Morgunblaðið - 20.05.2008, Blaðsíða 25
Albanía Olta Boka, sem er
aðeins sextán ára gömul,
syngur fyrir hönd Albaníu
í Evróvisjón að þessu sinni
og flytur lagið Zemrën E
Lamë Peng, sem snara má
sem Tímabundin hjörtu.
Þrátt fyrir ungan aldur
hefur hún nokkra reynslu
af að standa á sviði, byrj-
aði að syngja níu ára göm-
ul og hefur hlotið fjölda
verðlauna fyrir söng sinn
víða í Austur-Evrópu.
Morgunblaðið |25
Litháen Mikil spenna var í valinu á
keppnislagi Litháa en á endanum
sigraði lagið Nomads Of The Night
sem Jeronimas Milius syngur. Hann
er mikill áhugamaður um blús og
þungarokk og syngur að jafnaði
með þungarokksveitinni Soul Stea-
ler. Hann hefur numið söng með-
fram vinnu síðustu árin og til við-
bótar við þungarokksöng hefur
hann fengist við aðrar gerðir tón-
listar og syngur þannig með tríóinu
Piprarnir þrír á milli þess sem hann
syngur með Soul Stealer.
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008
SÍFELLT fjölgar þeim löndum sem
taka þátt í Evróvisjón; voru sjö í
fyrstu keppninni, en eru fjörutíu og
þrjú í dag og þykir mörgum nóg um.
Almenna reglan er að rétt til þátt-
töku í Evróvisjón hafa öll þau lönd
sem ganga í samband evrópskra
sjónvarpsstöðva, EBU, eða eru með-
limir Evrópuráðsins.
Eftir því sem löndunum hefur
fjölgað hafa menn gripið til ýmissa
ráða til að koma í veg fyrir öngveiti
úrslitakvöldið. 1993 var þannig hald-
in sérstök undankeppni fjögurra
Austur-Evrópuþjóða til að velja eina
til þátttöku í keppninni. Eftir var svo
sett reglan fræga um að sex neðstu
þjóðir hvers árs myndu ekki fá að
vera með árið á eftir, en þetta bitn-
aði meðal annars á Íslendingum á
sínum tíma.
Þessi regla hélt þó ekki nema í
þrjú ár, því 1996 var enn sett ný
regla þar sem þátttakendur sendu
inn upptökur sem tuttugu og tvö lög
voru valin úr. 1997 var reglum enn
breytt og nú í þá átt að þau lönd sem
voru með lægst meðalskor síðustu
fimm ár fengu ekki að vera með.
Þetta stóð til 2001 en þá sneru menn
aftur til þeirrar högunar sem var við
lýði 1994 og 1995 (sex neðstu þjóðir
duttu út árið eftir).
2004 tóku menn upp sérstaka und-
ankeppni, þ.e. tíu efstu lönd ársins á
undan og hin „fjögur stóru“, Bret-
land, Þýskaland, Frakkland og
Spánn, fóru beint í úrslit, en aðrar
þjóðir kepptu um tíu úrslitasæti til
viðbótar. Þessi skipan hélst í tvö ár
og reyndist Íslendingum ekki vel;
við komumst aldrei upp úr und-
ankeppninni, en í ár eru svo enn
breyttar keppnisreglur.
Nú er skipan mála svo að haldin
er sérstök undankeppni þrjátíu og
átta þjóða, 20., og 22. maí, næstkom-
andi þriðjudag og fimmtudag. Níu
þjóðir komast áfram á atkvæðum
áhorfenda hvort kvöld og dómnefnd-
ir í hverju landi fyrir sig velja svo
eitt land áfram hvert kvöld. Þessi
tuttugu lönd bætast við við hin „fjög-
ur stóru“, sem getið er, og sigurland
síðasta árs, Serbíu.
Mun fleiri lönd hafa leyfi til að
taka þátt en keppa í dag því Jórd-
anía, Líbanon, Alsír, Egyptaland,
Líbýa og Túnis hafa öll rétt til að
taka þátt í Evróvisjón en hafa ekki
gert það. Aðallega er það vegna þess
að þau mega ekki sýna frá keppninni
á meðan Ísrael er með, en Túnis og
Líbanon skráðu sig til þátttöku fyrir
alllöngu en ekkert varð úr þegar á
reyndi. Liechtenstein skráði sig líka
til keppni tvívegis en uppfyllti ekki
skilyrði um beinar útsendingar og
var því vísað úr keppni.
Sum lönd hafa dregið sig úr úr
keppninni, til að mynda tók Mar-
okkó tvívegis þátt og Austurríki,
Lúxemborg, Mónakó, Slóvakía og
Ítalía eru hætt keppni. Tvö ný lönd
sást í hópinn að þessu sinni, Aserba-
ídsjan og San Marínó.
Þess má svo geta að röð þjóðanna
úrslitakvöldið verður ekki ákveðin
fyrr en að lokinni undankeppni, en
þá verður dregið um keppnisröðina.
Sífelld
fjölgun
Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu.
Skammtar eru einstaklingsbundnir og eru ákvarðaðir eftir því hversu mikið er reykt, en þeir mega þó aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Því ber að kynna sér upplýsingar um notkun í fylgiseðli. Þeir sem
hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota
Nicotinell nikótínlyf. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Lesið allan fylgiseðilinn áður en byrjað er að nota lyfið.
Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí
Stökkt og brakandi yfirborð
Frískandi og gott bragð: Mintu, ávaxta, lakkrís og Classic
Mjúkt og gott að tyggja
Sykurlaust