Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 4

Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 4
4|Morgunblaðið Saga ökuritinn er lítil ogsjálfstæð eining sem sam-anstendur af GPS-stað-setningartæki og GSM/ GPRS samskiptaeiningu,“ segir Þórólfur Gunnarsson. „Ökuritinn er á stærð við radarvara og tengist rafkerfi ökutækisins og með loft- neti. Ritinn sendir sjálfvirkt gögn til SAGA-stjórnkerfisins sem vinn- ur úr þeim upplýsingum um hraða, hraðaaukningu, hemlun og þyngd- arkraft í beygjum. Eftir þá grein- ingu getur notandi hans náð í lyk- iltölur um rekstur, notkun, nýtingu og meðferð allra faratækja. Einnig er hægt að sjá ökuleiðir á götukorti í rauntíma og allt að þrjá mánuði aftur í tímann.“ En hvernig nýtast þessar upplýs- ingar eiganda ökutækis eða flota? „Kerfið veitir yfirsýn og fyrirtæki nýta þessa auknu yfirsýn til þessa að hagræða í rekstri. Auk þess þá hafa fyrirtæki dregið úr rekstr- arkostnaði á bílaflota sínum en sá kostnaður hefur aukist mikið að undanförnu. Við erum mjög stoltir af þeim árangri sem fyrirtæki hafa verið að ná í að bæta umferðarör- yggi sitt. Dæmi eru um að stór fyr- irtæki með breið þjónustusvið hafa fækkað tjónum upp í um 80% í kjöl- far innleiðingar. Bætt aksturslag fer betur með bílaflota og dregur úr kostnaði við hann. Dæmi eru um að fyrirtæki hafi náð að spara sér um- talsverð eldsneytiskaup og lækkað þar með rekstrarkostnað og ekið bílaflotanum sínum á umhverf- isvænni hátt Starfsfólk almennt jákvætt ,,Upphaflega fórum við út í rann- sóknarvinnu, meðal annars með rík- islögreglustjóra og Umferðarráði, til þess að greina hvað væri eðlileg- ur akstur. Með SAGA-kerfinu okk- ar getum við greint frávik frá þess- um eðlilega akstri. Á þann hátt er ökumaðurinn gerður ábyrgur fyrir aksturshegðun sinni og það verður einfaldara að átta sig á hvað má bæta og hvernig.“ – En hvað með mörkin á milli friðhelgi einkalífs og eftirlits? ,,Búnaðurinn er að fylgjast með ökutækinu eða vinnuvélinni en ekki manneskjunni. Búnaðurinn skráir ekki hver er í bílnum á hvaða tíma. Við innleiðingu er kerfið kynnt vandlega á starfsmannafundum, hvaða upplýsingar koma fram, hvernig þær eru notaðar, hvað er ætlast til af notendum bílanna eða vinnuvélanna. Öll tæki sem útbúin eru SAGA-ökurita fá lítinn límmiða í hliðarrúðuna til að upplýsa og minna viðkomandi ökumann á að bíllinn sé búinn slíkum búnaði, til að það fari ekki á milli mála. Síðan er það grundvallaratriði að gögnin sem koma úr bílnum eru trún- aðarmál fyrirtækisins og þess starfsmanns sem var að vinna í honum á þeim tíma. Það er t.d. ekki verið að setja ökuníðing mánaðarins upp á skotskífuna í matsalnum – Svo þetta hefur lítil áhrif á starfsanda á vinnustöðum? ,,Þó að það sé oft upphaflega fæl- ingarmáttur, innleiðing á kerfum sem þessum þá skv. könnun sem við gerðum á meðal 50 fyrirtækja sem tekið hafa upp SAGA-ökuritann voru 98% jákvæð eða hlutlaus þeg- ar kom að þeirri spurningu. Aukin hagræðing og nýtni Þórólfur bendir á að í sömu könn- un hafi 86% núverandi viðskiptavina mælt með því við önnur fyrirtæki að taka upp SAGA-kerfið. ,,Það er ekki bara hægt að tengja búnaðinn okkar við bíla, heldur í rauninni við allt sem hreyfist, skip, vörubíla, vinnuvélar eins og gröfur og jafnvel fólk, sem t.d. vinnur við póstútburð. Þetta snýst allt um að auka nýtnina og þar með að auka hagnað fyr- irtækja. Í verktakabransanum er gífurleg velta en oft lítil framlegð. Oft á tíðum vantar yfirsýnina, hvernig hægt er að nýta tímann, vinnuaflið og vélarnar betur. Fram- legðaraukning um 2-3% getur aukið verðmæti í þessum bransa veru- lega. Fyrirtæki hafa verið að ná að hagræða í rekstri með þessari auknu yfirsýn. Við höfum t.d. að- stoðað gámafyrirtæki að minnka biðtímann sem það tekur að koma bíl aftur út um 15-20 mínútur í hverri ferð. Þetta þýðir fleiri ferðir á dag og á ársgrundvelli verður margt smátt eitt stórt. Sama má segja um losun vörubílahlass, það munar um ef hægt er að fara 1-2 aukaferðir á dag á hverjum bíl. Mögulegt er að fylgjast með bíla- flotanum í rauntíma, verkstjóri get- ur fylgst með bílaflotanum og stað- setningu hans eða vinnuvélunum af tölvuskjá. ,,Þetta getur tvímæla- laust verið hagræðing, enda nýta sér flest fyrirtæki þennan mögu- leika. Á örskömmum tíma er hægt að átta sig á staðsetningu allra öku- tækja og sjá þau hreyfast á korti. Ef menn rata ekki, t.d. í nýjum hverfum, er hægt að lóðsa ökumann í gegnum tölvuskjáinn stystu leið í verkefni. Varðandi skipin hafa t.d. hvalskoðunarskipin hagnýtt sér lausnir okkar, bæði til þess að sjá hvar skip eru á rauntíma og eins til að prenta út landakort með sigl- ingaleiðinni fyrir ferðamenn. Þá getum við mælt gang skipanna í skoðunartúrnum, hvernig sé hent- ugast að skipuleggja siglingu túrs- ins milli skoðunarstaða þannig að það eyði sem minnstri olíu. Upphafið, einkaleyfið og útrásin – Og á að færa út kvíarnar? ,,Já, við erum með umboðsaðila í Noregi og erum með nokkur verk- efni í bígerð þar ásamt verkefna í Svíþjóð, Danmörku og Austurríki. Við erum með níu starfsmenn hér á landi og við leggjum mikið upp úr þróun lausna með viðskiptavinum. Það eru mjög spennandi tímar framundan. Við höfum nýverið fengið einkaleyfi á aksturslagsform- úlunni okkar í Bandaríkjunum og fáum væntanlega innan fárra vikna einkaleyfi í Evrópu og Eyjaálfu. Flotastýringar eru þekkt fyrirbæri en það sem gerir okkur sérstök er aksturslagsformúlan okkar en hún gengur í mörgum tilfellum með þeim kerfum sem fyrir eru á mark- aðnum. Og þetta er stór markaður. – Hvert var upphaf ND á Ís- landi? ,,Við byrjuðum nokkrir strákar að búa til tæki sem gæti haft eftirlit með akstri ungmenna og aukið um- ferðaröryggi enda er tjónatíðni einna hæst í þeim aldursflokki. Í upphafi reyndum við að selja trygg- ingafélögunum hugmyndina, þeim fannst hún góð en keyptu hana ekki. Því næst fórum við að huga að fyrirtækjum sem voru með bíla- flota, enda töldum við að þetta væri verkfæri sem einnig gæti hagrætt í rekstri slíkra fyrirtækja. Það gekk betur og síðan höfum við einbeitt okkur að því að sníða lausnina sem best að þörfum viðskiptavina okkar. Í dag eru 130 fyrirtæki að nýta þjónustu okkar hér á landi og fer þeim ört fjölgandi vegna þessa góða árangurs sem fyrirtæki hafa verið að ná með búnaðinum. „Það er margra ára þróunarvinna að baki sem nú er að skila sér. Vin- irnir fjórir sem komu saman í bíl- skúrnum um kvöld og helgar fyrir átta árum hafa þróað lausn á al- þjóðamælikvarða sem bæði bætir umferðaröryggi og er hagræðing- artæki fyrir fyrirtæki í dreifingar-, þjónustu- og byggingariðnaði og jafnvel víðar. En hugmyndin um ökurita í bíla ungmenna er enn góð og vonandi á einhver eftir að kaupa hana.“ Hugmyndin sem varð að hagræðingarverkfæri Það var alvarlegt um- ferðarslys sem kom fjórum vinum til þess að huga að lausnum til þess að fylgjast með og bæta aksturslag. Þeir byrjuðu í bílskúrnum fyrir átta árum en starfa nú undir nafninu New Development (ND á Ís- landi) og eru nú m.a. komnir með einkaleyfi á lausn sinni í Bandaríkj- unum. Unnur H. Jó- hannsdóttir ræddi við Þórólf Gunnarsson, sölu- og þjónustustjóra hjá ND, um SAGA- flotastýringu, hagræð- inguna og útrásina. Morgunblaðið/Árni Sæberg Þróunarvinna Þórólfur Gunnarsson segir að baki SAGA-flotastýringunni liggi mikil þróunarvinna. Flotastýring Þetta tæki getur aukið hagræðingu í rekstri. Allt fyrir www.straumur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.