Morgunblaðið - 05.06.2008, Page 21
tveir aðrir litir, s.s. rauð og gul eða
rauð og appelsínugul.
Hann neitar því að þetta sé gert
vegna þess að græna paprikan selj-
ist verr en aðrar. „Ef hún seldist
verr myndum við bara láta hana
hanga aðeins lengur þannig að hún
yrði rauð eða gul. Við höfum öll tök
á því, sérstaklega þegar kemur
fram á sumarið.“ En kostar ekki
meira að láta paprikurnar vera
lengur í framleiðslu, t.d. vegna lýs-
ingarinnar í gróðurhúsunum á vet-
urna? „Jújú, en við fáum líka hærra
verð fyrir litinn,“ svarar Friðrik.
„Ef við seldum lituðu paprikuna sér
fengjum við margfalt hærra verð
fyrir hana því rauða paprikan er
miklu dýrari en sú græna.“
Snorri Jóhannesson, sem er yfir
grænmetisdeildinni í Fjarðar-
kaupum, segist hafa orðið var við
óánægju viðskiptavina með að fá
ekki íslenska papriku í lausu og að
fá ekki þá liti í pökkunum sem sóst
sé eftir. „Það er kannski ekki al-
gengt en maður fær alltaf öðru
hvoru kvartanir vegna þessa.“
Ingunn Sveinsdóttir, sem er yfir
grænmetisdeildinni í Melabúðinni,
verður lítið vör við kvartanir vegna
þessa. „Það var töluvert um kvart-
anir fyrst eftir að farið var að pakka
þessu saman því þá var algengt að
þær væru tvær grænar saman í
pakka. En eftir að litirnir eru orðnir
algengari heyrir maður lítið af
kvörtunum,“ segir hún.
helgartilboðin
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 21
Bónus
Gildir 5. - 8. júní verð nú verð áður mælie. verð
Myllu heimilisbrauð, 770 g ................... 129 189 167 kr. kg
KS frosin lambasvið ............................. 199 398 199 kr. kg
KS frosinn lambabógur ......................... 489 699 489 kr. kg
KS ferskt lambafillet ............................. 2.498 2.998 2.498 kr. kg
Ferskt nautahakk ................................. 698 898 698 kr. kg
Fersk. nautagrillborg., 4 stk. m/brauð.... 298 398 75 kr. stk.
Bónus íspinnar, 15 stk. ........................ 198 259 13 kr. stk.
Fjarðarkaup
Gildir 5. - 7. júní verð nú verð áður mælie. verð
Nautapiparsteik úr kjötborði.................. 2.298 2.898 2.298 kr. kg
Nautainnralæri úr kjötborði ................... 1.998 2.995 1.998 kr. kg
Fylltar grísalundir úr kjötborði ................ 1.998 2.590 1.998 kr. kg
Lambalæri frosið .................................. 872 1.163 872 kr. pk.
Móa leggir magnpakkning .................... 519 799 519 kr. kg
Móa læri magnpakkning....................... 519 799 519 kr. kg
Ali hunangskótilettur úrb....................... 1.799 2.399 1799 kr. kg
Ali svínarif krydduð............................... 974 1.298 974 kr. kg
Krónan
Gildir 5. - 8. júní verð nú verð áður mælie. verð
SS Caj Ṕs lærissneiðar ......................... 1.998 2.518 1.998 kr. kg
Grísahnakki úrb. sneiðar....................... 998 1.698 998 kr. kg
Lambainnralæri ................................... 2.598 3.398 2.598 kr. kg
Móa kjúklingabringur............................ 1.598 2.949 1.598 kr. kg
Bökunarkartöflur í lausu ....................... 99 128 99 kr. kg
Emmess Tommi/Jenni heim.pk. ............ 208 415 42 kr. stk.
Líf safi epla/appelsínu/ace .................. 86 129 86 kr. ltr
Nóatún
Gildir 5. - 9. júní verð nú verð áður mælie. verð
Lambafille með fiturönd ....................... 2.498 3.498 2.498 kr. kg
Nóatúns þurrkr. lambalæri .................... 1.259 1.798 1.259 kr. kg
Nóatúns lambal.sn. í hvítl./rósmarín ..... 1.874 2.498 1.874 kr. kg
Lamba rib eye í hvítlauks pipar.............. 2.698 3.498 2.698 kr. kg
Lúða spjót Miðjarðarhafs ...................... 498 598 498 kr. stk.
Lúða í taí............................................. 1.698 2.398 1.698 kr. kg
Baskabrauð spænsk ............................ 179 289 179 kr. stk.
Brazzi morgunsafi/suðrænn.................. 90 135 90 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 5. - 8. júní verð nú verð áður mælie. verð
Kjötborð nautainnralæri........................ 2.094 2.990 2.094 kr. kg
Goði lambaframpartsn, marineraðar ...... 1.399 1.874 1.399 kr. kg
Gourmet léttr. hunangs-grísakótil........... 1.398 1.867 1.398 kr. kg
SS nautakótilettur í argentínskri mar. ..... 1.679 2.098 1.679 kr. kg
Fanta appelsín, 2 ltr ............................. 99 199 49 kr. ltr
B&J Ís, 473 ml .................................... 399 799 399 kr. stk.
Kirsuber í boxi, 200 g ........................... 289 459 289 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 5. - 11. júní verð nú verð áður mælie. verð
Nutella súkkulaðismjör, 350 g .............. 315 435 900 kr. kg
Chocolate cookies, 225 g..................... 198 325 880 kr. kg
Wertheŕs orig. Toffee, 135 g .................. 159 239 1.178 kr. kg
Fiorucci Prosc.C. hráskinka, 80 g .......... 449 569 5.613 kr. kg
Hatting Spelta/Bianco, 250 g............... 289 345 1.156 kr. kg
Hunt́s BBQ sósur, 4 teg., 612 g............. 199 265 326 kr. kg
Mömmu jarðarberjasulta, 400 g............ 259 329 648 kr. kg
Þeyti toppur, 250 g .............................. 298 319 1.192 kr. kg
Grillkjöt og ís um helgina
BOLLI af heitu kakói hefur góð
áhrif á æðar líkamans samkvæmt
niðurstöðum þýskrar rannsóknar
sem birtist í Journal of the Americ-
an College of Cardiology.
Tíu sykursjúkir einstaklingar
voru fengnir til að drekka þrjá
bolla á dag af sérstakri blöndu af
kakói í einn mánuð. Fylgst var með
breytingum á virkni slagæða á
meðan og leiddi rannsóknin í ljós að
slitnar slagæðar endurheimtu eðli-
lega virkni.
Ástæðuna er talið mega rekja til
þráavarnarefnisins flavanóls, sem
finnst í kakói, grænu tei, rauðvíni,
nokkrum gerðum af ávöxtum og
grænmeti.
Æðar þenjast út þegar líkaminn
krefst aukins blóðrennslis, en þar
sem hár blóðsykur í líkamanum
hindrar þenslu æðanna eru syk-
ursjúkir í meiri hættu á að fá
hjarta- og æðasjúkdóma.
Æðar heilbrigðrar manneskju
þenjast venjulega út um 5% en með-
altalsþensla æða hjá þátttakendum
rannsóknanna var einungis um
3,3%. Tveimur klukkustundum eftir
að hafa neytt kakódrykkjarins varð
þensla æða þátttakendanna hins
vegar um 4,8% og eftir mánaðar-
neyslu drykkjarins mældist meðal-
þenslan um 4,1%, en 5,7% stuttu eft-
ir kakódrykkju.
Dr. Malte Kelm frá háskóla-
sjúkrahúsinu í Aachen sagði að
flavanólið geti aukið framleiðslu
líkamans á nituroxíði sem stjórnar
því hvernig slaknar á æðunum og
þær þenjast út. Hann áréttar að
rannsóknin hvetji ekki til aukinnar
neyslu súkkulaðis. „Rannsóknin
sýnir aðeins að flavanól kann að
vera lóð á vogarskálarnar til að
koma í veg fyrir hjarta- og æða-
sjúkdóma hjá sykursjúkum ein-
staklingum,“ hefur BBC eftir dr.
Kelm.
Talsmaður sykursjúkra í Bret-
landi varar þó við að fólk fari að
drekka heitt súkkulaði í miklu
magni á meðan fleiri niðurstöður
liggja ekki fyrir.
Sú tegund kakós sem notað var
við rannsóknina var sérstaklega
efnabætt og er því ekki aðgengileg
almenningi.
Heitt kakó gott
fyrir sykursjúka
Morgunblaðið/Kristinn
Lyf skipta sköpum!
„Lifnaði ekki við
fyrr en 2005!“
Kristín Guðmundsdóttir, nemandi við enskudeild Háskóla Íslands.
„Ég hef þjáðst af liðagigt frá því árið 2000. Frá þeim tíma stjórnaðist líf
mitt nær algjörlega af sjúkdómnum. Vegna sársauka gat ég hvorki mætt
í skólann né sinnt öðrum störfum.
Í júlí 2005 fékk ég loksins lyf sem gerbreyttu öllu. Það er þeim að þakka
að ég lifnaði við á ný og get nú stundað nám að fullu og lifað eðlilegu
og sársaukalausu lífi.“
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n