Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 19
Morgunblaðið |19
Ídag er fyrirtækið JCB ann-ar stærsti vinnuvélafram-leiðandi heims með aðal-bækistövar í Bretlandi,
Bandaríkjunum. Brasilíu, Þýska-
landi, Indlandi og Kína og starfa
um 9 þúsund manns hjá fyrirtæk-
inu í 150 löndum. Fyrirtækið hef-
ur átt mikilli velgengni að fagna
og hefur bæði framleiðsla og gróði
aukist frá ári til árs.
Árið 2007 var besta árið í sögu
fyrirtækisins, salan á heimsvísu
hefur aldrei verið meiri. Velta fyr-
irtækisins sló út fyrri met, en það
seldi fyrir fjóra og hálfan milljarð
dollara samanborið við þrjá og
hálfan milljarð árið 2006. Þessi ár-
angur náðist með því að selja
meira en 72 þúsund vinnuvélar,
sem er annað met, en það jók
gróðann á ársgrundvelli um 30
prósent og kom fyrirtækinu í ann-
að úr þriðja sæti á heimsvísu.
Bretland átti stærstu markaðs-
hlutdeildina þar til árið 2007 þeg-
ar Indverjar skutust fram fyrir
Bretland með því að selja rúmlega
17 þúsund vélar en Indverjar
höfðu selt um 10 þúsund og átta
hundruð vélar árið 2006.
290 framleiðslutegundir
Um þessar mundir er fyrirtækið
að kynna 21 nýja vörutegund og
þá er framleiðslutegundirnar
orðnar 290 talsins. John Petter-
son, markaðsstjóri JCB, segir við-
skiptin hafa fjórfaldast á síðast
liðnum fjórum árum, salan hafi
aukist úr því að vera 36 þúsund
vélar árið 2004 og upp í 72 þúsund
vélar á síðasta ári. Hann segir
þetta frábæran árangur og ný og
góð markaðssvæði séu grunnurinn
að þessum öra vexti. JCB náði
góðri markaðsaukningu um allan
heim, til dæmis á Indlandi, í Búlg-
aríu, Rúmeníu, Póllandi, Rússlandi
og Suður-Ameríku. Matthew Tay-
lor, yfirverkstjóri fyrirtækisins,
segir að vonast sé til að mark-
aðurinn aukist enn árið 2008 með
fjárfestingum á nýjum fram-
leiðslutegundum, bættri aðstöðu
og áframhaldandi styrk JCB sam-
skiptanetsins og starfsmanna um
heim allan.
JCB í 45 ár á Íslandi
Í byrjun apríl verða 45 ár síðan
byrjað var að selja JCB gröfur á
Íslandi. Vélaver er umboðsaðili
JCB hér á landi og þar á bæ verð-
ur haldin hátíð í tilefni dagsins.
,,Við verðum með afmælishátíð
4. apríl,“ segir Hinrik Laxdal,
sölustjóri atvinnutækjabíla. ,,Þá
bjóðum við til okkar eigendum
JCB vinnuvéla hér á landi og er-
lendum gestum frá verksmiðj-
unum. Við ætlum að bjóða upp á
léttar veitingar, hingað koma
skemmtikraftar frá útlöndum og
sitthvað fleira verður til gamans
gert.“
,,JCB er markaðsleiðandi í
heiminum hvað varðar sölu á skot-
bómulyfturum og traktors-
gröfum,“ segir Hinrik. ,,Helstu
nýjungar frá fyrirtækinu eru trak-
torsgröfur og ný lína af minigröf-
um. JCB er með stóra markaðs-
hlutdeild hér á landi og höfum við
rokkað upp í 20 prósent markaðs-
ins. JCB fyrirtækið er eitt af fáum
vinnuvélaframleiðendum sem
framleiða breiða línu undir sama
merki.“
Vélaver er elsti umboðsaðili
JCB í heiminum og JCB grafan
hefur verið mest selda traktors-
grafan hér á landi í fjölmörg ár.
,,Við erum ákaflega ánægðir
með samskiptin við framleiðendur
og erum stoltir af okkar vöru,“
segir Hinrik að lokum.
totaspain@yahoo.is
Árið 1945 stofnaði Jo-
seph Cyril Bamford
fyrirtæki með það fyrir
augum að framleiða
bygginga- og landbún-
aðartæki, og notaði
hann upphafsstafi sína
sem nafn fyrirtækisins.
Þórunn Stefánsdóttir
kynnti sér söguna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Veisluhöld Það verða veisluhöld hjá JCB á Íslandi í apríl en þá hefur merkið verið hér í 45 ár.
» ,,Við verðum með af-mælishátíð 4. apríl,“
segir Hinrik Laxdal,
sölustjóri atvinnutækja-
bíla. ,,Þá bjóðum við til
okkar eigendum JCB
vinnuvéla hér á landi og
erlendum gestum frá
verksmiðjunum.
Afmæli JCB á Íslandi
Vörur fyrir bíla
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
8
0
6
0
6
Snúningsljós
og perur
ORSY mobil innréttingar í verkstæðis-/þjónustubíla hjá verktökum
12V/24V
Fjölnota þykkur lakkúði sem gefur silkiáferð, þekur einstaklega
vel og veitir mikla vörn gegn tæringu.
Smelltur hjálmur
Gult snúningsljós
Hægt að festa á sléttan flöt,
Quattro lakkúði
rör eða með segli.
Vesturhraun 5
210 Garðabær
Sími: 530 2000
Wurth á Íslandi
wurth@wurth.is
www.wurth.is
Bíldshöfði 16
110 Reykjavík
Sími: 530 2002
Smiðjuvegur 6
200 Kópavogur
Sími: 530 2028
Fjölnisgata 1A
603 Akureyri
Sími: 461 4800