Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 30
30|Morgunblaðið Eftir Völu Ósk Bergsveinsdóttur valaosk@gmail.com Bubbi söng að sumariðværi tíminn og svosannarlega er það rétt.Sumarið er tími til margs, m.a. tími gatna- og um- ferðarframkvæmda á Íslandi. Þá er veðráttan yfirleitt til friðs og hindrar ekki störf á götum lands- ins. Ótal gatna- og umferð- arframkvæmdir eru á döfinni hjá framkvæmda- og eignasviði Reykjavíkurborgar, nýfram- kvæmdir, endurnýjanir, viðhald sem og áframhald fyrri fram- kvæmda. Árið 2008 er áætlað að nýframkvæmdir nemi 7,2 millj- örðum króna. Að sögn Kristjáns Helgasonar, upplýsingafulltrúa hjá framkvæmda- og eignasviði, námu nýframkvæmdir gatna í fyrra 2,7 milljörðum króna þó svo að áætlunin hafi hljóðað upp á 3,7 milljarða. Hækkunin á áætluðum framkvæmdum milli ára nemur því tæplega 100%. Ekki er rask í umferðinni vegna nýframkvæmda fyrirsjáanlegt en líkt og fyrri sumur má hins vegar gera ráð fyrir umferðartöfum vegna malbiksviðgerða. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir sjö ný verkefni sem verktakar á vegum Reykjavíkurborgar ráð- ast í nú á vor- og sumarmánuðum. Strætóumbætur við Miklubraut Unnið er að undirbúningi sér- stakrar akreinar fyrir almenn- ingsvagna og leigubifreiðar á Miklubraut þegar ekið er í vest- urátt frá mislægum gatnamótum við Réttarholtsveg að göngubrú við Kringluna. Þar mun akreinin tengjast núverandi strætórein, sem nær niður að gatnamótum Miklubrautar og Lönguhlíðar. Vegagerðin deilir kostnaðinum við gerð strætóakreinanna, þar sem brautin er skilgreind sem þjóð- vegur. Samhliða þessum fram- kvæmdum verður gönguleiðum yf- ir Miklubraut áfangaskipt við tvenn gatnamót á þessari leið, m.a. til þess að auka öryggi gang- andi vegfarenda. Um er að ræða gatnamót Miklubrautar við Grens- ásveg og Háaleitisbraut, en áfangaskiptar gangbrautir eru nú í notkun á gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Kristján segir þessar aðgerðir vera lið í þeirri viðleitni borg- arinnar að auka vægi almennings- samgangna þar. Sérstakar strætó- reinar flýti mjög fyrir ferðum vagnanna, sérstaklega á álags- tímum í upphafi og lok vinnudags. Með þessu mun samkeppnisstaða gagnvart einkabílnum styrkjast og fólk komi frekar til með að nota strætó til og frá vinnu. Þegar til lengri tíma er litið dregur þetta úr vaxandi álagi á gatna- kerfi borgarinnar segir Kristján. Skólavörðustígur Nú þegar eru hafnar end- urbætur á götum og gönguleiðum á Skólavörðustíg, nánar tiltekið á milli Týsgötu og Njarðargötu. Áætluð lok framkvæmda eru 31. júlí næstkomandi. Kostnaðar- áætlun framkvæmdanna hljóðar upp á 140 milljónir króna en verk- efnið felst í endurnýjun lagna veitufyrirtækja, jarðvegsskiptum, snjóbræðslu og yfirborðsfrágangi. Sléttuvegur – nýtt íbúðahverfi Verið er að vinna að fram- kvæmdum við gatnagerð í nýju íbúðahverfi við Sléttuveg í Foss- vogsdalnum. Meðal þess sem unn- ið er að er nýbygging gatna, stétta, bílastæða og stíga ásamt hljóðmönum og lögnum veitufyr- irtækja. Áætlað er að fram- kvæmdum ljúki 1. september næstkomandi og heildarkostnaður vegna verksins er áætlaður 300 milljónir króna. Bústaðavegur og Snorrabraut Í samstarfi við Vegagerðina vinnur Reykjavíkurborg nú áfram að uppsetningu á miðlægri stýr- ingu umferðarljósa, en lokið var við uppsetningu á umferðatölvu árið 2007 ásamt tengingu alls 37 umferðaljósagatnamóta við hana. Í ár verða umferðarljós við Bú- staðaveg og Snorrabraut tengd við kerfið en útboð í verkið fer fram um miðjan apríl og gert er ráð fyrir að framkvæmdum verði lokið um miðjan október. Búast má við að einstök umferðarljós Sléttuvegur Verið er að vinnna að framkvæmdum við gatnagerð í nýju íbúahverfi við Sléttuveg í Fossvogsdalnum Morgunblaðið/Þorkell Vegavinnuframkvæmdir Víða verða vegavinnuframkvæmdir í sumar og verða íbúar höfuðborgarsvæðisins að sýna þolinmæði vegna þeirra, enda oft verið að bæta umferðaræðar og samgöngur. Nýframkvæmdir fyrir 7,2 milljarða áætlaðar 2008 BIFREIÐAVERKSTÆÐI Smiðjuvegi 34, gul gata • Kópavogi Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.