Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 23

Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 23 Jæja, þá er sumarið komið, sláttur- inn hafinn og ísbirnirnir komnir á stjá. Þetta sumar ætlar að byrja af hörku fyrir suma blaðamenn, og dýrt verður sumarið allt ef dagarnir halda áfram í þessu farinu.    En já, ef svo fer að flóðgáttirnar opnast frá Grænlandi og hvítabirnir fara að verða algeng sjón hér norðanlands, og ég tala nú ekki um ef við drepum þá alla, þá bíður ær- inn starfi fyrir nýráðinn fram- kvæmdastjóra Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi. Hann heitir Ásbjörn Björgvinsson og tek- ur við af Kjartani Lárussyni 15. ágúst. Ásbjörn var áður forstöðumaður Hvalasafnsins á Húsavík og nefndi það einmitt í fjölmiðlum í gær, að það geti „haft áhrif á ímynd Íslands ef heimamenn drepa dýr í útrým- ingarhættu.“ Þessi spádómsorð rættust samdægurs, því örfáum stundum síðar bárust fregnir af því að Danir væru farnir að ata Íslend- inga aur í netútgáfu Extra-blaðsins og halda því fram að bjarnardrápið jafngildi því að drepa sjálfa Lassie. Vont er ef satt er. Það vill örugglega enginn fara til landsins þar sem Lassie var drepin.    Já já, sólin er komin á kreik og það þýðir náttúrulega að skemmtiferða- skipin eru farin að flatmaga við Akureyrarhöfn. Fyrsta skemmti- ferðaskipið kom til Akureyrar í gær, 590 manna tittur, en næstu þrjá mánuði verða 54 skip á flækingi hingað norður, þar af fjögur í einu eftir rúman mánuð    Fjögur ungmenni úr Mennta- skólanum á Akureyri brugðu sér nýverið til Vínar í Austurríki til að keppa á Evrópumóti skólafólks í spunaleik. Er skemmst frá því að segja að nemendurnir komu heim með silfrið úr keppninni, en þetta var í fyrsta skipti sem slík keppni var haldin. Í liði MA, sem kallaði sig Gleðibomburnar, voru Anna Haf- þórsdóttir, Gísli Björgvin Gíslason, Gréta Kristín Ómarsdóttir og Valur Sigurðarson. Fyrir keppendurna voru lagðar ýmsar þrautir en liðinu tókst að sannfæra dómnefnd og aðra um að þau væru þrautreynd og hámenntuð með því að flytja einræðu úr Ödip- usi konungi eftir Sófókles, syngja Hesta-Jóa og klappa MA-klapp að því er fram kemur í frétt á vef Menntaskólans á Akureyri. Liðið keppti í A-riðli með Lett- landi, Litháen, Noregi I og Sviss og varð næststigahæst í riðlinum. „Við mættum Austurríki I í 8 liða úrslit- um, Austurríki II í undanúrslitum og kepptum loks við Svíþjóð í úrslit- um og töpuðum með einu stigi,“ sagði Gréta Kristín um keppnina og er staðráðin í að kveða niður Svía- grýluna að ári.    Og aðstaða til fimleikaiðkunar mun stórbatna á Akureyri í framtíðinni. Í gær voru skóflustungur teknar að nýju fimleika- og íþróttahúsi við Giljaskóla. Húsið verður rúmir 2.600 fermetrar að stærð og búið tækjum af fullkomnustu gerð. Það mun umbylta aðstöðu Fimleika- félags Akureyrar að sögn Þórhildar Þórhallsdóttur formanns félagsins. Áætlað er að húsið verði tilbúið í júlí á næsta ári og að heildarkostn- aður verði um 759 milljónir króna. En auðvitað getur það breyst … AKUREYRI Hjálmar Stefán Brynjólfsson Hálfdan Ármann Björnssonsegir óþarft að drepa hvítabjörninn: Björnum hlífa ætti enn í umhverfinu hér í kringum, þó drepi naut og nokkra menn, – nóg er til af Skagfirðingum! Björn Ingólfsson á Grenivík hrósaði happi: Menn þótt séu á móður jörð misjafnlega siðaðir almennt hér við Eyjafjörð eru Birnir friðaðir. Davíð Hjálmar Haraldsson ræður Birni heilt: Bljúg við þig nú biðjum öll, Björn, ef kaupir nesti og nýja skó og ferð á fjöll: Farðu í skothelt vesti. Hreiðar Karlsson lagði orð í belg: Grenivík er griðastaður, góður fyrir mig og þig. Ef að Björn er upplitaður ætti hann þó að vara sig. Þá séra Hjálmar Jónsson: Ein er tegund öðrum lík asni, múll og hestur. Grábjörninn á Grenivík glottir kalt í vestur. Loks Friðrik Steingrímsson: Björn er talinn merkis maður málið skulum kryfja snúna. Mundi hann verða uppstoppaður ef hann væri skotinn núna? VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af birni og Birni úr bæjarlífinu Auglýsing um umsóknir um úthlutun losunarheimilda skv. lögum um losun gróðurhúsalofttegunda nr. 65/2007. Úthlutunarnefnd losunarheimilda, sem skipuð er af umhverfisráðherra, auglýsir hér með að áætlun um úthlutun losunarheimilda, sem gefin var út í september 2007, verði endurskoðuð fyrir 30. september 2008, sbr. 4. mgr. 9. gr. laga nr. 65/2007 um losun gróðurhúsalofttegunda. Auglýst er eftir umsóknum frá atvinnurekstri sem þegar er starfandi og áætlar að auka framleiðslu. Jafnframt er auglýst eftir umsóknum frá atvinnurekstri sem ekki er hafinn. Áætlun um úthlutun losunarheimilda frá 27. september 2007 tók til starfandi fyrirtækja á þeim tíma vegna tímabilsins 1. janúar 2008 til 31. desember 2012. Samkvæmt 1. mgr. 8. gr. laga um losun gróðurhúsalofttegunda skal atvinnurekstur sem fellur undir 7. gr. laganna sækja um úthlutun á losunarheimildum til Umhverfisstofnunar eigi síðar en 9 mánuðum áður en fyrirhuguð starfsemi hefst. Umsókn skal uppfylla kröfur 8. gr. laga um losun gróðurhúsaloftegunda og skal m.a. staða undirbúnings viðkomandi atvinnurekstrar koma fram með skýrum hætti. Í þessu felst að gera skal grein fyrir hvort aflað hafa verið leyfa fyrir atvinnurekstrinum og þá hvaða leyfa hafi verið aflað og sem afla þarf lögum samkvæmt, eða þeim áföngum sem náðst hafa í öflun þeirra, öflun orku fyrir reksturinn og öðrum þáttum sem skýrt geta stöðu undirbúningsins. Í umsókninni skal tekið fram hvort sótt er um almennar heimildir eða heimildir skv. ákvörðun 14/CP.7 við Kyoto bókunina. Ef sótt er um losunarheimildir skv. ákvörðun 14/CP.7 þarf að koma fram hvernig starfsemin uppfyllir skilyrði hennar, einkum um notkun endurnýjanlegrar orku og bestu fáanlegrar tækni vegna atvinnurekstursins. Þeir sem sendu umsóknir til nefndarinnar á árinu 2007 og fengu ekki úthlutað losunarheimildum geta sent inn viðbótarupplýsingar án þess að greiða umsóknargjald, enda sé ekki um breytingu á magni sem sótt er um eða staðsetningu atvinnurekstursins. Umsóknum og viðbótarupplýsingum skal skilað til Umhverfisstofnunar, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, eigi síðar en 1. júlí 2008 og er umsóknargjald kr. 250.000. Úthlutunarnefnd losunarheimilda 3. júní 2008 IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ Allir velkomnir! Framtíð raforkumála Samband ungra sjálfstæðismanna stendur fyrir fundi í Valhöll, Háaleitisbraut 1, 105 Reykjavík, í dag klukkan 17:00 Fundarstjóri: Berglind Hallgrímsdóttir, stjórnarmaður í SUS Frummælendur: Pétur Blöndal, alþingismaður: Aðferðafræði einkavæðingar Borgar Þór Einarsson, fyrrverandi formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna og lögfræðingur: Framtíðarsýn ungra sjálfstæðis- manna í raforkumálum Egill B. Hreinsson, prófessor við Verkfræðideild Háskóla Íslands: Vistvænar orkulindir í alþjóðlegu markaðsumhverfi Samband ungra sjálfstæðismanna EFNIÐ resveratrol í rauðvíni er áhrifaríkara í að lengja líf okkar en áður var talið. Hafa sumir vís- indamenn slíka trú á efninu að þeir eru byrjaðir að prófa það á sjálfum sér en aðrir telja slíkt ótímabært, samkvæmt því sem greint var frá í New York Times á dögunum. David Sinclair, doktor við Harvard há- skóla, segir að lyfjafyrirtækið sem verði fyrst til að markaðssetja efnið muni líklega verða allsráðandi á lyfjamarkaði og jafnvel valda straumhvörfum í heilbrigðisgeir- anum. Frekari tilraunir með efnið hefjast bráðlega og vonast rannsak- endur til að það muni hafa góð áhrif á ýmsa sjúkdóma, meðal annars alz- heimer, krabbamein og sykursýki. Að sögn New York Times þarf fólk að drekka um það bil 1,5 desi- lítra af rauðvíni á dag vilji það fá hæfilegan skammt af efninu. Rauðvín getur hægt á öldrunar- ferlinu Lengir lífið? Efnið resveratrol í rauðvíni virðist áhrifaríkara í að lengja líf okkar en áður var talið. @

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.