, öll samfylgd þín á sér líf, er í hug okkar geymt. Í góðvinahóp þitt var gleðinnar mál, eins þó gustaði um hjarta þitt kalt. Því hljómar nú voldugt og sorgblítt í sál eitt sólskinsljóð – þökk fyrir allt. (B.B.) Fallinn er frá félagi minn Peter Jones. Leiðir okkar Peters lágu fyrst saman 1992 þegar við vorum kjörin til trúnaðarstarfa fyrir STAK, ég sem formaður og hann í fulltrúaráð félagsins. Um haustið var hann síðan kosinn trúnaðarmaður félaga sinna hjá Hitaveitu Akureyrar, nú Norður- orku hf., og síðan endurkjörinn á 2ja ára fresti og var trúnaðarmaður til dánardags. Á þessum árum gegndi hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir STAK og síðar fyrir KJÖL, stéttar- félag starfsmanna í almannaþjón- ustu. Hann sat í stjórn STAK frá 1995 og varaformaður 2001 – 2004, í stjórn Áfallasjóðs, í orlofsnefnd, full- trúaráði, í samninganefnd bæði í samningum við Launanefnd sveitar- félaga og við Norðurorku hf., vara- maður í stjórn Lífeyrissjóðs starfs- manna Akureyrarbæjar jafnframt sem hann tók að sér ýmis önnur verkefni. Hann var oddviti norður- bandalags BSRB og sat á þingum BSRB frá 1994 fyrir hönd félagsins. Peter vann við sameiningu STAK við nokkur önnur BSRB-félög og vék þá úr stjórn tímabundið eða meðan starfsstjórn starfaði. Hann sat í stjórn KJALAR frá 2005 til dánar- dags. Peter var oft í hlutverki „liðs- mannsins“ í samningalotum og á námskeiðum, var óspar að segja okk- ur brandara og frægðarsögur af „Pekka“ vini sínum í Finnlandi. Pet- er var lagið að segja sögur og létta okkur lundina og var ágætur leikari. Hann var ekki í vandræðum með að taka að sér eldamennsku á vinnu- fundum og vék sér aldrei undan verki. Og hann skipulagði árshátíð og þá varð metaðsókn. Peter leysti af á skrifstofu félagsins í sumarfríi og var alltaf reiðubúinn að leggja félaginu lið. Peter bar velferð félagsmanna ávallt fyrir brjósti og vann af dreng- skap og dugnaði fyrir bættum kjör- um þeirra. Hann var trygglyndur og var ávallt tilbúinn að aðstoða ef á þurfti að halda. Það var gott að leita til hans. Hann gerði miklar kröfur til sín en var ávallt sanngjarn gagnvart félögum sínum. Hans verður sárt saknað í hópnum. Fyrir hönd KJALAR stéttarfélags eru Peter færðar miklar þakkir fyrir hans góðu störf í þágu félagsins, minning hans mun lifa. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst Peter og eiga hann að félaga og vini. Margréti konu hans, börnum þeirra og fjölskyldu sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður KJALAR. Peter vinur okkar er látinn. Ekki grunaði mig þegar að við borðuðum saman kvöldmat mánudaginn 3. mars sl. og ég keyrði hann á eftir upp á Fjórðungssjúkrahús þar, sem hann ætlaði að eyða nóttinni vegna veik- inda, sem ágerst höfðu hjá honum upp á síðkastið, að ég myndi fá hring- ingu morguninn eftir þar sem mér var tilkynnt andlát hans. En það er skammt á milli lífs og dauða. Þegar vatnsveita Akureyrar og hitaveita voru sameinaðar í eitt fyrir- tæki fyrir um tæpum tuttugu árum kynntumst við Peter, sem þá hafði verið starfsmaður hitaveitunnar, en við Sigtryggur Jónsson (Siddi) vor- um starfsmenn vatnsveitunnar. Minnisstæð eru ferðalög innan- lands því Peter var húmoristi mikill og jafnframt snilldarkokkur. Þá voru ófáar Englandsferðirnar, sem farnar voru til að horfa á fótboltaleiki, en Liverpool var uppáhalds- félagið og er margs skemmtilegs að minnast úr þeim ferðum, enda Peter góður ag traustur félagi og nánast forréttindi að ferðast með honum um England þar sem hann talaði lítalausa ensku og þekkti víða mjög vel til.Eitt sinn fórum við nokkrir vinnufélagar til Newcastle að skoða vatnsveitu og fráveitu og hafði Peter skipulagt ferðina alla fyrirfram því hann þekkti víða til þarna, enda var hann frá Middlesbrough og er nánast ógleym- anlegt hvað tekið var vel á móti okk- ur og var það hans góða undirbún- ings að þakka. Þá lét Peter félagsmál mikið til sín taka og starfaði m.a. mikið fyrir íþróttafélagið Þór og starfsmanna- félag Akureyrabæjar. Það er mikil eftirsjá í að missa góð- an og traustan vin og félaga, en meiri er þó sorgin hjá eftirlifandi eigin- konu Ingu Möggu og fjölskyldu og sendum við og fjölskyldur okkar inni- legustu samúðarkveðjur til þeirra. Rafn Herbertsson, Sigtryggur Jónsson. Lífið er ekki alltaf réttlátt, eða það finnst mörgum við ótímabært fráfall fólks. Þannig var það með andlát Pet- ers Jones, fyrrverandi vinnufélaga okkar hjá Norðurorku hf. Peter hafði látið af störfum vegna veikinda fyrir nokkru. Við sem unn- um með honum viljum þakka kynnin og samveruna og sendum fjölskyldu hans samúðarkveðjur á þessari stundu. Einn í myrkri á leið einn með vindinn í fang ekki hræðast þó dimm verði ský. Þegar stormurinn dvín syngur þröstur á grein og stjörnurnar tindra á ný. Tak regnið í sátt rétt storminum hönd rökkrið fyllist ljósi því. Því von, því von, er ætíð nær. Þú gengur aldrei einn. (Þýð. Páll Eyþór.) Með kveðju frá vinnufélögum. Páll Eyþór Jóhannsson. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 29 ✝ Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR, sem lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu að morgni þriðjudagsins 11. mars, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju miðvikudaginn 19. mars kl. 13.00. Bryndís Lúðvíksdóttir, Björn Thors, Helga Thors, Björn Ólafsson, Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Steinar Thors og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSTRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, áður til heimilis í Fornhaga 15, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. mars kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Gísli Þorsteinsson, Hjördís Henrysdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Þóra Halldórsdóttir, Ágústa Áróra Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.