Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 14

Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÁRMANN Snævarr verður 89 ára gamall í haust og hefur stundum verið nefndur faðir almennrar lög- fræði en hann var prófessor við laga- deild Háskóla Íslands (HÍ) um ára- bil. Þar mótaði hann kennslu í fræðigreininni og gegndi einnig embætti hæstaréttardómara og rektors HÍ á sínum ferli svo fátt eitt sé nefnt. Bókaútgáfan Codex hefur nú gefið út nýtt fræðirit eftir Ár- mann, Hjúskapar- og sambúðarrétt. Eftir jafnglæstan feril hefðu margir dregið úr vinnu þegar líða tæki á ævikvöldið en ekki Ármann. „Ég hef hvergi látið deigan síga. Ég hef hald- ið áfram að sinna mínum hugð- arefnum í seinni tíð sem er fræða- starf á sviði lögfræði.“ Hefur ríkt hagnýtt gildi fyrir almenning Ármann segir bókina hafa mikið hagnýtt gildi fyrir þá sem fjalla um framkvæmd sifjalaga, svo sem lög- menn og dómara og valdir kaflar úr henni nýtist við lagakennslu. Hún sé samt ekki síður þýðingarmikil fyrir almenning enda fjalli hún um laga- umgjörð fjölskyldunnar. Flestir til- heyri einhvers konar fjölskyldum og sambúðarform séu sífellt að verða flóknari. „Þetta rit varð fyrir valinu þó ým- is önnur kæmu til greina. Ég kenndi hjúskapar- og sifjarétt yfir 25 ára tímabil og réttarreglur sem snúa að fjölskyldunni hafa verið mér lengi hugleiknar. Ég tel jafnframt mik- ilvægt að sérstakri rannsókn- arstofnun verði komið á fót í þessari grein því á henni er mikil þörf.“ Aðspurður hvort hann hyggist gefa út fleiri bækur svarar Ármann því til að fæst orð beri minnsta ábyrgð. „Það var sérstaklega gaman að fást við skrifin. Bókin kemur út á miklum tímamótum því í ár er ald- arafmæli lögfræðikennslu á Íslandi, 60 ár eru síðan ég hóf kennslu í þess- ari grein og í ár á ég jafnframt 70 ára stúdentsafmæli frá Mennta- skólanum á Akureyri.“ „Ég hef hvergi látið deigan síga“  Ármann Snævarr með nýja fræðibók  Hjúskaparréttur höfundi hugleikinn  100 ára afmæli lagakennslu á Íslandi  70 ára stúdentsafmæli höfundar Morgunblaðið/Golli Lögfræði Ármann Snævarr með rit sitt Hjúskapar- og sambúðarrétt. Í HNOTSKURN »Ármann Snævarr er fædd-ur 18. september árið 1919 á Nesi í Norðfirði. »Hann lauk stúdentsprófifrá Mennaskólanum á Ak- ureyri árið 1938, embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1944 og framhaldsnámi í lögum frá Uppsalaháskóla, Kaupmannahafnarháskóla og Oslóarháskóla auk þess að stunda rannsóknir við Harvard Law School í Bandaríkjunum. »Hann gaf fyrstur íslenskramanna út heildstætt fræði- rit á sviði almennrar lögfræði og leiðbeindi mörgum af okkar hæfustu lögfræðingum í kennslu við lagadeild HÍ um árabil. »60 ár eru síðan Ármann hófkennslu í lögfræði en hann kenndi hjúskapar- og sifjarétt yfir 25 ára tímabil. Rétt- arreglur sem snúa að fjölskyld- unni hafa verið honum lengi hugleiknar. »Ármann er kvæntur Val-borgu Sigurðardóttur fyrr- verandi. skólastjóra og eiga þau fimm uppkomin börn. 11,2% verðmunur reyndist á mat- vörukörfunni þegar verðlagseft- irlit ASÍ kannaði verð í lág- vöruverðsverslunum á þriðjudag. Vörukarfan var ódýrust í Bónus (8.922 kr.) en dýrust í Nettó (9.925 kr). Vörukarfan samanstóð af 42 al- mennum neysluvörum til heimilis- ins. Við útreikning var tekið mið af því hvar fólk fær mesta magn af ákveðnum matvörum fyrir sem lægst verð. Af einstökum liðum í vörukörf- unni var minnstur verðmunur milli verslana á mjólkurvörum og ávöxtum. Áberandi var að mun minni verðmunur var á þeim vörum sem seldar eru í sömu pakkastærð í öllum verslunum. Mikill munur var hins vegar oft á mælieiningaverði vara frá þekkt- um framleiðendum. Sem dæmi má nefna að 128% verðmunur var á kílóverði af Hunt́s tómatssósu sem var hæst í Krónunni (344 kr.) en lægst í Kaskó (117 kr). Að sögn Hennýjar Hinz verkefn- isstjóra verðlagseftirlits ASÍ er lík- leg skýring á því að minnstur verðmunur sé á vörum í sömu pakkastærð sú, að neytendur eigi auðveldara með að bera saman verð milli verslana þegar pakka- stærðir eru þær sömu. „En sam- anburðurinn verður ekki jafn- augljós þegar fólk þarf að bera saman verð á 500 g pakkningu í einni verslum og 750 g pakkningu í annarri,“ bendir hún á. 55% verðmunur reyndist á kíló- verði af flatkökum frá Ömmu- bakstri sem var hæst í Krónunni (650 kr.) og lægst í Bónus (419 kr.) Kílóverð á kornflögum frá Kel- logg’s var frá 459 kr. í Bónus upp í 593 kr. í Krónunni, eða 29% mun- ur. Könnunin var gerð í Bónus Kauptúni, Krónunni Bíldshöfða, Nettó í Mjódd og Kaskó Vest- urbergi.   11 11- * 5 6 )  " #$ %&& & '( ,  $.0 1 #2 $ 3    %4 #5#6%#&"' 7809#:8;8 : 8 38 #38< 7=88#6'' 7!     #>'' -8&?@#A # B1 8 #A #"&> 7= !#C ! C)6 % #$#>'' !!4#$#C>' 3!! !##?9C)6 34 # #!# ! D#* C&@# ! - #-4# E 8    # # #8# ! 04   #3  #& -$ #, F#6C> +!  !#  9 #6''#!G E#%%4# !    #B $  +! !#,< E  # - H   $ 4  +!   # ! E   -! . I #J;$ 3 # ! 0  8%C'"#>'' -FF    #C :8;;8#& !8 A   $ 8 8#?%#>/> )#*+# #,#-                              !  !        !! !      !      !   ! !   !    !                                                 ../ 0                                                . )                    0                           .'1                 0                            .1 %*  ! $ 7 " #                                              0                0                            0                                             0 ((' C?' C C>' >'' >'' C C >'' C 6 C C & C C#" >'' &>' C'' >'' C C C >'' 6'' >'' &'' *'' ?'' >'' ">' >'' C>' ?'' 6'' & C C C &'' C Minni verð- munur ef pakkningin er svipuð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.