Morgunblaðið - 25.03.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MARS 2008 43
www.ellingsen.is
Árgerð 2008
Rafgeymir 12 V 115 amp
Stærð opinn (lxb) 650x267 cm
Stærð lokaður (lxb) 523x226 cm
Lengd kassa 10 fet
Eigin þyngd 922 kg
Heildarþyngd 1356 kg
Aðrar upplýsingar
Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is
Opið mánudaga–föstudaga 10–18, laugardaga 10–16
Rúm
196x178 cm
Sæti SætiFæranlegt
matborð
Eldhús
Bekkur með útdrægu rúmi
Rúm
196x122 cm
• Saumlaust Fílon®-þak með
sambyggðum Rack Track-teinum,
engar berar þéttingar
• Vatnsþolnar eldhúsborðplötur með
saumlausum köntum
• Rafhemlar og 5 bolta nafir
• Fjórir stuðningsfætur
• Sveif lyftikerfis þægileg í mittishæð
• Grjótþolnar TPO-plötur að aftan og
framan
• Galvaníseraðar hliðarplötur úr stáli
• Grjót- og vatnsþolið geymsluhólf að
framan úr steyptu plasti
• Stálgrind úr holum bitum
• E-Z Lube Axle™-öxull og öflugar
Slipper-blaðfjaðrir
• Álfelgur með krómuðum róm og
krómaðri miðju
• Gólf og rúmbotnar úr ósamsettum
Structurwood-plötum
• Þykkir állistar umhverfis vagn eða rúm
• „Posi-Lock“-lyftikerfi úr ryðfríu stáli
• Hurð með álramma í einu lagi
• Undirstöður sæta með máluðum
málmramma
• Áfastir rúmfætur
• Hurðarþrep með innbyggðu
geymslurými
• Öryggiskeðjur með pósitífri læsingu
• Nefhjól sem leggst upp
• Varadekk, festing, felgulykill og
vínylhlíf fyrir varadekk
• Skiptur Sunbrella® 302 tjalddúkur
með gluggaflipum
• Gagnsæir vínylgluggar
• Sandskeifur
• Efri eldhússkápar velta ekki en
sveiflast með fullri geymslugetu
• Djúpur postulínsvaskur
• 3 gashellur
• 9 kg LP-gaskútur og vínylhlíf
fyrir gasgeymi
• 80 l vatnsgeymir undir gólfi
• Þétt svampdýna með áklæði
• 53 l gasísskápur
• 25 ampera straumbreytir með
hleðslutæki
• 12 V rafknúin vatnsdæla
• Vatnsþolið matborð með
saumlausum köntum
• Fóðruð tjöld fyrir gluggum
og rúmum
• Skrautkappi allan hringinn
• Truma®-gashitari
• Truma®-vatnshitari
• FM/AM-útvarp/geislaspilari
• Sunbrella öndunardúkur
Staðalbúnaður
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
20.902 kr.
Lúxus-aukah
lutapakki að
verðmæti 217
.700 fylgir!
Njóttu frelsis
í FleetwoodCheyenne
Sólarrafhla
ða
105.000
Þakskyggn
i
42.000
Coleman-ga
sgrill
28.000
Farangursp
oki
14.760
Spegilhilla
7.900
Ljós með vi
ftu
6.900
Aukagaskú
tur
5.664
Festing fyri
r aukagask
út 1.990
Fatahengi
3.500
Hnífaparab
akki
1.995
Verð
1.680.000 k
r.
Útborgun
336.000 kr.
miðað við 8
4 mánuði
Mánaðargr
eiðsla
KARLAHÓPURINN, félagsskap-
urinn sem nafnið á nýju heimild-
armyndinni hans Þorsteins J. vísar
til, er sérkennilegt fyrirbrigði. Hann
er orðinn hálfgert náttröll, stofnaður
á ofanverðum 8. áratug 19. aldar. Þá
komu karlar saman í margvíslegum
karlaklúbbum til að syngja, spila,
drekka og skemmta sér á meðan
konurnar sátu heima og stufuðu af
og héldu heimilinu á réttum kili.
Þetta þótti besta latína og sjálfsögð
mannréttindi „sterkara“ kynsins.
Kvikmynda- og þáttagerðarmað-
urinn Þorsteinn J., komst í kynni við
karlana í höfuðborg Írlands, þar sem
þeir koma saman í sína vikulegu tón-
listarþerapíu. Aðeins útvaldir fá inn-
göngu í The Bohemians og þarf
tvennt til: að vera söngvari eða söng-
áhugamaður og að vera drengur
góður. Þorsteinn ræðir við nokkra
meðlimi, þeir eru allir komnir yfir
miðjan aldur og kvarta undan því að
á hverju ári hverfi gamalkunn andlit
úr hópnum, en yngri fylla reyndar í
skörðin. Innan dyra hefur ekkert
breyst í 130 ár, hefðir og siðir standa
óhagganlegir, en þeir eru ekki frá
því að konur fái inngöngu í The Bo-
hemianseftir svo sem 500 ár!
Manni skilst að þeir sem troða
upp í stóra salnum á Jurys-hótelinu
séu breiður hópur skemmtikrafta,
bæði úr röðum meðlima og gesta.
Óperusöngur, og þjóðlög gleðja
karlana í bland við gamanvísnaflutn-
ing og klassík. Kvöldið sem Þor-
steinn mætti ásamt upptökuliði, kom
m.a. fram þekktur konsertpíanisti
sem flytur Debussy, en The Bohemi-
ans sjá sjálfir um sönglistina þar
sem tregafullar, írskar tónsmíðar
eru í fyrirrúmi. Sjálfsagt dæmigert
kvöld hjá The Bohemians, karla-
konsert þar sem félagarnir skemmta
sér af hjartans lyst og hverfa sælir
inn í sitt vikulega friðland tóna og
vináttu og láta sig engu skipta þó að
þeir virki dálítið staðnaðir og sér-
vitrir út á við. Þeir eru sælir, þeir
hafa fundið sinn unaðsreit í firringu
tímans og kunna að meta hann. Ein-
kunnarorðin eru eitthvað á þessa
leið: Hið fagra býr einkum í sjóninni
en finnst einnig í því sem við heyrum
í skipan orða og raunar í allri hljóm-
list. Þorsteini og hans fólki tekst
mæta vel að draga upp stílhreina og
markvissa mynd af körlunum og
andrúmsloftinu, tónlistarflutning-
urinn er skýr og tökurnar og graf-
íkin unnin af þeirri smekkvísi og
nostri sem einkenna oftar en ekki
verk Þorsteins. Hann fer sínar eigin
leiðir í efnisvali og kann að koma á
óvart.
„Hvað er svo glatt …“
KVIKMYND
Listasafn Reykjavíkur
Íslensk heimildarmynd. Leikstjóri: Þor-
steinn J . M.a. koma fram „The Bohemi-
ans“ á Jurys-hótelinu í Dyflinni. Kvik-
myndataka: Þorsteinn J. og Brian
FitzGibbon. Klipping: Þorstein J. Hljóð:
Hjörtur Svavarsson. 27 mín. Þetta líf
þetta líf, Ísland 2008.
The Bohemians
bbbmn
Sæbjörn Valdimarsson
Bóhem Einn hinna söngelsku Íra
sem fylgst er með í The Bohemians.
NEIL Aspinall, fyrrum forstjóri út-
gáfufélags Bítlanna, Apple Corps, er
látinn, 66 ára að aldri. Aspinall var
fyrsti rótari Bítlanna og varð síðar
sérstakur aðstoðarmaður þeirra,
fékk stjórnunarstöðu hjá Apple-
útgáfufélaginu þegar það var stofn-
að og vann dyggilega í þágu Bítl-
anna.
Aspinall var skólafélagi þeirra
Paul McCartney og George Harr-
ison í æsku og var stundum kallaður
„fimmti Bítillinn“, líkt og þeir Brian
Epstein og Stuart Sutcliffe. McCart-
ney, Ringo Starr, Yoko Ono og
Apple-útgáfufyrirtækið sendu frá
sér yfirlýsingu í gær vegna andláts
Aspinall og vottuðu honum virðingu
sína. Aspinall var lítið gefinn fyrir að
koma fram í fjölmiðlum en barðist
þó hatrammlega fyrir því að vernda
ímynd Bítlanna og tónlist þeirra.
Hann átti einnig sinn skerf í tónlist
fjórmenninganna, spilaði undir í lög-
unum „Magical Mystery Tour“,
„Within You Without You“ og
„Being for the Benefit of Mr Kite“.
Öðru fremur er Aspinall þó þekkt-
ur fyrir að stýra Apple Corps., m.a. í
málaferlum gegn tölvu- og hugbún-
aðarfyrirtækinu Apple Inc.
Aspinall er ekki síst að þakka að
Bítlarnir héldu áfram að hagnast
gríðarlega af hugverkum sínum
löngu eftir að hljómsveitin lét af
störfum.
Fyrsti rótari
Bítlanna látinn
Bítlaspjall Neil Aspinall með Paul McCartney árið 1969.