Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 28.03.2008, Blaðsíða 46
46|Morgunblaðið Hummer-jeppar hafaávallt vakið mikla at-hygli hvar sem þeirkoma. Þessir banda- rísku herbílar komu fyrst á al- mennan markað í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Þeir hafa notið nokkurra vinsælda víða um heim og þótt mikið stöðutákn. „Ég eignaðist þennan Hummer H2 fyr- ir einu og hálfu ári og þetta er al- veg frábær jeppi,“ segir Valdimar Kristjánsson. „Það er alveg ein- stakt að keyra hann, aksturseig- inleikarnir eru ótrúlegir og kraft- urinn einnig. Hann er með risavél sem skilar 325 hestöflum, fjór- hjóladrifi og endalausum aukabún- aði. Hummer er einfaldlega alger draumur.“ Vekur eftirtekt á götunum „Hummerinn er auðvitað mjög stór og traustvekjandi jeppi. Mað- ur fær aukna öryggistilfinningu að vera inni í honum enda ætti hann að þola talsvert þar sem hann er herjeppi. Hann er mjög rúmgóður, það má segja að hann sé með endalaust pláss sem hentar mér vel hvort sem ég er að fara í sum- arbústaðinn minn eða útilegu eitt- hvað út á land. Þá fer ég talsvert í veiði, á skíði og bretti þannig að ég þarf bíl sem tekur mikið af dóti og Hummerinn fer létt með það,“ segir Valdimar. Hann viðurkennir að jeppinn veki mikla eftirtekt á götunum. „Það er talsvert horft á Humm- erinn og það kemur mér svo sem ekki á óvart. Ég horfði nú sjálfur á þá áður en ég eignaðist minn. Það er jafn gaman að keyra hann innanbæjar sem utan en ég við- urkenni að maður skýtur honum nú ekki í hvaða stæði sem er enda er hann plássfrekur,“ bætir Valdi- mar við og brosir. Alltaf hrifinn af herjeppum Hann segist alla tíð hafa verið mikill bílaáhugamaður og hefur átt ófáa bílana í gegnum tíðina. „Ég hef verið duglegur að skipta um bíla allt frá því ég tók bílprófið og hef átt þá allnokkra. Ég hef átt nokkra Benz- og BMW-bíla enda er ég mjög hrifinn af þeim. Ég hef líka verið mjög hrifinn af her- bílum. Ég átti eitt sinn Willis 6́4 árgerð og hann var alveg frábær jeppi með stórri amerískri vél. Annar eftirminnilegur bíll sem ég hef átt er BMW Roadster- sportbíll. Ég er búinn að eiga Hummerinn í eitt og hálft ár þannig að það fer að koma tími á að skipta. Ég hef íhugað að selja hann en verð samt að viðurkenna að hálft í hvoru tími ég ekki að missa hann. Það blundar alltaf í mér reglulega að skipta því það eru svo margir spennandi bílar á markaðnum en það verður mjög erfitt að toppa Hummerinn,“ segir Valdimar. Hummer vinsæll meðal fræga fólksins Eins og áður sagði hefur Hummerinn þótt talsvert stöðu- tákn og ekki síst vestur í Banda- ríkjunum. Arnold Schwarzeneg- ger, þáverandi Hollywood-stjarna, mun hafa verið fyrsti einstakling- urinn til að festa kaup á þessum tröllvaxna jeppa í byrjun tíunda áratugar síðustu aldar. Arnold er mikill Hummer-aðdáandi og hefur átt nokkra slíka eftir að hann varð ríkisstjóri í Kaliforníu. Hummer hefur verið vinsæll í Hollywood og allnokkrir leikarar þar hafa átt slíkan grip. Meðal annarra frægra eigenda Hummer-jeppa eru knatt- spyrnugoðið Ronaldinho, sem leik- ur með Barcelona, fyrrum NBA- körfuboltahetjan Dennis Rodman, tónlistarmaðurinn Neil Young og rappararnir DMX og Xzibit. Hummer er algjör draumur Flottur Hummerinn er flottur að innan sem utan. Hummerum hefur fjölgað nokkuð hér á landi á síðustu tveimur árum og einn þeirra sem eiga slíkan bíl er bílaáhugamaðurinn Valdimar Kristjánsson. Róbert Róbertsson ræddi við hann um bíla- áhugann og alla draumabílana. »Ég hef prófað allaþessa helstu jeppa eins og Range Rover, Porsche Cayenne, Benz GL og BMW X5 en mér fannst Hummerinn slá þá alla út. Glæsilegur Valdimar við Hummerinn sem er stór og vígalegur og ekki von að veki eftirtekt á götunum. Moragunblaðið/RAX Liebherr byggingakranarnir hafa reynst framúrskarandi við íslenskar aðstæður og eru vinsælustu byggingakranarnir á Íslandi. Hjá MEST er lögð mikil áhersla á að veita öfluga og trausta þjónustu. Liebherr kranar – það sem fagmaðurinn velur E N N E M M / S IA / N M 3 17 91 Söludeild atvinnutækja, Malarhöfða 10, sími 4 400 540 – mest seldu byggingakranar á Íslandi kranar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.