Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 30
30|Morgunblaðið
Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur
valaosk@gmail.com
Bubbi söng að sumariðværi tíminn og svosannarlega er það rétt.Sumarið er tími til
margs, m.a. tími gatna- og um-
ferðarframkvæmda á Íslandi. Þá
er veðráttan yfirleitt til friðs og
hindrar ekki störf á götum lands-
ins.
Ótal gatna- og umferð-
arframkvæmdir eru á döfinni hjá
framkvæmda- og eignasviði
Reykjavíkurborgar, nýfram-
kvæmdir, endurnýjanir, viðhald
sem og áframhald fyrri fram-
kvæmda. Árið 2008 er áætlað að
nýframkvæmdir nemi 7,2 millj-
örðum króna. Að sögn Kristjáns
Helgasonar, upplýsingafulltrúa
hjá framkvæmda- og eignasviði,
námu nýframkvæmdir gatna í
fyrra 2,7 milljörðum króna þó svo
að áætlunin hafi hljóðað upp á 3,7
milljarða. Hækkunin á áætluðum
framkvæmdum milli ára nemur
því tæplega 100%.
Ekki er rask í umferðinni vegna
nýframkvæmda fyrirsjáanlegt en
líkt og fyrri sumur má hins vegar
gera ráð fyrir umferðartöfum
vegna malbiksviðgerða.
Hér fyrir neðan má sjá yfirlit
yfir sjö ný verkefni sem verktakar
á vegum Reykjavíkurborgar ráð-
ast í nú á vor- og sumarmánuðum.
Strætóumbætur við
Miklubraut
Unnið er að undirbúningi sér-
stakrar akreinar fyrir almenn-
ingsvagna og leigubifreiðar á
Miklubraut þegar ekið er í vest-
urátt frá mislægum gatnamótum
við Réttarholtsveg að göngubrú
við Kringluna. Þar mun akreinin
tengjast núverandi strætórein,
sem nær niður að gatnamótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar.
Vegagerðin deilir kostnaðinum við
gerð strætóakreinanna, þar sem
brautin er skilgreind sem þjóð-
vegur.
Samhliða þessum fram-
kvæmdum verður gönguleiðum yf-
ir Miklubraut áfangaskipt við
tvenn gatnamót á þessari leið,
m.a. til þess að auka öryggi gang-
andi vegfarenda. Um er að ræða
gatnamót Miklubrautar við Grens-
ásveg og Háaleitisbraut, en
áfangaskiptar gangbrautir eru nú
í notkun á gatnamótum við
Kringlumýrarbraut.
Kristján segir þessar aðgerðir
vera lið í þeirri viðleitni borg-
arinnar að auka vægi almennings-
samgangna þar. Sérstakar strætó-
reinar flýti mjög fyrir ferðum
vagnanna, sérstaklega á álags-
tímum í upphafi og lok vinnudags.
Með þessu mun samkeppnisstaða
gagnvart einkabílnum styrkjast
og fólk komi frekar til með að
nota strætó til og frá vinnu. Þegar
til lengri tíma er litið dregur
þetta úr vaxandi álagi á gatna-
kerfi borgarinnar segir Kristján.
Skólavörðustígur
Nú þegar eru hafnar end-
urbætur á götum og gönguleiðum
á Skólavörðustíg, nánar tiltekið á
milli Týsgötu og Njarðargötu.
Áætluð lok framkvæmda eru 31.
júlí næstkomandi. Kostnaðar-
áætlun framkvæmdanna hljóðar
upp á 140 milljónir króna en verk-
efnið felst í endurnýjun lagna
veitufyrirtækja, jarðvegsskiptum,
snjóbræðslu og yfirborðsfrágangi.
Sléttuvegur –
nýtt íbúðahverfi
Verið er að vinna að fram-
kvæmdum við gatnagerð í nýju
íbúðahverfi við Sléttuveg í Foss-
vogsdalnum. Meðal þess sem unn-
ið er að er nýbygging gatna,
stétta, bílastæða og stíga ásamt
hljóðmönum og lögnum veitufyr-
irtækja. Áætlað er að fram-
kvæmdum ljúki 1. september
næstkomandi og heildarkostnaður
vegna verksins er áætlaður 300
milljónir króna.
Bústaðavegur og
Snorrabraut
Í samstarfi við Vegagerðina
vinnur Reykjavíkurborg nú áfram
að uppsetningu á miðlægri stýr-
ingu umferðarljósa, en lokið var
við uppsetningu á umferðatölvu
árið 2007 ásamt tengingu alls 37
umferðaljósagatnamóta við hana.
Í ár verða umferðarljós við Bú-
staðaveg og Snorrabraut tengd
við kerfið en útboð í verkið fer
fram um miðjan apríl og gert er
ráð fyrir að framkvæmdum verði
lokið um miðjan október. Búast
má við að einstök umferðarljós
Sléttuvegur Verið er að vinnna að framkvæmdum við gatnagerð í nýju íbúahverfi við Sléttuveg í Fossvogsdalnum
Morgunblaðið/Þorkell
Vegavinnuframkvæmdir Víða verða vegavinnuframkvæmdir í sumar og verða íbúar höfuðborgarsvæðisins að
sýna þolinmæði vegna þeirra, enda oft verið að bæta umferðaræðar og samgöngur.
Nýframkvæmdir fyrir
7,2 milljarða áætlaðar 2008
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegi 34, gul gata • Kópavogi
Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is