Morgunblaðið - 20.05.2008, Qupperneq 18
18|Morgunblaðið
Eiríkur Hauksson, fulltrúiÍslendinga í Evróvisjón2007, var ómyrkur í málieftir að í ljós kom að Ís-
land komst ekki í aðalkeppnina 2007:
„Við eigum ekki séns í svona mafíu,“
sagði hann og átti þá við
„Austur-Evrópumafíu“: „[E]f þú ert
frá Austur-Evrópu, þá ertu bara
kominn áfram!“ sagði hann og var
mikið niðri fyrir. Væntanlega voru
margir sammála Eiríki, stórhneyksl-
aðir á því hve „austurblokkin“ komst
áfram, en einhverjum fannst þetta
eflaust kaldhæðnisleg yfirlýsing hjá
honum í ljósi þess að keppnin 2007
fór fram í Helsinki vegna þess að
Norður-Evrópuþjóðin Finnar sigr-
aði 2006.
Fleira skemmtilegt kom í ljós þeg-
ar rýnt var í það sem aðrir kepp-
endur höfðu að segja, til að mynda
danski söngvarinn Peter Andersen,
sem sat líka eftir með sárt ennið.
Hann sá Austur-Evrópumafíu í
hverju horni en þegar Politiken
spurði hann hvaða lög honum hafi
þótt best nefndi hann „aust-
urblokkarlöndin“ Úkraínu, Serbíu
og Hvíta-Rússland.
Viðtekin ósönnuð sannindi
Ásakanir um að maðkur sé í mys-
unni í atkvæðagreiðslum á Evró-
visjón voru alltíðar á árum áður, sér-
staklega meðan sérskipaðar dóm-
nefndir greiddu atkvæðin, og svo títt
höfðu menn orð á þessu að það var
nánast viðtekin sannindi þó aldrei
hafi það verið sannað. Nokkuð dró
úr samsæriskenningum þegar síma-
kosning var innleidd, ekki síst þegar
hún leiddi í ljós að litlar breytingar
urðu á atkvæðadreifingu.
Þrátt fyrir það sauð enn og aftur
upp úr eftir keppnina í Helsinki á
síðasta ári og gekk svo langt að
frumvarp var lagt fram á breska
þinginu um að ríkisstjórnin grípi til
ráðstafana til að stemma stigu við
svínaríi „austurblokkarinnar“, en
þess má geta að Bretar voru eina
þjóðin sem greiddi sigurlaginu serb-
neska ekki atkvæði, en það gerðu
annars öll önnur Vestur-Evrópulönd
og alls 37 þjóðir af 42.
Norðurlöndin standa saman
Til eru lærðar ritgerðir um töl-
fræðilega greiningu á atkvæða-
greiðslum í Evróvisjóns sem benda
til þess að þar myndist atkvæðahóp-
ar þjóða þar sem hver þjóð styður
aðra, án þess þó að um samantekin
ráð sé að ræða, og í einni slíkri var
sett fram sú tilgáta að þegar hafi
myndast „Balkanhópur“ tíu þjóða
þar sem hver þjóð greiði annarri inn-
an hópsins jafnan flest atkvæði sín.
Eins voru leidd rök að því að slíkt
„samstarf“ geti haldist um hríð en
hætt við að atkvæðahópurinn riðlist
ef fjölgi í honum. (Þeir sem nú hrópa
upp yfir sig Ég vissi það! gæti að því
að í sömu greiningu kemur fram að
slík atkvæðafylgni skýri hlutfalls-
lega velgengni Vestur-Evrópuþjóða
á árunum 1975-1992 – það var því
„Vestur-Evrópumafía“ í gangi þau
ár og innan hennar minni mafíur
eins og „Norðulandamafían“.)
Evróvisjónfræðingar kannast
nefnilega vel við það að Norð-
urlöndin standa alla jafna vel saman
í atkvæðagreiðslunni og að það er
nánast sama hvaða lag Grikkir
senda í keppnina – þeir fá tólf stig
frá Kýpverjum. Fleiri dæmi má
nefna frá síðasta áratug: Bosnía-
Hersegóvína fær þannig jafnan fullt
hús stiga frá nágrönnum sínum í
Króatíu og Slóveníu og Króatar að
sama skapi oft 12 stig frá Slóvenum
(en Bosníumenn gjalda aftur á móti
ekki líku líkt). Danir fá iðulega
hæsta skor frá Íslendingum og Sví-
um, Ísraelar frá Frökkum, Lettar
frá Eistum og Litháum, Rúmenar
frá Spánverjum, Rússar frá Eistum
og Lettum, Svíar frá Dönum og
Norðmönnum og Tyrkir frá Frökk-
um, Þjóðverjum og Hollendingum..
Evróvisjón er alvörumál
Skýringar á þessu eru ekki endi-
lega þær að löndin semji sín á milli
um atkvæðin, eins og oft hefur verið
haldið fram hér á landi til að mynda
(aðallega til að skýra slakt gengi Ís-
lendinga), heldur geta þær verið
menningarlegar skýringar, til að
mynda áþekkur tónlistarsmekkur
(til dæmis á Balkanskaga) og einnig
verður sífellt algengara að lista-
mennirnir sem taka þátt séu ekki
síður þekktir í nágrannalöndum sín-
um en heima fyrir
Annað sem menn hafa bent á í
þessu sambandi er að Austur-
Evrópuþjóðir virðast taka keppninni
af meiri alvöru en lönd vestar í álf-
unni. Þannig senda þjóðirnar fyrir
austan iðulega mun frambærilegri
keppendur og betri lög og leggi
meira í sviðsframkomu og umbúnað.
Eins og Páll Óskar Hjálmtýsson
benti á í viðtali við Morgunblaðið á
síðasta ári þá er Evróvisjón þeim
gríðarlega mikilvæg keppni og staða
þeirra í dag sé áþekk og staða Norð-
urlandanna þegar Abba sigraði
1974.
„Þá var Evróvisjón eina leiðin fyr-
ir Norðurlöndin að láta í sér heyra,
að ná í gegn, og nú nota
Austur-Evrópulöndin Evróvisjón til
að vekja athygli á sinni menningu.“
Flutningurinn ræður
Á meðan senda löndin í vestri iðu-
lega slök lög í keppnina, og til að
mynda hefur sú mikla poppþjóð
Bretar oftar en ekki sent arfaslaka
keppendur; til að mynda söng
breska söngkonan Gemma Abbey í
Jemini svo falskt í Evróvisjón 2003
að sjónvarpsskjáir sprungu og
hundar ærðust.
Í könnun sem aðstandendur Evr-
óvisjón framkvæmdu á árunum 2006
til 2007 kom í ljós að alla jafna réð
frammistaða við flutnings lagsins
langmestu um það hvernig fólk
greiddi atkvæði, en í áðurnefndu við-
tali nefnir Páll Óskar einmitt að
sviðsframkoman skipti verulegu
máli og nefnir sem dæmi það þegar
dansararnir lyftu úkraínsku söng-
konunni Ruslönu upp á ögurstundu í
lagi hennar. „Þegar ég sá það vissi
ég að hún myndi vinna, sagði Páll
Óskar og nefndi álíka dæmi með í at-
riði grísku söngkonunnar Helenu,
sem sigraði 2005, en þá létu dans-
arar hennar sig detta niður á hnén í
lokin og eins þegar vængirnir birt-
ust hjá Lordi.
Eins og getið er hafa Austur-
Evrópuþjóðir staðið sig vel í Evró-
visjón á síðustu árum, Eistar sigr-
uðu 2001, Lettar 2002, Úkra-
ínumenn 2004 og Serbar 2007 –
samsæri eða hvað? Gleymum því þó
ekki að Tyrkir, sem seint verða talin
Austur-Evrópuþjóð, sigruðu 2003,
Grikkir 2005 og Finnar 2006.
Þjóðsagan um „austurblokkina“
Reuters
Vinaþjóðir Tyrkneska söngkonan Sertab Erener sigraði 2003, meðal ann-
ars fyrir tilstilli Frakka, Þjóðverja og Hollendinga.
Lehtikuva
Austurblokk? Ýmsir voru á því að brögð væru í tafli þegar serbneska söng-
konan Marija Serifovic sigraði 2007, en hún var reyndar með besta lagið.
Reuters
Óféti Þegar Lordi sýndi vængina lagðist Evrópa að fótum þeim. Norður-
Evrópuþjóðin Finnar rúlluðu Evróvisjón upp 2006.
Austurríkismenn eru ein þeirra þjóða sem ber sig aum-
lega vegna „Austur-Evrópumafíunnar“ og hættu eftir síð-
ustu niðurlægingu 2006. Þeir höfðu þá verið með nánast
frá upphafi, voru fyrst með annað ár keppninnar, 1957
(fyrsta árið lentu þeir í tíunda sæti af tíu – varla var hægt
að kenna „austurblokkinni“ um það), og náðu að sigra níu
árum síðar, 1966, en svo ekki söguna meir.
Austurríkismenn hafa reyndar ekki alltaf tekið þátt,
voru til að mynda ekki með þegar keppnin var haldin á
Spáni 1969 til að mótmæla einræðisherranum illa Franc-
isco Franco, og vegna klúðursins mikla á Spáni, þegar
fjögur lög voru jöfn í efsta sæti, tóku Austurríki og fleiri
þjóðir ekki þátt í næstu keppni og Austurríkismenn voru
reyndar ekki heldur með 1973, 74 og 75 fyrir einhverjar
sakir.
Síðustu ár hafa verið Austurríkismönnum erfið og
þannig fengu þeir ekki að vera með 1998 vegna slakrar
frammistöðu 1997, en hrepptu svo tíunda sætið 1999. Ári
síðar sigu þeir niður í fjórtánda sæti og duttu þá út úr að-
alkeppninni aftur. 2002 sneru þeir aftur og lentu í átjánda
sæti, en komust samt í keppnina 2003 – munaði einu stigi.
Það ár gekk þeim býsna vel, lentu í sjötta sæti, en 2004
stóðu þeir sig svo illa að þeir lentu í 21. sæti og duttu fyr-
ir vikið aftur út úr aðalkeppninni. 2005 tókst þeim svo
ekki að komast í úrslitin, urðu í 21. sæti í undankeppn-
inni, og eftir þá niðurlægingu lýstu þeir því yfir að þeir
myndu ekki vera með aftur – það væri greinilegt að
gæði lags og flutnings skipti ekki máli lengur. Hvað sem
því líður voru þeir með aftur 2007 en lentu þá enn neðar
í undankeppninni en 2005 – voru nú í næstneðsta sæti í
undankeppninni.
Þrátt fyrir að Austurríkismenn hafi nú dregið sig í hlé
fyrir fullt og fast, eða svo segja þeir í það minnsta, munu
margir eflaust sakna þeirra. Til að mynda eru þeir eina
þjóðin sem ógnaði meti Norðmanna um flest „núll stig“
(þ.e. ekkert stig í keppninni) og að auki eiga þeir lög sem
jafnan eru valin með verstu lögum Evróvisjón (til að
mynda Wohin, Kleines Pony? (1957) og K & K Calypsos
(1959)) og það lag sem sigrar alltaf í vali á versta Evr-
óvisjónlagi allra tíma: Lisa Mona Lisa sem Wilfried
Scheutz flutti 1988. Hægt er að horfa á það og hlusta á
YouTube.
Hættir, farnir
*Gildir aðeins ef pantað er fyrir meira en 4.000 kr.