Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 38
38|Morgunblaðið Þegar kaupa á nýjan bíl er að ýmsu öðru aðhuga en einungis að velja sér réttu tegund-ina. Ábyrgð söluumboða á seldum bifreiðumgrundvallast á lögum og/eða samningi um kaupin sem eru sambærileg við lög í löndum innan Evrópusambandsins. Það þýðir að þegar neytandi kaupir bifreið af umboði þá gilda almennt um það neytendakaupalög. Í raun er eins hægt að tala um rétt kaupanda til að kvarta yfir galla gagnvart selj- anda eins og að tala um ábyrgð söluumboðs. Umboðs- salar bifreiða geta því ekki takmarkað rétt neytenda samkvæmt neytendakaupalögum með ábyrgðarsamn- ingi. Arnaldur Hjartarson, lögfræðiráðgjafi Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir að neytandinn hafi almennt tveggja ára frest til að koma fram kvörtun vegna galla á bifreiðinni, en það er þó undantekning á reglunni. „Í lögunum er ákvæði um lengri frest, en það á við ef söluhlut er ætlaður mun lengri ending- artími en gengur og gerist, en í slíkum tilvikum hefur neytandi fimm ár til þess að leggja fram kvörtun. Hér er þó um undantekningarreglu að ræða,“ segir Arn- aldur. Hann segir jafnframt að framleiðendur og söluum- boð bifreiða gangist oft undir lengri ábyrgðartíma en skylt er skv. lögum, og er þá kveðið á um slíkt í ábyrgðarskilmálum sem verða hluti samnings seljanda og kaupanda. „Segja má að slík ábyrgð endurspegli það traust sem framleiðandi og söluaðili bera til bif- reiðarinnar; því vandaðri sem þeir álíta hana, þeim mun lengri tíma eru þeir tilbúnir að ábyrgjast hana. Þessi ábyrgð byggist á samningi aðila og þar kunna ýmis atriði að vera undanþegin ábyrgð. Slíkt er al- mennt heimilt, svo fremi sem takmörkunin gangi ekki gegn neytendakaupalögum,“ segir Arnaldur. Næstum allt fellur undir ábyrgð söluumboðs Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri Heklu, segir ábyrgð misjafna milli tegunda. „Flestir bílar hjá okk- ur eru í þriggja ára eða 100.000 km ábyrgð, en til dæmis eru KIA-bílar seldir með allt að sjö ára eða 150.000 km ábyrgð,“ segir Jón Trausti og bætir við að ekki gildi sama ábyrgð allan ábyrgðartímann. „Fyrstu tvö árin er ábyrgðin víðtækari og falla nánast allir hlutir undir ábyrgð, en til að framlengja ábyrgð þarf eigandi bifreiðarinnar svo að mæta í þjónustuskoðun eða smurþjónustu samkvæmt þjónustuhandbók bif- reiðarinnar. Ef farið er að skilmálum hennar þá fram- lengist ábyrgðin – fyrir utan svo mikilvægi þess að sinna allri reglubundinni þjónustu vegna viðhalds og hugsanlegrar endursölu bifreiðarinnar,“ segir Jón Trausti. Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar og formaður Bílgreinasambandsins, tekur undir það sem hér hefur komið fram er varðar ábyrgð og þjónustu- skoðun bifreiðar og segir í raun ekkert undanskilið er kemur að ábyrgð bifreiða. „Með öllum nýjum bílum býður Brimborg þriðja árið til viðbótar við þessi tvö sem yfirleitt er miðað við, en skilyrði fyrir þeirri við- bótarábyrgð er að viðkomandi bifreið sé þjónustuð frá upphafi samkvæmt ábendingum framleiðanda og að akstur fari ekki yfir 100.000 km. Það sem er und- anþegið í þessari viðbótarábyrgð er rafgeymir, fjar- stýring, útvarp og geislapilari,“ segir Egill. Slitfletir jafnan undanþegnir ábyrgð Við notkun bifreiða á sér stað ákveðið slit. Slithlutir falla yfirleitt ekki undir ábyrgð, þ.e. þeir hlutar bif- reiðarinnar sem slitna eftir notkun og álagi. Þar er átt við hluti eins og bremsuklossa, dekk og jafnvel kúp- lingar. Erfitt er að telja þessa hluti gallaða þótt þeir endist ekki í langan tíma, en ef um óvenjulega stuttan endingartíma er að ræða getur ákvæði neytenda- kaupalaga um galla þó vel átt við. Slíkt þarf þó að meta eftir atvikum. „Til þess að meta hvort um galla sé að ræða þarf að huga að því hvort bifreiðin hafi við afhendingu verið haldin einhverjum annmarka, en hann kann að hafa verið til staðar þrátt fyrir að afleiðingar hans komi ekki fram fyrr en löngu síðar. Í slíkum tilvikum er rætt um leynda galla, en rétt er að árétta að slíkir gallar hafa ekkert með það að gera hvort seljanda hafi verið kunnugt um gallann, heldur er hér um hlut- lægt mat að ræða“ segir Arnaldur. Reynt að leysa ágreining með sátt Ef neytandi telur að sér hafi verið seld gölluð vara er rökrétt að hann leiti fyrst til söluaðila til að fá bót sinna mála. Ef aðilar komast ekki að samkomulagi getur neytandinn leitað til dómstóla eða kærunefndar í lausafjár- og þjónustukaupamálum. „Auðvitað verður síðan að gera auknar kröfur til söluhlutarins eftir því sem um nýrri og dýrari bifreið er að ræða,“ segir Arnaldur. Egill segir að ef um galla sé að ræða þá hafi selj- andi rétt til úrbóta, það er að laga gallann. „Ef upp rís ágreiningur þá eru nokkrir kostir í boði, til dæmis væri hægt að leita í sáttamann FÍB og Bílgreina- sambandsins eða til Neytendasamtakanna. Einnig er farvegur í gegnum Neytendastofu en þar er starfrækt kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa,“ segir Egill. Jón Trausti segir að starfsmenn Heklu leiti ávallt leiða til þess að leysa allan ágreining beint við eig- endur en sé það ekki hægt er málum vísað til hlut- lauss sérfræðings FÍB sem metur málið. „Aðilar eru þá sammála um að lúta úrskurði hans, hver svo sem hann verður, en til þessa kemur nánast aldrei,“ segir Jón Trausti. sdg@simnet.is Morgunblaðið/Ómar NýirÞað er nauðsynlegt að skoða ábyrgðarskilmála vel, líka á nýjum bílum. Ábyrgð söluumboðs og réttur kaupanda Hversu víðtæk er ábyrgð á nýjum bílum, hver er réttur neytanda og hvar takmarkast ábyrgð söluumboðs. Sigríður Dóra Gísladóttir leitaði svara við þessum og fleiri spurningum varðandi ábyrgð nýrra bíla. Ný færibönd allar breiddir og lengdir Minet færibandasamsetningar og viðgerðarefni, sem minnka vinnutap og viðgerðarkostnað Enginn biðtími, viðgerð getur hafist strax og bilun verður Reimar í færibönd, sléttar og rifflaðar. Einnig skúffubönd BMB KAUP Smiðjuveg 4 A 200 Kópavogur Sími: 564-3220 Farsímar: 894-3836 894-3933 ALLT Á SAMA STAÐ FYRIR GRJÓTMULNING OG EFNISFLOKKUN. Forbrjótar Eftirbrjótar Hverfilbrjótar Seljum nýjar og notaðar mulningsvélar ásamt varahlutum og slithlutum í allar tegundir Seljum færanlegar malarhörpur, allar stærðir Einnig hörpunet fyrir allar gerðir af hörpum Rúllur, rúllustólar, gírar,mótorar og endakefli. Fáið óháða ráðgjöf við val á mulnings og flokkunarvélum. Við þekkjum hvað þarf á íslenskt grjót

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.