Morgunblaðið - 20.05.2008, Page 27
Morgunblaðið |27
Portúgal Vânia Fern-
andes sigraði með um-
talsverður yfirburðum í
portúgölsku und-
ankeppninni með lagið
Senhora Do Mar (Neg-
ras Águas) að vopni.
Hún er fædd og upp al-
in á Madeira, en hefur
dvalið á meginlandinu
undanfarin ár og hlotið
þar ýmsar vegtyllur, en
hún hefur aðallega
sungið djass og fado.
Ungverjaland Ungverska söng-
kona Csézy keppir fyrir Ung-
verja með lagið Szívverés /
Candlelight. Hún er hámenntuð
í tónlistarfræðum og lauk með-
al annars einleikaraprófi á pí-
anó, en sneri sér síðan alfarið
að söngnum. Framan af söng
hún helst þjóðlega tónlist en tók
síðan upp poppsöng og sendi
frá sér fyrstu sólóskífuna á síð-
asta ári. Þess má geta að höf-
undur lagsins er fyrrum Evr-
óvisjónkappi því hann söng með
drengjasveitinni VIP í keppn-
inni í Dyflinni 1997.
FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008
EINS OG getið er um annars staðar í
þessu blaði er breytt skipan á Evr-
óvisjón, enn og aftur. Þessar breyt-
ingar hafa reynst nauðsynlegar
vegna síaukinna vinsælda keppn-
innar og ekkert lát á. Fyrir vikið er
nú keppt á þremur dögum, fyrst und-
ankeppi 38 landa; 19 keppa 20, maí og
19 keppa 22. maí, í kvöld og á fimmtu-
dagskvöld, og svo eru úrslitin á laug-
ardag, en þá verða löndin 25.
Tveggja kvölda kosning
Íslendingar geta greitt atkvæði tvö
kvöld, á fimmtudagskvöld, þegar þeir
eru meðal þjóðanna nítján sem þá
keppa, og svo á úrslitakvöldinu sjálfu.
Við erum fyrst á svið á fimmudags-
kvöldið og til þess að kjósa á að nota
eftirfarandi símanúmer., en við get-
um eðlilega ekki kosið Ísland.
900 10 01 Ísland
900 10 02 Svíþjóð
900 10 03 Tyrkland
900 10 04 Úkraína
900 10 05 Litháen
900 10 06 Albanía
900 10 07 Sviss
900 10 08 Tékkland
900 10 09 Hvíta-Rússland
900 10 10 Lettland
900 10 11 Króatía
900 10 12 Búlgaría
900 10 13 Danmörk
900 10 14 Georgía
900 10 15 Ungverjaland
900 10 16 Malta
900 10 17 Kýpur
900 10 18 Makedónía
900 10 19 Portúgal
Hægt verður að kjósa um leið og
keppninni er lokið en nánari upplýs-
ingar verða birtar í Sjónvarpinu.
Í úrslitum á laugardag verða sömu
númer í notkun en þá tengd öðrum
löndum enda miðast þau við röð
keppenda sem ákveðin verður á
föstudag að loknum undanúrslitum.
Þá bætast einnig við sex númer
Símakosning í Evróvisjón hefur
verið við lýði frá því uppúr miðjum tí-
unda áratugnum en áheyrendur í
Austurríki, á Englandi, í Svíþjóð,
Þýskalandi og Sviss fengu fyrstir að
kjósa með símanum 1997.
Þá þegar þótti mörgum niður-
staðan sýna að dómnefndir þær sem
séð höfðu um kosninguna fram að því
hafi verið full íhaldssamar og í raun
ekki í takt við smekk almennings.
Annað sem símakosningar hafa
leitt í ljós er að minnihlutahópar, inn-
flytjendur, í mörgum landanna hafa
talsverð áhrif á niðurstöðuna eins og
sjá má á því hvað Frakkar og Þjóð-
verjar greiða Tyrkjum mikið af at-
kvæðum, en í báðum löndum, sér-
staklega því síðarnefnda, er mikið af
íbúum af tyrkneskum uppruna. Þeir
mega eðlilega ekki greiða heimaland-
inu atkvæði og kjósa þá margir með
uppruna sínum og ekki síst tungu-
málinu.
Í öllum löndunum er dómnefnd til
vara og grípur inní ef símkerfi gefast
upp, en hún hefur líka nokkuð hlut-
verk í ár því dómnefndir í öllum lönd-
um velja tíundu hljómsveitina áfram
hvort undanúrslitakvöldið.
Kosið í
síma
20% AFSLÁTTUR
AF AMERÍSKUM
BROIL KING GRILLUM!
Hitaðu upp fyrir Eurovision
Tilboðin gilda frá 20. til 25. maíN1 VERSLANIRN1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR WWW.N1.IS
Fylgir frítt með seldum grillum
58.320,-
72.900,-
- 13,2 kW / 50,000 BTU Dual-TubeTM
brennarar
- 3 Dual-TubeTM ryðfríir línubrennarar
- 2 grillgrindur úr steypujárni
- Ryðfrí eldunarhlíf Flav-R-WaveTM
- Hágæða Accu-TempTM hitamælir
- Sure-LightTM elektrónískt kveikjukerfi
- Niðurfellanleg hliðarborð með
áhaldakrókum
- Skápur með stálhurðum
BROIL KING SIGNET 20
FRÍ
HEIMSENDING
Á SAMSETTUM
GRILLUM Á HÖFUÐ-
BORGARSVÆÐINU