Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 25

Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 25
Morgunblaðið |25 Mercedes-Benz Sprinter bílarnir hafa nú verið á markaði frá árinu 1995 en ekki eru nema um tvö ár síðan Sprinter fékk síð- ustu yfirhalninguna. Það virðist þó enn vera svigrúm fyrir end- urbætur því þýska breyting- arfyrirtækið Hartmann hefur tekið til við breytingar á Sprin- ter-bílnum og er niðurstaðan sendibíll fyrir þá sem hafa dísil í blóðinu. Sprinter-sendibílar – eða bara sendibílar yfir höfuð – eru ekki fyrstu bílarnir sem manni dettur í hug þegar sprækir bílar eru nefndir. Þessu bætir Hartmann reyndar ekki úr en útlitslega lít- ur bíllinn út fyrir að vera mun sprækari. Þannig hefur Hart- mann SP5 eins og hann er kall- aður fengið tvöfalt púst, 19 ál- felgur með lágprófíls-dekkjum, sérstaka sílsalista og vind- skeiðar. Útlitslega er bíllinn nokkuð álitlegur að sjá og þrátt fyrir lágprófílsdekkin er burð- argeta bílsins samt næstum því 3,5 tonn. Þó er nú líklegast að bíllinn muni njóta vinsælda sem fólks- flutningabíll, nú eða húsbíll, og á meginlandinu hafa bílar í þess- um dúr verið mjög vinsælir sem skutlur, t.d. við flugvelli eða sem leigubílar. Hartmann breyt- ir Mercedes-Benz Sprinter í sann- kallaða skutlu SMURSTÖÐ Á HJÓLUM HEKLA býður viðskiptavinum sínum á vélasviði nýja frábæra þjónustu, hreyfanlega smurþjónustu fyrir stórvirkar vinnuvélar. Vélasvið HEKLU hefur tekið í notkun nýjan smurþjónustubíl af Scania gerð sem er afar fullkominn, útbúinn í samstarfi við Skeljung samkvæmt ströngustu stöðlum frá Caterpillar. Búnaðurinn miðast við að hægt sé að bjóða viðskiptavinum vélasviðs HEKLU fullkomnustu smurþjónustu sem völ er á. Slöngubúnaður stöðvarinnar er á keflum sem auðveldar alla vinnu og viðheldur hreinleika á háþrýstiþvottatækjum, olíum, lofti eða vatni. · Gömul olía soguð upp í tank. · Gamlar síur settar í hólf utan á bílnum. · Búnaður sem greinir hreinleika olíunnar. Komdu í HEKLU og kynntu þér frábæra nýjung í þjónustu við vinnuvélaeigendur. Með færanlegri smurstöð Vélasviðs HEKLU bjóðast nú möguleikar sem ekki voru fyrir hendi áður í smurþjónustu, og þjónustuskoðunum. Þjónustan býðst eigendum allra tegunda vinnuvéla, Caterpillar sem annarra. HEKLA vélasvið Klettagörðum 8-10, sími 590 5000, www.hekla.is, velasvid@hekla.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.