Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is HUGMYND um að Guðmundur Þóroddsson stofnaði nýtt fyrirtæki með starfsmönnum sem tæki yfir verkefni REI, útrásararms Orku- veitu Reykjavíkur, kom fyrst upp í tíð hundrað daga meirihlutans í borgarstjórn og síðan aftur þegar núverandi meirihluti tók við. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins hafði Guðmundur Þóroddsson kann- að áhuga Kaupþings og kynnt þeim verkefni á meðan hann var enn for- stjóri REI. Engar formlegar viðræður Var þá málið lagt þannig upp að þar sem stjórnmálamenn væru ósáttir, ekkert gerðist í málefnum REI og engin svör bærust, þá væru starfsmenn tilbúnir að stofna félag, taka yfir verkefnin og leita sjálfir eftir fjármögnun. Með því hafi hins vegar ekki vakað fyrir starfsmönn- um að stilla stjórnmálamönnum upp við vegg. Þó að hugmyndin hafi komið upp í samtölum við borgarfulltrúa fóru formlegar viðræður aldrei fram. Og þó að þetta hafi ekki verið útilokað með formlegum hætti, þá er hug- myndin ekki á borðinu hjá stjórn REI, enda stendur yfir stefnumótun félagsins. Ekki kemur því til greina að verkefni fylgi Guðmundi við starfslok hans. Samkvæmt heimild- um var hópur starfsmanna REI tilbúinn að fylgja hugmyndinni eftir og hverfa frá REI, en að minnsta kosti hluti þeirra álítur sig vera í bið- stöðu þar til niðurstaða stefnumót- unar verður ljós. Könnuðu áhuga Kaup- þings á samstarfi um REI  Félag starfsmanna um verkefni REI fyrst borið upp við 100 daga meirihlutann  Starfsmenn tilbúnir að stofna félag Morgunblaðið/Ómar Orka Verkefni fylgja ekki Guð- mundi Þóroddssyni við starfslok. FERTUGUR Hollendingur er undir eftirliti læknis en beðið er þess að hann skili af sér kókaíni sem hann reyndi að flytja til landsins. Maður- inn var handsamaður við komuna til landsins frá Amsterdam sl. fimmtu- dag. Talið er að magnið nemi nokkur hundruð grömmum. Maðurinn sætir gæsluvarðhaldi til föstudagsins 13. júní nk. Að sögn Eyjólfs Kristjánssonar, fulltrúa hjá embætti lögreglustjór- ans á Suðurnesjum, virðist lítil hætta á að umbúðirnar springi en hins vegar geti myndast „einhver stífluvandræði“ og því nauðsynlegt að hafa manninn undir eftirliti. Ekki síst þar sem hann neitar að taka inn hægðalosandi lyf „en þetta virðist vera í rólegum takti að ganga sína leið“. Eyjólfur segir rannsókn ganga ágætlega en vill ekkert tjá sig um hana að svo stöddu. | andri@mbl.is Sjö daga að ganga niður FRÉTTASKÝRING Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞEGAR hvítabirnir koma nærri byggðum á Nýfundnalandi fer í gang viðbragðskerfi sem miðar að því að því tryggja öryggi almennra borgara og í lengstu lög er reynt að svæfa dýrin. Nýfundnaland er eins og Ísland í nágrenni Grænlandsíss- ins og vel þekkt til hvítabjarna þar. Tom Burry, starfsmaður á nátt- úruverndarskrifstofu stjórnarinnar, sagði að reglan væri að nota deyfilyf á birnina, sem væru síðan fluttir til staða fjarri mannabyggðum. Afar fátítt væri að þeir væru drepnir. Burry kvaðst ekki telja að hvíta- birnir færu þaðan suður til Nova Scotia. Skammturinn kostar 39.000 kr. Chris Murley, umhverfisverndar- fulltrúi hjá stjórninni, tekur undir með Burry að leitað sé allra leiða til að svæfa dýrin og segir aðspurður að notast sé við deyfilyfið Telezol, sem kosti sem svarar hátt í 39.000 krónur skammturinn. Murley tekur þó fram að margt þurfi að taka með í reikninginn. Búnaður til lyfjagjafar kosti jafn- virði um 80.000 króna, auk þess sem leiga þyrlu kosti um 160.000 krónur á hverja klukkustund, svo ekki sé minnst á búrið sem þurfi til og flutn- ing þess og dýrsins á landi. Aðferðin við svæfinguna sé sú að sé hvítabjörninn á opnu og öruggu svæði sé hann skotinn með Telezol og svo beðið í tíu til fimmtán mín- útur þar til dýrið er sofnað. Þá er því komið fyrir í sterku neti og síðan sett í rammgert búr. Því næst er búrið flutt landleiðina norður á bóg- inn í átt að heimkynnum bjarna, fyrst skuli reyna að hrekja hvíta- birni í burtu frá byggð með hávaða frá tækjum eða skothvellum, því næst með grænu ljósblysi, þá með gúmmíkúlum og loks með banvæn- um kúlum úr skotvopni eða öðrum vopnum, en aðeins ef hinar aðferð- irnar bera ekki tilætlaðan árangur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Þetta segir Jon Flogstad, lög- regluþjónn í Longyearbyen á Sval- barða, í samtali við Morgunblaðið og tekur fram að sjaldgæft sé að birn- irnir séu felldir þótt þeir sjáist nærri byggðinni á hverju ári. Yfirleitt nóg að hræða þá Flogstad giskar á að einn hvíta- björn hafi verið felldur á Svalbarða í fyrra, enginn í ár. Yfirleitt gangi að hræða þá. Á hinn bóginn skylduðu lögin þá sem ferðast frá Longyear- byen að hafa með sér byssu til öryggis sem væri ýmist með venju- legum kúlum ellegar gúmmíkúlum. Um það hver reglan sé á fasta- landinu í Noregi segist Flogstad ekki vita um tilvik þess að hvíta- björn hafi verið skotinn eftir að hafa náð þar landi. Almennt fylgi þeir hafísnum og brot úr honum bráðni áður en þau nái Noregsströndum. Þær upplýsingar fengust hjá Grænlandsstjórn að skjóta mætti hvítabirni ef þeir ógnuðu fólki, óháð því hvort búið væri að tæma veiði- kvótann, en mikil hefð er fyrir veið- unum í landinu. áður en þyrlan flytur dýrið svo aftur síðasta spölinn í netinu. Murley segir svæfinguna einkum kostnaðarsama þar sem viðbragðs- áætlun sé ekki fyrir hendi, og að svæfingin sé ekki alltaf svo einföld, s.s. þegar dýrið er ekki á hentugum stað til að skjóta það með lyfi úr pílubyssu. Nærri þéttbýli kunni til dæmis að þurfa að beita blysbyssu og gúmmíkúlum til að hrekja dýrið út á opnari svæði. Sama viðbragðs- áætlun sé notuð í Labrador. Líkt og á Nýfundnalandi er al- menna reglan á Svalbarða sú að Regla að svæfa birnina ÞEGAR hvítabjörninn kom á land í vikunni voru tutt- ugu ár liðinn frá því bjarndýr ísbreiðanna gekk síð- ast hér á land, nánar tiltekið í Haganesvík. Fimm ár- um síðar sást hvítabjörn hér, um 70 mílur frá ströndum Vestfjarða, og í ljósi hafísstöðunnar nú áttu ekki margir von á að Ursus maritimus, eða sjávarbjörn eins og hann nefnist upp á latínu, gengi á land við Íslandsstrendur. Rætist spár vísinda- manna um mikið hop íss á norðurpólnum, samfara almennri hlýnun loftslags á jörðu næstu áratugi, má leiða líkur að því að slíkar heimsóknir verði tíðari í framtíðinni, sökum þess að farið er að þrengja að þeim. Þórir Haraldsson, kennari á Akureyri og mikill áhugamaður um hvítabirni, er í hópi þeirra sem þetta telja. Hann bendir á að flest hinna um 500 skráðu dýra sem hingað hafi komið til lands frá því land byggð- ist á 9. öld hafi komið um miðbik 18. aldar og undir lok þeirrar nítjándu, þegar mikil kuldaskeið voru á norðurslóðum. Öndvert við þessi skeið kunni hlýindaskeið nú því að fjölga heimsóknum á ný. Á hitt beri þó að líta að gögn um komur þeirra til landsins séu mjög óljós. Gæti fjölgað með hlýnun Ljósmynd/CORBIS Mannaþefur í lofti? Ísbjörn rekur trýnið út í loftið nærri Churchill í Kanada. Hugsanlegt er að heimsóknir ísbjarna til Íslands verði tíðari í framtíðinni.  Yfirvöld á Nýfundnalandi reyna í lengstu lög að beita deyfilyfjum á hvítabirni  Á Svalbarða er það einnig álitið neyðarúrræði að aflífa dýrin nærri byggðum TÆPUR þriðjungur meðlima Fé- lags kaþólskra leikmanna, eða um fimm þúsund manns, hefur sett nafn sitt á undirskriftalista þar sem aug- lýsingaherferð Símans er fordæmd. Í undirskriftinni felst að slíta öllum viðskiptum við fyrirtækið. Að sögn Guðmundar Más Sig- urðssonar, sem situr í stjórn Hafn- arfjarðardeildar félagsins, voru margir afar ósáttir við auglýsinguna sem birtist fyrir jól með Jón Gnarr í hlutverki Júdasar. Fjölmargar kvartanir voru lagðar fram en látið þar við sitja. Sjónvarpsauglýsingin, sem nýlega er farin í loftið og sýnir Jón Gnarr í hlutverki Galíleó Galílei fyrir rannsóknarréttinum í Páfa- garði, er hinsvegar kornið sem fyllir mælinn. Bera vott um hroka Guðmundur Már segir auglýsing- arnar bera vott um hroka og um Jón Gnarr, höfund þeirra, segir hann: „Trúaður maður gerir ekki svona.“ Hjá Símanum fengust þær upplýs- ingar að engar kvartanir hefðu bor- ist vegna auglýsingarinnar sem nú er verið að sýna. Þvert á móti hefði hún fengið afar sterk og jákvæð við- brögð. | ylfa@mbl.is Segja upp viðskiptum við Símann Kaþólskir leikmenn fordæma auglýsingu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.