Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 24

Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 24
24 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Hvítabirnireru á vá-lista yfir dýr í útrýming- arhættu. Vís- indamenn telja að þeir kunni að hverfa endanlega fyrir lok þessarar aldar, vegna bráðn- unar hafíss af völdum hlýn- unar í andrúmslofti. Af og til berast hingað dýr, sem hafa líklega hætt sér of langt út á ísspöngina við Grænland og lagst til sunds, þar til þau náðu landi hér. Fyrir rúmum tuttugu árum felldu skotglaðir menn hvíta- björn í Fljótum. Þá voru margir á þeirri skoðun að far- ið hefði verið offari og rætt var um hvort ekki væri rétt að búa svo um hnútana að hægt yrði að komast hjá því að fella þau dýr, sem hingað villast. Hið íslenska náttúrufræði- félag beindi því þá til stjórn- valda að menn yrðu til taks og hefðu viðbúnað til að svæfa dýrin. Þau mætti svo flytja aftur til heimkynna sinna. Ekkert varð úr neinum við- búnaði. Umhverfisstofnun komst hins vegar að þeirri niðurstöðu árið 2004, að eina vitið væri að aflífa dýr sem hingað kæmu. Deildarstjóri hjá stofnuninni segir svæf- ingu kalla á sérþjálfað lið og hún sé „feikilega flókin“. Ef menn ætluðu að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að fanga dýrin á lífi og koma þeim aftur til síns heima, þá er þó ljóst að viðbúnaður þyrfti ekki að vera á landinu öllu, heldur á Vestfjörðum og Norðurlandi. Við- bragðstími ætti að geta verið stuttur, nú þegar flug- vélar, bílar og þyrlur eru ávallt til taks. Hitt er svo annað mál, að vega þarf og meta hvaða hagsmunir eru í húfi. Í fyrsta lagi þarf auðvitað að tryggja að lífi og limum fólks sé ekki í hættu stefnt – mannslífin eru að sjálfsögðu mikilvægust og það er staðreynd að hvíta- birnir geta verið mannskæðir. Í öðru lagi þurfa þeir, sem vilja allt til vinna að bjarga björnunum, að svara því hvort þeir séu reiðubúnir að kosta þann viðbúnað sem þarf til að taka mildilega á móti næsta hvítabirni, hvenær sem það verður. Taka má undir með þeim, sem telja að ákvörðunin um að fella hvítabjörninn í fyrra- dag hafi ekki verið mjög ígrunduð. Allt í einu var björninn kominn og menn reyndu að taka þá ákvörðun sem þeim þótti skynsamlegust í hita leiksins. En á það ber að líta að ekki var til viðbúnaður eða áætlun um neitt annað. Nú þarf að komast að end- anlegri niðurstöðu um hvað við viljum gera næst, þegar og ef hvítabjörn birtist. En þá er rétt að taka ákvörðun ekki eingöngu út frá sjónarmiðum um náttúruvernd. Öryggi al- mennings og kostnaður við slíkan viðbúnað skiptir líka máli. Nú þarf að komast að endanlegri nið- urstöðu um hvað við viljum gera.} Hvítabirni útrýmt Morgunblaðiðhefur í vik- unni flutt fréttir af því að hinar merku skálarústir á Stöng í Þjórs- árdal liggi undir skemmdum. Skýlið, sem byggt var yfir rústirnar fyrir mörgum ára- tugum, er illa farið og þær eru illa varðar fyrir veðri og vindum. Óheft för ferðamanna um rústirnar hefur svo í för með sér að þær hafa verið troðnar niður og hleðslur eru fallnar. Það kostar líklega um 15 milljónir að gera við skemmd- irnar og beina umferð ferða- manna rétta leið, en Forn- leifavernd ríkisins fær enga peninga til að ráðast í slíkar framkvæmdir. Stöng líður fyrir sama vanda og margir aðrir merkir staðir á forræði ríkisins; að einhverra hluta vegna treysta menn sér ekki til að inn- heimta aðgangseyri af þeim sem vilja skoða þá. Hjá ferða- þjónustunni heyrist iðulega það sjónarmið að aðgangseyrir myndi fæla fólk frá stöðum á borð við Geysi, Gullfoss og Dimmuborgir. Víða um heim er þó innheimtur að- gangseyrir á ferðamannastöð- um og enginn kippir sér neitt upp við það. Flestir hafa skilning á að fyrir aðgangs- eyrinn fá þeir þjónustu, merkingar, upplýsingar og viðhald. Fyrir vikið verður heimsóknin ánægjulegri. Það er löngu tímabært að hætta þessu hiki og feimni og innheimta aðgangseyri á ferðamannastöðum, sem ríkið hefur í sinni umsjá, í stað þess að reyna árum saman að kreista fé út úr fjárveiting- arvaldinu á meðan náttúru- og menningarminjar liggja undir skemmdum. Er ekki hvort sem er lang- eðlilegast að þeir sem njóta merkra staða borgi fyrir það sjálfir í stað þess að ætlast til að allir skattgreiðendur kosti viðhald og þjónustu? Það er löngu tíma- bært að hætta þessu hiki og feimni og innheimta aðgangseyri.} Stöng og aðrir staðir Þ inginu var frestað á fimmtudags- kvöld. Mínum fyrsta þingvetri var þar með lokið. Ég kynntist gömlu þingsköpunum í haust og vann eftir þeim nýju í vor. Þegar kom að síðustu dögum þingsins fór þó svo, að vinn- an dróst fram á kvöld og nótt. Engu að síður er það svo, að kvöldfundum hefur fækkað verulega með tilkomu nýju þingskapanna. Þetta hefur verið merkilegur tími, allt frá því að ég tók þá ákvörðun að fara í prófkjör í norðausturkjördæmi á haustdögum 2006. Sjálfstæðismenn höfðu tvo þingmenn í kjör- dæminu og það var ljóst, að til þess að ég næði kjöri, úr þriðja sæti listans, yrðum við að vinna góðan sigur í kjördæminu. Það fór svo, að flokkurinn bætti mjög verulega við sig og mitt sæti varð öruggt þingsæti. Kosninganóttin var ógleym- anleg. Grunnur góðrar kosningar var hversu vel tókst að kynna fyrir kjósendum málefni flokksins, verkin töluðu sínu máli, en í ríkisstjórnartíð Sjálfstæðisflokksins hefur allt íslenskt þjóðfélagið tekið stakkaskiptum. En því má aldrei gleyma, að eins mikilvæg og málefnin eru, verður að hafa sterkan hóp manna til að bjóða þau fram og hann þarf að vera þannig samansettur að kjósendur hafi trú á að hlutunum verði komið í verk. Að staðið verði við stóru orðin. Því þegar á hólminn er komið, snýst þetta allt saman um fólk. Nú er víða staldrað við niðurstöðu í skoðanakönnun Gallup sem birt var í vikunni. Hún sýnir að fylgi við flokkinn hefur dregist saman milli mánaða um 4% og mælist hann nú með um 33% fylgi á landsvísu. Það þarf ekkert að velkjast í vafa um, að borgarmálin hafa haft veruleg áhrif á niðurstöðu þessarar könn- unar. En getur verið að þetta sé líka vísbend- ing að einhverjir séu að gleyma hratt hverjir hafa staðið að baki því mikla vaxtaskeiði sem hefur lagt grunninn að aukinni vegsæld og velmegun? Ég hvet fólk til að setja hlutina í stærra samhengi. Getum við hugsað okkur íslenskt þjóðfélag án fjölbreytni í háskólaumhverfinu? Getum við hugsað okkur að ekki sé hægt að fara til læknis út í bæ til að framkvæma einfaldar aðgerðir? Viljum við að sett sé algert stopp á nýtingu auðlinda okkar á landi og legi? Get- um við hugsað okkur að borga hærri skatta? Svarið við þessum spurningum er nei. Þvert á móti er vilji til þess að samfélagið okkar haldi áfram að vaxa og dafna á skynsamlegum nótum. Þess vegna hefur erindi Sjálfstæðisflokksins ver- ið brýnt og þannig verður það áfram. Málefnin eru skýr og sveitin vel skipuð og vösk. Þessir þættir verða að hanga saman eins og krókur og lykkja. Það blasa mörg verkefni við. Og það er svo auðvelt að glutra niður góðum árangri. Ég vil sjá íslenska framtíð með hugvitið að vopni á öllum sviðum. Ég vil að við höld- um áfram að krafti í eflingu rannsóknasamfélagsins okk- ur öllum til hagsbóta. Ég vil horfa 50 ár fram í tímann. Og með því að skapa þannig umgjörð að hugmyndir okkar sjálfra fái að njóta sín, veit ég, að framtíðin er björt. Ólöf Nordal PISTILL Svo mörg brýn verkefni Hljóðpistlar Morgunblaðsins, Ólöf Nordal les pistilinn HLJÓÐVARP | mbl.is FRÉTTASKÝRING Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is S igur Baracks Obamas í for- kosningum demókrata er sögulegur. Aldrei áður hefur blökkumaður náð að tryggja sér útnefningu stóru flokkanna tveggja, demókrata eða repúblikana, til forsetaframboðs í Bandaríkjunum. Til marks um breytta tíma er að þegar Obama fæddist fengu blökkumenn ekki einu sinni að kjósa í öllum ríkjum Banda- ríkjanna. Nú er spurningin hins veg- ar hvort bandarískir kjósendur séu reiðubúnir til að veita svörtum for- setaframbjóðanda brautargengi. Eða er þessi spurning jafnvel úrelt? Sigur Obamas er til marks um gríðarlegar breytingar í bandarísku þjóðfélagi á undanförnum áratugum. Vekja ekki ótta hvítra kjósenda Lengi vel var viðtekið að fylgi svartra frambjóðenda mældist um tíu prósentum hærra í skoðanakönn- unum, en þegar talið var upp úr kjör- kössunum. Á undanförnum árum hafa komið fram vísbendingar um að þetta væri að breytast. Fylgi svartra frambjóðenda í könnunum og kosn- ingum hefur fylgst að. Þetta þykir vera til marks um að tilhneiging kjós- enda til að reyna að fela fordóma sína þegar spurt er um svarta frambjóð- endur sé horfin – fordóma sem þeir síðan létu ráða för þegar þeir voru í einrúmi í kjörklefanum. Um leið hafa áherslur svartra frambjóðenda breyst. Sú var tíðin að leið blökkumanna til pólitískra met- orða í gegnum kirkjuna. Trúar- leiðtogar leiddu réttindabaráttu svartra í Bandaríkjunum með Martin Luther King í broddi fylkingar. Einn af kyndilberum Kings var Jesse Jackson, sem 1984 og 1988 bauð sig fram til forseta og náði lengra en margur átti von á. Kirkjan er ekki lengur stökkpallur blökkumanna í pólitík. Þeir einblína ekki lengur á málefni blökkumanna. Þeir vekja ekki lengur ótta hvítra kjósenda. Bar- ack Obama hefur sjálfur sagt að um- ræðan um óuppgerðar sakir vegna kynþáttamisréttis heyri fortíðinni til. Þegar Obama ákvað að ráðast í for- setaframboð átti enginn von á að hann yrði til stórræða. Clinton hafði vænt forskot og fyrir ári var talið að ekkert fengi stöðvað hana. Vendipunkturinn í Iowa Í fyrstu forkosningunum í Iowa fór kosningavél Clintons að hiksta, eink- um vegna sóknar Johns Edwards, en Obama naut góðs af og sigraði. Clin- ton lenti í þriðja sæti og Obama hafði sýnt að hann gat náð sér í fylgi í ríki þar sem svartir kjósendur eru mjög fámennir. Hann átti hljómgrunn meðal hvítra kjósenda. Kosningabaráttan átti eftir að verða löng og ströng. Aðrir frambjóð- endur féllu út einn af öðrum, utan hvað Clinton sótti í sig veðrið á ný. Svarti frambjóðandinn og kven- frambjóðandinn tókust á. Sama hvernig færi yrðu tímamót – ann- aðhvort yrði fyrsti blökkumaðurinn eða fyrsta konan í forsetaframboði fyrir demókrata. Viðureign þeirra kveikti mikinn áhuga og aldrei hafa fleiri kjósendur tekið þátt í forkosn- ingum. Nú kemur í ljós hvort þessi vakning mun skila fyrsta blökku- manninum í Hvíta húsið. Reuters Hylltur Barack Obama umkringdur stuðningsmönnum eftir að hann flutti sigurræðu sína í St. Paul í Minnesota á þriðjudagskvöld. Svartur maður í hvítu húsi? 1870 15. viðbótargrein bandarísku stjórnarskrárinnar samþykkt um að ekki megi neita um réttinn til að kjósa á grundvelli „litar, kyn- þáttar eða fyrri undirokunar“. Réttindabaráttunni var þó hvergi lokið. 1963 Martin Luther King leiddi fjölda- göngu í Washington þar sem hann flutti ræðuna, sem fræg varð fyrir orðin „Ég á mér draum“. King var ráðinn af dögum 1968. 1964 Lög sett um borgaraleg réttindi og kosningaréttur svartra endanlega tryggður með lögum árið eftir. 1988 Jesse Jackson sækist eftir útnefn- ingu demókrata og nær öðru sæti. 2008 Barack Obama tryggir sér útnefn- ingu til forsetaframboðs. LEIÐIN LANGA ››

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.