Morgunblaðið - 25.03.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 25.03.2008, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 25 Aðalfundur - VM þing Þín framtíð... Aðalfundur VM Föstudagur 4. apríl Dagskrá 13:00 Setning aðalfundar og ávarp Skýrsla stjórnar og reikningar félagsins Ákvörðun um löggiltan endurskoðanda Laga- og reglugerðabreytingar Lýst kjöri formanns og stjórnar VM Kjör í stjórnir sjóða og fulltrúaráð Framtíðarsýn VM Afhending styrkja Akks 17:30 Fundarslit Móttaka í nýju skrifstofuhúsnæði VM að Stórhöfða 25 20:00 Kvöldverður og skemmtun með félagsmönnum og mökum Þing VM Laugardagur 5. apríl 10:00 Þín framtíð: Að efla sig í starfi Mikilvægi starfsánægju Að setja sér markmið Raunfærnimat Gerð ferilskrár 12:00-13:00 Hádegismatur Ráðningaferli Launaviðtöl Samningatækni Umræður 16:30 Þingslit Mikilvægt er að félagsmenn tilkynni þátttöku á aðalfundinn og hvort þeir mæti í kvöldverðinn einir eða með maka. Þátttaka tilkynnist til Ólafar Lilju Stefánsdóttur í síma 575 9800 eða með tölvupósti olof.lilja@vm.is fyrir 28. mars nk. Greiðsla ferðakostnaðar: Félagsmenn búsettir utan höfðuborgarsvæðis eiga rétt á endurgreiðslu ferðakostnaðar vegna mætingar á aðlfund. Nánari upplýsingar á skrifstofu VM í síma 575 9800 og á vm.is. Á þingi VM verður kynning á félögum og fyrirtækjum sem stuðla að persónulegri- félagslegri- og faglegri þróun einstaklinga. Á FORSÍÐU Morgunblaðsins þann 17. mars. sl. er haft eftir varaformanni stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að tími háspennulína sé lið- inn. Vísar hún m.a. til langs biðtíma eftir mastraefni og einnig til fjárhags- sjónarmiða, þ.e. hækkunar á stál- verði og þess að mismunur á kostnaði við jarðstreng og loftlín- ur sé alltaf að minnka. Er sérstaklega vísað til Reykja- nesfólksvangs í greininni og nefnt að líklega verði frekar lagðir jarð- strengir þar en háspennulínur. Fornleifavernd ríkisins vill hér með vekja almenna athygli á að í jörðu leynast ógrynni minja eftir gengnar kynslóðir. Sumar minj- anna eru sýnilegar á yfirborði, aðrar, sem yfirleitt eru elstu minj- ar landsins, liggja sumar djúpt undir yfirborðinu og eru því huld- ar mannsauganu. Á undanförnum árum hafa minj- ar víða um land skemmst við það að jarðstrengir og ýmiss konar lagnir hafa verið lögð í fornleif- arnar án vitundar Fornleifavernd- ar ríkisins. Má rekja það m.a. til þess að lagning jarðstrengja og lagna hefur í þeim tilfellum verið undanskilin umsögnum vegna mats á umhverfisáhrifum og því ekki lent inni á borði hjá Forn- leifavernd ríkisins. Á Reykjanesfólksvangi er fjöldi fornleifa og einstakt menningar- landslag sem nauðsynlegt er að varðveita til framtíðar. Innan fólk- vangsins eru m.a. minjar og menningarlandslag í Krísuvík og mjög fornar minjar í Húshólma. Þar er m.a. að finna minjar bæjar sem talinn er frá fyrstu öldum Ís- landsbyggðar og eru útlínur hans varðveittar í hrauninu, sem er ein- stakt hérlendis. Fornleifavernd ríkisins hvetur til þess að munað sé eftir forn- leifum í tengslum við alla um- hverfisvernd og að málshátturinn í upphafi skyldi endinn skoða sé hafður að leiðarljósi. Er tími háspennu- lína liðinn? Kristín Huld Sig- urðardóttir og Agnes Stef- ánsdóttir skrifa um fornleifar og jarð- strengi Kristín Huld Sigurðardóttir » ...í jörðu leynast víða fornleifar sem hætta er á að skemmist við lagningu jarðstrengja, sé ekki vel að gætt. Kristín Huld er forstöðumaður Forn- leifaverndar ríkisins, Agnes er minja- vörður Fornleifaverndar ríkisins á Reykjanesi. Agnes Stefánsdóttir ÞAR sem ég hef án árangurs skrif- að ykkur bréf, háttvirt Þórunn og Guðlaugur, án þess að þið sæjuð ástæðu til að svara því, þá sé ég mér ekki annað fært en að birta bréfið á opinberum vettvangi í veikri von um að geta þannig vakið athygli á hættulegum vágesti sem dúkkað getur upp á heimilum fólks í land- inu. Þessi gestur er ósýnilegur en skaðinn sem hann getur valdið á heilsu fólks og eignum getur verið óbæt- anlegur. Þessi skaðlegi gestur er myglu- sveppur og hann knúði dyra hjá mér og nú er búið að jafna heimili mitt við jörðu. Róttækar ráðstafanir finnst ykkur kannski en undir húsinu var skriðkjallari og þar átti svepp- urinn upptök sín. Við eftirgrennslan kom í ljós að kjallarinn sá var ekki gerður eins og teikningar sögðu til um þegar húsið var byggt. Dýr sparnaður það en þar sem húsið er 20 ára gamalt eru allar kröfur sem ég mögulega gæti gert á húsbyggjand- ann löngu fyrndar þrátt fyrir að ég hafi einungis átt húsið í um sjö ár. Af þessum sjö árum var ég búin að vera veik í tvö án þess að allur sá fjöldi lækna sem ég leitaði til fyndi hvað væri að mér. Myglusveppurinn kost- aði mig starfið, starf þar sem ég fékk möguleika á að mennta mig frekar við góðan skóla og hann kostaði mig líka námið. Átti eina önn eftir við Við- skiptaháskólann á Bifröst þar sem ég náði toppeinkunnum og átti alla möguleika á að koma mér vel áfram hjá fyrirtækinu sem ég starfaði fyrir. Ég bara gat ekki réttlætt fyrir mér lengur að bjóða vinnuveitendum mín- um upp á starfskraft sem var sífellt fjarverandi vegna veik- inda og sá mig því knúna til að segja upp. Eftir að myglusvepp- urinn uppgötvaðist flutti ég út, í herbergi hjá bróður mínum ásamt yngstu dótt- urinni og fljótlega fór heilsan að lagast. Ég var það heppin að sveppurinn virðist ekki hafa haft langvarandi áhrif, þó e.t.v. sé of skammur tími liðinn til að hægt sé að segja til um áhrif hans á ónæmiskerfið. Nú var um tvennt að velja, reyna að kom- ast í veg fyrir myglusveppinn með öll- um tiltækum ráðum, rífa allt innan úr húsinu, gólfið úr og reyna á einhvern hátt að steypa plötu, en hvernig átti ég að réttlæta fyrir mér að leggja út í milljóna kostnað sem svo yrði ekki til neins þar sem sveppurinn var alveg eins í útveggjum hússins. Þá var bara hinn kosturinn eftir að hreinlega rífa húsið af grunninum, steypa plötuna og setja nýtt hús þar ofan á. Þá var að fara í tryggingafélagið, við vorum með allar tryggingar og töldum að við fengjum skaðann allavega bættan að hluta, þó ekki væri nema húsgögnin, en reyndin varð allt önnur. Svona er ekki til í skilmálum tryggingafélag- anna og við fáum ekki krónu. Hvern- ig á að vera mögulegt að byrja upp á nýtt með lánið af ónýta húsinu af bak- inu? Hvernig er með hagsmuni bank- ans okkar, hann lánaði okkur þessa peninga gegn veði í húsinu sem ekki er lengur til? Hvað gerði hann ef við hættum að borga af láninu sem við að sjálfsögðu getum ekki gert og þannig lokað fyrir mögulegan velvilja bank- ans varðandi fjármögnun á nýja hús- inu? En fjölskyldan mín er meðalfjöl- skylda með meðaltekjur, hvernig eigum við að komast í gegnum greiðslumat með gamla lánið á bak- inu? Á öllum húseignum er skyldu- trygging til að tryggja hagsmuni fólks ef kviknar í. Húsið mitt er jafn ónýtt og ef það hefði brunnið til grunna en það tjón á ég bara að höndla ein. Hvernig, getið þið sagt mér það? Held ég verði að þiggja þessa áfallahjálp sem trygginga- félagið mitt býður upp á. Er í áfalli yf- ir að þeir bæti mér ekki tjónið. Ég ætla að vona að þið lendið aldrei í því að horfa upp á allt sem þið eigið rifið niður og kurlað, bæði húsgögn og annað sem fólk eignast í gegnum ár- in. Ég sat í bílnum og horfði á húsið mitt rifið, ég gat ekki annað. Nú bý ég á sveitabæ sem góður maður léði okkur afnot af ásamt öllum hús- gögnum. En dóttir mín á sama rétt á og allir aðrir að eiga heimili, að sofa í rúmi sem hún á sjálf, að eiga herbergi til að bjóða vinum sínum í. Hin börnin mín þrjú eiga að geta komið með fjöl- skyldur sínar í heimsókn án þess að þurfa að sofa í stofunni í rúmi sem einhver annar á. Það er bara löngu tímabært að stjórnmálamenn, trygg- ingafélögin og samfélagið allt fari að opna augun fyrir þeim vanda sem myglusveppurinn er og hversu skelfi- leg áhrif hann getur haft á tilveru fólks. Opið bréf til heilbrigðis- og umhverfisráðherra Bylgja Hafþórsdóttir skrifar um myglusvepp »Húsið mitt er jafn ónýtt og ef það hefði brunnið til grunna en það tjón á ég bara að höndla ein. Bylgja Hafþórsdóttir Höfundur býr í Hvalfjarðarsveit.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.