Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 20
Eistland Fjörkálfarnir í Kreisiraadio flytja lag Eista, Leto Svet,
en það sker sig úr fyrri lögum Eista í því að sungið er á serb-
ókróatísku, þýsku og finnsku. Kreisiraadio hefur notið vinsælda
fyrir útvarpsþætti sína síðasta hálfan annan áratuginn en síð-
ustu ár hafa þremenningarnir einnig fíflast í sjónvarpinu þar í
landi, aukinheldur sem þeir hafa leikið í kvikmyndum, sett upp
óperu og stýrt sinfóníuhljómsveit.
20|Morgunblaðið
EVRÓVISJÓN er nú með nokkuð öðru sniði
en undanfarin ár. Nú er keppninni skipt í
þrennt; fyrst eru tvenn undanúrslit sem fram
fara 20. og 22. og svo verða úrslitin laug-
ardaginn 24. maí. Nítján þjóðir keppa hvort
undanúrslitakvöld og komast tíu áfram hvort
kvöld, en þær þjóðir sem greiða mest til EBU
og sigurvegararnir frá í fyrra eru þegar
komnar í úrslit.
Forkeppnin 2008
Aserbaídsjan Aserar taka nú þátt í Evróvisjón í fyrsta sinn og senda sig-
urvegara söngkeppninnar Eldlandið, þá Elnur Huseynov og Samir Javad-
zade. Elnur Huseynov er Túrkmeni, en hefur búið í Aserbaídsjan und-
anfarin ár og er menntaður hárgreiðslumaður. Samir Javadzade er
aserskur og menntaður í viðskiptum og söng.
Armenía Söngkonan Sirusho er ríflega tvítug og komin af tón-
listarfólki. Hún hefur sungið víða um heim og unnið til verð-
launa meðal landa sinna heima og heiman og plötur hennar
þrjár hafa verið valdar plötur ársins hver fyrir sig í Armeníu.
Þetta er í þriðja sinn sem Armenar taka þátt í Evróvisjón.
Bosnía Hersegóvína Fulltrúi Bosníu Hersegóvínu verður söngvarinn Elv-
ir Lakovic Laka sem syngur lagið Pokuaj / Reyndu. Hann nýtur mikillar
hylli í heimalandi sínu en gekk miður er hann reyndi fyrir sér vestur í
Bandaríkjunum fyrir stuttu. Hann syngur lagið með Mirela systur sinni.
Finnland Finnum hefur gengið vel með þungarokk í Evróvisjón og veðja á
það aftur - metalsveitin Teräsbetoni flytur lagið Missä Miehet Ratsastaa.
Nafn sveitarinnar gefur til kynna hvernig tónlist hún leikur en Teräsbe-
toni má snara sem járnbent steypa. Lagið, Missä Miehet Ratsastaa, er eftir
söngvara sveitarinnar, en hún hefur sent frá sér tvær breiðskífur sem selst
hafa gríðarlega vel í heimalandi hennar.
Holland Hollendingum hefur gengið bölvanlega í Evróvisjón á
síðustu árum og ekki komist í aðalkeppnina þrjú ár í röð. Nú
stendur til að breyta því og því var valin söngkonan Hind Laro-
ussi og lagið Your Heart Belongs To Me was sem hún semur með
þeim Tjeerd van Zanen og Bas van den Heuvel. Laroussi sló í
gegn í Idol-keppni í Hollandi 2003 og hefur gengið flest í haginn
frá þeim tíma.
Ísrael 450 lög bárust í forkeppnina í Ísrael og
úr þeim sæg völdu menn fimm lög sem söngv-
arinn Boaz söng í sjónvarpi. Áheyrendur
kusu svo lagið Fire In Your Eyes, en annar
höfunda þess er Dana International sem sigr-
aði svo eftirminnilega í Evróvisjón 1999.
Hvað Boaz varðar þá sigraði hann í Idol-
keppni Ísraelsmanna sem varð til þess að
æskudraumur hans rættist - að fá að syngja
fyrir Ísrael í Evróvisjón. Hann býr hjá for-
eldrum sínum á samyrkjubúi í miðhluta Ísrael
og tekur fjölskylduna alla með sér til Belgrað.
Andorra Spænska söngkona Gisela syngur
lagið Casanova fyrir Andorra. Hún tók þátt í
spænsku raunveruleikaþáttaröðinni Opera-
ción Triunfo og hefur í kjölfarið notið tals-
verðra vinsælda í heimalandi sínu sem söng-
kona aukinheldur sem hún gefur leikið í
vinsælum söngleikjum, tekið þátt í söng-
keppnum og sungið í sjónvarpsþáttum.
ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008
Grikkland Bandarísk-gríska söngkonan Ka-
lomira syngur lagið Secret Combination fyrir
Gikkland, enda bar hún yfirburðasigur úr
býtum í landskeppni í Grikklandi. Hún var
búin að starfa talsvert að tónlist í New York
áður en hún flutti til Grikklands og sló þar í
gegn fyrir fjórum árum, bæði sem söngkona
og eins sem sjónvarpsstjarna og leikkona.