Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 6
6|Morgunblaðið
Eftir Leó M. Jónsson
leoemm@simnet.is
Það mun heyra til und-antekninga lesi einhverábyrgðarskilmála áður enbíll er keyptur. Það er
ekki fyrr einhver vandræði steðja
að, stundum með óþarfa þvargi og
leiðindum, að farið er að skoða
ábyrgðarskilmála sem geta verið
mismunandi eftir tegund bíls eða
tækis. Listinn yfir það sem er
undanþegið ábyrgð framleiðanda
er oft lengsti hluti textans; slit-
hlutir svo sem stýrisliðir, demp-
arar, bremsudiskar, bremsu-
klossar/borðar, kúplingsdiskur,
kúplingspressa, pústkerfi, reimar,
perur, dekk, vökvar o.fl. Þar með
er ekki sagt að gallar geti ekki
komið fram í hlutum sem und-
anþegnir eru ábyrgð en þá eru
þeir oftast bættir að frumkvæði
framleiðanda, annað hvort sem lið-
ur í þjónustuskoðun eða með inn-
köllun bíla.
Undantekning
frá reglunni
Söluskilmálar eru ekki það sama
og ábyrgðarskilmálar þótt ábyrgð-
arskilmálar kunni að vera felldir
inn í þá. Söluskilmálar kveða m.a.
á um hvaða samningar, hvers kon-
ar og til hve langs tíma skuli gilda
á milli seljanda og kaupanda;
hvernig skuli fara með ágreinings-
mál og hvert varnarþingið skuli
vera. Nú tíðkast hjá öllum vel
skipulögðum fyrirtækjum, t.d.
stærri verktökum, að kynna sér
sölu- og ábyrgðarskilmála ítarlega
áður en kaup eru ákveðin. Þegar
um meiriháttar tækjakaup er að
ræða er nokkuð algengt að þess sé
jafnframt krafist að skilmálar séu
þýddir á íslensku. Ein ástæðan
fyrir þessari breytingu er fjölgun
stjórnenda sem hafa lært verk-
efnastjórnun (project manage-
ment).
Án þess að fara út í langt mál
skal þetta skýrt með dæmi: Fyr-
irtæki ákveður að kaupa nýja dís-
ilknúna varaaflstöð af erlendu fyr-
irtæki. Liður í sölu- og
ábyrgðarskilmálum er að þrír sér-
fræðingar frá framleiðanda komi
til þess að setja rafstöðina upp,
gangsetja hana, prófa og taka út.
Afhending/viðtaka telst ekki hafa
farið fram fyrr en báðir aðilar hafa
samþykkt að rafstöðin skili um-
sömdum afköstum o.fl.
Í samningnum (smáa letrið) er
nákvæmlega tilgreint hvaða að-
stæður skuli vera á uppsetning-
arstað, hvaða hjálpartæki kaup-
andi skuli hafa til reiðu og hvað
megi reikna með að uppsetning og
uppkeyrsla taki langan tíma miðað
við að öllum skilyrðum sé full-
nægt.
Komi sérfræðingar erlendis frá
til að setja búnaðinn upp er reglan
yfirleitt sú að kaupandi greiðir
ferða- og uppihaldskostnað þeirra
sérstaklega samkvæmt reikningi
(þ. á m. dagpeninga, ákveðna upp-
hæð sem tekin er fram í söluskil-
málum/samningi). Í þessu ákveðna
dæmi hafði, vegna skorts á verk-
efnastjórnun, láðst að lúslesa sam-
þykkta söluskilmála til að und-
irbúa verkið í tíma. „Smáa letrið“
innihélt bálk þar tekið var sér-
staklega fram að sérfræðingar
seljanda ynnu ekki undirbúnings-
vinnu sem fæli í sér meðhöndlun
asbests. Þetta hafði verkstjórn-
endum sést yfir. Einangr-
unarskilrúm, klætt asbesti, sem
hafði fylgt eldri rafstöð stóð uppi
og teppti rými nýja búnaðarins.
Leita þurfti uppi verktaka með
sérstakt leyfi og búnað til að rífa
niður, fjarlægja og farga asbesti
undir sérstöku eftirliti heilbrigð-
isfulltrúa. Það verk tafði uppsetn-
inguna um tæpa viku og tvöfaldaði
kostnað kaupandans af uppsetn-
ingunni.
Gildi þjónustuskoðana
gagnvart ábyrgð
Þjónustuskoðanir eru fyrst og
fremst fyrirbyggjandi eftirlit og
mörg bíla- og vinnuvélaumboð
nota þjónustuskoðanir til að skipta
um ákveðna hluti að beiðni fram-
leiðanda án þess að eiganda eða
umráðamanni sé tilkynnt um það
sérstaklega. Af þeim ástæðum er
þjónustuskoðun hjá umboði eða
löggiltu verkstæði, þ.e. verkstæði
sem rekið er á ábyrgð iðnmeistara,
forsenda þess að ábyrgð sé gild
þann tíma sem hún á að gilda.
Löggilt bílaverkstæði, t.d. úti á
landi, sem tekur að sér ábyrgð-
arskoðun á rétt á því að fá þær
tæknilegu upplýsingar hjá viðkom-
andi bílaumboði sem þarf til að
framkvæma skoðunina hvort sem
það er samningsbundið umboðinu
eða ekki. Verkstæðinu er heimilt
að nota rekstrarvörur á almennum
markaði, svo sem síur, reimar, slit-
hluti og bremsubúnað án þess að
það hafi áhrif á ábyrgð framleið-
anda 1). Beri viðkomandi umboð
hins vegar brigður á gæði slíkra
hluta verður það að færa sönnur
fyrir því sjálft og greiða þann
kostnað sem slíkri rannsókn fylgir.
Við þjónustu á ábyrgðartíma er
heimilt að nota aðrar tegundir
smurolíu (með sama seigjusvið),
kælivökva og glussa en þær sem
framleiðandi bíls eða viðkomandi
umboð mælir með ef þau efni
standast þá alþjóðlegu gæðastaðla
sem framleiðandi bíls gefur upp í
handbók bílsins).
Hvað telst galli?
Bíll sem bilar á ábyrgðartíma
þannig að hann verður ónothæfur
og ekki verður séð að bilunin stafi
af rangri meðferð, mistökum eig-
anda eða skemmdarverkum, telst
gallaður og það er seljanda að
bæta úr því – eða það skyldi mað-
ur ætla. En „smáa letrið’’ getur
sett strik í reikninginn. Sumir
bílaframleiðendur, sem bjóða (með
venjulegri leturstærð) 3ja ára
verksmiðjuábyrgð eða 100 þús.
km. akstur, hvort sem kemur fyrr,
geta haft ýmsa fyrirvara varðandi
galla, – oftast með smærra letri.
Hafi samsvarandi galli ekki fund-
ist í öðrum sams konar bíl, t.d.
fyrstu 6 mánuði frá því sala bílsins
hófst, áskilja sumir bílaframleið-
endur, t.d. sumir bandarískir, sér
rétt til að neita bótum því viðkom-
andi galli sé ekki á lista yfir við-
urkennda galla, þ.e. galla sem
komið hafi fram í öðrum bílum
sömu gerðar. Í slíku tilviki, sem
mun vera fremur sjaldgæft, ber
kaupandanum, samkvæmt sölu- og
ábyrgðarskilmála sem hann hefur
samþykkt (oftast án þess að lesa)
að sanna á sinn kostnað að um
framleiðslugalla sé að ræða. Þetta
ákvæði mun eiga að vernda fram-
leiðanda gegn skemmdarverkum.
Þriggja ára ábyrgðin getur því
reynst vera 6 mánuðir eða 2 ár
samkvæmt íslenskum lögum um
lausakaup (sé hafnaðri kröfu áfrýj-
að til sérstakrar kærunefndar) eða
kaupandinn treysti sér í dýr mála-
ferli fáist krafan ekki samþykkt.
Hvað er innifalið í ábyrgð?
Verksmiðjuábyrgð, t.d. bíls,
kann að vera þess eðlis að bíleig-
andi skuli bera allan kostnað af
flutningi bilaðs bíls á verkstæði á
ábyrgðartímanum. Hafi bíl verið
ekið 80 þús. km. á innan við 3 ár-
um þegar galli kemur í ljós getur
„smáa letrið“ sagt að framleiðanda
beri einungis að bæta um 20% af
verði nýs hlutar í stað þess gall-
aða. Í öðrum tilvikum getur smáa
letrið kveðið á um að framleið-
anda/umboði beri einungis að bæta
gallaðan hlut á ábyrgðartíma en
bíleigandinn skuli bera kostnað við
úr- og ísetningu hlutarins. En bíla-
kaupendum til happs er þekking á
þessum ábyrgðarmálum (claim-
management) mismunandi mikil
hjá bílaumboðum.
Ákveðin umboð eru með hag-
stæðari ábyrgðarskilmála en önn-
ur. Þá er um að ræða þjónustu
sem þau veita á eigin kostnað. Í
ábyrgðarskilmála kann að vera
ómögulegt að finna stafkrók um
lánsbíl á meðan á ábyrgðarviðgerð
stendur. Engu að síður lána sum
umboð bíla endurgjaldslaust á
meðan ábyrgðarviðgerð fer fram
þótt kaupandinn eigi ekki rétt á
slíkri þjónustu samkvæmt ábyrgð-
arskilmálum. Þjónusta þeirra um-
boða er einfaldlega betri en ann-
arra.
Íslensk lög um ábyrgð á
vörum og þjónustu
Lög nr. 50 sem upphaflega voru
samþykkt á Alþingi 16. maí 2000
og nefnast „Lög um lausafjár-
kaup“ er heilmikill bálkur (99
greinar – 9 síðna 2ja dálka A4-
skjal). Sé leitað gaumgæfilega má
finna í næst aftasta atriði 32.
greinar að kvörtun teljist ekki gild
nema hún sé lögð fram innan 2ja
ára frá viðtöku selds hlutar. Varð-
andi viðgerðir/þjónustu gilda lög
nr. 42, upphaflega samþykkt á Al-
þingi 16. maí 2000 og nefnast „Lög
um þjónustukaup.“ Í þeim má
finna í næst aftasta atriði 17.
greinar sömu setningu um 2ja ára
gildistíma kvörtunar. Sérstök
kærunefnd tekur kvartanir til um-
fjöllunar en hún er til húsa hjá
Neytendastofu. 15. kafli laga um
lausfjárkaup nefnist „Sérreglur
um alþjóðleg kaup“ og í 88.gr.
þeirra er vísað í samning Samein-
uðu þjóðanna frá 1980 um al-
þjóðleg lausafjárkaup. Því má gera
ráð fyrir að 2ja ára ábyrgð sam-
kvæmt íslensku „Kaupalögunum“
gildi ekki fortakslaust þegar um er
að ræða kaup á tækjum og búnaði
fyrirtækja erlendis frá. Því meiri
þýðingu hefur „smáa letrið“ eins
og verkefnastjórar vita.
1) EU Commission: Block Ex-
emption Regulation 1400/2002
„Smáa letrið“ sem ætti að lesa
Ábyrgðar- og
söluskilmálar
Morgunblaðið/Júlíus
Tyrfið Söluskilmálar eru ekki það sama og ábyrgðarskilmálar þótt ábyrgðarskilmálar kunni að vera felldir inn í þá.