Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 36

Morgunblaðið - 05.06.2008, Síða 36
36 FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er fimmtudagur 5. júní, 157. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Vaknið því, þér vitið eigi, hvaða dag Drottinn yðar kemur. (Matth. 24, 42.) Enn eitt árið hefur Víkverji orðiðfyrir hálfgerðum vonbrigðum með úrslitin í Ungfrú Íslandi vegna þess að dómnefndin var ekki sam- mála mati Víkverja á keppendum. Úrslitin urðu sem sagt þau að sá keppandi sem Víkverji hélt með, Sonja Björk Jónsdóttir, náði aðeins 3. sæti. Að sjálfsögðu átti hún að vinna keppnina. Með þessu vill Vík- verji ekki kasta rýrð á sigurveg- arann en hugsið ykkur bara ef Sonja Björk hefði unnið. Nú er dómur fall- inn, en má ekki áfrýja niðurstöðunni til æðra dómstigs? Áfrýjunardóm- stólar eru til í ýmsum keppn- isgreinum, hví ekki Ungfrú Íslandi? x x x Sjálfsagt er að gera grein fyrir þvíhvers vegna Víkverji telur að Sonja Björk hefði átt að vinna. Eft- irfarandi ummæli hennar um róm- antíkina vógu mjög þungt: „Róm- antískt kvöld er að vera úti í náttúrunni með ástinni sinni í æð- islegu veðri, fylgjast með skýjunum og stjörnunum og hlusta á náttúr- una.“ Þetta eru frábær ummæli að mati Víkverja sem er líka mikill náttúruunnandi. Of margir kepp- endur nefndu vídeómynd sem eitt hráefna í uppskrift að rómantísku kvöldi. Ekki setur Víkverji það efst á blað þótt ekki sé ógaman að horfa á stöku mynd. Um fegurðina segir Sonja Björk síðan: „Fegurð er það sem skín af manneskju sem líður vel með sjálfa sig, er sjálfsörugg og hefur góðan persónuleika. Fegurð er alls staðar í kringum okkur, hún er það sem fangar athygli okkar.“ Þarna mælir vitur sál. Víkverji er hjartanlega sammála þessu. En hvað sagði sigurvegarinn um rómantíkina, hún Alexandra Helga Ívarsdóttir?: „Að elda góðan mat heima með kærastanum og slaka á. Sundferð er líka rosalega kósý.“ Já, jæja, þetta gæti alveg gengið, sjálfur er Víkverji sundmaður allgóður og finnst jú gaman að elda mat með sinni heittelskuðu. En Sonja Björk hefði nú átt að merja þetta, enda fremst meðal jafningja. Víkverjiskrifar Reykjavík Evu Rós Ólafs- dóttur og Atla Erlendssyni fæddist sonur, Arnar Kári, 30. maí kl. 13.49. Hann vó 13 merkur og var 51 cm langur. Reykjavík Jóhönnu Maríu Kristjánsdóttur og Pétri Erni Magnússyni, Fannahvarfi 3, fæddust tvíburadrengir, Kristján Þorri og Egill Örn, 9. maí kl. 2.45 og 3. Kristján Þorri vó 3175 g og var 49 cm langur og Egill Örn vó 2600 g og var 47 cm langur. Akranes Marteini Þór Ás- geirssyni og Maríu Ósk Ósk- arsdóttur fæddist sonur, Þorsteinn Ari, 13. maí kl. 8.15. Hann vó 4385 g og var 55 cm langur. Ísafjörður Elísu Stefáns- dóttur og Páli Janusi Hilm- arssyni, Stórholti 13, fædd- ist dóttir 22. maí kl. 8.11. Hún vó 4155 g og var 53 cm löng. Ísafjörður Jóhönnu Eyrúnu Guðnadóttur og Ásgeiri Jónssyni, Tálknafirði, fæddist sonur 11. maí. Hann vó 3520 g og var 50 cm langur. Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? – Sendu mynd af litla krílinu og nánari upplýsingar á netfangið barn@mbl.is Krossgáta Lárétt | 1 handleggur, 4 hnikar til, 7 kvensemi, 8 svalinn, 9 kvendýr, 11 hæverska, 13 eyði- mörk, 14 skriðdýr, 15 heilnæm, 17 glötuð, 20 bergmáls, 22 sekkir, 23 trúarleiðtogar, 24 lofað, 25 lélegar. Lóðrétt | 1 atburður, 2 fugl, 3 skrifaði, 4 þakklæti, 5 dýs, 6 glerið, 10 trúarbrögð, 12 álít, 13 þrif, 15 flokkur, 16 svipuðum, 18 urr, 19 bjálfar, 20 leyndardómsfull, 21 far. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 makalaust, 8 njóli, 9 tjáði, 10 nær, 11 rósin, 13 aldan, 15 skins, 18 skatt, 21 auk, 22 grugg, 23 eflir, 24 mannalæti. Lóðrétt: 2 atóms, 3 asinn, 4 aftra, 5 skáld, 6 gnýr, 7 kinn, 12 iðn, 14 lek, 15 segi, 16 iðuna, 17 sagan, 18 skell, 19 atlot, 20 tóra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. c4 c6 2. e4 e5 3. Rf3 d6 4. Rc3 Rf6 5. Be2 Rbd7 6. d4 Be7 7. O–O O–O 8. Dc2 Dc7 9. Hd1 He8 10. Hb1 a6 11. b4 exd4 12. Rxd4 c5 13. Rf5 cxb4 14. Rxe7+ Hxe7 15. Hxb4 h6 16. Bf4 Re5 17. Db3 Be6 18. Bxe5 dxe5 19. Rd5 Bxd5 20. exd5 Hd8 21. Hb1 Hdd7 22. Da3 Dc5 23. De3 Dxe3 24. fxe3 Re4 25. Bg4 Hc7 Staðan kom upp á bandaríska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Tulsa. Alþjóðlegi meist- arinn Joshua Friedel (2484) hafði hvítt gegn Samuel Shankland (2296). 26. c5! hvítur vinnur nú óumflýj- anlega lið. Framhaldið varð: 26…Hxc5 27. Hxe4 Hxd5 28. Bc8 Ha5 29. Hxb7 Hxb7 30. Bxb7 Hxa2 31. Hxe5 Kf8 32. Bc6 f6 33. He8+ og svartur gafst upp. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Nýr félagi. Norður ♠32 ♥ÁK2 ♦K75 ♣ÁDG83 Vestur Austur ♠8 ♠ÁK5 ♥G106543 ♥8 ♦Á96 ♦DG82 ♣1092 ♣K7654 Suður ♠DG109764 ♥D97 ♦1043 ♣-- Suður spilar 4♠. Vörnin á þrjá toppslagi, sagnhafi er á grænni grein ef honum tekst að forðast stungu í hjarta. Jón Baldursson fann frumlega leið til þess í landsleiknum við Dani um helgina. Vestur hafði opnað á multi 2♦, þannig að Jón vissi af hjarta- legunni. Útspilið var ♣10, Jón lét ♣D og trompaði kónginn. Spilaði spaða. Austur drap, skipti yfir í einspilið í hjarta, Jón henti tveimur hjörtum niður í ♣ÁG og tígli í ♣8. Þessar kúnstir dugðu í 10 slagi með ♦Á réttum. Á næsta borði var Kröjgaard sagn- hafi í 5♠, sennilega eftir misskilning. Norður hafði sýnt sterka jafnskipta hönd og Aðalsteinn Jörgensen í vestur ákvað að sækja um inngöngu í undan- ásafélagið – spila litlum tígli í gegnum líklegan kóng í borði: Tígulsexan út, kóngurinn upp og síðan hurfu tveir tígl- ar niður í lauf eftir trompsvíningu. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Leiðinleg vinna er tækifæri til að kanna ímyndunaraflið. Fáðu þér far með hugmyndafluginu. Þú átt góðar samræð- ur seinni partinn sem þú græðir á. (20. apríl - 20. maí)  Naut Varaáætlunin þín er jafn góð og að- aláætlunin. Finndu þess vegna upp enn fleiri áætlanir. Með tímanum færðu tæki- færi til að prófa þær allar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Á krossgötum óskar þú þess leynt að einhver tæki ákvörðun fyrir þig. Þú yrðir samt ekki glaður með hana til lengdar. Taktu ákvörðunina sjálfur – þú sérð ekki eftir því. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Hvað ef þú sæir öll verkefni sem þú lykir við sem það besta sem þú hefur afrekað? Prófaðu það og þú gætir lært að meta sjálfan þig betur. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú færð tækifæri til að skipta á hæfi- leikum þínum og beinhörðum peningum. Rannsakaðu fyrst hvernig þú passar inn í dæmið. Fáðu álit hjá öðrum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú hefur verið dáleiddur af því sem hugur þinn girnist, þú ert á valdi þess og er þér efst í huga. Ferlið þarf að fara í hring og enda með samningi eða sölu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú getur verið stoltur af þeim áhrif- um sem þú hefur á samkvæmislíf ann- arra. Þú kynnir fólk sem síðar hefur sam- bönd. Þú nýtur góðs af öllu saman. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú leggur þig sérstaklega fram af því að þú elskar einhvern. íhugaðu vel gjörðir þínar fyrirfram, því með þeim skapar þú fordæmi. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vertu ekkert að pæla ekkert í hver fílar hvern og ekki í vinnu og utan. Þér hundleiðist það. Vertu frekar sá sem leiðir saman ólíkt fólk. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Það getur verið flókið að tjá sig. Ef þú einbeitir þér að viðtökunum eyði- leggur það fyrir tjáningunni. En þú verð- ur samt að lesa fólk til að ná til þess. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Merkið þitt er ólíklegra en önn- ur merki til að sanka að sér drasli. Þú átt það þó til að finna dýrgrip hér og þar og bæta honum í falda fjársóðinn þinn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Sambönd verða aðalumræðuefni dagsins. Þú kemst að því hver hjálpar hverjum með hvað, og vilt endilega fá ein- hvern mikilvægan til að leika hlutverk í þínu lífi. Stjörnuspá Holiday Mathis 5. júní 1878 Thor Jensen kom til landsins, 14 ára að aldri, og gerðist verslunarþjónn á Borðeyri við Hrútafjörð. Thor varð um- svifamikill í verslun, útgerð og landbúnaði og lést 1947. 5. júní 1885 Bríet Bjarnhéðinsdóttir skrif- aði „ritgerð“ í Fjallkonuna um menntun og réttindi kvenna. Þetta er talin fyrsta grein sem íslensk kona hefur skifað í op- inbert blað. 5. júní 1975 Íslendingar sigruðu Austur- Þjóðverja í landsleik í knatt- spyrnu í Reykjavík með tveim- ur mörkum gegn einu. „Stærsti dagur íslenskrar knattspyrnu,“ sagði Morg- unblaðið. 5. júní 1983 Sigurður Jónsson frá Akranesi tók þátt í landsleik í knatt- spyrnu gegn Möltu en hann var þá 16 ára, yngsti landsliðs- maður Íslands frá upphafi. 5. júní 1991 Hæstiréttur kvað upp dóm í Hafskipsmálinu, sem hófst með gjaldþroti fyrirtækisins í des- ember 1985. Flestir hinna ákærðu voru sýknaðir. 5. júní 1994 Kristinn Steinar Sigríðarson varð hlutskarpastur í sam- keppni um þjóðhátíðarbúning karla. Heimild: Dagar Íslands Þetta gerðist þá… Það má segja að það verði mikið um dýrðir á sjö- tugsafmæli Jóns Illugasonar en á heimaslóðum hans á Mývatni verður í kveld sett kórastefna þar sem áætlað er að um 300 manns sameinist í söng. Jón tekur þátt og mun syngja með kór Reykjahlíð- arkirkju við setningu stefnunnar í félagsheimilinu Skjólbrekku undir stjórn Jóns Stefánssonar. Þeir nafnar eru þremenningar en afi þeirra stofnaði kórinn árið 1908 og á hann því hundrað ára starfs- afmæli um þessar mundir. Ærið tilefni er því til að þenja raddböndin. Jón fæst við fleira en söng en hann og Guðrún kona hans reka gisti- heimilið og ferðaþjónustuna Eldá. Sumarvertíðin er nú að ganga í garð og reiknar Jón með að á hverri nóttu gisti á annað þúsund manns á svæðinu, mest í júlí og ágúst. Hann hefur komið víða við gegnum tíðina og hefur til að mynda unnið sem dælingarmaður hjá Kísiliðjunni, gegnt formennsku í almannavarnanefnd og embætti sveitarstjóra í Mývatnssveit á árunum 1974-1978 en á því kjörtímabili hófust Kröflueldar á svæðinu. Ungmennafélagshreyfingin er Jóni hugleikin og lofar hann hið góða starf sem hún vinnur. Hann hefur verið viðloðandi starfið gegnum tíðina og lék knattspyrnu með ung- mennafélaginu Mývetningi á árum áður. Mývetningur nýtur góðs af afmæli Jóns en hann afþakkar allar gjafir og æskir þess að fólk styrki heldur félagið í tilefni dagsins. | skulias@mbl.is Jón Illugason sjötugur Söngelskur Mývetningur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.