Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 2
BRÓÐIR emírsins af Katar, hans hátign Sheikh Mohamed bin Kha- lifa Al-Thani, hefur keypt hlut í Al- fesca og verða nýju bréfin gefin út á áskriftarverði sem er 6,45 kr. fyr- ir hvern hlut. Eftir þessa aukningu verður um að ræða 12,6% eign- arhlut í félaginu. Þessi fjárfesting kemur í kjölfar þess að Alfesca og eignarhaldsfélag Al-Thani, ELL162, hafa átt í nánum viðræðum og byggt upp samband undanfarin tvö ár. Veiðifélagi Ólafs Ólafssonar Þessi viðskipti eiga sér nokkurra ára aðdraganda og koma í gegnum persónuleg tengsl Al-Thani og Ólafs Ólafssonar stjórnarformanns Al- fesca. Þeir eru kunningjar og hafa stundað veiðar saman í Afríku. Meginstoðirnar í starfsemi fé- lagsins eru fjórar: reyktur lax og annar fiskur, andalifur (foie-gras) og andakjöt, rækjur og annar skel- fiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia, Lyons og Farne. Fyrirtækið fram- leiðir einnig töluvert fyrir vöru- merki annarra, einkum í Bretlandi, Frakklandi og á Spáni. Ársvelta fyrirtækisins er 616 milljónir evra og vinna 3.500 starfs- menn hjá fyrirtækinu. | orsi@mbl.is Hátign kaupir í Alfesca 2 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud- laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Karl Ásgeir Sigurgeirsson Hvammstangi | Riða greindist fyrir nokkrum dögum í fjögurra vetra kind á Brautarholti í Hrútafirði. Tilfellið var greint sem NOR98 en slík tegund riðu hefur aðeins greinst tvisvar áð- ur hér á landi og í bæði skiptin á Suðurlandi. Af- brigðið er þekkt í Noregi og kom þar upp 1998. Allt sauðfé á bænum verður skorið niður á næstu dögum. Ekki er talin ástæða til förgunar á fé frá fleiri bæjum. Það þykir með ólíkindum að riða komi upp á Brautarholti þar sem fé er ekki rekið á afrétt og er í mjög góðu aðhaldi á bænum. Þetta er mikið áfall fyrir sauðfjárbændur í Miðfjarðarhólfi en sauðfjárrækt er þar aðalbúgreinin og riða hefur ekki greinst þar fyrr. Kynningarfundur um málið var haldinn í gær í Ásbyrgi á Laugarbakka. Þar höfðu framsögu Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir frá Mat- vælastofnun, og dýralæknarnir Sigurður Sig- urðarson frá Keldum, Ingunn Reynisdóttir og Egill Gunnlaugsson. Á fundinum voru og ráðu- nautar svæðisins og hátt í 100 bændur. Verða bændum á svæðinu settar ýmsar takmarkanir með umgengni og verslun með sauðfé. Riðusmitið er með ólíkindum Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Riða Nær 100 bændur sátu fundinn um við- brögð við riðu á Laugarbakka í gær.  Sjö hundruð fjár verða skorin á bænum Brautarholti þar sem riða hefur greinst í fyrsta skipti  Sjúkdómurinn mikið áfall fyrir sauðfjárbændur í Miðfjarðarhólfi sem hafði verið riðulaust svæði Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is SPRUNGA, sem myndaðist í Suð- urlandsskjálftunum fyrir viku, er greinileg allt frá bænum Völlum í Ölfusi, í gegnum austasta hluta Hveragerðis og inn eftir brúnum Reykjafjalls. Sprungan er fleiri kílómetrar að lengd. Kristján Sæmundsson, jarðfræð- ingur hjá Íslenskum orkurann- sóknum, skoðaði sprunguna að hluta á því svæði þar sem skjálfta- þyrping sést fyrir norðan Hvera- gerði á kortum Veðurstofunnar. Kristjáni sýndist sprungan ná frá bænum Völlum í Ölfusi, sem eru beint suður af austurenda Hvera- gerðis og í gegnum austasta hluta bæjarins. Þar liggur sprungan m.a. í gegnum götuna Heiðarbrún en er þar aðeins 1-3 sm breið. Síðan gengur hún upp í Reykjafjall innan við Stórkonugil og nálægt brún- unum ofan við Garðyrkjuskólann. Þar fyrir innan verður sprungan stærri og meira áberandi. Áberandi á golfvellinum Ofan við golfvöllinn og þar inn úr sjást margar sprungur og sumar þeirra yfir metri á breidd. Þar er fylki af sprungum frá fjallsbrúninni og um 100 metra inn á fjallið. Krist- ján sagði að svona sprungur væru kallaðar skástígar og stefna þær frá suðvestri í norðaustur. Tekur hver við af annarri og ganga frá fjallsbrúninni og inn á fjallið þar sem þær deyja út. Kristján rakti sprungukerfið um þrjá km inn eftir fjallinu. Frá Völlum og þangað sem hann rakti sprunguna eru um 4,5 km. Hann segir að svo virðist sem aðalsprungan sé spölkorn austan við fjallsbrúnina og margar sprung- ur liggi á ská yfir hana. Kristján sagði mjög erfitt að greina á milli jarðskjálftasprungna og þeirra sem hafa orðið til við framsig í fjalls- brúninni. Hann sagði stærstu sprungurnar stafa af framsigi. Vegna þess hvað sprungan er ná- lægt fjallsbrúninni hefur spilda fremst í fjallinu sigið eða losnað frá. Kristján sagði það ekki nýtt, slíkt hefði gerst þarna áður, framan í fjallinu héngju gömul framsig og þessi þróun hefði staðið lengi. Hann taldi ekki neina hættu á stóru hruni úr Reykjafjalli af þessum sökum. Sprunga í gegnum götu Ljósmynd/Guðmundur Karl Jarðskjálftasprungan frá Suðurlandsskjálftunum sést vel á yfirborði jarðar Ekki talin hætta á stóru hruni úr fjallinu          HAUKUR Michelsen múrarameistari bendir á rifu sem kom í malbikið framan við heimili hans í Heiðarbrún. Undir rifunni er jarðskjálftasprung- an og verður hún enn greinilegri uppi í Reykjafjalli ofan við bæinn. Rifa undir raðhúsið í Heiðarbrún „SEM betur fer var ég ekki heima þegar þetta gekk yfir en var í kaffi hjá bróður mínum hér ofar í bæn- um. Ég hefði ekki viljað vera staddur inni í eldhúsi heima, eins og aðkoman var,“ segir Haukur Michelsen múrarameistari í Heið- arbrún 21 í Hveragerði, en jarð- skjálftasprungan frá því fyrir viku liggur undir húsið hans. Húsið er steinsteypt raðhús og segir Hauk- ur að jarðskjálftinn hafi rifið gafl- inn frá húsinu. „Þetta er meira en tvær túpur af akríl og málning,“ sagði Haukur um hvað þyrfti til að gera við hús- ið. Hann kvaðst þó ekki hafa orðið fyrir meira tjóni en margir aðrir í bænum. Leirtau hefði brotnað og ýmislegt fleira en ótrúlegustu hlut- ir einnig sloppið. Hjá Hauki er þrennt í heimili og hefur fjölskyldan ekki sofið í hús- inu eftir jarðskjálftann heldur dvalið í hjólhýsi fyrir utan heimili sitt. Ekki heima – sem betur fer ÁSGEIR Sverrisson, bóndi á Brautarholti í Hrútafirði, sagði það vera mikið áfall að riða skuli hafa greinst í kind frá bænum. Ákveðið hefur verið að skera allar kind- urnar. Nú er sauðburði að ljúka og áætlaði Ásgeir að hjörðin sem verður skorin muni telja um 700 fjár að lömbum meðtöldum. Ekki er búið að ákveða hvenær fénu verð- ur slátrað. Ábúendur tóku eftir óeðlilegri hegðun hjá einni kindanna og báðu héraðs- dýralækninn að skoða hana. Kindin drapst síðan og var sýni úr henni sent í rannsókn. Þá kom í ljós að hún var riðuveik. Engin skýring hefur fundist á því hvernig riðan barst í kindina. Féð í Brautarholti er ekki rekið á afrétt heldur gengur það á afgirtum heimalönd- um. Ásgeir sagði að samt væri alltaf ein- hver samgangur við fé frá öðrum bæjum en þó miklu minni en ef féð væri rekið á afrétt. Ásgeir er ættaður frá Brautarholti og tók þar við búsforráðum fyrir rúmu ári. Kona hans er Kathrin Martha Schmitt og eru þau með bæði kýr og kindur. Ásgeir var spurður að því hvort þetta áfall yrði til þess að hann brygði búi? „Maður spáir ekki í neitt slíkt strax. Fyrst er að koma hlutunum af. Enn þá má heita að sauðburður sé í gangi og honum er að ljúka. Það er fullt annað að gera en að hugsa um eitthvað svona,“ sagði Ásgeir Sverrisson. Gengur á afgirtum heimalöndum ÖKUMAÐUR um fertugt var stöðv- aður á 170 km hraða á Suðurlands- vegi rétt austan við Selfoss í gær. Hann reyndist ölvaður og próflaus að sögn lögreglunnar. Bíllinn var tekinn af honum og verður málið sett í ákærumeðferð. Tekinn á 170 km hraða ELDUR kom upp í þaki skemmu við gömlu loðnubræðsluna í Sandgerði í gærkvöldi. Slökkviliði tókst að ráða niðurlögum eldsins en ekki vildi betur til en svo að hann bloss- aði upp aftur og þurfti slökkviliðið að herja á hann á nýjan leik. Hús- næðið mun ekki vera í notkun en óvíst er með tjón. Eldur í gam- alli bræðslu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.