Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 35
Morgunblaðið |35
Yfirvöld í Svíþjóð hafa heim-ilað Volvo Trucks í Svíþjóðað framkvæma rannsóknirá almennum vegum, sem
felast í prófum á aksturslagi þreyttra
ökumanna. Flutningabílarnir, sem
notaðir verða við prófanirnar, verða
búnir fullkomnasta tæknibúnaði,
sem Volvo hefur þróað til að koma í
veg fyrir slys af völdum athygl-
isbrests þreyttra ökumanna. Mörg
þúsund flutningabílar aka um vegi
Svíþjóðar á degi hverjum, þar sem
stór hluti þeirra er kominn um lang-
an veg frá öðrum löndum. Algeng-
asta orsök slysa þar sem flutn-
ingabílar koma við sögu er þreyta,
athyglisbrestur og áfengisnotkun.
Þreyttir ökumenn
valda fjölda slysa
Rannsóknir sýna að þreyta öku-
manna er orsök 20% allra slysa sem
verða í umferðinni í Svíþjóð. Lars-
Göran Löwenadler, öryggisstjóri hjá
Volvo Trucks, segir að ástæða þess
að sótt var um að fá að framkvæma
rannsóknirnar í almennri umferð sé
að reyna tæknibúnað Volvo við raun-
verulegar aðstæður í því skyni að há-
marka virkni kerfisins. Volvo hyggst
bjóða þennan búnað í öllum flutn-
ingabílum frá fyrirtækinu að lokinni
þróun.
Við fyrirhugaðar rannsóknir verð-
ur búnaðurinn látinn fylgjast með og
greina aksturslag ökumanna og átta
sig á alvarlegum frávikum frá akst-
ursvenju og aðvara ökumann án taf-
ar. Löwenadler segir að þróun kerf-
isins sé á lokastigi og nú séu einungis
eftir prófanir við raunverulegar að-
stæður til að sannreyna hæfni hans.
Miklar öryggisráðstafanir
Í fréttilkynningu frá Brimborg,
umboðsaðila Volvo hér á landi, kem-
ur fram að við prófanirnar verður ek-
ið á fyrirfram völdum vegum með
tvöfaldri akrein og verður aðstoð-
armaður í hverjum bíl. Bílarnir
verða útbúnir þannig að aðstoð-
armaðurinn geti yfirtekið stjórn
vörubílsins umsvifalaust gerist þess
þörf. Bílarnir verða sérmerktir og
búnir viðvörunarljósum auk þess
sem vörubílunum verður fylgt eftir
af öðrum bíl til að aðvara aðra öku-
menn.
Þar segir einnig að nú þegar sé
eftirtalinn öryggisbúnaður í boði í
vörubílum frá Volvo Trucks:
Akreinavari: Kerfið fylgist með
strikamerkingum á veginum og fylg-
ist með staðsetningu flutningabílsins
miðað við þær. Kerfið aðvarar öku-
manninn verði alvarlegt frávik frá
staðsetningunni.
Aðlögunarhæfur hraðastillir: Bún-
aðurinn tryggir að fjarlægð milli
flutningabílsins og annarra bíla fyrir
framan sé nægileg þannig að ekki
skapist hætta á aftanákeyrslu stöðv-
ist næsti bíll fyrir framan skyndi-
lega. Nálgist flutningabíllinn bíla
fyrir framan of mikið aðvarar kerfið
ökumanninn og hægir á honum
bregðist hann ekki við. Hraðastill-
irinn eykur síðan hraða bílsins sjálf-
krafa upp í fyrri hraða um leið og að-
stæður leyfa.
ESP: Stöðugleikastýrikerfi fyrir
flutningabíla með dráttarvagna, sem
hefur að markmiði að koma í veg fyr-
ir stjórnlaust skrið ökutækisins, t.d. í
hálku, og jafnvel veltu.
Rannsóknir á
þreyttum ökumönn-
um leiða til aukins
umferðaröryggis