Morgunblaðið - 20.05.2008, Síða 22

Morgunblaðið - 20.05.2008, Síða 22
22|Morgunblaðið Rúmenía Söngfélagarnir Nicoleta Nico Matei og Mirita Vlad Constantin, eða bara Nico & Vlad, syngja fyrir Rúmeníu. Nico er handhafi ýmissa söngverðlauna, en hann hefur líka verið nærri því að komast í Evróvisjón undanfarin ár. Hann hefur sent frá þrjár breiðskífur. Vlad er sömuleiðis margfaldur verðlaunahafi, en hann er hámenntaður í söng og hefur sungið í ýmsum óperum í heimalandi sínu. San Marínó Hljómsveitin Miodio spilar og syngur fyrir San Marínó og flyt- ur lagið Complice. Félagarnir Nicola Della Valle, Paolo Macina, Andrea Marco Pollice Polly, Francesco Sancisi og Alessandro Gobbi skipa sveitina en þeir hafa starfa saman í nokkur ár og njóta mikillar hylli heima fyrir og eins hefur sveitinni gengið vel á Ítalíu. Svartfjallaland Stefan Filipovic syngur lagið Zauvijek Vo- lim Te / Gleymdu ekki að ég elska þig fyrir Svartfellinga. Þrátt fyrir ungan aldur gefur hann verið lengi að í tónlist, byrjaði að syngja opinberlega sjö ára gamall. Hann hefur komið lögum á topp vinsældalista heima fyrir og erlendis og að auki hlotið ýmis verðlaun í Austur-Evrópu. Hann varð í öðru sæti í undankeppninni í Svartfjallalandi á síðasta ári, en komst nú á toppinn og í Evróvisjón. Rússland Rússneski söngvarinn Dima Bilan keppti fyr- ir Rússa í Evróvisjón í Aþenu 2006 og náði þá öðru sæti, varð að lúta í lægra haldi fyrir finnsku skrímslunum í Lordi. Hann er hámenntaður tónlistarmaður og gríð- arlega vinsæll í Rússlandi. Honum hafa borist ýmsar viðurkenningar í gegnum tíðina, aukinheldur sem sóló- skífur hans hafa selst í bílförmum. Um þessar mundir hyggur hann á landvinninga en skammt er síðan hann hóf vinnu við sína fyrstu plötu á ensku og fékk til liðs við sig ekki ómerkari samstarfsmann en Timbaland, en meðal laga á skífunni er lag sem Bilan syngur með Nelly Furtado. Slóvenía Fulltrúi Slóvena verður söngkonan Rebeka Dremelj. Hún hefur keppt fyrir Slóvena áður en það var í alþjóðlegri fegurðarsamkeppni þar sem hún lenti í öðru sæti og gerði í kjölfarið útgáfusamning við Sony þó ekkert hafi orðið úr honum. Hún framleiðir eigin undirfatalínu sem hún kallar Draum Rebeka. Írland Það þótti að vonum saga til næsta bæjar þegar spurðist að Írar, sem unnið hafa Evróvisjón oftar en nokkur önnur þjóð, hygðust senda kalkúna í Evróvisjón, og það engan venjulegan kalkúna. Kalkúninn Dustin sigraði örugglega í undakeppninni á Írlandi með lagið Irelande Douze Pointe. Hann er enginn nýgræðingur, heldur hefur hann verið vinsæll í írsku sjón- varpi frá því í upphafi tíunda áratugarins þegar hann birtist fyrst í barna- tíma, en sem stendur er hann með fastan þátt. Hann hefur gefið út sex breiðskífur og margar smáskífur og hefur notið talsverðra vinsælda í heimalandi sínu, náð 25-faldri platínusölu samanlagt, en hann hefur líka sungið með Bob Geldof, Chris De Burgh og Boyzone svo dæmi séu tekin. Dustin hefur líka boðið sig fram til ýmissa embætta fyrir Fuglaflokkinn, en fréttir herma að hann hyggist bjóða sig fram til Evrópuþingsins á næstu árum. Moldavía Söngkonan Geta Burlacu syngur lagið A Century of Love fyrir Moldavíu. Hún er hámenntuð í tónlist og marg- verðlaunuð fyrir söng, aukinheldur sem hún er þekktur þáttastjórnandi í moldóvsku sjónvarpi. Hún hefur gefið út eina skífu þar sem hún syngur léttan djass. Noregur Þó Norðmenn eigi met í lélegum árangri (engin þjóð fengið eins oft engin stig), státa þeir þó af því að hafa sigrað tvívegis í Evróvisjón. Að þessu sinni senda þeir söngkonuna Maria sem hefur sungið í hálfan þriðja áratug þó hún sé rétt að verða þrítug. Ellefu ára gömul var hún svo farin að leika í söng- leikjum og síðan í leikritum almennt. Hún sendi frá sér fyrstu sólóskífuna fyrir þremur árum og er með aðra slíka í smíðum, en henni hefur farnast vel eftir þátttöku í Idol-keppni Norðmanna þó ekki hafi hún náð nema í sjötta sæti. Pólland Pólverjar taka nú þátt í þrettánda sinn og senda söng- konuna Isis Gee og lagið For Life. Hún hefur sungið flestar gerðir tónlistar frá fimm ára aldri, en hún er líka liðtækur laga- og textasmiður. Tólf ára gömul var hún komin með prýðistekjur af söng og sem unglingur vann hún ýmis verðlaun, þar á meðal í söng- og fegurðarsamkeppnum vestan hafs. Nítján ára gömul fór hún um heiminn sem djassöngkona og bjó um tíma í Los Angeles þar sem hún vann með nokkur helstu lagasmiðum Bandaríkjanna. Hún sneri svo aftur til Póllands fyrir fjórum ár- um. Þar sendi hún svo frá sér fyrstu breiðskífuna sem hún vann að mestu leyti sjálf, samdi lögin, útsetti þau, annaðist forritun og stýrði síðan upptökunum sjálf. ÞRIÐJUDAGUR 20. MAÍ 2008

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.