Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 41

Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 41
Morgunblaðið |41 Nýverið festi verktaka-fyrirtækið Klæðningehf. kaup á færanlegriþvottastöð til þess að skola undirvagna flutningabíla sinna. Héðan í frá munu und- irvagnar allra bíla Klæðningar ehf. vera þvegnir áður en þeim er ekið út af framkvæmdasvæðum fyrirtækisins. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að þetta sé þáttur í að tryggja að öll starf- semi fyrirtækisins sé í sátt við íbúa og vegfarendur á starfs- stöðvum fyrirtækisins. Búnaðurinn er tiltölulega ein- faldur að gerð og er flutningabíl- unum ekið í gegnum þvottastöð- ina, sem er á stórri kerru, um leið og þeir fara af framkvæmdasvæð- um þar sem mikið er um drullu og aur. Með þessu móti er dregið verulega úr sóðaskap stórra bíla á vegum fyrirtækisins. „Flutningabílarnir flytja óhjá- kvæmilega með sér gríðarlegt magn af mold og möl af fram- kvæmdasvæðum út á malbikið og magnið eykst margfalt í rigning- artíð enda loðir blaut drullan við bílana,“ segir Sigþór Ari Sigþórs- son, framkvæmdastjóri Klæðn- ingar. „Við höfum lengi haft hug á því að reyna að koma í veg fyrir þessi óþrif og kosturinn við þetta þvottakerfi er hvað það er einfalt í notkun, auðvelt að flytja það til og vinnan með því er í algjöru lágmarki. Með þessu komum við í veg fyrir að bílarnir beri með sér óhreinindi af framkvæmdasvæð- unum og út á götur í nágrenninu.“ Einfalt en áhrifaríkt Þvottakerfinu, sem er af gerð- inni MobyDick Quick 400 G, er komið fyrir á um fjögurra metra langri kerru, heldur breiðari en flutningabíll. Frá hliðum kerr- unnar er vatni sprautað undir miklum þrýstingi og við það losn- ar um drullu á dekkjum og und- irvagni. Hún fellur niður í gegn- um grindur á gólfi kerrunnar og rennur þaðan með vatninu í söfn- unartankinn við hliðina. Föstu efnin setjast á botn tanksins en vatnið er endurnýtt aftur og aft- ur. Mjög auðvelt og fljótlegt er að tæma söfnunartankinn og er t.d. hægt að nota litla gröfu við verk- ið. „Þvottastöðin virkar mjög vel,“ segir Karl Helgi Jónsson, yf- irverkstjóri Klæðningar á höf- uðborgarsvæðinu. „Það er óhætt að segja að hún uppfylli allar okk- ar væntingar. Stöðin þrífur óhreinindin mjög vel undan bíl- unum og af dekkjunum enda er krafturinn á vatninu mjög mikill. Við höfum verið að læra á stöðina og núna er hún stillt þannig að það tekur ekki nema tuttugu sek- úndur að þrífa hvern bíl. Vatns- tankurinn í bílaþvottastöðinni tek- ur 8.000 lítra og endist það magn í þvott á tvö hundruð bílum.“ Þvo undirvagna allra bíla Akralind 4 • 201 Kópavogur • Sími 544 4656 • mhg@mhg.is • www.mhg.is Gröfur frá USA með yfir 100 ára reynslu Geriðverðsamanburð Gehl smágröfur H ö n n u n / S m í ð i / V i ð g e r ð i r / Þ j ó n u s t a Hardox • Slitplötur í miklu úrvali • Niðurefnun og efnissala • Smíði úr Hardox Margföld ending og slitþol! plötur          0   +67  +638    '     9  ) 0 ' $ !  00 ' :  '  /  " 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.