Morgunblaðið - 20.05.2008, Side 1
Röð
keppenda
AÐ ÞESSU sinni er keppninni skipt
í þrennt; fyrst eru tvenn undanúrslit
sem fram fara 20. og 22. maí og svo
verða úrslitin laugardaginn 24. maí.
Íslensku keppendurnir eru fyrstir á
svið 22. maí.
Nítján lið keppa hvort undan-
úrslitakvöld og svo keppa 25 þjóðir
úrslitakvöldið. Þær þjóðir sem mest
greiða til sjónvarpssambandsins,
EBU, eiga föst sæti í úrslitum, og
svo bætist sigurþjóð síðasta árs við.
Í úrslitin komast svo tíu þjóðir úr
hvorri undankeppni; þær níu sem
eru efstar í atkvæðagreiðslu og síð-
an velur dómnefnd eina til viðbótar
frá hvoru kvöldi.
Annars er röð keppenda þessi:
20. maí
Svartfjallaland
Ísrael
Eistland
Moldavía
San Marínó
Belgía
Aserbaídsjan
Slóvenía
Noregur
Pólland
Írland
Andorra
Bosnía-Hersegóvína
Armenía
Holland
Finnland
Rúmenía
Rússland
Grikkland
22. maí
Ísland
Svíþjóð
Tyrkland
Úkraína
Litháen
Albanía
Sviss
Tékkland
Hvíta-Rússland
Lettland
Króatía
Búlgaría
Danmörk
Georgía
Ungverjaland
Malta
Kýpur
Makedónía
Portúgal
Úrslit 24. maí
Röð keppenda úrslitakvöldið verð-
ur ekki ákveðin fyrr en að loknum
undanúrslitum, en þó ljóst að fimm
þjóðir eru komnar áfram:
Bretland
Þýskaland
Frakkland
Spánn
Serbía
Sjónvapið sendir út frá öllum
keppniskvöldunum. Forkeppnin
hefst í kvöld og verður send út kl.
19:00. Á fimmtudagskvöld, þegar Ís-
lendingar keppa, hefst útsending
einnig kl. 19:00 og eins úrslitakvöld-
ið, næstkomandi laugardag. Kynnir
öll kvöldin er Sigmar Guðmundsson.
Íkvöld hefst í Belgrad í Serbíu söngvakeppni evr-ópskra sjónvarpsstöðva sem alla jafna kallastEvróvisjón. Keppninni hefur vaxið fiskur umhrygg á síðustu árum og svo komið að henni hefur
verið skipt í undankeppni og úrslit til að bregðast við sí-
vaxandi fjölda þeirra þjóða sem taka vilja þátt í keppn-
inni, en þær eru 43 að þessu sinni og hafa ekki verið fleiri.
Í kvöld keppa nítján þjóðir um sæti í úrslitunum og á
fimmtudag verður annar hluti undankeppninnar þar sem
nítján þjóðir til viðbótar etja kapp saman um úrslitasæti,
en úrslitakeppnin fer fram næstkomandi laugardag. Ís-
lendingar taka þátt í keppninni líkt og undanfarinn rúm-
an áratug og eru fyrsta þjóð á svið á fimmtudagskvöldið.
Áhuginn síst minni
Undanfarin ár hefur Íslendingum gengið heldur illa í
Evróvisjón og síðustu þrjú ár höfum við ekki komist upp
úr forkeppninni. Þrátt fyrir það virðist áhugi á keppninni
síst fara minnkandi eins og sést meðal annars á því að
undankeppnin, Laugardagslögin, var með vinsælasta
sjónvarpsefni og öruggt má telja að áhorf á keppnina
sjálfa verði ekki minna en undanfarin ár þó gengi Íslend-
inga skipti eðlilega gríðarmiklu máli.
Hundruð milljóna horfa á Evróvisjón ár hvert og fer
fjölgandi; áætlað er að áhorfendur að keppninni í Finn-
landi í fyrra hafi verið nærfellt 300 milljónir. Þrátt fyrir
það gera menn títt grín að Evróvisjón, fara niðrandi orð-
um um keppnina og keppendur, en geta þó ekki slitið sig
frá sjónvarpsskjánum.
Póstmódernísk kaldhæðni
Ein greinilegasta birtingarmynd þessa er Terry Wog-
an, kynnir keppninnar í breska ríkisútvarpinu, BBC,
sem lýst hefur Evróvisjón sem póstmódernískri kald-
hæðni. Hann er frægur fyrir sínar meinlegu at-
hugasemdir um allt og alla og svo meinhæðinn er hann á
köflum að aðstandendur keppninnar hafa kveinkað sér
undan honum, en breskir áheyrendur virðast kunna vel
að meta hann, enda voru þeir nærfellt ellefu milljónir á
síðustu keppni og fer fjölgandi þó Bretlandi hafi gengið
hörmulega í keppninni undanfarin ár.
Eiríkur Hauksson söng í Evróvisjón á síðasta ári og
hafði að markmiði meðal annars að festa rokkið í sessi
sem Evróvisjóntónlist. Það hefur ekki gengið eftir ef
litið er yfir lögin sem keppa að þessu sinni því ekki er
nema eitt hreinræktað rokklag og það er frá Finn-
landi.
Gaman og alvara
Hinum lögunum 42 má skipta í tvo flokka, gaman og
alvöru. Gamanlögin eru mun færri en fróðlegt verður
að sjá hvernig þeim vegnar, til að mynda kalkúnanum
Dusty sem Írar sendu til keppni, systkinunum frá
Bosníu Hersegóvínu, Elvir Lakovic Laka og Mirela,
eða Spánverjanum með Elviskolluna, Rodolfo Chiki-
licuatre.
Flestir keppendur í Evróvisjón að þessu sinni eru þó
að keppa í fullri alvöru, eru með vel samin lög, pottþéttar
útsetningar og þaulæfðar hreyfingar. Í könnun sem Evr-
óvisjónvefsetur gerði fyrir stuttu kom fram að velflestir
áheyrendur ákveða hvað þeir ætla að kjósa eftir að hafa
séð lagið flutt – ef flutningurinn er vel heppnaður skiptir
ekki svo miklu hve lagið er gott eða grípandi, en hið full-
komna Evróvisjónlag er vitanlega hvort tveggja, gríp-
andi eftirminnilegt lag sem flutt er af íþrótt og einlægni.
Gæti það verið This Is My Life?
Reuters
Fjörkálfar Mikið hvílir á herðum þeirra Regínu Óskar Óskarsdóttur og Friðriks Ómars Hjörleifssonar þegar þau
stíga á svið með Eurobandinu í Belgrad næstkomandi fimmtudagskvöld.
Hvert er hið fullkomna
Evróvisjónlag?
Rauðhærði riddarinn
Eiríkur Hauksson hefur sterkar
skoðanir á Evróvisjón|2
Hverjir unnu
Yfirlit yfir sigurlöndin 55|2
Evrópumeistari í Evróvisjón
Írski söngvarinn
Johnny Logan sem
hefur unnið oftar en
nokkur annar spáir
í spilin|4
Bestu lögin
Á mikilli afmælishátíð völdu menn
bestu Evróvisjónlög allra tíma|4
Undankeppnin endalausa
Það gekk á ýmsu í undakeppninni
hér heima og ekki brostu allir í
gegnum tárin|6
Upp og ofan
Íslendingum hefur gengið brösulega
í Evróvisjón – stundum upp, en oft-
ast ofan|6
Palli og partíið
Jafn árlegt og
Evróvisjón er
Evróvisjónpartíið
hans Páls Óskars.
Hann er bjart-
sýnn fyrir hönd
Íslands|8
Sagan endalausa
Evróvisjón er komið á sextugsald-
urinn en enn að breytast|10
Selma og gráu frakkarnir
Rýnt í misjafna frammistöðu Íslend-
inga í gegnum árin – hvernig gekk á
sviðinu?|12
Skrautsýningin mikla
Evróvisjón er
mikið sjónarspil
eins og sjá má á
svipmyndum frá
æfingum í Bel-
grad|16
Þjóðsagan um „austurblokkina“
Eru brögð í tafli í atkvæðagreiðsl-
unni?|18
Austurríki kveður
Þegar Austurríkismenn fengu
nóg|18
Keppendur kynntir
Keppnislönd eru nú fleiri en nokkru
sinni og keppnin því í þremur hlut-
um|20
Ísland æfir
Svipmyndir frá
æfingum Íslend-
inga í Belgrad|29
Bullað í Evróvisjón
Stundum reyna menn að vekja at-
hygli með söng og sviðsframkomu
og stundum með afkáralegum laga-
heitum|31
Islande, douze point
Atkvæðaseðillinn ómissandi – enn
fjölgar þjóðunum|30
Efnisyfirlit
20|05|2008