Morgunblaðið - 05.06.2008, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.06.2008, Qupperneq 25
Golli Í vitlausum flokki? Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra var umkringd táknum sam- starfsflokksins í ríkisstjórn er hún hélt ræðu á fundi í Valhöll um landsskipulag. En hún var í rauðum jakka. Á ÞINGLOKADEGI vorsins var samþykkt frumvarp til inn- heimtulaga, sem og frumvarp um neytendalán og frumvarp til breytinga á samkeppnislögum. Með þeim urðu alls 17 frumvörp frá viðskiptaráðuneytinu að lög- um í vetur og er það harla góður árangur enda starfsfólk ráðu- neytisins unnið myrkranna á milli þetta fyrsta ár nýrrar ríkis- stjórnar. Þak sett á innheimtukostnað Í innheimtulögum eru í fyrsta skipti sett samræmd skilyrði fyrir veitingu inn- heimtuleyfis og ákvæði sett um góða inn- heimtuhætti. Fjármálaeftirlitið mun fara með veitingu innheimtuleyfa og leyfissviptingu og sérstakt eftirlitsgjald mun standa undir kostn- aði þess. Markmið laganna er einkum að setja ákveðnar meginreglur um innheimtu til hags- bóta fyrir neytendur, m.a. ákvæði um góða innheimtuhætti og innheimtuviðvörun. Enn- fremur að draga úr óeðlilegum kostnaði skuld- ara vegna innheimtuaðgerða á frumstigi, t.d. með því að takmarka í reglugerð hámarks- fjárhæð innheimtukostnaðar. Skuldarar eiga almennt að eiga kost á að greiða skuld sína innan stutts frests með lágmarkskostn- aði áður en til innheimtuaðgerða á grundvelli réttarfarslaga er gripið. Innheimtuþjónusta er að hluta til náttúrleg einokunarstarfsemi, að minnsta kosti frá sjónarhóli skuldarans sem ekki getur valið innheimtuaðilann né haft áhrif á innheimtukostnaðinn. Lög um innheimtuþjónustu hafa verið baráttumál áhugafólks um neyt- endamál um árabil. Því er það mikið fagnaðarefni að þetta mál sé loks orðið að lögum á Íslandi. Ný lög um neytendalán Í lögum um neytendalán er meðal annars kveðið á um að gjaldtaka vegna óheimils yf- irdráttar af tékkareikningi (fit-kostnaði) skuli vera hófleg og endurspegla kostnað vegna yf- irdráttarins og að hún skuli eiga stoð í samn- ingi. Jafnframt er lögfest skylda lánveitanda til upplýsingagjafar gagnvart neytanda um fyrirhugaðar breytingar á gjaldskrá, sem hon- um eru ekki til hagsbóta. Nú er bannað að krefjast uppgreiðslugjalds af eftirstöðvum láns í íslenskum krónum með breytilegum vöxtum sem greitt er upp fyrir umsaminn lánstíma, ef upphaflegur höfuðstóll lánsins er 50 milljónir króna eða minna. Í öðr- um tilfellum skal kveðið á um heimild til slíkr- ar gjaldtöku í lánssamningi. Tilgreina skal upplýsingar um hvernig uppgreiðslugjald er reiknað út og fjárhæð gjaldsins má að hámarki nema því tjóni sem lánveitandi verður fyrir. Nánari reglur um útreikning á tjóni vegna uppgreiðslu verða settar með reglugerð. Reglur um samruna fyrirtækja styrktar Nokkrar mikilvægar breytingar eru gerðar á gildandi reglum um samruna fyrirtækja í lögum um breytingar á samkeppnislögum. Mikilvægustu breytingarnar eru, annars veg- ar, að svigrúm stofnunarinnar til efnislegs mats á áhrifum samruna er aukið verulega. Hins vegar, að skýrt er kveðið á um að heimilt sé að vega saman neikvæð áhrif vegna skertr- ar samkeppni og jákvæð hagkvæmnisáhrif samruna. Aðrar breytingar eru meðal annars þær að samruni mun nú ekki koma til framkvæmda á meðan Samkeppniseftirlitið fjallar um hann. Veltumörk sem miða skal við þegar metið er hvort samrunar séu tilkynningarskyldir eru hækkuð, þó Samkeppniseftirlitið hafi heimild til að taka til athugunar smærri samruna sem uppfylla ekki tiltekin skilyrði. Loks er heimilt er að setja fram styttri tilkynningar um sam- runa í tilteknum tilvikum. Samrunaákvæði samkeppnislaga eru horn- steinn laganna. Þau er nú styrkt mjög veru- lega og því mikil lagabót falin í þessum breyt- ingum. Þessar breytingar og auknar fjárheimildir sýna metnað ríkisstjórnarinnar til þess að efla Samkeppniseftirlitið verulega. Ný sókn í neytendamálum Þetta eru þrjú af mörgum stórum neytenda- málum sem unnið hefur verið að í við- skiptaráðuneytinu og eru nú orðin að lögum. Stór mál bíða haustsins og má þar nefna lög um greiðsluaðlögun sem er mikilvæg leið til að mæta óviðráðanlegum fjárhagserfiðleikum fólks og má ætla að það fækki gjaldþrotum einstaklinga um allt að helming. Málið er tilbú- ið af hálfu ráðuneytisins og hefur verið kynnt í ríkisstjórn. Fjöldi annarra mála er nú á vinnu- borðinu í kjölfar úttektar háskólastofnananna þriggja á stöðu neytendamála sem verða kynnt síðar. Eftir Björgvin G. Sigurðsson » Innheimtuþjónusta er að hluta náttúruleg einokunar- starfsemi, að minnsta kosti frá sjónarhóli skuldarans. Björgvin G. Sigurðsson Langþráð lög um innheimtur Höfundur er viðskiptaráðherra. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 25 Blog.is Stefán Friðrik Stefánsson | 4. júní Þegar að blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King lést fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag þar sem litaraft skipti ekki máli og þeldökkir hefðu sömu tæki- færi í lífinu og hvítir. Sú barátta kost- aði hann lífið. Á þessum sögulega degi í bandarískum stjórnmálum hefur Barack Obama látið drauma baráttumannsins frá Atlanta rætast með því að ná útnefningu Demókrataflokks- ins. Þetta eru söguleg tímamót. Fyrir aðeins átta til tíu árum hefði engan órað fyrir því að fyrir lok fyrsta áratugar 21. aldarinnar myndi þeldökkur forsetaframbjóðandi ná alla leið í for- kosningaferli stóru flokkanna, hljóta atkvæði hvítra kjósenda um gervöll Bandaríkin og sverja embættis- eið sem valdamesti maður heims. … Meira: stebbifr.blog.is Obama lætur drauminn rætast Dögg Pálsdóttir | 4. júní Þá virðist niðurstaða komin í þetta kapphlaup Hillary og Obama. Minn kandidat ekki með þá niðurstöðu sem ég vonaði. Einhvern veginn hélt ég að Bandaríkin væru tilbúnari fyrir kvenforsetaefni en forsetaefni af afrískum uppruna. Annað virðist komið í ljós. Það er hins vegar umhugsunarefni, ekki síst fyrir Obama og hans fylgismenn, að honum tókst ekki að vinna í neinu af stóru fylkjunum. Fram til þessa hefur eng- um frambjóðanda í forsetakosningum, sem ekki hefur unnið í einhverjum af stóru fylkjunum s.s. New York, Kaliforníu, Flórída og Texas, tekist að verða forseti Bandaríkjanna. Kannski væri klókast hjá Obama að fá Hillary til að vera varaforsetaefni hans. Ég held að saman yrðu þau fantasterk og lík- leg til sigurs. ... Meira: doggpals.blog.is FERÐAMAÐUR frá Evr- ópu skilur eftir í himinhvelinu koldíoxíð (CO2) sem veldur gróðurhúsaáhrifum til jafns við árslosun frá bíl, sem er ek- ið 15 þús. km á ári og eyðir 12 lítrum á hundraðið. Sá bíll los- ar rúm 4 tonn af CO2 á ári. 250 þús. ferðamenn frá Evr- ópu losa því jafngildi einnar milljónar tonna losunar á CO2 við jörðu. Þeir toppa álverið á Reyðarfirði. Sami fjöldi frá Japan jafnar árslosun Íslend- inga. Þrjátíu Íslenskar konur fóru fyrir skömmu til Samein- uðu þjóðanna og ræddu meng- un andrúmsloftsins. Heim- komnar höfðu þær skilið eftir koldíoxíð í himinhvelinu til jafns við árslosun 70 heimilisbíla. Draumur margra græningja um milljón ferðamenn á ári er því martröð upplýstra nátt- úruverndarsinna. Pattstaða ráðherra Evrópusambandið stefnir að losunarkvóta og losunargjöldum á flugvélar. Olíuverð hefur hækkað og mun hækka mikið. Vegna los- unargjalda og hækkunar eldsneytis verða flugfargjöld óheyrilega há. Það mun valda samdrætti í ferðaþjónustu og fjölda gjaldþrota vítt um heim. Vilji ríkisstjórn leita eftir undanþágu frá los- unarkvótum vegna lífsnauðsynja, þá er fjar- lægð Íslands frá meginlöndum og að þjóðin er algjörlega háð erlendum aðföngum, næg rök fyrir þeirri beiðni. Þau rök gilda þó ekki til und- anþágu á gjöldum fyrir skemmti- ferðafólk. Núverandi umhverfisráðherra hefur sagt að ekki komi til greina að sækja um undanþágur frá losunar- kvóta vegna álbræðslu þó að við- urkennt sé að notkun á áli dregur úr heildarlosun. Ef álver losar 1 milljón tonn af CO2 á ári þá er líklegt að það af ál- inu, sem notað er í farartæki, minnki nettó losun um 2,6 milljónir tonna. Umhverfisráðherra viðurkennir ekki þessa staðreynd sem næg rök fyrir beiðni um undanþágu á losun frá stóriðju. Hann hefur því teflt sér í pattstöðu með það, að sækja um undanþágu á losun frá millilanda- flugi. Innstæða á himni Langmestur hluti af CO2, sem fylgir stóriðju myndast við framleiðslu á rafmagni. Raf- orkuverið fyrir álverið, sem Norsk Hydro hætti við á Reyðarfirði og flutti til Arabíuskag- ans, losar 5,5 milljónir tonna á ári af CO2. Raf- orka til álvera á Íslandi myndar nánast ekkert CO2. Það má því segja að Íslendingar, sem framleiða alla sína orku án teljandi losunar þess, eigi gilda innistæðu á himni og greiði að auki inn á hana árlega, sem nemur ígildi margra milljóna tonna losunarkvóta af CO2. Spurt er; vill umhverfisráðherra nota þessa Íslensku innistæðu, sem endurnýjast hvern dag. Vill umhverfisráðherra nota hana í samn- ingum um íslenska hagsmuni? Ferðaþjónusta er eitrað peð Eftir Birgi Dýrfjörð Birgir Dýrfjörð » ... milljón ferðamenn á ári er martröð... Höfundur er í flokksstjórn Samfylkingarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.