Morgunblaðið - 18.03.2008, Síða 29
í hjarta okkar og munum passa elsku
ömmu Ingu Möggu fyrir þig og við
vitum að Guð mun passa þig uppi á
himninum.
Þín elskulegu afabörn
Haukur og Margrét.
Góður drengur er fallinn frá svo
allt of, allt of snemma. Við hérna
megin sitjum eftir og spyrjum hissa
hvers vegna í ósköpunum. Er það
virkilega sanngjarnt að Magga mág-
kona sé aftur orðin ekkja aðeins 50
ára. Ég sem þessar línur skrifa hef
þó alltaf verið þakklát þessum þarna
uppi fyrir að senda Peter Jones til
Grímseyjar þegar Lalli bróðir var
fyrirvaralaust kallaður í burtu frá
Möggu sinni, Þóru og Kára.
Ekki voru nú allir alveg sáttir þeg-
ar Pétur kom með stóra, hlýja faðm-
inn sinn. Þá er ég fyrst og fremst að
tala um gamla Óla Bjarnason en
fljótlega tókst Pétri að vinna hug og
hjarta Óla gamla. Ég minnist þess
þegar Pétur var að róa á trillunni
sinni í Grímsey hvað pabbi fylgdist
vel með hvernig gekk. Hann kom
glaður frá bryggjunni í Grímsey og
sagði ,,Það var bara gott fiskerí hjá
Pétri mínum í dag“ eða: ,,Þetta var
ekki nógu gott hjá Pétri mínum, bara
to hundrað kíló“.
Já, Pétur kom til Grímseyjar með
stóra faðminn sinn og gekk börnun-
um hans Lalla í föðurstað. Stundum
fannst mér hann full-harður uppal-
andi en þegar Helgi Pé bættist í hóp-
inn skildi ég hvað Pétur var að gera
því Helgi Pé, sem var strax mjög
duglegur, fékk nákvæmlega sama
uppeldi. Þegar nú er komið að sárri
skilnaðarstund hópast minningarnar
fram. Ég minnist þess þegar Magga
og Pétur komu í ferminguna hjá Jóni
Gauta. Allt átti að vera klárt og þau
áttu bara að vera gestir en eitthvert
hugboð sagði mér að biðja Pétur að
aðstoða kokkinn sem hann og fúslega
gerði. Það átti að nota sherrý í sós-
una og auðvitað var það keypt eins og
allt annað fyrir veisluna þá arna.
Fljótlega eftir að matseldin hófst
hringdi kokkurinn og sagði að það
vantaði meira sherrý. Auðvitað fór
ég á stúfana og reddaði meiru. Þegar
ég svo kom með sherrýið hvíslaði
Pétur að mér: ,,hann vera fullur“ og
þá skildi ég í hvað sherrýið hafði far-
ið. Já Pétur var listagóður kokkur
enda útlærður í henni stóru London
og víðar.
Þegar Pétur veiktist síðastliðinn
áramót tókst mér að heimsækja hann
inn á gjörgæsluna. Þá kynnti ég mig
eiginlega sem systur hans. Kannski
þá skildi ég hvað þessi góði drengur
hafði verið í mínu lífi, Hann hreinlega
kom í staðinn fyrir Lalla bróður.
Núna vil ég þakka Pétri hvað honum
tókst listavel uppeldið á Þóru, Kára
og Helga Pé. Ég bið góðan Guð að
styrkja Möggu mágkonu í hennar
sálar sorg, börnin þeirra og barna-
börnin sem svo sannarlega eru að
missa af stóra, góða faðminum hans
Peters Jones.
Birna mágkona.
Esku besti afi minn
Núna ertu kominn til englanna á
himninum og ég á eftir að sakna þín
svo mikið. Ég er ennþá svo lítil að ég
er ekki alveg að skilja að þú komir
ekki aftur til mín. Í dag þegar
mamma spurði hvort ég vissi hver
væri að koma að ná í mig til að passa
mig kallaði ég „afa“ og var þvílíkt
glöð því ég held að þú komir alltaf
aftur til mín því þú hefur alltaf komið
aftur þó svo að ég sjái þig ekki í ein-
hverja daga.
Betri afa en þig er ekki hægt að
hugsa sér og aldeilis margt sem við
höfum gert saman þennan stutta
tíma sem við höfum haft. Ekki eru
allir jafn heppnir og ég að fá að hafa
afa sem einkabarnapíu en eftir að þú
fórst í veikindafrí frá vinnunni hafðir
þú endalausan tíma til að passa mig.
Ekki þótti mér það leiðinlegt enda al-
gjör afastelpa og snerist þú í kring-
um mig allan tímann sem ég var hjá
þér og dekraðir við mig. Þú gerðir
allt sem ég bað þig um að gera, enda
ég nett ákveðin, og hlógu amma og
mamma oft þegar ég náði í púðana í
sófann fyrir þig til að setjast á til að
kubba með mér og setti þá á gólfið
inni í litla herbergi og kallaði svo „afi
didja“. Þú varst ekki lengi að hlýða
mér og ég skellti svo hurðinni á eftir
okkur því amma mátti ekki vera með.
Þú varst líka alltaf duglegur að fara
með mig í alls konar ferðir í bílnum
þínum og fannst mér ekkert
skemmtilegra en þegar þú fórst að
sýna mér dýrin. Mér fannst nú ekk-
ert smá gaman síðasta sumar þegar
ég fór að keyra með þér og pabba og
mömmu í Flateyjardal. Það var nú
aldeilis löng ferð og þið fullorðna
fólkið ekki viss um að ég gæti setið
svona lengi í bílnum en ég sannaði nú
annað. Við skemmtum okkur svo vel
enda fékk ég að prófa að keyra bílinn
hjá afa í sveitinnni auk þess sem mér
fannst svo fyndið þegar afi keyrði í
alla pollana og vatnið skvettist út um
allt. Þegar ég fluttist suður í haust
saknaði ég þín og ömmu mikið og
fékk að koma alein í heimsókn til
ykkar og það var ekkert smá gaman.
Núna er ég orðin stóra systir og er
svo ánægð að þú hafir fengið að sjá
litla sæta bróður minn áður en þú
fórst frá okkur. Ég vildi óska að þú
hefðir fengið að vera lengur hjá okk-
ur systkinunum og litli bróðir hefði
fengið að kynnast því hvað þú varst
frábær afi. Þar sem ég er svo lítil og á
svo erfitt með að skilja þetta allt
saman veit ég að pabbi og mamma
eiga eftir að hjálpa mér að muna allar
þessar góðu stundir okkar saman en
minninguna um þig varðveiti ég í
hjarta mínu.
Ég lofa að passa ömmu mína voða
vel og veit að litli bróðir á eftir að
hjálpa mér þegar hann stækkar.
Þú varst besti afi sem hægt er að
hugsa sér og ég mun alltaf elska þig
Þangað til við hittumst á ný –
þín afastelpa,
Angela Mary.
Í dag er til moldar borinn á Ak-
ureyri Peter Jones, vinur okkar, sem
lést langt fyrir aldur fram. Peter
Jones var fæddur í Middlesboro í
Englandi 26. janúar árið 1953. Um
hans barnæsku vitum við ekki mikið,
en ungur að árum fór hann að vinna
fyrir sér og ferðaðist víða og vann í
ýmsum löndum. Hingað til Íslands
kom Peter fyrir tæpum 30 árum og
byrjaði sjómennsku frá Patreksfirði.
Þar reri hann á línubát en ekki var
hann lengi þar og upp úr 1980 fer
hann út í Grímsey þar sem hann vann
til sjós og lands. Í Grímsey kynntist
Peter sambýliskonu sinni, henni
Ingu Möggu sem þá var orðin ekkja
með tvö lítil börn en Lalli heitinn
maður hennar féll fyrir björg korn-
ungur maður. Það er stundum erfitt
að skilja lífsins gang. Nú er Inga
Magga fimmtug að kveðja sambýlis-
mann sinn til 25 ára og áður hafði hún
kvatt eiginmann sinn. Þetta er órétt-
látt. Peter og Inga Magga fluttust til
Akureyrar árið 1987 og komu sér
fyrir í Þorpinu en þá höfðu þau eign-
ast soninn Helga. Peter hóf störf hjá
Hitaveitunni og vann þar til dauða-
dags. Hann varð fljótt trúnaðarmað-
ur starfsmanna enda afar réttsýnn
maður og heiðarlegur. Peter hafði
mikinn áhuga á knattspyrnu og
starfaði mikið í knattspyrnudeild
Þórs og var þar formaður um árabil.
Hann var mikill Liverpool-aðadáandi
og fórum við nokkrir saman í fót-
boltaveislu til Liverpool fyrir tveim-
ur árum þar sem Peter var farar-
stjóri og þar var hann á heimavelli.
Peter var mikil barnagæla; sáum við
það vel á því hvað yngsti sonur okkar
laðaðist að honum enda var Peter
honum alltaf afar góður. Peter eign-
aðist fjögur barnabörn en það yngsta
er fætt þann 3. mars síðastliðinn og
sá hann litla vininn tvisvar sinnum.
Barnabörnin löðuðust að afa sínum
enda var hann afar ljúfur og góður
við þau. Peter vinur, við ætluðum til
Englands í vor að kíkja á fótbolta. Ég
veit að ef ég fer þá verður þú með
mér, ég mun sakna þín. Inga Magga,
Þóra, Kári, Helgi, barnabörn og aðr-
ir aðstandendur, djúpar samúðar-
kveðjur.
Bjarni, Fríður og Hjörvar.
Góður vinur er nú fallinn frá langt
fyrir aldur fram og margar minning-
ar um samverustundir koma upp í
hugann. Mér er mjög ljúft að hugsa
um sjóferð sem ég fór eitt sinn með
Pétri til að skoða hafís sem var við
Grímsey. Það var sól og rennisléttur
sjór, við skoðuðum hafísinn í bak og
fyrir og renndum fyrir fisk í leiðinni
með góðum árangri. Þegar fór að líða
á sjóferðina fór hungur að gera vart
við sig, þá dró Pétur upp nesti sem
hann hafði tekið til og viti menn, úr
varð þessi dýrindis veisla. Já Pétur
var snilldar kokkur og þær voru ófá-
ar veislurnar sem hann kokkaði bæði
í Grímsey og fyrir Íþróttafélagið Þór
þar sem hann vann mjög óeigin-
gjarnt starf og sinnti félaginu af alúð.
Síðastu stundirnar sem ég átti með
Pétri voru á jólaballi Gilættarinnar
og þar ræddum við mikið saman og
meðal annars bílamálin en Pétur var
að hugsa um að fá sér jeppa. Nú vona
ég að hann rúnti um heima og geima
með afa Nunna eins og þeir gerðu
svo oft meðan báðir lifðu og höfðu un-
un af.
Það er sárt að kveðja góðan vin á
besta aldri sem átti svo margt ógert
með konu sinni, börnum og afabörn-
um, en lífið heldur áfram í stórri fjöl-
skyldu sem Pétur var mjög svo stolt-
ur af.
Stundin líður, tíminn tekur
toll af öllu hér,
sviplegt brotthvarf söknuð vekur,
sorg í hjarta mér.
Þó veitir yl í veröld kaldri,
vermir ætíð mig,
að hafa þó á unga aldri
eignast vin sem þig.
(Hákon Aðalsteinsson.)
Elsku Magga, Þóra, Kári, Helgi og
fjölskyldur, megi góður guð veita
ykkur styrk og blessa ykkur og
minningu Péturs um ókomna tíð.
Hannes Arnar og fjölskylda.
Peter Jones, félagi okkar í stjórn
knattspyrnudeildar Þórs, er látinn
langt um aldur fram. Við viljum
minnast hans með nokkrum orðum.
Ferill hans hjá knattspyrnudeild
Þórs hófst hjá unglingaráði þar sem
hann gegndi formennsku. Síðan tók
hann við sem formaður knattspyrnu-
deildar í eitt ár. Að því loknu tók
hann sér stutt hlé áður en hann kom
aftur inn í stjórn knattspyrnudeildar,
þar sem hann hefur setið síðan síð-
astliðin 9 ár. Á þessum tíma kom
hann að hinum ýmsu störfum hjá
knattspyrnudeild auk stjórnarsetu,
t.d. liðsstjórn, aðstoð við heimaleiki,
vinnu á Pollamótum, umsjón með
stuðningsmannaklúbbi og fleira.
Hann átti við veikindi að stríða síð-
astliðin tæp tvö ár en starfaði með
okkur af bestu getu. Það var hans
vilji að fá að standa í brúnni eins lengi
og hægt var. Peter var einn af þess-
um félögum okkar sem ómetanlegt
er að eiga að. Hann var einn af þeim
sem gera Íþróttafélagið Þór að því
sem það er. Fyrir störf sín hafði hann
hlotið bæði silfur- og gullmerki Þórs.
Í dag kveðjum við Peter og send-
um eiginkonu hans, börnum og öðr-
um aðstandendum innilegar samúð-
arkveðjur.
F.h. knattspyrnudeildar Þórs,
Unnsteinn, Edvard, Sveinn,
Halldór, Sævar, Þórólfur,
Ragnheiður og Hannes.
Í sorginni ómar eitt sumarblítt lag,
þó er sólsetur, lífsdags þíns kveld.
Því er kveðjunnar stund, og við krjúpum í
dag
í klökkva við minningareld.
Orð eru fátæk en innar þeim skín
það allt sem við fáum ei gleymt.
Allt sem við þáðum, öll samfylgd þín
á sér líf, er í hug okkar geymt.
Í góðvinahóp þitt var gleðinnar mál,
eins þó gustaði um hjarta þitt kalt.
Því hljómar nú voldugt og sorgblítt í sál
eitt sólskinsljóð – þökk fyrir allt.
(B.B.)
Fallinn er frá félagi minn Peter
Jones. Leiðir okkar Peters lágu fyrst
saman 1992 þegar við vorum kjörin
til trúnaðarstarfa fyrir STAK, ég
sem formaður og hann í fulltrúaráð
félagsins. Um haustið var hann síðan
kosinn trúnaðarmaður félaga sinna
hjá Hitaveitu Akureyrar, nú Norður-
orku hf., og síðan endurkjörinn á 2ja
ára fresti og var trúnaðarmaður til
dánardags. Á þessum árum gegndi
hann mörgum trúnaðarstörfum fyrir
STAK og síðar fyrir KJÖL, stéttar-
félag starfsmanna í almannaþjón-
ustu. Hann sat í stjórn STAK frá
1995 og varaformaður 2001 – 2004, í
stjórn Áfallasjóðs, í orlofsnefnd, full-
trúaráði, í samninganefnd bæði í
samningum við Launanefnd sveitar-
félaga og við Norðurorku hf., vara-
maður í stjórn Lífeyrissjóðs starfs-
manna Akureyrarbæjar jafnframt
sem hann tók að sér ýmis önnur
verkefni. Hann var oddviti norður-
bandalags BSRB og sat á þingum
BSRB frá 1994 fyrir hönd félagsins.
Peter vann við sameiningu STAK við
nokkur önnur BSRB-félög og vék þá
úr stjórn tímabundið eða meðan
starfsstjórn starfaði. Hann sat í
stjórn KJALAR frá 2005 til dánar-
dags.
Peter var oft í hlutverki „liðs-
mannsins“ í samningalotum og á
námskeiðum, var óspar að segja okk-
ur brandara og frægðarsögur af
„Pekka“ vini sínum í Finnlandi. Pet-
er var lagið að segja sögur og létta
okkur lundina og var ágætur leikari.
Hann var ekki í vandræðum með að
taka að sér eldamennsku á vinnu-
fundum og vék sér aldrei undan
verki. Og hann skipulagði árshátíð og
þá varð metaðsókn. Peter leysti af á
skrifstofu félagsins í sumarfríi og var
alltaf reiðubúinn að leggja félaginu
lið.
Peter bar velferð félagsmanna
ávallt fyrir brjósti og vann af dreng-
skap og dugnaði fyrir bættum kjör-
um þeirra. Hann var trygglyndur og
var ávallt tilbúinn að aðstoða ef á
þurfti að halda. Það var gott að leita
til hans. Hann gerði miklar kröfur til
sín en var ávallt sanngjarn gagnvart
félögum sínum. Hans verður sárt
saknað í hópnum.
Fyrir hönd KJALAR stéttarfélags
eru Peter færðar miklar þakkir fyrir
hans góðu störf í þágu félagsins,
minning hans mun lifa. Ég er þakklát
fyrir að hafa kynnst Peter og eiga
hann að félaga og vini. Margréti konu
hans, börnum þeirra og fjölskyldu
sendi ég innilegar samúðarkveðjur.
Arna Jakobína Björnsdóttir,
formaður KJALAR.
Peter vinur okkar er látinn. Ekki
grunaði mig þegar að við borðuðum
saman kvöldmat mánudaginn 3.
mars sl. og ég keyrði hann á eftir upp
á Fjórðungssjúkrahús þar, sem hann
ætlaði að eyða nóttinni vegna veik-
inda, sem ágerst höfðu hjá honum
upp á síðkastið, að ég myndi fá hring-
ingu morguninn eftir þar sem mér
var tilkynnt andlát hans. En það er
skammt á milli lífs og dauða.
Þegar vatnsveita Akureyrar og
hitaveita voru sameinaðar í eitt fyrir-
tæki fyrir um tæpum tuttugu árum
kynntumst við Peter, sem þá hafði
verið starfsmaður hitaveitunnar, en
við Sigtryggur Jónsson (Siddi) vor-
um starfsmenn vatnsveitunnar.
Minnisstæð eru ferðalög innan-
lands því Peter var húmoristi mikill
og jafnframt snilldarkokkur. Þá voru
ófáar Englandsferðirnar, sem farnar
voru til að horfa á fótboltaleiki, en
Liverpool var uppáhalds- félagið og
er margs skemmtilegs að minnast úr
þeim ferðum, enda Peter góður ag
traustur félagi og nánast forréttindi
að ferðast með honum um England
þar sem hann talaði lítalausa ensku
og þekkti víða mjög vel til.Eitt sinn
fórum við nokkrir vinnufélagar til
Newcastle að skoða vatnsveitu og
fráveitu og hafði Peter skipulagt
ferðina alla fyrirfram því hann þekkti
víða til þarna, enda var hann frá
Middlesbrough og er nánast ógleym-
anlegt hvað tekið var vel á móti okk-
ur og var það hans góða undirbún-
ings að þakka.
Þá lét Peter félagsmál mikið til sín
taka og starfaði m.a. mikið fyrir
íþróttafélagið Þór og starfsmanna-
félag Akureyrabæjar.
Það er mikil eftirsjá í að missa góð-
an og traustan vin og félaga, en meiri
er þó sorgin hjá eftirlifandi eigin-
konu Ingu Möggu og fjölskyldu og
sendum við og fjölskyldur okkar inni-
legustu samúðarkveðjur til þeirra.
Rafn Herbertsson,
Sigtryggur Jónsson.
Lífið er ekki alltaf réttlátt, eða það
finnst mörgum við ótímabært fráfall
fólks. Þannig var það með andlát Pet-
ers Jones, fyrrverandi vinnufélaga
okkar hjá Norðurorku hf.
Peter hafði látið af störfum vegna
veikinda fyrir nokkru. Við sem unn-
um með honum viljum þakka kynnin
og samveruna og sendum fjölskyldu
hans samúðarkveðjur á þessari
stundu.
Einn í myrkri á leið
einn með vindinn í fang
ekki hræðast þó dimm verði ský.
Þegar stormurinn dvín
syngur þröstur á grein
og stjörnurnar tindra á ný.
Tak regnið í sátt
rétt storminum hönd
rökkrið fyllist ljósi því.
Því von, því von, er ætíð nær.
Þú gengur aldrei einn.
(Þýð. Páll Eyþór.)
Með kveðju frá vinnufélögum.
Páll Eyþór Jóhannsson.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 29
✝
Elsku móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
sem lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu að morgni
þriðjudagsins 11. mars, verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju miðvikudaginn 19. mars kl. 13.00.
Bryndís Lúðvíksdóttir, Björn Thors,
Helga Thors, Björn Ólafsson,
Björn Thors, Unnur Ösp Stefánsdóttir,
Steinar Thors
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSTRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR,
áður til heimilis í
Fornhaga 15,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni miðvikudaginn
19. mars kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög.
Gísli Þorsteinsson, Hjördís Henrysdóttir,
Þorsteinn Þorsteinsson, Guðrún Þóra Halldórsdóttir,
Ágústa Áróra Þórðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.