Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 43
Morgunblaðið |43
kúplingssett eru orginal
hlutir frá Japan
höggdeyfar eru orginal
hlutir frá USA og E.E.S.
varahlutir í miklu úrvali
MAN er eins og áður segirþekkt fyrirtæki á sviðivörubílaframleiðslu enMAN framleiðir einnig
risastórar skipavélar, hverfla og ýmis
önnur stóriðjutæki og tól.
MAN var stofnað árið 1758 þegar
iðnbyltingin var að komast á fullt
skrið og kola- og stáliðnaðurinn í ör-
um vexti en fyrirtækið haslaði sér völl
til að byrja með innan framleiðslu á
íhlutum í prentvélar og á kæliskápum
– það er því ljóst að fjölbreytnin hefur
alla tíð verið mikil hjá MAN og enn í
dag er byggt á þeim grunni.
Dísilvélin kemur til sögunnar
Stóra tromp MAN var þó dísilvélin
sem var þróuð af Rudolf Diesel í sam-
vinnu við MAN nokkru fyrir aldamót-
in 1900 og í dag byggir MAN enn á
þeirri hefð. 1913 fór svo fyrsta dís-
ilknúna skipið af stað en það var SS
Dresden sem sigldi frá Antverpen í
Belgíu til Harwich í Bretlandi. Fyr-
irtækið hefur hinsvegar starfað í nú-
verandi mynd síðan 1986 og eru vöru-
bílar þeirra ær og kýr í dag.
Árið 2007 var metsöluár fyrir
MAN en þá seldust yfir 100 þúsund
vörubílar og rútur og eftir tvö ár mun
eitt meistarastykkið enn líta dagsins
ljós þegar stærsta skip heims, Pieter
Schelte, mun verða sett á flot en því
er ætlað að vinna við uppsetningu
borpalla.
Í dag eru vörubílarnir í TGS- og
TGX-línunni mjög vinsælir en fyr-
irtækið hefur verið framarlega í því
að draga úr útblæstri en sem kunn-
ugt er fer mikið af flutningum á meg-
inlandi Evrópu fram á hraðbrautum
og er búist við að enn verði frekari
aukning á slíkum landflutningum.
Reyndar hefur þróunin verið svipuð á
Íslandi þó að vegakerfið beri vart
aukna flutninga óbreytt.
Samheldni er lykilorðið
Vörumerki MAN er sem kunnugt
er silfurbogi yfir stöfunum en boginn
á að tákna samheldni innan fyrirtæk-
isins en MAN hefur staðið af sér ýms-
an ólgusjóinn, meðal annars seinni
heimsstyrjöldina en stjórnendur fyr-
irtækisins voru í þá tíð ekki í náðinni
hjá nasistum. Fyrir fyrirtæki sem
eiga sér þetta langa sögu má vera
ljóst að framtíðin er líklegast bjartari
nú en oft áður.
Upp MAN stefnir sífellt upp á við. Saga Traktor með MAN- vél frá því
um 1950.
Skip Queen Elizabeth II er með
MAN-vél.
Vörubílar MAN hefur lengi framleitt vélar fyrir vörubíla.
Á Íslandi dettur líklega flestum í hug vörubílar
þegar minnst er á hið þekkta fyrirtæki MAN. Fyr-
irtækið er þó þekkt fyrir ýmislegt annað í Þýska-
landi en vörubíla enda er það samofið þýskum iðn-
aði. Ingvar Örn Ingvarsson kynnti sér sögu
fyrirtækisins en hjá því starfa nú um 55 þúsund
manns og í fyrra var velta þess 15,5 milljarðar evra.
Vörubílafram-
leiðandinn
MAN 250 ára