Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 38
38|Morgunblaðið
Þegar kaupa á nýjan bíl er að ýmsu öðru aðhuga en einungis að velja sér réttu tegund-ina. Ábyrgð söluumboða á seldum bifreiðumgrundvallast á lögum og/eða samningi um
kaupin sem eru sambærileg við lög í löndum innan
Evrópusambandsins. Það þýðir að þegar neytandi
kaupir bifreið af umboði þá gilda almennt um það
neytendakaupalög. Í raun er eins hægt að tala um
rétt kaupanda til að kvarta yfir galla gagnvart selj-
anda eins og að tala um ábyrgð söluumboðs. Umboðs-
salar bifreiða geta því ekki takmarkað rétt neytenda
samkvæmt neytendakaupalögum með ábyrgðarsamn-
ingi.
Arnaldur Hjartarson, lögfræðiráðgjafi Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir að neytandinn hafi
almennt tveggja ára frest til að koma fram kvörtun
vegna galla á bifreiðinni, en það er þó undantekning á
reglunni. „Í lögunum er ákvæði um lengri frest, en
það á við ef söluhlut er ætlaður mun lengri ending-
artími en gengur og gerist, en í slíkum tilvikum hefur
neytandi fimm ár til þess að leggja fram kvörtun. Hér
er þó um undantekningarreglu að ræða,“ segir Arn-
aldur.
Hann segir jafnframt að framleiðendur og söluum-
boð bifreiða gangist oft undir lengri ábyrgðartíma en
skylt er skv. lögum, og er þá kveðið á um slíkt í
ábyrgðarskilmálum sem verða hluti samnings seljanda
og kaupanda. „Segja má að slík ábyrgð endurspegli
það traust sem framleiðandi og söluaðili bera til bif-
reiðarinnar; því vandaðri sem þeir álíta hana, þeim
mun lengri tíma eru þeir tilbúnir að ábyrgjast hana.
Þessi ábyrgð byggist á samningi aðila og þar kunna
ýmis atriði að vera undanþegin ábyrgð. Slíkt er al-
mennt heimilt, svo fremi sem takmörkunin gangi ekki
gegn neytendakaupalögum,“ segir Arnaldur.
Næstum allt fellur undir ábyrgð söluumboðs
Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri Heklu, segir
ábyrgð misjafna milli tegunda. „Flestir bílar hjá okk-
ur eru í þriggja ára eða 100.000 km ábyrgð, en til
dæmis eru KIA-bílar seldir með allt að sjö ára eða
150.000 km ábyrgð,“ segir Jón Trausti og bætir við að
ekki gildi sama ábyrgð allan ábyrgðartímann. „Fyrstu
tvö árin er ábyrgðin víðtækari og falla nánast allir
hlutir undir ábyrgð, en til að framlengja ábyrgð þarf
eigandi bifreiðarinnar svo að mæta í þjónustuskoðun
eða smurþjónustu samkvæmt þjónustuhandbók bif-
reiðarinnar. Ef farið er að skilmálum hennar þá fram-
lengist ábyrgðin – fyrir utan svo mikilvægi þess að
sinna allri reglubundinni þjónustu vegna viðhalds og
hugsanlegrar endursölu bifreiðarinnar,“ segir Jón
Trausti.
Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar og
formaður Bílgreinasambandsins, tekur undir það sem
hér hefur komið fram er varðar ábyrgð og þjónustu-
skoðun bifreiðar og segir í raun ekkert undanskilið er
kemur að ábyrgð bifreiða. „Með öllum nýjum bílum
býður Brimborg þriðja árið til viðbótar við þessi tvö
sem yfirleitt er miðað við, en skilyrði fyrir þeirri við-
bótarábyrgð er að viðkomandi bifreið sé þjónustuð frá
upphafi samkvæmt ábendingum framleiðanda og að
akstur fari ekki yfir 100.000 km. Það sem er und-
anþegið í þessari viðbótarábyrgð er rafgeymir, fjar-
stýring, útvarp og geislapilari,“ segir Egill.
Slitfletir jafnan undanþegnir ábyrgð
Við notkun bifreiða á sér stað ákveðið slit. Slithlutir
falla yfirleitt ekki undir ábyrgð, þ.e. þeir hlutar bif-
reiðarinnar sem slitna eftir notkun og álagi. Þar er átt
við hluti eins og bremsuklossa, dekk og jafnvel kúp-
lingar. Erfitt er að telja þessa hluti gallaða þótt þeir
endist ekki í langan tíma, en ef um óvenjulega stuttan
endingartíma er að ræða getur ákvæði neytenda-
kaupalaga um galla þó vel átt við. Slíkt þarf þó að
meta eftir atvikum.
„Til þess að meta hvort um galla sé að ræða þarf að
huga að því hvort bifreiðin hafi við afhendingu verið
haldin einhverjum annmarka, en hann kann að hafa
verið til staðar þrátt fyrir að afleiðingar hans komi
ekki fram fyrr en löngu síðar. Í slíkum tilvikum er
rætt um leynda galla, en rétt er að árétta að slíkir
gallar hafa ekkert með það að gera hvort seljanda
hafi verið kunnugt um gallann, heldur er hér um hlut-
lægt mat að ræða“ segir Arnaldur.
Reynt að leysa ágreining með sátt
Ef neytandi telur að sér hafi verið seld gölluð vara
er rökrétt að hann leiti fyrst til söluaðila til að fá bót
sinna mála. Ef aðilar komast ekki að samkomulagi
getur neytandinn leitað til dómstóla eða kærunefndar
í lausafjár- og þjónustukaupamálum. „Auðvitað verður
síðan að gera auknar kröfur til söluhlutarins eftir því
sem um nýrri og dýrari bifreið er að ræða,“ segir
Arnaldur.
Egill segir að ef um galla sé að ræða þá hafi selj-
andi rétt til úrbóta, það er að laga gallann. „Ef upp
rís ágreiningur þá eru nokkrir kostir í boði, til dæmis
væri hægt að leita í sáttamann FÍB og Bílgreina-
sambandsins eða til Neytendasamtakanna. Einnig er
farvegur í gegnum Neytendastofu en þar er starfrækt
kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa,“ segir Egill.
Jón Trausti segir að starfsmenn Heklu leiti ávallt
leiða til þess að leysa allan ágreining beint við eig-
endur en sé það ekki hægt er málum vísað til hlut-
lauss sérfræðings FÍB sem metur málið. „Aðilar eru
þá sammála um að lúta úrskurði hans, hver svo sem
hann verður, en til þessa kemur nánast aldrei,“ segir
Jón Trausti.
sdg@simnet.is
Morgunblaðið/Ómar
NýirÞað er nauðsynlegt að skoða ábyrgðarskilmála vel, líka á nýjum bílum.
Ábyrgð söluumboðs
og réttur kaupanda
Hversu víðtæk er ábyrgð á nýjum bílum, hver er réttur neytanda og hvar
takmarkast ábyrgð söluumboðs. Sigríður Dóra Gísladóttir leitaði svara við
þessum og fleiri spurningum varðandi ábyrgð nýrra bíla.
Ný færibönd allar breiddir og lengdir
Minet færibandasamsetningar
og viðgerðarefni, sem minnka
vinnutap og viðgerðarkostnað
Enginn biðtími, viðgerð getur
hafist strax og bilun verður
Reimar í færibönd,
sléttar og rifflaðar.
Einnig skúffubönd
BMB KAUP
Smiðjuveg 4 A
200 Kópavogur
Sími: 564-3220
Farsímar: 894-3836
894-3933
ALLT Á SAMA STAÐ FYRIR
GRJÓTMULNING OG EFNISFLOKKUN.
Forbrjótar Eftirbrjótar Hverfilbrjótar
Seljum nýjar og notaðar mulningsvélar ásamt
varahlutum og slithlutum í allar tegundir
Seljum færanlegar malarhörpur, allar stærðir
Einnig hörpunet fyrir allar gerðir af hörpum
Rúllur, rúllustólar,
gírar,mótorar
og endakefli.
Fáið óháða ráðgjöf
við val á mulnings og
flokkunarvélum.
Við þekkjum hvað
þarf á íslenskt grjót