Morgunblaðið - 28.03.2008, Qupperneq 46
46|Morgunblaðið
Hummer-jeppar hafaávallt vakið mikla at-hygli hvar sem þeirkoma. Þessir banda-
rísku herbílar komu fyrst á al-
mennan markað í byrjun tíunda
áratugar síðustu aldar. Þeir hafa
notið nokkurra vinsælda víða um
heim og þótt mikið stöðutákn. „Ég
eignaðist þennan Hummer H2 fyr-
ir einu og hálfu ári og þetta er al-
veg frábær jeppi,“ segir Valdimar
Kristjánsson. „Það er alveg ein-
stakt að keyra hann, aksturseig-
inleikarnir eru ótrúlegir og kraft-
urinn einnig. Hann er með risavél
sem skilar 325 hestöflum, fjór-
hjóladrifi og endalausum aukabún-
aði. Hummer er einfaldlega alger
draumur.“
Vekur eftirtekt á götunum
„Hummerinn er auðvitað mjög
stór og traustvekjandi jeppi. Mað-
ur fær aukna öryggistilfinningu að
vera inni í honum enda ætti hann
að þola talsvert þar sem hann er
herjeppi. Hann er mjög rúmgóður,
það má segja að hann sé með
endalaust pláss sem hentar mér
vel hvort sem ég er að fara í sum-
arbústaðinn minn eða útilegu eitt-
hvað út á land. Þá fer ég talsvert í
veiði, á skíði og bretti þannig að
ég þarf bíl sem tekur mikið af dóti
og Hummerinn fer létt með það,“
segir Valdimar.
Hann viðurkennir að jeppinn
veki mikla eftirtekt á götunum.
„Það er talsvert horft á Humm-
erinn og það kemur mér svo sem
ekki á óvart. Ég horfði nú sjálfur
á þá áður en ég eignaðist minn.
Það er jafn gaman að keyra hann
innanbæjar sem utan en ég við-
urkenni að maður skýtur honum
nú ekki í hvaða stæði sem er enda
er hann plássfrekur,“ bætir Valdi-
mar við og brosir.
Alltaf hrifinn af herjeppum
Hann segist alla tíð hafa verið
mikill bílaáhugamaður og hefur
átt ófáa bílana í gegnum tíðina.
„Ég hef verið duglegur að skipta
um bíla allt frá því ég tók bílprófið
og hef átt þá allnokkra. Ég hef átt
nokkra Benz- og BMW-bíla enda
er ég mjög hrifinn af þeim. Ég hef
líka verið mjög hrifinn af her-
bílum. Ég átti eitt sinn Willis 6́4
árgerð og hann var alveg frábær
jeppi með stórri amerískri vél.
Annar eftirminnilegur bíll sem ég
hef átt er BMW Roadster-
sportbíll. Ég er búinn að eiga
Hummerinn í eitt og hálft ár
þannig að það fer að koma tími á
að skipta. Ég hef íhugað að selja
hann en verð samt að viðurkenna
að hálft í hvoru tími ég ekki að
missa hann. Það blundar alltaf í
mér reglulega að skipta því það
eru svo margir spennandi bílar á
markaðnum en það verður mjög
erfitt að toppa Hummerinn,“ segir
Valdimar.
Hummer vinsæll
meðal fræga fólksins
Eins og áður sagði hefur
Hummerinn þótt talsvert stöðu-
tákn og ekki síst vestur í Banda-
ríkjunum. Arnold Schwarzeneg-
ger, þáverandi Hollywood-stjarna,
mun hafa verið fyrsti einstakling-
urinn til að festa kaup á þessum
tröllvaxna jeppa í byrjun tíunda
áratugar síðustu aldar. Arnold er
mikill Hummer-aðdáandi og hefur
átt nokkra slíka eftir að hann varð
ríkisstjóri í Kaliforníu. Hummer
hefur verið vinsæll í Hollywood og
allnokkrir leikarar þar hafa átt
slíkan grip. Meðal annarra frægra
eigenda Hummer-jeppa eru knatt-
spyrnugoðið Ronaldinho, sem leik-
ur með Barcelona, fyrrum NBA-
körfuboltahetjan Dennis Rodman,
tónlistarmaðurinn Neil Young og
rappararnir DMX og Xzibit.
Hummer er algjör draumur
Flottur Hummerinn er flottur að innan sem utan.
Hummerum hefur
fjölgað nokkuð hér á
landi á síðustu tveimur
árum og einn þeirra
sem eiga slíkan bíl er
bílaáhugamaðurinn
Valdimar Kristjánsson.
Róbert Róbertsson
ræddi við hann um bíla-
áhugann og alla
draumabílana.
»Ég hef prófað allaþessa helstu jeppa
eins og Range Rover,
Porsche Cayenne, Benz
GL og BMW X5 en mér
fannst Hummerinn slá
þá alla út.
Glæsilegur Valdimar við Hummerinn sem er stór og vígalegur og ekki von að veki eftirtekt á götunum.
Moragunblaðið/RAX
Liebherr byggingakranarnir hafa reynst framúrskarandi við
íslenskar aðstæður og eru vinsælustu byggingakranarnir á
Íslandi. Hjá MEST er lögð mikil áhersla á að veita öfluga og
trausta þjónustu.
Liebherr kranar
– það sem fagmaðurinn velur
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
3
17
91
Söludeild atvinnutækja, Malarhöfða 10, sími 4 400 540
– mest seldu byggingakranar á Íslandi
kranar