Morgunblaðið - 28.03.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 28.03.2008, Síða 24
24|Morgunblaðið               $      1 2     ) 3 0 / 5/     '        0 ! Eftir Leó M. Jónsson leoemm@simnet.is Íslenska þjóðvegakerfið meðeina akrein í hvora átt, ein-breiðar brýr og bratta fjall-vegi, víða án vegriða, er hættulegt, t.d. hættulegra en margir erlendir ferðamenn eiga að venjast í sínum heimalöndum. Alvarleg slys undanfarin ár eru til marks um það. Íslenskt veðurfar með stormi og sviptivindum eykur hættu í akstri á þjóðvegum. Með hverju árinu ferðast fleira fólk um landið með tjaldvagna, fellihýsi, kerrur eða jafnvel hjólhýsi í eftirdragi. Af fyrrnefndum ástæðum eru íslenskir þjóðvegir sérstaklega hættulegir því fólki og hafa alvarleg slys, m.a. dauðaslys, hlotist af því að vagn, t.d. fellihýsi hefur tekist á loft í stormhviðu og kippt bíl með sér út af vegi. Jafnvel þótt ekki sé um fjallveg að ræða geta afleiðingarnar orðið hörmulegar. Þá hefur fólki fjölgað jafnt og þétt sem hefur hestamennsku að tóm- stundaiðju, áhugamáli og/eða keppn- isgrein. Hestamennsku fylgir aukinn flutningur hrossa í mismunandi stórum vögnum um landið þvert og endilangt. Á þjóðvegunum stafar sér- stakri hættu af bílum með þunga hestaflutningavagna sé eigin þyngd bíls um og innan við 2 tonn. Sú hætta er fólgin í þeim áhrifum sem þungur vagn hefur á stöðugleika bíls og ör- yggi og varla þarf að taka það fram að því þyngri og öflugri sem drátt- arbíllinn er því minni hættu stafar af honum. Öryggi í drætti má auka með réttum tengibúnaði og jöfnun fargs á beislistengingu, hjól vagns og bíls (ít- arlegar upplýsingar um drátt- arbúnað er að finna á http:// www.leoemm.com/vagnar.htm). Uppgefnar eyðslutölur Þær tölur sem framleiðendur bíla gefa upp um eyðslu (EPA-tölur í Bandaríkjunum og EEC-tölur í Evr- ópu) ber að taka með ákveðnum fyr- irvara. Þær mæla ekki eyðslu bílanna í eðlilegri notkun heldur við ákveðnar aðstæður sem tilteknar eru í opinber- um stöðlum og öllum bílaframleið- endum gert að fara eftir til að skapa samanburðargrundvöll fyrir kaup- endur. Dæmi: Sé uppgefin með- aleyðsla, mæld samkvæmt EEC- staðli, 11 lítrar fyrir bíl A en 9 lítrar fyrir bíl B þýðir það ekki að bíll B eyði 2 lítrum minna að meðaltali á hverja hundrað km í venjulegri notk- un. Hins vegar er þetta vísbending um að bíll B sé sparneytnari en bíll A. Eftirfarandi dæmi skýrir ef til vill betur hvers vegna ekki ætti að taka uppgefnar staðaltölur um eyðslu of bókstaflega heldur sem viðmiðun. Tveir bílar af mismunandi tegund eyða jafn miklu samkvæmt EPA- mælingu. Annar þeirra gæti eytt talsvert meiru vegna þess að hann tekur á sig meiri vind en hinn – stað- almælingin fer nefnilega fram í logni. Önnur atriði sem geta haft mismun- andi mikil áhrif á meðaleyðslu bíls eru mismunandi lofthiti, mismunandi hæð yfir sjávarmáli, mismunandi hleðsla bíls, mismunandi aksturs- hraði, mismunandi aksturslag bíl- stjóra o.fl. Hafa ber í huga að að- stæður, meðferð, ástand og beiting bíls (jafnvel tveggja sams konar bíla) hafa áhrif á eyðslu í notkun. Notkun palljeppa Ef dæma má af jeppaeign lands- manna sem hefur vaxið árlega um skeið eru jeppar (jafnvel af stærri gerð) vinsælasta gerð bíla hérlendis. Engu að síður er þessi mikla jeppa- eign gagnrýnd og oftar en einu sinni hefur verið skorað á stjórnvöld að grípa í taumana. Af jeppaeign lands- manna að dæma mætti ætla að um forsjárhyggju umhverfisvernd- arsinna væri að ræða frekar en al- menna skoðun meirihluta. Í umræðu um umhverfismál er farið að tala um koldíoxíð (CO2) sem mengun og blandað saman við hættuleg eiturefni í útblæstri véla. Í umræðu um loft- mengun er gjarnan vísað til svif- ryksmengunar í miðborg Reykjavík- ur sem mælist yfir hættumörkum og látið í það skína að útblæstri bíla sé um að kenna. Svifryksmengun stafar fyrst og fremst af notkun nagla- dekkja, lélegu malbiki og alvarlegum skorti á þrifnaði gatna. (Minni loft- mengun stafar frá bílaflota lands- manna en frá fiskiskipum og land- búnaði). Svo virðist sem það sé algeng skoð- un að jeppar eyði miklu eldsneyti miðað við fólksbíla, jafnvel þótt eigin þyngd sé svipuð. Stór hluti fullvax- inna jeppa og jepplinga er með fjór- hjóladrif aftengt í venjulegum akstri. Musso mætti nefna sem dæmi um eyðslu fullvaxins jeppa (4x4 + hátt/ lágt drif) sem margir eigendur geta staðfest. Musso með 2,9 lítra 129 ha Benz-túrbódísilvél eyðir í blönduðum akstri 10,5-11,5 lítrum á 100 km (Musso er með sparneytnustu dís- iljeppum enda margfaldur sigurveg- ari í sparaksturskeppnum FÍB). Er þá miðað við óbreyttan bíl á 31" dekkjum, um 1.850 kg að eigin þyngd og með dráttargetu 2.300 kg. Hverjir þurfa „stóra ameríska palljeppa“’? Það þrep mengunarvarnarstaðals sem tók gildi í gildi í Bandaríkjunum um síðustu áramót (síðasta þrep Tier 2 staðalsins mun taka gildi um næstu áramót og í framhaldi mun fyrsta þrep Tier 3 taka við) gerir sömu kröf- ur um mengunarvarnir í útblæstri allra bíla, af öllum stærðum, án tillits til slagrýmis vélar og án tillits til hvort um bensín, gas eða dísilvél er að ræða. Þær kröfur eru því strang- ari en evrópski staðallinn EU 4 gerir, bæði varðandi mælt magn í g/km og vegna undanþága sem eru í EU 4.1) En af einhverjum ástæðum tókst bandarískum bílaframleiðendum að koma því til leiðar að allra stærstu og eyðslufrekustu fjórhjóladrifsbílar þeirra voru undanþegnir þessum reglum um mengunarvarnir. Und- anþágan gildir ekki fyrir þá ½ og ¾ tonna* amerísku palljeppa sem hér eru algengastir heldur fyrir enn stærri palljeppa auk jeppa á borð við Ford Expedition/Lincoln Navigator/ Range Rover, Chevrolet Tahoe og Suburban/Cadillac Escalade og Hummer H2. Annað atriði sem vert er að minna á er að því fer víðs fjarri að „Bandaríkjamenn geri ekki neitt í loftslagsmálum,“ eins og heyra hefur mátt í fjölmiðlum. Núverandi rík- isstjórn Bandaríkjanna hefur hins vegar lítið gert af því að kynna lofts- lagsbúskap sinn á alþjóðlegum vett- vangi. Umhverfisverndarsinnar í Bandaríkjunum leggja höfuðáherslu á að minnka nitoroxíðmengun frá bíl- um, einkum dísilbílum, fremur en los- un koldíoxíðs og ástæðan fyrir þeim áherslumun er m.a. hætta sem bandarískum skógum stafar af súru regni. Þeir sem þurfa „stóra ameríska palljeppa“ (með 5-7 manna húsi) hér- lendis eru þjónustufyrirtæki, verk- takar, bændur, iðnaðarmenn, hesta- fólk, akstursíþróttafólk sem ver tómstundum til að aka torfæruhjól- um, fjórhjólum eða vélsleðum, fólk sem stendur í húsbyggingum og fyr- irtæki í ferðaþjónustu sem bjóða auk gistingar hestaferðir, flúðasiglingar, hálendisferðir, jöklaferðir m.m. svo nokkrir aðilar séu nefndir. Dráttargeta er lóðið Af málflutningi þeirra sem hafa t.d. krafist þess að vörugjöld verði innheimt af þessum „stóru amerísku palljeppum,“ sem kann að vera rétt- lætanlegt, mætti ætla að þeir telji að einhverjir aðrir bílar geti tekið við hlutverki palljeppanna. En svo er ekki. Hvorki í Evrópu né Japan eru framleiddir 5-7 manna palljeppar með þá dráttargetu sem þessir sér- stöku amerísku fyrirbrigði hafa (nema LandRover Defender Crew- Cab), þ.e. um og yfir 3.500 kg – sem er nauðsynlegt t.d. fyrir þá sem draga hestaflutningavagna af stærri gerð og aðra í þessum hópi af örygg- isástæðum. Hvers vegna dísilvél? Eðlismunur á dísilvél og bensínvél er m.a. sá að í dísilvélinni brennur eldsneytið við stöðugan þrýsting en stöðugt rúmtak í bensínvél. Það gerir það m.a. að verkum að kveikjubúnaður dísilvélar er einfaldari og öruggari. Mestu máli skiptir þó að í dísilvélinni getur brun- inn haldið áfram í þrepum (allt að 5 í nýjustu vélum) á leið stimpilsins nið- ur í aflslagi. Stimpillinn beitir því meira átaki til að snúa sveifarásnum. Átaksarmur (vogarstöng) sveifaráss- ins getur því verið lengri en í bens- ínvél með sama slagrými – af því leið- ir meiri slaglengd og minni snúningshraði en mun meira tog en í bensínvél. Eðlis síns vegna getur dís- ilvél nýtt um 35-36% brunaorku elds- neytisins sem hreyfiafl en fullkomn- asta bensínvél nær ekki 24%. Þetta skýrir jafnframt hvers vegna dísilvél er um 30% sparneytnari að jafnaði en bensínvél af sama slagrými við sömu aðstæður og skýrir jafn- framt hvers vegna hlutfallsleg eyðsluaukning bensínvélar er miklu meira en dísilvélar við að draga þungan vagn. t.d. upp brekku. Þetta tog sem dísilvél hefur um- fram bensínvél er lykilinn að drátt- argetu „stóru amerísku palljepp- anna“ en bandarískar dísilvélar með 6-8 lítra slagrými eiga sér enga hlið- stæðu, þær eru sparneytnastar, og með minnstu mengun í útblæstri. Sem dæmi þá hefur niturox- íðsmengun í útblæstri amerísku dís- ilvélanna minnkað um 99,5% frá árs- byrjun 1998 til ársloka 20051). Á sama tíma hefur sparneytni vélanna aukist um 8-10% og til 2008 um 25% (Dodge/Cummins 5,9 dísill). Hve miklu eyða „stóru amerísku palljepparnir?“ Hér er fjallað um eyðslu óbreyttra palljeppa í fullkomnu lagi en þó með aflaukandi forriti (kubbi) í sumum til- vika. Stuðst er við upplýsingar sem greinarhöfundur hefur sannreynt með mælingum sl. 3-4 ár. Með einni undantekningu er um dísilbíla að ræða. Í öllum tilvikum er um með- aleyðslu að ræða í blönduðum akstri. Ford F-150 4ra dyra með sætum fyrir 5 og styttri gerð af palli, eigin þyngd 2.200 kg. Árgerð 2004. Vél 4,6 lítra V8-bensínvél með aflaukandi tölvuforriti (kubbur). Dráttargeta 2.948 kg. Eyðsla 16 lítrar. Snerpa innan við 7 sek. 0-100. Ford F-250 4ra dyra með sætum fyrir 5 og palli, eigin þyngd 3.280 kg, 235 ha 6 lítra PowerStroke V8- dísilvél (en þær vélar eru, því miður, sjaldan í fullkomnu lagi), árgerð 2006. Dráttargeta 2.268 kg (Super Duty er með mun meiri dráttargetu). Eyðsla 15-16 lítrar. Chevrolet Silverado 2.500 HD 4ra dyra með sætum fyrir 5 og palli, eigin þyngd 2.800 kg, 6,6 lítra Duramax V8-dísilvél, 365 ha, árgerð 2.008. Dráttargeta 4.358 kg. Eyðsla 13-14 lítrar. (Þægilegasti palljeppinn í akstri). Dodge Ram 2.500 HD 4ra dyra með sætum fyrir 5 og palli. Eigin þyngd 2.475 kg, 5,9 lítra 325 ha Cummins 6 sílindra dísilvél (lína), ár- gerð 2007. Dráttargeta 5.834 kg. Eyðsla 14-15 lítrar. (Dodge Ram með Cummins-dísilvélinni er sparneyt- nasti palljeppinn, Ram 1.500 eyðir um 13 lítrum með þessari vél). Skýrsla: Varnir gegn mengunar- efnum í afgasi farartækja í Banda- ríkjunum og Evrópu (ES). Leó M. Jónsson iðnaðar- og vélatæknifræð- ingur, Reykjanesbæ. 2003 (www.leo- emm.com/mengunarskyrsla.htp) Flokkun pallbíla í Bandaríkjunum fer eftir burðargetu grunngerðar, 1.500 (F-150)/500 kg, 2.500 (F-250)/ 750 kg, 3.500 (F-350)/1.000 kg o.s.frv. Hafa ber í huga að frávik geta verið talsverð enda er ameríska pundið ekki 0,5 kg, eins og algengt er að fólk gefi sér, heldur 0,454 g. » Þetta tog sem dísil-vél hefur umfram bensínvél er lykilinn að dráttargetu „stóru am- erísku palljeppanna“ en bandarískar dísilvélar með 6-8 lítra slagrými eiga sér enga hliðstæðu, þær eru sparneytnastar og með minnstu meng- un í útblæstri. Eiga „stórir amerískir palljeppar“ tilverurétt? Morgunblaðið/Golli Pallbílar Greinarhöfundur fjallar um pallbíla og jeppa og notkunarmöguleika þeirra, einnig út frá umræðunni um mengun og telur að umræðan þar um mengun jeppa sé á villigötum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.