Morgunblaðið - 28.03.2008, Síða 21
Notadrjúgur bíll
Bíllinn var prófaður á holóttum
malarslóða og þar sýndi hann svo
ekki verður um villst góða tor-
færu-eiginleika. Í fjórhjóladrifinu
getur Hilux nokkuð auðveldlega ekið
upp allt að 30 gráðu brattar brekkur.
Undirvagninn er hár þannig að hann
komst léttilega yfir allháar ójöfnur.
Veggrip og stöðugleiki var til fyr-
irmyndar. Þetta er sannkallaður
vinnuþjarkur og því kemur ekki á
óvart að bíllinn er mjög vinsæll meðal
verktaka og bænda. Ekki er neinn
skortur á hleðslurými því pallurinn á
Hilux Double Cap er 1520 mm á
lengd og hámarksburðargeta er alls
930 kíló.
Sé Hilux hins vegar breytt með því
að setja á hann hús að aftan er þar
kominn eins og nýr bíll. Ekki bara í
útliti og notagildi heldur breytast
akstureiginleikarnir þó nokkuð. Bíll-
inn verður mýkri í akstri, sérstaklega
að aftan þegar 100 kílóa húsið er
komið aftan á.
Mismunadrif við erfiðar aðstæður
Allur öryggisbúnaður Hilux er til
fyrirmyndar eins og búast mátti við
af Toyota. Vert er að nefna mis-
munadrifið í Hilux (Limitied Slip
Differential), sem aðstoðar við akstur
á hálu yfirborði. Búnaðurinn virkar
þegar hjól missir grip og veitir auknu
snúningsátaki til þeirra hjóla sem
hafa meira grip. Þetta dreifða snún-
ingsvægi á milli vinstri og hægri hjól-
anna eykur stöðugleikann í beygjum
og við erfiðar aðstæður. LSPV kerfið
(Load Sensing Proportioning Valve)
hámarkar hemlun í beinu samræmi
við farmþunga Hilux og eykur heml-
unarþrýsting að aftan þegar bíllinn er
hlaðinn. Þá má einnig nefna ADD-
búnaðinn (Automatic Disconnecting
Differential), sem sér um að aftengja
sjálfkrafa framhjólin þegar skipt er
úr fjórhjóladrifi í tveggja hjóla drif á
fullri ferð. Sú aðgerð bætir einnig
eldsneytisnýtinguna.
Stærri og rúmbetri
að innan
Í útliti er Hilux Double Cap krafta-
legur að sjá en myndi seint teljast
beint laglegur. Útlínurnar eru samt
nokkuð rennilegar og túrbínuopið á
húddinu gefur honum dálítið töff-
aralegt yfirbragð. Bíllinn hefur
stækkað talsvert að innan. Plássið er
gott í alla staði fyrir ökumann og far-
þega. Hilux Double Cap rúmar fimm
manns Mælaborðið er frekar einfalt
og látlaust sem og miðstokkurinn og
allar aðgerðir því auðveldar. Sætin
eru ágætlega þægileg og þar hefur
einnig orðið breyting til batnaðar frá
fyrirrennaranum. Það er kannski
skemmtilegt að segja frá því að verk-
taka nokkrum fannst nýja hönnunin
að innan vera orðin einum of fín og
snyrtileg fyrir vinnubíl. Hann var
farinn að strjúka mesta skítinn úr
fötunum áður en hann settist upp í
bílinn.
Hilux Double Cap sjálfskiptur
kostar 4.120.000 kr. Hægt er að fá
bílinn beinskiptan og er hann þá
250.000 kr. ódýrari.
Mælaborð Það er frekar einfalt og látlaust sem og miðstokkurinn.
Morgunblaðið |21
Vél: 3 lítra, 4 strokka dísilvél.
Aflgeta: 171 hestafl, 343 Nm við
2000 sn./mín.
Drif: Fjórhjóladrif.
Hámarkshraði: 170 km/klst.
(beinsk.) – 175 km/klst. (sjálfsk.)
Gírskipting: 5 gíra handskipting, 4
þrepa sjálfskipting.
Lengd: 5255 mm.
Breidd: 1760 mm.
Hæð: 1695-1810 mm.
Hjólhaf: 3085 mm.
Eigin þyngd: 1840-1890 tómur
Farangursrými: 930 kg. farmþungi
á palli
Hemlar: Loftkældir diskar að fram-
an, skálar að aftan
Hjólbarðar: 255/70R15
Felgur: 15 tommu álfelgur
Eyðsla: 8,3 lítrar (beinsk.) – 9,4 lítr-
ar (sjálfsk.) í blönduðum akstri
Verð: 3.870.000 (beinsk.) – 4.120.000
(sjálfsk.)
Umboð: Toyota á Íslandi.
Toyota Hilux
Double Cap