Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 23 Með þessari djörfu fyr-irsögn vil ég aðeinsundirstrika það aðenginn annar, hvorki trúarsöfnuður né stjórn- málaflokkur geti eignað sér sál mína. „Faðir vor, þú sem ert á himn- um“ o.s.frv. Hann þekki ég ekki og býst ekki heldur við að kynn- ast honum, en föður minn þekkti ég vitanlega, en hann sagði einu sinni við mig endur fyrir löngu nokkuð sem aldrei hefur liðið mér úr minni og varðaði það lífið og dauðann og voru orð hans í eins konar spurn- arformi: „Ekkert vissum við um þenn- an heim áður en við fæddumst og ætli það verði nokkuð öðruvísi þegar við endanlega hverfum héðan. Sennilega sams kon- ar vitundarleysi og fyrir fæðingu.“ Engu að síður var hann ekki staðfastari í trú- leysi sínu en svo að spyrja mig skömmu fyrir andlátið hvort ég héldi að hann myndi hitta Önnu systur sína sem var honum svo einkar kær eftir það. Ég kvaðst ekki eiga neitt svar við því og þar með féll það tal niður. En vegna þessa samtals langar mig einmitt að gera trúmál að umræðuefni hér, einkum og sér í lagi viðhorf manna til framhalds- ins, ef annars nokkurt er, eftir að við hættum að draga andann. Sumir trúa á eilíft líf eftir dauð- ann, aðrir ekki eins og t.a.m. sá sem hér heldur á penna. Í heil- agri bók stendur að guð hafi skapað himin og jörð og manninn í sinni eigin mynd, hvaðan sem þeir hafa það. Ég læt sköpun himins og jarðar liggja á milli hluta, en tel hins vegar að menn- irnir hafi skapað guð, en ekki öf- ugt, auk þess létu þeir ekki þar við sitja heldur sömdu líka sjálfa biblíuna, það meistaraverk. Hefði vafalaust fengið Nóbelsverðlaunin hefðu þau verið til í þá daga. Um trúarbrögð þ.e.a.s. þau kristnu eru til kynstrin öll af fræðiritum og kenningum. Sum- um finnst það t.d. álitamál hvort þau hafi fært mannkyninu meiri blessun en böl. Kristnir menn hafa vitaskuld margt til síns ágætis, unnið ótal góðverk, liðsinnt sjúkum og snauðum, fært sveltandi fólki björg í bú, reist glæsilegar kirkjur og klaustur og viðvíkjandi hinum síðarnefndu stofnunum sakar ekki að geta þess að ís- lenskir munkar hafa líkað skilið eftir sig merkilegan menningar- arf. Hér væri því ekki úr vegi að vitna í Íslands Handbókina en þar standa þau orð sem hér fara á eftir: „Þar (þ.e.a.s. í Þingeyr- arklaustri) voru skrifuð ýmis fornrit sem varðveist hafa. Ýmsar Íslendingasögur eru einnig taldar hafa verið skráðar í Þingeyra- klaustri“. Ekki megum við heldur gleyma öllum snilldarverkum sem hafa verið ort um guðstrú eins og t.d. Paradísarmissi eftir Milton, Messías eftir Klopstock, Guð- dómlega „gamanleiknum“ eftir Dante og loks sjálfum Pass- íusálmunum eftir Hallgrím Pét- ursson svo aðeins nokkur þeirra séu nefnd. Og af þessu öllu saman geta kristnir menn svo sannarlega hreykt sér hátt, en krossferðir þeirra forðum daga og ekki síst trúboð þeirra í fjarlægum löndum fyrr og síð orka hins vegar mjög tvímælis og það ríkir ekki hinn minnsti vafi í huga þeirra að þeir séu að boða hinu einu „sönnu“ trú. Geta boðberar annarra trúar- bragða ekki haldið nákvæmlega því sama fram? Að sjálfsögðu. Eins og alþjóð eða réttara sagt al- heimur veit hefur þetta ískyggi- lega ástand, sannkallað ófremdar- ástand leitt til alvarlegra árekstra, deilna og styrjalda milli ólíkra trúarflokka og gerir enn á vorum dögum og það sem verst er þá virðist fátt benda til þess að verði nokkurt lát á þeim í náinni framtíð. Hér væri ef til vill ekki úr vegi að sýna dæmi um þær þjösnalegu og ómannúðlegu aðferðir sem Spánverjar beittu þá innfæddu er þeir námu land á Kúbu árið 1511. Í hinu stórmerkilega riti, Örstutt frásögn af eyðingu Indíana- landa eftir spænska munkinn Bartholomé de Las Casas. Höfð- ingi nokkur að nafni Hatuey hafði verið dæmdur til að brennast lifandi. „Þegar þeir höfðu fjötrað hann við stólpa vék Fransiku- munkur, sómamaður hinn mesti, sér að honum og reyndi að uppfræða hann um Drottin og vora trú á þeim stutta tíma sem gafst. Ekki hafði Hatu- ey heyrt um trúna fyrr. Munk- urinn tjáði honum að ef hann tæki trú færi hann til Himnaríkis, þar sem hann nyti dýrðar og eilífðar hvíldar, ef ekki færi hann til Hel- vítis og byggi þar við eilífa kvöl og pínu. Hatuey þagði um stund, en spurði munkinn síðan hvort þeir kristnu færu til Himnaríkis. Munkurinn svaraði því játandi, en þó aðeins þeir góðu. Hatuey svar- aði þá að bragði að hann vildi heldur frekar fara til Heljar en Himnaríkis svo að hann þyrfti ekki að sjá þá kristnu né vera í samvistun við þá“. Nú eru breyttir tímar og því er eflaust hægt að fullyrða að svona fantabrögð tíðkist ekki lengur meðal nútíma trúboða, en enda þótt trúarleiðtogar ólíkra þjóða boði frið á jörðu af eldmóði og sannfæringarkrafti hafa þeir sjaldnast setið á friðarstóli eins og mannkynssagan sýnir okkur ótvírætt og sannar. Þegar Spánverjar voru að leggja undir sig Indíalönd í Am- eríku, kúga frumbyggjana, hneppa þá í þrældóm eða selja þá öðrum þjóðum og murka mis- kunnarlaust úr þeim lífið höfðu þeir einlægt í fylgd með sér kaþ- ólska klerka og munka svona sér til halds og trausts. Þótt syndaregistri kristinna manna verði ekki gerð ýtarleg skil í stuttri grein, má engu að síður benda á sitthvað sem þeir hefðu betur látið ógert eins og t.a.m. ofsóknir á hendur vantrúuð- um, galdrabrennur, blygð- unarlausa sölu aflátsbréfa páfa- stóls sem gekk svo ofboðslega fram af Marteini Lúter að hann setti hnefann í borðið og mót- mælti, sem sögufrægt varð. Ósiðlegt og „ókristilegt“ líferni sumra páfa fyrr á öldum hefur reynst ýmsum sagnfræðingum óþrjótandi hneykslunarefni og er það reyndar engin furða. Þótt hér verði ekki farið nánar út í öll þau skrautlegu sakarefni, þá mætti kannski aðeins minnast á afkvæmi Alexanders páfa sjötta, þau Ces- are og Lukretsíu Borgia. Þau voru fjarri því að vera barnanna best, enda var ferill þeirra vægast sagt stráður ófögrum glæpum og ótrúlegu saurlífi. Hér mætti skjóta því inn að Cesare Borgia kardináli er talinn vera fyrirmynd Niccoló Machiavelli að Furstanum (Il Principe), því snilldarverki. Á einum stað í því verki segir höf- undurinn eitthvað á þá leið að til þess að ávinna sér hylli og traust almennings sé nauðsynlegt að furstinn láti líta svo út að hann sé trúaður, mannlegur og lýðhollur. Almenningur sættir sig jafnan við slíka sýndarmennsku. Enn einu sinni langar mig til að fjalla um þá sjúklegu áráttu krist- inna manna að boða guðstrú út um allar koppagrundir. En nú ætla ég, lesendur góðir, að biðja ykkur um að draga djúpt andann áður en þið haldið lestrinum áfram, því hér verður tekið all- hressilega til orða. Hverskonar yfirgangur er það eiginlega að vilja endilega troða kristni ofan í kokið á þjóðum sem telja sig líka eiga sín eigin „sönnu“ trúar- brögð? Minnir þetta mann ekki óþyrmilega á G. Bush sem gerði sitt ýtrasta til að troða lýðræðinu ofan í kokið á Írökum, vitanlega allt í þykistu. Bandaríkjamenn ættu svo sannarlega að líta sér nær varðandi boðun lýðræðis, þar sem þeir veittu svertingjum, eða til að vera svolítið bjánalega til- litssamur óhvítum ekki kosninga- rétt fyrr en 1965 eða m.a.o. heilli öld eftir Þrælastríðið. Engum blöðum er um það að fletta að þetta var tylliástæða ein og sama má segja um fálmkennda leit þeirra að gjöreyðingarvopnum þar í landi. Það eina sem vakti fyrir þeim með innrásinni var að reyna að sölsa undir sig olíulindir landsmanna eins og alheimur veit. Á öllum tímum hafa þjónar kirkjunnar, öðru nafni sálna- hirðarnir og það oftast í slagtogi með stjórnvöldum verið ötulir við að lofa blásnauðri alþýðu alsælu og eilíft líf í himnaríki í þeim lítt göfuga tilgangi að fá hana til að sætta sig við ömurlegt hlutskipti sitt hér á jörðu. Er það ekki álita- efni hvort eilíft líf eftir dauðann sé í rauninni svo eftirsóknarvert. Í allri hreinskilni sagt setur að mér ótta við þá tilhugsun eina að vera eilíflega til. Gera menn sér almennilega grein fyrir þessu? Um það efast ég stórlega. Að deyja er eins og að sofna á svæflinum sínum Áður en ég slæ botninn í þessa grein sem mun áreiðanlega ekki falla öllum í geð, langar mig til að vitna í gamlan negrasálm er hljóðar svona á ensku: Longhaired preachers come out every night and try to tell us what is wrong and what is right and say with voices ever so sweet: „You’ll eat pie in the sky when you die“. Hér á eftir fylgir heldur ófull- komin þýðing mín. Síðhærðir klerkar koma út sérhvert kvöld og reyna að segja oss hvað sé rangt og hvað sé rétt og segja með rómi svo undurblíðum. „Í guðsríki gæðir þú þér á tertu þegar þú deyrð.“ Að mínu viti er þessi sálmur dæmigerður fyrir huggunarorð sálnahirðanna. Meginþorri manna trúir á ann- að líf, sem ég geri ekki og áskil mér fullan rétt til þess og vonandi sofna ég vært á svæflinum mínum þegar þar að kemur og hins sama óska ég líka þeim sem eru mér sama sinnis. Enginn á mína sál nema ég sjálfur Eftir Halldór Þorsteinsson »Ég læt sköpun him- ins og jarðar liggja á milli hluta, en tel hins vegar að mennirnir hafi skapað guð, en ekki öfugt… Halldór Þorsteinsson Höfundur er skólastjóri Málaskóla Halldórs. auka við hana, þau hegða sér eins og sá sem valdið hefur. Framferði Bandaríkjanna um allan heim, framferði Rússa gagnvart ýmsum fyrri ríkjum Sovétríkjanna, fram- ferði Kína gagnvart sínum ná- grönnum eins og til að mynda Tíb- et, allt eru þetta lýsandi dæmi um valdahroka og útþenslustefnu. Og í þessum hópi á Ísraelsríki svo sann- arlega heima. Menn eru dæmdir af verkum sínum, ekki af þeim orðum og hug- myndum sem þeir hafa um sjálfa sig. Sagan dæmir einstaklinga og þjóðir. Og nákvæmlega eins og sagan hefur dæmt böðla nasismans fyrir grimmdarverk á fyrri hluta síðustu aldar mun hún dæma her og stjórnvöld Ísraelsríkis fyrir ótrúleg grimmdarverk gagnvart nágrönnum sínum. Ég legg til að ísraelsk yfirvöld sjái sóma sinn í því að taka upp breytta stefnu og: 1) Skili palestínska fólkinu aftur landinu sem þau hafa tekið frá því. 2) Brjóti niður múrinn sem þau hafa reist til þess að loka það inni. 3) Veiti því aðstoð til þess að byggja upp samfélag sem er al- gjörlega í rúst, aðstoð til að rækta land sitt og skapa aðstæður til framfærslu. 4) Og síðast en ekki síst vinni að því að veita Palestínumönnum aft- ur þá mannlegu reisn sem þau hafa svipt þá á undanförnum árum og áratugum! Þá fyrst munum við trúa ykkur. Þá munum við svo sannarlega styðja ykkur. Og þá getum við líka horft saman til bjartari tíma fyrir þenn- an heimshluta og gott ef ekki miklu stærri hluta heimsins! þeim lífið, snúast til varnar og ráð- ast af öllu afli gegn drápurum sín- um og skiptir þá engu þó við al- gjört ofurefli sé að etja. Fólk sem er hrakið af landi sínu eða lokað inni á afmörkuðum svæðum og bjargir þess bannaðar, fólk sem er svipt lífsviðurværi sínu og býr við stöðuga ógn, fólk sem er svipt mannlegri reisn hlýtur einhvern tíma að streitast gegn, að rísa upp og berjast fyrir lífi sínu – og beita til þess öllum mögulegum og ómögulegum ráðum. Lítum bara í eigin barm. Ísraelsríki er eitt voldugasta og hernaðarlega sterkasta ríki heims. Helsti bandamaður þess er hitt voldugasta og hernaðarlega sterk- asta ríkið í heimi, Bandaríkin. Sameiginlegt markmið þessara ríkja er augljóslega að knésetja palestínsku þjóðina, að skammta henni land, að skammta henni lífs- gæði og að setja henni reglur í einu og öllu. Nei, frú Miryam Shomrat. Ég skil vel að þú sem opinber fulltrúi þinnar þjóðar reynir að réttlæta gjörðir hennar, en hreint út sagt, þá hefur þú vondan málstað að verja og hvað sem þú og aðrir Ísr- aelar segja, þá tala verkin sínu máli. Hyldýpið milli orða ykkar og athafna er óbrúanlegt. Ekki láta þér detta í hug að alþýða heimsins láti bjóða sér þvílíkt og annað eins. Kötturinn sem leikur sér að mús- inni, kvelur hana og étur að lokum á enga innstæðu fyrir því að væla undan ágangi músarinnar. Það er oft sagt að sagan end- urtaki sig, að allt fari í hringi, með tilbrigðum. Stórveldi beita alla- jafna yfirburðum sínum gagnvart nágrannaþjóðum og öðrum þjóðum til þess að halda eigin stöðu og fsóknum, erð nas- samúð gum m. En á ær hjarta nu í dag sé tekið , því bak við ynjum elsmenn um að af öllu ellt, rka- orgara. ráðast ttra standa “ er ein- sést hafa Það er ngum jást ekki egn ná- kotun til r sem rkin aðar- t- eru hrein úr dýra- elt uppi ka úr mótspyrnu mdir num, um og m þeir g. Höfundur er skáld og leikari. sína af stríðinu og stríðsglæpi. „Við lentum ekki í miklum vand- ræðum með það,“ segir Aldin og bætir við að það hafi komið sér á óvart hversu auðvelt var að fá fólk til að tjá sig við kvikmyndagerð- arfólkið. Vilja tala um stríðið Hann segir að fólkinu sem þau ræddu við megi gróflega skipta í tvo hópa. Sá fyrri vill helst ekki rifja stríðsátökin upp en þar er oftast um að ræða fólk sem ekki varð fyrir miklum áföllum í stríðinu, til dæmis því að missa einhvern nákominn. „Fólk í hinum hópnum, sem er mjög stór, er á einhvern hátt fórnarlömb stríðs. Þessi hópur vill tala um stríð- ið, einkum vegna þess að margir stríðsglæpamenn ganga enn lausir þótt stríðinu sé löngu lokið. Margir þeirra vinna hjá hinu opinbera eða eru hermenn. Fólki vill ræða þessa hluti og það hættir ekki að tala þeg- ar það byrjar. Fólk vill að það sé hlustað á það,“ segir Aldin. Þrátt fyrir að stríðinu sé löngu lokið er ýmislegt á huldu um það sem gerðist á stríðstímanum. Til að mynda eru í Bosníu ekki til ná- kvæmar tölur yfir fjölda fallinna og þá sem saknað er eftir stríðið. Úr þessu hafa sumir reynt að bæta. Í þeim hópi eru óháðu samtökin The Research and Documentation Cent- er (RDC ) sem stofnuð voru árið 2004 og hafa unnið að því að upp- lýsa um ýmiss konar tölfræði tengda stríðinu. Hjá RDC hafa nú verið skráð meira en 350.000 fórn- arlömb stríðsins, þar af hafa um 97.000 manns verið nafngreindir. „Þetta er í fyrsta sinn sem reynt er að gefa fólki nákvæmar upplýsingar um hversu margir létust í stríðinu, “ segir Aldin. Þau Aldin og Elvira hafa bæði áhyggjur af því að verði fortíðinni ekki gerð skil með opinni umræðu aukist hættan á að átök brjótist út að nýju í landinu. „Það gæti komið til átaka að nýju, til dæmis eftir tuttugu ár, vegna einhvers sem gerðist í fortíðinni og ekki hefur verið leyst úr.“ Þetta hefur gerst áður segja þau og vísa til stríðs- glæpa sem framdir voru í nafni glæpa sem áttu sér stað á tímum seinni heimsstyrjaldar. „Við viljum ekki að þetta haldi áfram að end- urtaka sig.“ Þau vonist til að mynd- irnar þeirra hafi áhrif í þá veru að opna umræðuna. það frek- egir gerð- r það að fólk að opna ur það ma við sé af kilvægt það að í fjöl- g það bjó purð t að fá plifun t “ Morgunblaðið/Elva Björk Sverrisdóttir Mikilvægar upplýsingar Aldin og Elvira telja mikilvægt að komandi kynslóðir viti hvað gerðist á stríðstímunum á tíunda áratugnum. frá nóv- milli nar í Sa- ar voru í erba. t einnig ns eru sins, sku RDC ntation t fórn- enn af verk- ru í á um bænum Her fjölda- mestu tímum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.