Morgunblaðið - 25.03.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 9
FRÉTTIR
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Mikið úrval af bolum
og toppum. Str. xxs-4xl
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030 M
bl
.9
77
38
7
Kvart-
gallabuxur
str. 36-56
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og
Eddufell 10.00-14.00
GÓLFEFNI ÞEKKING ÞJÓNUSTA
HLJÓÐEINANGRANDI
AUÐVELD Í ÞRIFUM
OFNÆMISPRÓFUÐ
SLITSTERK
TEPPI Á STIGAGANGINN
Stepp ehf
Ármúla 32
Sími 533 5060
www.stepp.is
stepp@stepp.is
G
ra
fí
k
a
2
0
0
8
NÝTT frumvarp utanríkisráðherra
til laga um alþjóðlega þróunarsam-
vinnu Íslands gerir ráð fyrir stór-
aukinni aðkomu Alþingis að þróun-
arsamvinnumálum. Jafnframt
verður stjórnkerfi íslenskrar þróun-
arsamvinnu einfaldað gagnvart
frjálsum félagasamtökum og við-
skiptalífinu. Þetta segir Kristrún
Heimisdóttir, aðstoðarmaður utan-
ríkisráðherra. Ráðherra mælti fyrir
frumvarpinu á Alþingi í síðasta
mánuði, en þetta er fyrsta laga-
frumvarpið um þróunarsamvinnu
síðan 1981. Fram kom í máli Ingi-
bjargar Sólrúnar Gísladóttur utan-
ríkisráðherra þegar hún mælti fyrir
frumvarpinu að hún teldi að nú
væri tími stóraðgerða í málefnum
alþjóðlegrar þróunarsamvinnu Ís-
lendinga kominn og því hefði hún
látið fara fram skipulega stefnu-
mótunarvinnu innan utanríkisráðu-
neytisins til undirbúnings að þeirri
sýn og stefnumörkun sem frum-
varpið boðaði.
Auknar faglegar kröfur
Í greinargerð sem Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir stjórnsýsluráðgjafi
vann fyrir ráðuneytið kemur fram
að frumvarpið geri ráð fyrir því að
eftirlitshlutverk utanríkismála-
nefndar Alþingis verði eflt og Ís-
land gerist aðili að þróunarsam-
vinnunefnd Efnahags- og
framfarastofnunarinnar (OECD/
DAC) sem er alþjóðleg eftirlits-
nefnd. Að sögn Kristrúnar væri það
stórt sögulegt skref í íslenskri þró-
unarsamvinnu þar sem faglegar
kröfur muni aukast. Tekur hún
fram að framlagt lagafrumvarp
muni þannig fela í sér miklar breyt-
ingar verði það að veruleika.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir
skýrari pólitískri stefnumörkun í
þróunarsamvinnu og að ráðherra
skipi 15 manna samstarfsráð til
fjögurra ára í senn sem verði ráð-
gefandi stjórnsýslunefnd fyrir ráð-
herra við töku stefnumarkandi
ákvarðana. Í samstarfsráðinu sitji
fulltrúar kosnir af Alþingi og
fulltrúar skipaðir af ráðherra úr há-
skólasamfélaginu, viðskiptalífinu og
frá frjálsum félagasamtökum sem
starfa á þessu sviði.
Samkvæmt lagafrumvarpinu er
gert ráð fyrir að því að Þróun-
arsamvinnustofnun Íslands (ÞSSÍ)
verði áfram sérstök stofnun sem
heyri undir yfirstjórn utanríkis-
ráðuneytisins. ÞSSÍ muni áfram
annast tvíhliða þróunarsamvinnu í
umboði utanríkisráðherra og vinna
samkvæmt áætlun um þróunarsam-
vinnu sem Alþingi ákveður og nán-
ari ákvörðunum ráðherra. Í stað
stjórnar eins og nú er komi annars
vegar samstarfsráð ráðherra og
stýrihópur þróunarsamvinnu í ráðu-
neytinu og hins vegar áætlun um
þróunarsamvinnu sem samþykkt er
af Alþingi annað hvert ár til fjög-
urra ára í senn.
Aðkoma Al-
þingis að mála-
flokknum eykst
Segir frumvarpið
fela í sér miklar
breytingar
Aðstoð Vatnsverkefni í Mósambík
er þróunarsamvinnuverkefni.
við jafnframt á ríkisstjórnina að
svara eftirfarandi spurningum:
Styður ríkisstjórn Íslands mann-
réttindabrot kínverskra stjórnvalda
í Tíbet?
Ef hún gerir það ekki, er rík-
isstjórnin tilbúin að fordæma og
hvetja til þess að mannréttindi
verði virt í Tíbet á opinberum vett-
vangi, sem og í alþjóðasamfélaginu?
Þögn íslenskra yfirvalda, for-
sætisráðherra, utanríkisráðherra
sem og forseta Íslands verður að
linna. Við viljum vita hug ykkar nú
þegar því að mannréttindabrotin í
Tíbet verða æ svæsnari. Í morgun
SKIPULEGGJENDUR mótmæla-
fundar við kínverska sendiráðið
laugardaginn fyrir páska sendu frá
sér ályktun eftir fundinn þar sem
þeir lýsa meðal annars yfir áhyggj-
um vegna stöðunnar í Tíbet og
skora á ríkisstjórn Íslands að koma
skoðun sinni á málinu á framfæri
opinberlega.
„Við höfum þungar áhyggjur af
stöðu Tíbeta í Tíbet og andvaraleysi
íslenskra stjórnvalda í þeim efn-
um,“ segir í ályktuninni. „Við skor-
um því á ríkisstjórn Íslands að
mynda sér skoðun og koma henni á
framfæri opinberlega. Þá skorum
lýstu kínversk stjórnvöld því yfir að
100 þjóðir styddu aðgerðir þeirra.
Erum við á þessum lista?
Við förum þess á leit að rík-
isstjórn Íslands taki af skarið og
bjóði sig fram til að miðla málum á
milli Tíbet og Kína til að finna var-
anlega lausn á vandamálum þeim er
hrjá Tíbet.
Við krefjumst þess jafnframt að
rannsóknarnefnd á vegum SÞ verði
tafarlaust hleypt inn í Tíbet til að
komast að hlutskipti þeirra sem
hafa verið handteknir og drepnir í
tengslum við mótmælin í Tíbet und-
anfarið.“
Mótmæla mannréttinda-
brotum Kínverja í Tíbet
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sími 551 3010
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111