Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 44

Morgunblaðið - 28.03.2008, Page 44
44|Morgunblaðið Fyrirtækið Sindri er um-boðsaðili DeWALT á Ís-landi. Á Grand hótel íReykjavík dagana 16. til 23. janúar 2008, var haldin stærsta ráðstefna á vegum DeWALT sem haldin hefur verið hingað til. De- WALT bauð rúmlega 350 af sínum mikilvægustu viðskiptavinum frá Norðurlöndum til Íslands og Sindri bauð 50 viðskiptavinum sín- um að sjá þessar frábæru nýj- ungar við góðar undirtektir. Kynnt var algjörlega ný lína af verkfærum og fylgihlutum. Um er að ræða nýjungar sem koma til með að hafa áhrif á starfsmenn í byggingariðnaði um heim allan. Á ráðstefnunni voru kynntar nýj- ungar í tækniþróun, markaðs- aðgerðir á árinu 2008 ásamt prufu- keyrslu á allra flottustu verkfæralínu sem fáanleg er á markaðnum í dag. Ásgeir Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sindra, segir Ísland hafa orðið fyrir valinu af fjölmörg- um ástæðum. Að sjálfsögðu hafi náttúran mikið aðdráttarafl, sem og ímynd landsins, en ekki skemmi fyrir að hvergi á Norð- urlöndunum sé selt eins mikið af DeWALT-verkfærum á hvern íbúa og á Íslandi. Til viðbótar við þetta eigi Sindri heimsmet í átakssölu sem haldin er á hverju ári og sé þá ekki miðað við höfðatöluna frægu. Ásgeir segir að nýja línan sé farin að koma inn og það bætist í hópinn fram í júní, en þá verði þeir komnir með alla línuna. ,, DeWALT-fyrirtækið hefur nú þróað nýja rafhlöðu tækni, De- WALT Nano (nafnið vísar í öreindir) og framleitt rafhlöðu, Li- Ion, sem er jafnstór og aðrar raf- hlöður en fjörutíu prósent aflmeiri og léttari. Þannig er 12 Volta raf- hlaðan orðin jafnöflug gömlu 18 Volta rafhlöðunni. NANO- rafhlöðurnar og tækin voru hönn- uð til að veita notendum meiri endingu, léttari vélar og fjöl- breyttari kerfi. Rafhlöðurnar eru einstök hönnun sem var þróuð af Massachusetts Institute of Technologi (MIT). DeWALT NANO-rafhlöðurnar eru byggðar upp úr NANO Phosphate Lithium Ion sem gefur þessa meiri endingu heldur en venjulegar Lithium Ion hafa. Hingað til hafa hefðbundin rafmagnsverkfæri gengið fyrir 12- 18 Voltum, og algengast hefur ver- ið að nota verkfæri sem ganga fyr- ir 12 Volta rafhlöðu. Kraftur þeirra hefur ekki verið nógur fyrir ýmis verkefni. 18 Volta verkfærin voru kraftmeiri en gallinn var sá að þau voru þyngri og því erfiðari í meðförum. Þessi nýja tækni kemur því mörgum til góða. Þess er einnig vert að geta að ending NANO-rafhlaðna er tvisvar sinn- um meiri og þau endast tvisvar til þrisvar sinnum lengur á hverri hleðslu heldur en aðrar tegundir af Lithium Ion. Fleiri nýjungar Ásgeir segir að fleiri nýjungar hafi verið kynntar á ráðstefnunni, til dæmis fyrstu rafhlöðudrifnu sleðasögina á markaðnum og ný lína í brothömrum. ,,Einnig er væntanlegt á mark- aðinn DeWALT-vinnuljós sem býður upp á þann möguleika að hlaða tvær rafhlöður. Í ljósinu eru tveir rafmagnstenglar. Ljósið er mjög létt og meðfærilegt og gefur frábæra lýsingu. Hægt er að nota ljósið hvort sem 230 Voltum eða með rafhlöðum.“ Ásgeir bendir á það að margir Íslendingar eigi DeWALT-vélar og rafhlöður og sé það sökum þess að fyrirtækið sé með gríðarlega markaðshlutdeild hér á landi. ,,DeWALT er frægt fyrir gæði og góða þjónustu og þeir hugsa bæði fram og aftur í tímann. Þannig geta gamlar vélar notað nýju rafhlöðuna og nýjar vélar notað gömlu rafhlöðuna og því þarf ekki að skipta út öllum pakk- anum. DeWALT notar stjörnugjöf sem viðurkenningu fyrir viðgerð- arþjónustu og Sindri getur státað af fimm stjörnu viðurkenningu. Að sjálfsögðu eru það eingöngu bestu verkstæðis- og varahlutaþjónustur í Evrópu sem fá þennan gæða- stimpil,“ segir Ásgeir. Gsm-stýrðar hliðslár Sindri hefur um áraraðir selt hliðslár fyrir bílastæði og athafna- svæði frá Automatic Systems. Hægt er að fá hliðslárnar í mörg- um mismunandi stærðum, allt eftir notkunarálagi og stærð. Stýri- möguleikarnir eru einnig fjöl- breyttir, svo sem fjarstýringar, kortalesarar, umferðarskynjarar og stjórnpúlt svo nokkrir séu nefndir. Nú er hægt er að fá hliðslárnar með frábærri nýjung sem er gsm- stýring þar sem hægt er að hringja úr gsm-síma í hliðið til þess að opna og hentar það mjög vel t.d. fyrir sumarbústaðahverfi og fyrirtæki þar sem allt að 250 símar geta tengst einu hliði. Einn- ig eru hliðin fáanleg fyrir fjarstýr- ingar og lykilstýringar. Nánast all- ar slárnar frá Automatic Systems sem seldar hafa verið eru enn í notkun og munu að líkindum verða það um mörg ókomin ár. 40 prósent aflmeiri og léttari rafhlöður Morgunblaðið/Ómar Öflugar Ásgeir Einarsson, framkvæmdastjóri Sindra heldur hér á einni öflugri DeWALT vél. »Ekki skemmir fyrirað hvergi á Norð- urlöndunum er selt eins mikið af DeWALT- verkfærum á hvern íbúa og á Íslandi. Til viðbótar við þetta á Sindri heims- met í átakssölu sem haldin er á hverju ári og er þá ekki miðað við höfðatöluna frægu. DeWALT er um þess- ar mundir að kynna fjölmargar nýjungar, bæði í verkfærum og fylgihlutum. Þórunn Stefánsdóttir ræddi við Ásgeir Einarsson, framkvæmdastjóra Sindra, um tækniþró- unina. ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.