Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 15 LAGERSALA - OUTLET LAUGAVEGI 51 2 fyrir 1 af öllum buxum og pilsum um helgina Eftir Ásgeir Ingvarsson asgeiri@mbl.is „BARNAVERNDARMÁL eru flókin og krefjast þess af þeim sem málunum sinna að komast inn fyrir þann múr sem umlykur einkalíf fjölskyldna og um leið leita leiða til að bæta aðstæður barnanna, helst í samstarfi við þá sem börnin eru hjá,“ segir Anni G. Haugen, umsjónarmaður dip- lómanáms í barnavernd. Boðið verður upp á námið í fyrsta skipti næsta haust og er um að ræða þriggja anna nám með starfi sem einkum er ætlað þeim sem sinna dag- legum störfum í barnavernd. Er námið boðið í samstarfi við Barnaverndarstofu. „Námið er handa þeim sem taka á móti tilkynningum um aðstæður þar sem grunur leik- ur á að börn séu vanrækt eða beitt ofbeldi, kanna aðstæður barnanna og vinna að lausn málanna,“ segir Anni. „Þetta eru starfsmenn barnavernd- arnefnda um allt land, fólk með ólíka menntun, t.d. lögfræðingar, sálfræðingar og félagsráðgjafar.“ „Náminu er ætlað að dýpka þekkingu á að- stæðum barna, afleiðingum vanrækslu og ofbeld- is, og ekki síst gefa þeim tækifæri til að kynnast fleiri aðferðum til að vinna með börnunum og fjöl- skyldum þeirra til að skapa betri aðstæður fyrir barnið og fjölskylduna alla,“ útskýrir Anni. „Þeir sem starfa að barnaverndarmálum þurfa að kunna að takast á við ýmsar aðstæður. Til dæmis eiga foreldrar margra vanræktra barna við fíkn að stríða og hafa jafnvel sjálf alist upp í slæmu um- hverfi. Vinna þarf traust foreldranna, reyna að fá þá til að taka þátt í lausn vandans, ef það er mögu- legt, og hafa hugfast í öllu ferlinu hagsmuni og þarfir barnsins. Nálgast þarf bæði foreldrana og börnin til að geta unnið að breytingum.“ Þörf á menntun og rannsóknum Anni segir mjög þarft skref stigið með því að bjóða upp á þetta nýja nám: „Við erum að svara mikilli þörf fyrir menntun af þessu tagi,“ segir hún. „Námið leggur ekki aðeins áherslu á hagnýta færni og skilning, heldur einnig rannsóknir og viljum við með því móti stuðla að auknum rann- sóknum á barnaverndarmálum hérlendis, en við eigum mikla vinnu fram undan á því sviði.“ Nýtt diplómanám í barna- vernd í boði við Háskóla Íslands næsta vetur Anni G. Haugen Verða betur í stakk búin til að gæta barnanna Eftir Steinunni Ásmundsdóttur Egilsstaðir | Rita Hvönn Traustadóttir blóma- skreytir og Þorsteinn Sigurlaugsson rafvirki fluttu á Fljótsdalshérað frá Stykkishólmi sl. haust, ásamt þremur sonum sínum. Þorsteinn starfar við sitt fag í steypuskála í álveri Alcoa Fjarðaáls á Reyð- arfirði, en Rita er deildarstjóri í nýlegri stór- verslun Blómavals á Egilsstöðum. Þess utan lifa þau og hrærast í sjókajaksiglingum og leggja nú síðustu hönd á árlegt, alþjóðlegt stórmót kaj- aksiglingamanna sem haldið verður á Norðfirði um næstu helgi, í samstarfi við kajakklúbbinn Kaj í Neskaupstað. Þau segjast alsæl: með störf sín, bú- setu í Fellabæ og Fellaskóla, sem drengirnir ganga í. Bátaútgerðin á bílastæðinu Í Stykkishólmi rák Rita og Þorsteinn blómabúð í sex ár, auk sjókajakleigu og ferðaþjónustu undir nafninu Seakayak Iceland. „Það er yndislegt að geta farið út á kajak og ver- ið í náttúrunni,“ segir Rita, sem er alveg jafn- forfallinn siglari og Þorsteinn, þó hann sé nokkuð sjóaðri í faginu. Þau tóku bátaútgerðina, sem nú telur 20 báta, með sér austur og geyma á planinu heima hjá sér. Þorsteinn grípur í að kenna sigl- ingar í Reykjavík og á Austurlandi, enda með próf- gráðu frá Wales. Kajakleigan sem slík hefur setið á hakanum undanfarið en þau skipuleggja þó lengri ferðir fyrir þá sem þess óska, innan lands og utan. Þau segja algjöran draumastað fyrir sjókajaksigl- ingar vera á vesturströnd Grænlands, þar sem unnt sé að sigla lengi án þess að sjá nokkurn mann. Að sigla umhverfis Ísland sé líka mikil ögrun sem bjóði upp á nánast öll skilyrði sjókajaksiglingar sem hugsast getur og aðeins fyrir reyndasta fólk. Kajakmótið sem þau undirbúa ber nafnið Egill rauði. Það hefst á Norðfirði á föstudag og stendur fram á sunnudag. Spennandi kajak-kennarar „Við erum að fá á mótin þekkt siglingafólk er- lendis frá sem búið er að reyna mjög afgerandi hluti í siglingum,“ segir Þorsteinn. „Það er mikill fengur í að fá þetta fólk hingað til að kenna og gefa okkur innblástur. Svo verður einnig nú og m.a. kemur Nigel Foster, einn af þekktustu sjó- kajakmönnum heims, en hann sigldi ásamt félaga sínum kringum Ísland árið 1977 og var fyrstur til þess. Annar gestur er Freya Hoffmeister, mikill kajakkúnstner og veltukennari, sem tók hringinn í fyrra og mun vera með veltukennslu í sundlauginni í Neskaupstað um helgina.“ Um helgina verður boðið upp á kajaknámskeið bæði í sundlauginni og á sjónum fyrir hádegi. Eftir hádegi er siglt. Landhelgisgæslan verður með þyrlu á firðinum á laugardag og verður þá æfð björgun úr sjó. Sprett- og veltukeppni Á sunnudag reyna kajaksiglarar með sér í 200 m sprettkeppni og veltukeppni. Er þetta önnur stiga- keppni ársins af fjórum til Íslandsmeistara. Þau Rita og Þorsteinn segja allt að 200 manns hafa mætt á kajakhátíðirnar hingað til. Þau finni mikinn áhuga fyrir Agli rauða um helgina og vonist eftir fjölda þátttakenda og blíðviðri. Nánari upplýs- ingar um mótið má finna á vefnum www.seaka- yakiceland.com og www.123.is/kaj. Ljósmynd/Ari Ben Sjósett Búist er við fjölda sjókajakræðara og gesta á hátíð í Neskaupstað um helgina. Sjósetning er hluti af gamaninu og þá borgar sig að allir hjálpist að. „Yndislegt að fara á kajak og vera úti í náttúrunni“ Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Sigld Rita Hvönn Traustadóttir og Þorsteinn Sigurlaugsson halda alþjóðlegt mót kajak- siglingamanna á Norðfirði um helgina. Sjókajaksiglarar streyma til Norðfjarðar um helgina Frestur til að sækja um hið nýja diplómanám er til 5. júní næst- komandi. Gerð er krafa um B.A.- eða B.S.- gráðu á félags- eða heilbrigð- issviði og að umsækjendur hafi að minnsta kosti tveggja ára starfsreynslu á sviði barna- verndar. Nánari upplýsingar um námið má fá með tölvupósti á anni- haug@hi.is eða á heimasíðu Félagsráðgjafarskorar, felags.hi.is. Frestur til 5. júní JÓHANNA Sig- urðardóttir, félagsmálaráð- herra, segir erf- itt að kalla það annað en forræð- ishyggju ef gefa ætti út miðlægar reglur um heimil veðhlutföll. Slíkt sé varla í takt við nútímann. Þetta segir hún í tilefni af orðum Arnórs Sighvatssonar, aðalhagfræðings Seðlabankans, í erindi sem hann hélt á málstofu hagfræðideildar HÍ. Arnór sagði að stjórnvöld gætu íhugað að fela Seðlabankanum reglugerðarvald til þess að tak- marka veðhlutföll, hjá Íbúðalána- sjóði og bankakerfinu í heild. „Það gæti hins vegar hugsanlega verið áhugavert að skoða aðrar sameiginlegar leiðir til að sam- ræma verklag og fyrirkomulag húsnæðismála hjá lánastofnunum almennt, sem gæti þá tryggt meira jafnvægi og stöðugleika á fast- eignamarkaði,“ segir Jóhanna. „Við höfum búið við miklar og óæskilegar sveiflur á fast- eignamarkaðinum á undanförnum misserum og árum. Það gæti verið ástæða til að hugleiða slíkar reglur, en þær þarf að móta út frá hags- munum almennings í húsnæðis- málum, ekki út frá stjórnun efna- hagsmála.“ | gretar@mbl.is Varla í takt við tímann Jóhanna Sigurðardóttir Miðlægar reglur um veðhlutföll SAMNINGAR hafa náðst í kjara- deilu Flugfreyjufélags Íslands og Iceland Express. Samningurinn er sambærilegur við samninginn sem flugfreyjur gerðu við Icelandair í seinasta mánuði og hljóðar m.a. upp á 3,3% grunnkjarahækkun. Gildistími samningsins við Iceland Express er hins vegar nokkuð lengri eða til 1. september 2009. Kjarasamningur flugfreyja við Ice- landair gildir hins vegar til 31. jan- úar næstkomandi. Þær upplýsingar fengust hjá FFÍ í gær að viðræður stæðu nú yfir við Flugfélag Íslands um endurnýjun kjarasamninga Flugfreyjur semja við Ice- land Express SÁ FYRSTI til að sigla í kringum Ísland á sjókaj- ak er Nigel Foster. Það var árið 1977 og fór Nig- el hringinn ásamt félaga sínum. Hann er kajak- ræðurum að góðu kunnur og námskeið hans, sem heita „Fun with Foster“ njóta mikilla vin- sælda. Nigel er einmitt gestur á alþjóðlegu stórmóti kajaksiglingamanna á Norðfirði um helgina. Sá fyrsti hringinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.