Morgunblaðið - 05.06.2008, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 17
ERLENT
Viltu bjarga mannslífum í Reykjavík,
New York eða Kampala?
Komdu þá í hjúkrunarfræði. Framúrskarandi
menntun með mikla atvinnumöguleika.
Hjúkrunarfræðideild
HEILBRIGÐISVÍSINDASVIÐ www.hjukrun.hi.is
» Umsóknarfrestur er til 5. júní 2008
» Rafræn umsókn er á www.hjukrun.hi.is
» Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarfræðideildar í síma 525 4960
KÍNVERSKUR fiskimaður horfir út yfir
Chaohu-vatn þar sem orðið hefur gífurleg þör-
ungamyndun. Vatnið er fimmta stærsta fersk-
vatns-stöðuvatn Kína og er um 13.000 ferkíló-
metrar að stærð. Chaohu-vatn er uppspretta
drykkjarvatns fyrir um 320.000 manns en aukin
iðnvæðing í nálægum borgum og eyðilegging
votlendis hefur stuðlað að aukinni mengun og
ýtt undir þörungamyndun.
Umhverfisyfirvöld hafa fyrirskipað auknar
rannsóknir á vatninu og aðgerðir til að tryggja
nægar vatnsbirgðir á svæðinu.
Mengun stuðlaði að mikilli þörungamyndun í
þremur stórum stöðuvötnum í Kína í fyrrasum-
ar.
Reuters
Þörungar taka völdin í kínversku vatni
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
WALLACE Broecker, bandarískur vísindamaður, sem
varð fyrstur til þess á áttunda áratug síðustu aldar að
benda á að hitastig um heim allan færi hækkandi, hefur
nú lagt til mjög róttæka lausn á loftslags- og mengunar-
vandanum. Leggur hann til, að komið verði upp millj-
ónum „kolefniskústa“, risastórum gervitrjám, sem
hreinsa skuli koltvísýring úr andrúmsloftinu.
„Vandamálið, sem við er að fást, er grafalvarlegt,“ seg-
ir Broecker. „Við erum í kapphlaupi við tímann en brölt-
um bara áfram á fjórum fótum.“
Broecker segir, að 20 milljónir kolefniskústa muni geta
hreinsað burt allan þann koltvísýring, sem nú berst út í
andrúmsloftið í Bandaríkjunum árlega. Til að hreinsa
upp útblásturinn um allan heim þurfi 60 milljónir kústa.
Sagði hann í viðtali við BBC, breska ríkisútvarpið, að
kostnaðurinn yrði að sjálfsögðu mikill en hins vegar
myndi verkefnið dreifast á nokkra áratugi.
15 metra háir, 2,5 á breidd
Broecker sér fyrir sér, að „trén“ eða kolefniskústarnir
verði um 15 metra háir, 2,5 metra breiðir og í þeim verði
notast við sérstakt plastefni, sem gleypir í sig koltvísýr-
ing. Síðan yrði honum breytt í fljótandi form undir þrýst-
ingi og dælt í jörð niður eða steingerður.
Broecker telur, að heppilegustu staðir fyrir kolefn-
iskústana séu eyðimerkursvæði jarðarinnar en hann er
þó ekki allt of bjartsýnn á, að af framkvæmdinni verði.
„Ef ég væri fjárhættuspilari, myndi ég líklega veðja
gegn því. Ég efast um, að menn hafi það pólitíska þor,
sem til þarf.“
Broecker er þekktastur fyrir að uppgötva hve mikla
þýðingu hafið og hafstraumar hafa fyrir hitafarið og fyrir
rannsóknir á hringrás kolefnis. Þá eru rannsóknir hans á
efnaleifum í úthöfunum kennslubókarefni víða.
Í nýlegri grein eftir Broecker segir hann meðal ann-
ars: „Breytingar hafa orðið á loftslagi í gegnum tíðina og
við vitum að veðrakerfin eru tengd með óljósum en af-
drifaríkum hætti. Við þurfum að skilja það til að geta ráð-
ið í framtíðina.“
Milljónir kolefniskústa
víða um heim gætu hreinsað
allan koltvísýringinn
Menguninni sópað burt
Morgunblaðið/Ómar
Virtur Wallace Broecker er einn virtasti vísindamaður
heims í rannsóknum á umhverfisbreytingum.
Kústarnir Svona gætu
kolefnishreinsarnir ef
til vill litið út.
Í HNOTSKURN
» Í fyrirlestri í Háskóla Ís-lands í janúar 2006 sagði
Broecker að Íslendingar
gætu orðið frumkvöðlar í
þróun á bindingu koltvísýr-
ings í jörðu.
» Hann sagði að íslenskurberggrunnur þætti mjög
ákjósanlegur til þess.
SVÍAR hafa af því vaxandi áhyggjur, að kenn-
arastéttin verði brátt að langmestu leyti skipuð
konum en áhugi ungra manna á kennaranámi
minnkar ár frá ári.
Aðeins 24% þeirra, sem hófu kennaranám á síð-
asta hausti, voru karlar og þar við bætist, að þeir
eru miklu líklegri til að hverfa frá náminu en kon-
urnar. Raunar vekur það sérstaka athygli hve
margir hætta undir blálokin, þegar aðeins vantar
herslumuninn á. Miðað við tölur frá 2001/2002 er
brottfall meðal karlanna um 50% en rúmlega 30%
meðal kvennanna.
Eru kröfurnar of miklar eða of litlar?
Það þykir almennt best og hollast fyrir nem-
endur, að kynjahlutfall meðal kennara sé sem
jafnast, að fyrirmyndin sé ekki bara kona eða
karl, heldur hvort tveggja, en í Svíþjóð og kannski
víðar stefnir í, að karlkennarar verði undantekn-
ing frá reglunni.
Í Svíþjóð er mikil umræða um þessi mál og telja
sumir, að áhugaleysi karla og brottfallið megi
kenna of miklum menntunarkröfum. Aðrir mót-
mæla því og segja, að ástæðan sé fremur sú, að
kröfurnar séu of litlar. Er opinber nefnd að fara
yfir þessi mál og er að vænta tillagna frá henni
eftir nokkra mánuði. | svs@mbl.is
Bara konur í kennarastétt?
Áhugi sænskra karla á kennaranámi minnkar ár frá ári og brottfallið er mikið
Sókn í kennaranám
Hlutfall kvenna og karla sem hefja
kennaranám misjafnt.
Konur 76
Karlar 24
YFIRVÖLD í Simbabve hertu í gær
baráttu sína gegn stjórnarandstöð-
unni fyrir forsetakosningar sem
fram fara síðar í mánuðinum þegar
Robert Mugabe reynir að ná endur-
kjöri eftir að hafa verið við völd í 28
ár. Yfirvöld stöðvuðu starfsemi
nokkurra alþjóðlegra hjálparsam-
taka sem þau saka um að hafa stutt
stjórnarandstöðuna.
Lögfræðingur Lýðræðishreyfing-
arinnar (MDC) sagði að Morgan
Tsvangirai, forsetaefni flokksins,
hefði verið handtekinn fyrir að hafa
flutt ávarp á fjöldafundi án heim-
ildar. Vestræn stjórnvöld fordæmdu
handtökuna og Tsvangirai var leyst-
ur úr haldi um kvöldið eftir að hafa
verið yfirheyrður á lögreglustöð.
Tveir aðrir af helstu forystumönn-
um Lýðræðishreyfingarinnar voru
handteknir og yfirheyrðir ásamt
Tsvangirai sem hefur sjaldan fengið
að flytja ávörp á kosningafundum
flokksins. Fjórir þingmenn Lýðræð-
ishreyfingarinnar höfðu áður verið
handteknir og flokkurinn segir að
vopnaðir hópar stuðningsmanna
Mugabe hafi orðið um 60 flokks-
bræðrum Tsvangirais að bana á síð-
ustu vikum. | bogi@mbl.is
Hjálpar-
starf
stöðvað
Tsvangirai tekinn
til yfirheyrslu