Morgunblaðið - 05.06.2008, Page 1
F I M M T U D A G U R 5. J Ú N Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
152. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Ástin er diskó,
lífið er pönk >> 41
Leikhúsin
í landinu
26
79
/
IG
14
Stanga
sett
tilbúin í veiðiferðina
Þú færð IG-veiðivörur
í næstu sportvöruverslun
DAGLEGTLÍF
MARÍANNA KENNIR
KLAPPSTÝRUKÚNSTIR
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
Rauðhvítir Danir og
Dýragarðsdrengir
UM síðustu áramót voru 6.200 nýjar íbúðir í
byggingu og höfðu aldrei verið fleiri. Eru þá
meðtaldar framkvæmdir þar sem einungis er
byrjað að grafa fyrir grunni en auðvelt er að
hætta við slíkar framkvæmdir.
Með hliðsjón af fjölda íbúða í byggingu í
árslok 2007, og sem byrjað hefur verið á á
þessu ári, má ætla að 4.500 íbúðir séu í bygg-
ingu í landinu um þessar mundir að því er
fram kemur í fréttaskýringu í blaðinu í dag.
Tosar verðið niður
„Þetta er einn af þeim þáttum sem tosa
íbúðaverð niður,“ segir Þórhallur Ásbjörns-
son, sérfræðingur hjá greiningardeild Kaup-
þings.
Kári Arngrímsson, forstjóri verktakafyr-
irtækisins Atafls, segir flesta hafa brugðist við
breyttum aðstæðum með því að hægja á fram-
kvæmdum. Hann segir að Seðlabankinn kanni
nú hvað verktakar hafi byggt og selt í fyrra og
í ár og hversu margar íbúðir séu leigðar út.
„Það hafa verið gefnar út yfirlýsingar um
stöðuna á fasteignamarkaðnum án þess að
vita í rauninni hver staðan sé. Það er svolítið
alvarlegt að vera með vangaveltur um fast-
eignamarkaðinn án þess að hafa skýr gögn um
ástandið,“ segir Kári. | Viðskipti
Seðlabankinn gerir könnun á umfangi nýbygginga
4.500 íbúðir í byggingu
GAUKSHREIÐRIÐ í uppsetningu Halaleikhópsins, sem
valin var athyglisverðasta áhugasýning leikársins
2007-2008, var sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins í gær-
kvöldi. Í leikhópnum eru bæði fatlaðir leikendur og
ófatlaðir en markmið Halaleikhópsins er að iðka leik-
list fyrir alla, á forsendum hvers og eins.
Halaleikhópurinn á Stóra sviðinu
Morgunblaðið/Frikki
ÚTFLUTNINGSVERÐMÆTI sjávarafurða mun
minnka um tæpa 15 milljarða króna ef farið verður að
fullu eftir tillögum Hafrannsóknastofnunar fyrir næsta
fiskveiðiár. Þorskafli var 170 þúsund tonn árið 2007 en
áætlað er að hann verði 135 þúsund tonn í ár. Hafró legg-
ur til að þorskkvótinn verði minnkaður um 6 þúsund
tonn, úr 130 þúsund tonnum í 124 þúsund tonn og miðar
þá við 20% aflareglu sem ákveðin var í fyrra.
Ekki niður fyrir 130 þúsund tonn
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir að
þorskkvótinn fari ekki niður fyrir 130 þúsund tonn.
Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimanna-
sambands Íslands, segir að upplýsingar skipstjóra af
Vestfjörðum stemmi ekki við upplýsingar Hafró og vill
að auki fá svör um áhrif hvala á stofninn.
Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, seg-
ir að þorskstofninn sé vissulega of lítill. Leggur hann til
að veidd verði 150-160 þúsund tonn.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Ís-
lands, segir að færa megi viss rök fyrir að minnka kvóta
á ýsu og ufsa.
Arthuri Bogasyni, formanni Landssambands smá-
bátaeigenda, líst afspyrnuilla á þorskveiðiráðgjöf Hafró
og segist ekki vita um nein vísindi sem hafi afsannað
reynslu manna.
Kvóti verði enn skertur
Útflutningsverðmæti mun minnka um fimmtán milljarða
verði að fullu farið að tillögum Hafrannsóknastofnunar
Ekki er von | 11
Hillary Clinton sögð
munu játa sig sigraða
HILLARY Clinton hyggst hætta
baráttunni fyrir því að verða for-
setaefni demókrata, að sögn nokk-
urra bandarískra fjölmiðla seint í
gærkvöldi. ABC-sjónvarpsstöðin
kvaðst hafa heimildir fyrir því að
Clinton hygðist „binda enda á sögu-
lega baráttu sína um Hvíta húsið og
játa sig sigraða fyrir Barack
Obama“ á morgun, föstudag. Einn
af helstu samstarfsmönnum Hillary
Clinton staðfesti þetta á fréttavefn-
um politico.com » 16, miðopna
Leggja inn 300 milljarða
„FÓLK er að færa sig yfir í
áhættuminni fjárfestingar og
stöðugri ávöxtun,“ segir Hreiðar
Már Sigurðsson, forstjóri Kaup-
þings, um vel-
gengni Kaup-
thing Edge.
Sparifjáreig-
endur hafa
lagt 2,5 millj-
arða evra (um
300 milljarða króna) inn á
Edge-netreikninga.
Ekki er minni velgengni Ice-
save-reiknings Landsbankans í
Hollandi. 14.000 hafa sótt um að
opna reikning frá því hann var
kynntur þar fyrir viku. „Þetta fer
fram úr okkar björtustu vonum,“
segir Sigurjón Árnason, banka-
stjóri Landsbankans. Í Bretlandi
eru reikningshafar hjá Icesave
um 220 þúsund. » Viðskipti
Landið færðist
VARANLEGAR landbreytingar
urðu í Suðurlandsskjálftanum.
GPS-landmælingar Veðurstofu Ís-
lands við Selfoss sýna að þar varð
20 sentimetra færsla til suðausturs
og lyftist mælistöðin um fimm
sentimetra. Við Hveragerði varð 17
sentimetra færsla til norðvesturs
og lyftist mælistöðin þar um 3,5
sentimetra. Þessar hreyfingar eru í
samræmi við hreyfingar á tveimur
sprungum. Gengur önnur eftir Ing-
ólfsfjalli en hin frá Eyrarbakka og
norður fyrir Hveragerði.
TILLÖGUR HAFRÓ
HEILDARÞORSKAFLI
1984
200.000 TONN
281.481 TONN
1989
300.000 TONN
354.006 TONN
93/94
150.000 TONN
197.000 TONN
98/99
250.000 TONN
254.744 TONN
03/04
209.000 TONN
219.400 TONN
08/09
124.000 TONN
?
Þorskafli í
kvótakerfi