Morgunblaðið - 25.03.2008, Side 17

Morgunblaðið - 25.03.2008, Side 17
heilbrigðismál MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 17 Það er afar sjaldgæft að hægt sé að gerakraftaverk í læknisfræði en þetta ereitt dæmi um það,“ segir Elías Ólafs-son, yfirlæknir á taugadeild Land- spítala um heilaskurðaðgerð sem um 35 floga- veikir Íslendingar hafa farið í frá árinu 1992. „Fólk sem er nánast bundið við rúmið vegna tíðra floga og aukaverkana frá lyfjunum, getur losnað við flogin og lyfin. Það gerist ekki betra.“ Á þann veg endar einmitt erfið sjúkrasaga Hlínar Ingólfsdóttur, sem árið 1996 fór til Bandaríkjanna í aðgerðina eftir að hafa glímt við flogaveiki allt sitt líf. Þegar Hlín var átta mánaða gömul fékk hún lungnabólgu og háan hita sem endaði með hita- krampa. Er talið að krampinn hafi valdið skemmdum í heilanum og hún í kjölfarið orðið flogaveik. Um fimm ára aldurinn fór hún að fá væg flogaköst, þar sem hún datt tímabundið út. Þá þegar fór hún að taka lyf við sjúkdómnum. „Lyfin áttu að halda flogunum í skefjum en það var sama hvaða lyf ég tók, alltaf fékk ég köst,“ segir Hlín. Með aldrinum mögnuðust köstin. „En ég hélt alltaf í vonina,“ bætir hún við. „Mér var sagt að sjúkdómurinn gæti elst af mér. En sú varð ekki raunin.“ Árið 1992 giftist Hlín Sigurbirni Eiríkssyni og vildu þau hjónin vita hvort óhætt væri fyrir hana að ganga með barn. Þau fengu þau svör að þrennt gæti gerst: Ástandið haldist óbreytt, flogin hætt eða versnað. Í tilfelli Hlínar gjör- breyttist ástandið til hins verra. „Meðgangan hafði slæm áhrif á mig, svo slæm að ég var farin að skríða eftir gólfinu,“ rifjar Hlín upp. Ástæð- an var m.a. breyting á lyfjagjöf. Á sjötta mán- uði þurfti að minnka lyfjaskammtinn vegna hættu á að lyfin sköðuðu fóstrið. Hlín lá síðustu vikur meðgöngunnar á sjúkrahúsi og að lokum þurfti að taka son hennar, Ingólf Örn, með keis- araskurði, tveim mánuðum fyrir tímann. Alla meðgönguna fékk Hlín flogaköst öðru hverju og þau héldu áfram af miklum þunga eftir fæð- inguna. „Eftir að Ingólfur Örn kom í heiminn var mér ekki óhætt einni með syni mínum og bauðst mamma til að vera með okkur á daginn og hætti hún að vinna,“ segir Hlín. „Ég var því aldrei ein með syni mínum á þessum tíma. Ég fylgdist ekkert með því sem var að gerast í kringum mig eða úti í samfélaginu. Ég var al- gjörlega dofin.“ Margra klukkustunda aðgerð Þegar þarna var komið sögu fréttu foreldrar Hlínar af því að ein íslensk, flogaveik stúlka hefði farið í aðgerð til Bandaríkjanna og fengið bót meina sinna. Þau ræddu það við Elías Ólafsson, lækni Hlínar. „Og við linntum ekki látunum fyrr en ákveðið var að kanna hvort þessi aðgerð gæti gagnast mér,“ segir Hlín. Sumarið 1996, þegar Hlín var 28 ára gömul og sonur hennar tveggja ára, fór hún utan ásamt foreldrum sínum og eiginmanni. Í fimm vikur dvaldi hún á sjúkrahúsinu Mayo Medical Center þar sem aðgerðin var framkvæmd. Fyrstu þrjár vikurnar fóru í stífar rannsóknir þar sem upptök flogakastanna voru staðsett og að lokum var ákvörðun tekin um aðgerð sem tók 5-6 klukkustundir. „Læknarnir sögðu okkur að þumalfing- ursstórt stykki hefði verið skorið úr heilanum,“ rifjar Kristjana Friðþjófsdóttir, móðir Hlínar, upp. Það var tekið úr stöðvum sem geyma minni og átti Hlín í kjölfarið erfitt með að muna liðna tíð. Það átti þó eftir að ganga til baka. Fyrstu mánuðina eftir aðgerðina fékk Hlín ekkert flogakast og bjartsýnin réði ríkjum. En nokkuð var í að birta myndi til að fullu. Í byrjun nóvember, rúmum þremur mánuðum seinna, byrjuðu flogaköstin með miklum þunga á ný. Hlín játar að hafa orðið mjög svartsýn á þess- um tíma. Svo vildi til að einn læknanna sem framkvæmdi aðgerðina í Bandaríkjunum var staddur hér á landi og fékk Hlín að hitta hann. Hann stappaði í hana stálinu og bað hana að gefa þessu tíma meðan sárið væri að gróa. Það gæti tekið 1½-2 ár að koma í ljós hvort aðgerðin hefði tekist. „Hann sagði að ég yrði að vera já- kvæð, bjartsýn og halda í vonina. Sem ég og gerði,“ segir hún brosandi. Eftir aðgerðina fékk Hlín frekar stærri köst en sjaldnar. Þá fékk hún lyf sem voru nýkomin á markað í Bandaríkjunum og köstin hættu. Þegar hér var komið sögu hafði slitnað upp úr hjónabandi þeirra Hlínar og Sigurbjörns. Síð- asta flogakastið sem Hlín fékk kom er hún veiktist og fékk háan hita rúmlega ári eftir að- gerðina. Síðan þá, árið 1997, hefur hún verið laus við flogaveikina með öllu. Byrjað var að minnka lyfin og frá árinu 2005 hefur hún ekki tekið nein lyf vegna flogaveikinnar. „Auðvitað var það gríðarlegur munur að vera laus við köstin en mesta breytingin fyrir mig persónu- lega var þegar ég hætti að taka lyfin,“ segir Hlín. Fótar sig í lífinu að nýju Eftir aðgerðina fór hún í endurhæfingu á Reykjalundi og síðan í náms- og starfsend- urhæfingu hjá Hringsjá sem er fyrir fólk sem vill komast aftur út á vinnumarkaðinn í kjölfar sjúkdóma, slysa og annarra áfalla. Segist Hlín þar hafa fengið þá hjálp sem hún þarfnaðist til að fóta sig í lífinu á ný. Hún hafði á unglings- árum vegna sjúkdómsins og lyfjanna átt erfitt með að stunda nám og flosnaði upp úr fram- haldsskóla. Hún vann lengst af sem bókari í fyrirtæki foreldra sinna þar sem hún treysti sér ekki til að vera á almennum vinnumarkaði. Núna vinnur hún sem bókari í „frábæru starfs- umhverfi,“ eins og hún orðar það, hjá fyrirtæk- inu Vélfangi ehf. og stundar auk þess nám hjá Námsflokkum Reykjavíkur. Félagslífið er einnig komið á fullan snúning, hún dansar í fé- lagsskap sem heitir Komið og dansið og segir það gefa sér mjög mikið. Þá styður Hlín kröft- uglega við bakið á Ingólfi Erni, syni sínum, í hans áhugamálum, sem eru handbolti og mót- orkross. „Hún Hlín er gjörbreytt manneskja í dag,“ segir Ingólfur Árnason, faðir hennar, brosandi. „Hún er hörkudugleg og getur ekki setið kyrr. Þessi aðgerð er algjört kraftaverk, að geta gert svona inngrip í heilann þannig að fólk verður al- heilbrigt, ef hægt er að kalla einhverja alheil- brigða.“ Hlín segir ómetanlegt að eiga að góða fjöl- skyldu og vini. „Allir, bæði foreldrar mínir, Ingibjörg systir mín, Haraldur mágur minn og börn þeirra og allir vinirnir, hafa sýnt mér ótrúlega þolinmæði og hjálpsemi í gegnum árin og ég er þeim gríðarlega þakklát.“ Þá segist hún vera sérstaklega þakklát Ingólfi Erni, syni sínum, sem hafi sýnt sér mikinn skilning allt frá unga aldri. Hlín lítur nú svo á að hún sé laus við floga- veikina, hafi fengið lækningu. „Ég tek bara öllu með trompi í dag og á erfitt með að vera að- gerðalaus. Fyrir tíu árum byrjaði ég hreinlega nýtt líf,“ segir hún hlæjandi. „Ég byrjaði hreinlega nýtt líf“ Morgunblaðið/Valdís Thor Breytt líf Hlín brosir út að eyrum í vinnunni hjá Vélfangi sem hún segir frábæran vinnustað. Eftir aðgerð Langur skurður var gerður á höfuðkúpu Hlínar til að skera í burt skemmt svæði í heilanum. Aðgerðin tók 6 tíma og hefur gjörbreytt lífi Hlínar sem er nú laus við flogaveikina. FLOGAVEIKI  Yfir 2.000 sjúklingar hér á landi eru á lyfj- um vegna flogaveiki og greinast um 130 ný tilfelli árlega. 10-15% þeirra svara ekki lyfja- meðferð með fullnægjandi hætti. Flogaveikin getur þá haft mikil áhrif á þeirra daglega líf, s.s. atvinnuþátttöku.  Frá árinu 1992 hafa um 35 Íslendingar far- ið í heilaskurðaðgerð erlendis vegna floga- veiki. Aðgerðin getur læknað fólk af sjúk- dómnum.  Reynslan af aðgerðinni er góð en hún hent- ar ekki nærri öllum flogaveikum. Bandarísk rannsókn frá árinu 2001 sýnir að aðeins um 1,5% þeirra sjúklinga sem aðgerðin gæti gagnast fara í hana á hverju ári.  Síðastliðin tvö ár hefur mannekla orðið til þess að erfitt hefur verið að leggja sjúklinga inn á LSH til undirbúningsrannsóknar fyrir aðgerðina en sú rannsókn er nauðsynleg til að staðsetja upptök floganna og velja sjúk- linga sem skurðaðgerðin gæti hentað.  Flogaveiki stafar af truflun í taugaboðum í heilaberki og eru flogin flokkuð í tvennt, staðflog sem eiga upptök í ákveðnu svæði heilans og alflog þar sem upptökin eru alls staðar í heilaberkinum.  Einkenni floga er tímabundin röskun á hreyfingu, skynjun, atferli, tilfinningu og eða meðvitund. Flog eru oftast sjálfstýrð þ.e. kvikna og slokkna af sjálfu sér.  Áður fyrr var talið að flogaveiki væri erfðasjúkdómur en slíkt er sjaldnast raunin. Fordómar í garð flogaveikra voru miklir á árum áður og eru enn til staðar í dag.  Árið 1943 skrifaði þáverandi landlæknir og vitnaði í gildandi lög frá árinu 1921: „Ef annað hjónaefni er haldið sóttnæmum kyn- sjúkdómi, flogaveiki, holdsveiki eða smitandi berkla, er bannað að vígja það.“ Með öðrum orðum: Flogaveikir máttu ekki ganga í hjóna- band.  Í Bandaríkjunum var leyfilegt að meina flogaveikum aðgang að veitinga- og leik- húsum fram til ársins 1970.  Þýsk könnun frá árinu 1996 sýnir að um 20% fólks álíta flogaveiki geðsjúkdóm og tyrknesk könnun leiddi í ljós að 70% fólks álitu að yfirnáttúruleg fyrirbæri orsökuðu flogaveiki. Í hnotskurn MEIRIHLUTI flogaveikra hefur misst vinnu eða verið neitað um vinnu vegna sjúkdóms síns. Þeir sem segja frá sjúkdómnum í at- vinnuviðtali fá síður vinnu en hinir sem halda honum leyndum. Þetta er m.a. nið- urstaða rannsóknar sem Lára G. Sigurðardóttir læknir gerði árið 1999 á stöðu flogaveikra á íslensk- um vinnumarkaði. Hún tel- ur ástandið ekki hafa breyst og segir það hafa komið sér á óvart hve for- dómar í garð flogaveikra eru algengir á vinnumark- aði og hve þekking vinnuveitenda á sjúk- dómnum er takmörkuð. Í rannsókninni ræddi Lára við fjórtán flogaveika einstaklinga og forsvarsmenn fimmtán stórra fyrirtækja þar sem finna mátti störf sem gætu hentað flogaveikum. Viðhorf vinnuveitenda í garð flogaveikra var yfirleitt jákvætt, enginn sagðist hafa á móti því að ráða flogaveikan einstakling. „Það er greinilegt misræmi á milli jákvæðs viðhorfs vinnuveitenda og erfiðleika flogaveikra á vinnumarkaðnum,“ segir Lára. Lára valdi viðmælendur úr hópi floga- veikra sem uppfylltu skilyrði um tíðni og stærð floga, svöruðu illa lyfjameðferð en voru ekki fatlaðir að öðru leyti. „Þetta eru allt ein- staklingar sem ættu að öllu óbreyttu að vera vinnufærir,“ segir Lára og bendir á að mennt- un þeirra hafi verið nokkuð góð. En raunveruleikinn var þó sá að níu þeirra voru ekki í vinnu þó að sex þeirra hefðu kosið það. Flestir höfðu þeir gefist upp á að leita og voru komnir á örorkubætur. Aðeins einn við- mælandi var óvinnufær vegna flogaveikinnar. Af þátttakendum voru þrír sem gátu auðveld- lega unnið fullt starf en enginn þeirra var í vinnu. Aðeins einn hafði ekki fundið fyrir mis- munun á vinnumarkaði vegna sjúkdómsins en sá hafði verið lengi á sama vinnustað þegar hann greindist. Að segja vinnuveitenda frá flogaveiki eyk- ur líkur á að fá ekki starfið samkvæmt rann- sókn Láru. Öllum sem sögðu frá því í vinnu- viðtali að þeir væru flogaveikir hafði einhvern tímann verið neitað um vinnu. Hins vegar hafði þeim sem ekki sögðu frá sjúkdómnum aldrei verið neitað. Allir sem höfðu fengið flog á vinnustað höfðu upplifað hræðslu meðal vinnufélaga. „Þetta bendir til þess að þekkingarleysið er töluvert,“ segir Lára. Sá hluti rannsóknarinnar sem sneri að vinnuveitendum sannaði það. Þekking þeirra á flogaveiki var lítil, þeir héldu almennt að flogaveiki einkenndist af miklum krömpum og froðu sem kæmi frá munni. Engu að síður töldu ellefu þeirra að hægt væri að með- höndla flogaveiki þannig að engin vandamál sköpuðust í vinnu og töldu flogaveika ekki síð- ur hæfa til vinnu en aðra sjúklingahópa. Enn miklir fordómar í samfélaginu „Mín upplifun var sú að enn væru margir mjög hræddir við flogaveiki og hefðu litla sem enga þekkingu á sjúkdómnum,“ segir Lára. „Mér kom það á óvart hversu miklu það virtist breyta að segja vinnuveitenda frá flogaveik- inni í vinnuviðtali. Fordómar vegna flogaveiki eru því augljóslega enn mjög miklir í sam- félaginu. Það er greinileg þörf á því að fræða almenning og vinnuveitendur um þau marg- breytilegu einkenni sem flogaveiki getur haft. Samhliða því ætti hræðslan að minnka.“ Hún segir það sláandi hversu erfitt floga- veikir eigi uppdráttar á vinnumarkaði. „Þeir upplifðu sig sem heilbrigða og að þeir gætu vel stundað vinnu. Af þessum sökum er þessi staða þeirra sérstaklega dapurleg,“ segir Lára. Flogaveikum hafnað á íslenskum vinnumarkaði Lára Guðrún Sigurðardóttir 

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.