Morgunblaðið - 05.06.2008, Page 29

Morgunblaðið - 05.06.2008, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 29 ✝ Brynhildur Jens-dóttir, sjúkra- liði, fæddist í Reykjavík hinn 8. desember 1928. Hún lést á Landakotsspít- ala hinn 29. maí síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Jens Guðbjörnsson, f. 30. ágúst 1903, d. 1. maí 1978 og kona hans Þórveig Sigfús- dóttir Axfjörð, f. 8. júlí 1897, d. 4. okt. 1993. Systir Bryn- hildar er Jensína, f. 14. júlí 1932. Brynhildur giftist 4. mars 1950 Gísla Þórðarsyni loftskeytamanni, f. 22. des. 1926, d. 10. mars 2004. Þau skildu. Börn þeirra eru: 1) Þór- veig, f. 4. ágúst 1950, d. 19. maí 1994, maki Ómar Magnússon, f. 29. júní 1948. Börn þeirra eru: A) Hild- ur, f. 11. ágúst 1970, maki Þorleif- ur Bjarnason, f. 24. okt. 1963. Þau eiga tvo syni, Bjarna og Ómar Þór. B) Ásta María, f. 19. jan. 1975, maki Andrew Mark Ashworth, f. 7. maí sept. 1978. Þeirra börn eru Að- alheiður Fanney og Kolbrún Helga. C) Brynhildi, f. 16. júlí 1980, í sam- búð með Ragnari Ómarssyni, f. 29. mars 1984. 4) Brynhildur Jóna, f. 17. maí 1957, maki Guðjón Þ. Arn- grímsson, f. 13. sept. 1955. Börn þeirra eru A) Vignir, f. 2. apríl 1982, maki Steinunn Dúa Jóns- dóttir, f. 2. apríl 1982, dóttir þeirra er Kristín Sól. B) Brynjar, f. 29. mars 1989. C) Gísli, f. 2. júní 1997. Á árunum 1980-1985 var Bryn- hildur í sambúð með Skúla Þór Jónssyni, f. 24. des.1922, starfs- manni Vita- og Hafnamálastofn- unar. Brynhildur stundaði nám við Kvennaskólann í Reykjavík 1943- 47, Sorø husholdningsskole 1948-49 og tók sjúkraliðapróf frá Landa- kotsspítala 1975 og nam við John- son Institute í Bandaríkjunum 1979. Hún var sjómannskona og hvíldi því heimilisreksturinn að mestu á hennar herðum og meðfram því vann hún m.a. í Rammagerðinni, hjá SÁÁ á Silungapolli og í Reykja- dal og á sambýli fatlaðra við Holta- veg. Brynhildur verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. 1968. 2) Anna, f. 3. okt. 1952, maki Eirík- ur Þór Einarsson, f. 5. febr. 1950. Börn þeirra eru: A) Einar Haukur, f. 22. jan. 1973, maki Bryndís Huld Ólafsdóttir, f. 12. apríl 1971. Börn þeirra eru Sandra Sif og Ólafur Þór. Einar Haukur á dótturina Tinnu Rut með Önnu Kristínu Tryggva- dóttur, f. 1. maí 1973. B) Finnur, f. 24. jan. 1983, maki Erna Sif Ólafsdóttir, f. 10. maí 1983. 3) Jens, f. 7. apríl 1954, maki Hafdís E. Jónsdóttir, f. 28. júlí 1949. Með fyrri konu sinni Hrafnhildi Kristinsdóttur, f. 7. maí 1951, átti Jens þrjú börn: A) Rósu Kristínu, f. 7. apríl 1974, maki Freyr Karlsson, f. 6. okt. 1972. Börn þeirra eru Sindri Jens, Thelma Dögg, Hrafnhildur Ýr, Freydís Rós og Laufey Ösp. B) Arnar Gísla, f. 16. júlí 1979, barns- móðir Elfa Lind Berudóttir, f. 16. Að kveðja er hæg hreyfing augna hæg hreyfing handar um lokk hægur svipur síðustu myndar að kveðja gerist ekki á sama hraða og annað líf að kveðja er tekið útúr samhengi dags og nætur að kveðja þig var mér ekki lagið finna andvarp lífs að líða burt og sitja eftir í einu rúmi tóms það getur verið hróp það getur verið þögn það getur verið háski að kveðja þig var mér ekki lagið. (Sigmundur Ernir Rúnarsson.) Anna, Jens og Binna Jóna. Hún Lilla náði enn eina ferðina að koma okkur á óvart, þegar hún hóf ferð sína um óravíddir eilífðarinnar. Með aðstandendur samankomna við dánarbeðið á Landakotsspítala síð- degis á fimmtudaginn kvaddi hún í sama mund og Suðurlandsskjálftinn reið yfir. Kyrrð augnabliksins á sjúkrastofunni var rofin þegar allt hristist og skalf, fólkið greip skelkað hvað í annað og kallaði á Guð. Þessi dramatíska tímasetning ættmóður- innar er fyrirtaks söguefni í fjöl- skyldu sem elskar góðar sögur. Hún var oft söguefnið sjálf og setti þarna punktinn með glæsibrag. Brynhildur Jensdóttir, sem lést eftir erfið veikindi í síðustu viku, var aldrei kölluð annað en Lilla af vinum og vandamönnum og amma Lilla af sístækkandi hóp afkomenda. Foreldr- ar hennar voru að norðan og vestan en hún sjálf innfæddur Reykvíkingur, gekk í Austurbæjarskólann og Kvennaskólann og í framhaldsnám að þeirra tíma hætti í heimilisfræðum í Danmörku skömmu eftir stríð. Hún giftist Gísla Þórðarsyni, sem var loft- skeytamaður á millilandaskipum, fór að búa í Norðurmýrinni og svo í Grænuhlíðinni á sjötta áratugnum. Hún eignaðist fjögur börn á sjö árum og annaðist auk barnanna rekstur heimilisins eins og sjómannskvenna var háttur. En hún var líklega aldrei hin dæmigerða húsmóðir þótt tíðar- andi ætlaði henni það hlutverk og þótt hún gegndi því meðan börnin voru ung. Hún fór að vinna úti, í Ramma- gerðinni um langt skeið og lauk svo sjúkraliðanámi 1975. Hún var virkur þátttakandi í upphafs- og frumkvöðla- starfi SÁÁ, fylgdi áfengissjúklingum í meðferð til Bandaríkjanna og starfaði á meðferðarheimilum SÁÁ á Silunga- polli og Reykjahlíð. Þar vann hún gott starf enda þekkti hún sjúkdóminn af eigin raun. Seinna starfaði hún um árabil á heimili fyrir fjölfatlaða við Holtaveg og þar náði hún aðdáunar- verðu persónulegu sambandi við ein- staklinga sem voru flestar bjargir bannaðar. Það var alltaf svolítill bóhem í Lillu. Hún ferðaðist mikið bæði innanlands með fjölskylduna í frumstæðum tjaldútileigum, sigldi með manni sín- um og fór svo í margar ferðir á síðari árum. Hún átti vini víða, sérstaklega í Danmörku, en þangað fór hún oft og talaði góða dönsku. Hjónaband henn- ar og Gísla endaði með skilnaði á átt- unda áratugnum en þau hjónaleysin héldu samt vináttunni, „héldu við hvort annað,“ eins og vinirnir sögðu, allt þar til Gísli lést fyrir fjórum árum. Hún átti í einstaklega nánu og góðu sambandi við Nennu systur sína alla ævi. Tilvera hennar hin síðari ár snerist um börnin og fjölskyldur þeirra. Hún var stolt af sínu fólki, stóð með því, hafði heitar tilfinningar og faldi ekki skoðanir sínar. Mesta raun hennar var án efa missir elstu dótturinnar, Þórveigar, sem varð bráðkvödd í blóma lífsins aðeins 43 ára gömul, en Lilla mun hvíla við hlið hennar í Gufu- neskirkjugarði. Að leiðarlokum þökk- um við tengdasynirnir þær ómetan- legu lífsins gjafir sem samfylgdin við Lillu færði okkur. Guðjón Arngrímsson, Eiríkur Þ. Einarsson. Elsku amma. Nú er komið að kveðjustund. Það er skrýtið að sitja hér og reyna koma því á blað hvernig mér líður og ég veit ekki hvað annað ég get sagt en að ég eigi eftir að sakna þín og þeirra stunda sem við áttum saman. Þú varst alltaf til staðar. Ég flutti inn til þín 16 ára fyrst og hef í gegnum árin alltaf átt sama stað hjá þér, fyrst í Álftamýrinni og svo í Smáranum. Ég á eftir að sakna þess að kíkja í heimsókn til þín, sitja í eldhúsinu og spjalla við þig um lífið og tilveruna. Einhverra hluta vegna rataði ég inn á svið sem þú hafðir unnið svo mikið á. Við ræddum oft og mikið um með- ferðarmál, óviðunandi ástand í þeim málefnum og báðar höfðum við ákveðnar og sterkar skoðanir á þessu öllu. Það skondna við þetta allt er það að ég vissi ekki hversu mikið þú hafðir unnið á þessu sviði fyrr en ég var komin á fullt í námið. Kom það svo í ljós þegar ég fór að reyna troða mér áfram í geiranum bæði hér og erlend- is að þú þekktir vel til og varst mér alltaf innan handar þegar mig vantaði aðstoð. Þú eyddir tíma í Bandaríkj- unum og lærðir á stofnunum sem mig dreymir um að komast á að læra. Vonandi næ ég að feta í fótspor þín einhvern tímann. Nafnið mitt fékk ég frá þér, elsku amma. Þetta stóra nafn sem ég kunni ekki að meta fyrr en fyrir örfáum árum. Svo er ég líka al- nafnan. En nafnið er ekki það eina sem ég fékk frá þér. Frekja, sögðu sumir, ákveðni, sagðir þú. Elsku amma. Ég veit að þér líður vel núna í faðmi ömmu Þórveigar, afa Jens og hennar Þóru þinnar. Mig langar að þakka þér fyrir allt það sem þú hefur gefið mér af þér. Ég ætlast til að þú fylgist með mér, ég vona að þú vitir það! Með söknuð í hjarta kveð ég þig nú, elsku amma mín. Þín, Brynhildur. Elsku amma og langamma, Við kveðjum þig með söknuði. Faðir lífsins, faðir minn, fel ég þér minn anda’ í hendur. foldin geymi fjötur sinn. Faðir lífsins, Drottinn minn, hjálpi mér í himin þinn heilagur máttur, veikum sendur. Faðir lífsins, faðir minn, fel ég þér minn anda’ í hendur. (Sigurður Jónsson.) Rósa, Arnar, Brynhildur og fjölskyldur. Brynhildur Jensdóttir SENDUM MYNDALISTA                          ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN P. MICHELSEN, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstu- daginn 6. júní kl. 11.00. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Parkinsonssamtökin á Íslandi. Margrét Þorgeirsdóttir, Karl G. Kristinsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Kristín B. K. Michelsen, Magnús Sigurðsson, Sólveig H. Kristinsdóttir, Björn St. Bergmann, Anna Karen Kristinsdóttir, Gestur Helgason, afa- og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, PÉTUR KRISTINN ELÍSSON vélstjóri, sem lést þriðjudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd. Ela Krystyna Elisson, Adriana K. Pétursdóttir, Einar J. Ingason, Gabríel A. Pétursson, Daníel K. Pétursson, Piotr D. Bialobrzeski, Adam S. Ástþórsson, Erika Nótt Einarsdóttir. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma, FANNEY BENEDIKTSDÓTTIR frá Kringlu, Dalabyggð, er lést að dvalarheimilinu Seljahlíð, Reykjavík, miðvikudaginn 28. maí, verður jarðsungin frá Kvennabrekkukirkju, Dalabyggð, laugardaginn 7. júní kl. 13.00. Skarphéðinn Jónsson, Guðrún Skarphéðinsdóttir, Kjartan Sigurðsson, Sigríður Skarphéðinsdóttir, Jóel Þorbjarnarson, Jón Skarphéðinsson, Margrét Skarphéðinsdóttir, Thor B. Eggertsson, Svanhildur Skarphéðinsdóttir, Magnús Sigurðsson, Jónas Rútsson, Kristín Viðarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, RUNÓLFUR DAGBJARTSSON múrarameistari, Dúddi múr, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum, andaðist á heimili sínu mánudaginn 19. maí. Jarðsungið verður frá Langholtskirkju í Reykjavík, föstudaginn 6. júní kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn, Vestmannaeyjum. Ómar Runólfsson, Auður Eiríksdóttir, Margrét Runólfsdóttir, Sigurður Rafn Jóhannsson, Dagmar Svala Runólfsdóttir, Guðjón Sigurbergsson, Kristín Helga Runólfsdóttir, Ari Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐNI STEFÁNSSON, Skógarlundi 19, Garðabæ, lést á Landspítalanum við Hringbraut, mánudaginn 2. júní. Sigrún Vilbergsdóttir, Guðný Guðnadóttir, Jóhann Örn Ásgeirsson, Gréta Guðnadóttir, Róbert Ólafsson, Aron, Birna, Vilberg og Guðni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.