Morgunblaðið - 05.06.2008, Side 45

Morgunblaðið - 05.06.2008, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2008 45 Sýnd í álfabakka,kringlunni, keflavík og SelfoSSi / SelfoSSi/ keflavík eeee ,,Ljúfir endurfundir” - Þ.Þ., DV eee ,,Hasar, brellur og gott grín” - S.V., MBL eeee ,,Trú forverum sínum og er kærkomin viðbót í þessa mögnuðu seríu. Meira er ekki hægt að biðja um.” - V.J.V., Topp5.is/FBLeeee ,,Biðin var þess virði” - J.I.S., film.is Sýnd í álfabakka, og akureyri eee - S.V., MBL ævintýramyndstærstuafmissaekki ára!síðari „atH SérStakt leyniatriði er að mynd lokinni“ eeee - V.J.V., Topp5.is/FBL eee ROLLING STONE Sýnd á SelfoSSi / akureyri Sýnd í álfabakka og kringlunni SEX & THE CITY kl. 8 - 10:45 B.i. 14 ára INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára INDIANA JONES 4 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára HAROLD & KumAR 2 kl. 8 B.i. 12 ára WHAT HAPPENS IN VEGAS kl. 10:10 LEYFÐ Sýnd í álfabakka Stórvirki óskarsverðlaumahafans Gabriel Garcia Marquez „ áStin á tímum kólerunnar“ á íSlandivikur í rÖð2toPPnumá THE fORBIDDEN KINGDOm kl. 8 B.i. 12 ára NIm'S ISLAND kl. 8 LEYFÐ dómur um bók “meðal óvenjulegustu ástarsagna sem samdar hafa verið - J.H., MBL tilnefnd til golden globe verðlauna bókin er í efSta Sæti metSÖluliSta málS og menningar. frábær rómantíSk ÖrlagaSaga ÁLFABAKKI Sýnd á SelfoSSi eee T.V. - Kvikmyndir.is eee - S.V., mBL eee - K.H. G., DV Eftir Ásgeir H. Ingólfsson asgeirhi@mbl.is Í SUMAR hefjast tökur á sjónvarps- myndinni Eitur í æðum í Jökul- fjörðum og á Ísafirði. Þar kynnumst við lækni sem kominn er á eftirlaun, er nýbúinn að missa konuna sína og sér ekki annan leik í stöðunni en að halda í afskekktan sumarbústað til þess að svipta sig lífi. En þær áætl- anir fara út um þúfur þegar að óvæntan gest ber að garði. Með hlutverk læknisins fer Theódór Júlíusson en gesturinn er danskur, leikinn af Bjarne Henriksen, sem þekktur er fyrir leik sinn í glæpa- þættinum danska Forbrydelsen sem og kvikmyndinni Festen. Og ef þessi fundur þeirra félaga gengur vel þá gæti þetta orðið upphafið af gjöfulu samstarfi frændþjóðanna í sjón- varpsþáttagerð. Ágætis byrjun? Lýður Árnason, leikstjóri og handritshöfundur, segir hugmynd- ina vera að gera 6-8 átta þátta röð, en það velti þó allt á hversu vel þessi fyrsta mynd gangi. „Við erum með sögurnar klárar og getum hleypt þessu öllu af stokkunum ef við get- um selt þetta sem þáttaröð, og þá er jafnvel pælingin að selja þetta út.“ Þetta eru þó ekki framhaldsþættir heldur nokkrar sjálfstæðar sögur. En hvaða lím myndi þá halda þess- ari þáttaröð saman? „Þetta eru allt samtímasögur og allar á einhvern hátt dansk- íslenskar, það eru ávallt einhverjir snertipunktar á milli landana – sumar sögur gerast á Íslandi og aðr- ar í Danmörku og fjalla ýmist um Dani á Íslandi eða Íslendinga í Dan- mörku.“ Upphaflega kviknaði hugmyndin í samtali Lýðs og Henriksens. „Hann er frændi minn og við vorum leikfélagar í æsku; þegar hann gerðist svo leikari kom sú hugmynd upp að við myndum gera mynd sam- an.“ Þessi saga þótti þeim henta ágætlega og í kjölfarið er stefnan að fá fleiri gæðaleikara frá báðum löndum til þess að taka þátt, en auk Theódórs og Henriksens fara Elva Ósk Ólafsdóttir, Hinrik Ólafsson, Elfar Logi Hannesson, Rakel Dimar og Sarah Mogensen með hlutverk í fyrsta þættinum. Á rauðu ljósi Lýður býr á Vestfjörðum líkt og flestir í tökuliðinu, en þar starfar Lýður sem læknir og hefur þegar leikstýrt þremur leiknum myndum og tveimur heimildarmyndum. En hefur hann einhvern tíma fyrir læknisstörfin lengur? „Það er alltaf nógur tími, þetta er allt öðruvísi úti á landi. Þið sjáið svolítið af lands- byggðinni í Reykjavík þegar þið stoppið á rauðum ljósum, við erum alltaf á rauðum ljósum þar. Við höf- um nægan tíma til að staldra við, það eru miklu fleiri klukkutímar í sólarhringnum úti á landi en hér. En við viljum líka breikka um- ræðuna fyrir vestan, það er alltaf verið að veiða fisk en við erum að reyna að gera eitthvað annað en að veiða fiska.“ Af hverju kjaftshögg? En af hverju hafa Lýður og fé- lagar einbeitt sér að sjónvarpi frek- ar en bíómyndum? „Bíóið er ekki al- veg okkar markhópur, gamla fólkið nennir aldrei í bíó,“ segir Lýður sem segir sögurnar höfða frekar til eldra fólks. „Þetta er bara spurning um hvar maður er staddur á þroska- brautinni, þetta er ekkert betra eða æðra, þetta er bara annar staður. Unglingarnir vilja náttúrlega alltaf vera í adrenalíninu en við erum meira í pælingunum og minna í has- arnum. Þetta er ekki endilega kjaftshöggið sjálft, heldur af hverju þú ætlar að gefa kjaftshögg.“ Frændur og frændþjóðir Dönsk-íslensk sjónvarpsþáttaröð í deiglunni Íslendingurinn Lýður Árnason leikstjóri, handritshöfundur og læknir, er frændi Bjarne Henriksen – og í sumar líka samstarfsmaður. Daninn Bjarne Henriksen leikur bankamann í Eitur í æðum. ÁRATUGUR er síðan hljómsveit Barða Jóhannssonar, Bang Gang, sendi frá sér frumburðinn You. Platan lofaði góðu og markaði upphafið að farsælum tónlist- arferli Barða. Fimm árum síðar kom svo út önnur plata Bang Gang, Something Wrong. Og nú, aftur eftir fimm ára „hlé“, var þriðja skífan að líta dagsins ljós, Ghosts From The Past. Platan geymir ellefu lög, flest hver í moll. Blæbrigði slíkra smíða eru gjarnan angurværari og þyngri en þeirra sem skrifuð eru í dúr, þótt ekki sé það algild regla. Oftar en ekki er það þó tilfellið hjá Barða, sem hér er heilt yfir á ró- legum og lágstemmdum nótum, með tilheyrandi undiröldum. Lítið er um æsing og yfirborðslegar æf- ingar, enda hefur unggæðings- háttur og nýliðagalsi nær alfarið vikið fyrir sjóuðu næmi hins þroskaða listamanns. Platan hefst á hinni þekkilegu poppsmíð, „The World Is Gray,“ þar sem ljómandi góð laglína er fallega sungin yfir látlausa en einkar smekklega útsetningu. Barði gerir enn betur í næsta lagi, „One More Trip.“ Þar er á ferð- inni hreint frábærlega samið popplag með ómótstæðilegu við- lagi. Þá eru upptökustjórnin og útsetningin svo framúrskarandi að við fullkomnun jaðrar; seiðandi söngur, loftkenndar en þykkar þríundaraddir, svalur bassagang- ur, silkimjúkur kassagítar, smekklegt píanóspil og giska góð- ar trommur. Listileg upp- tökustjórnin er raunar aðalsmerki þessarar plötu og frábær vitn- isburður um ótvíræða hæfni Barða á því sviði. Næstu tvö lög, „I Know You Sleep“ og „Black Parade“ eru nokkurs konar nýrómantískir kuldarokkshundar og ágætir sem slíkir. Barði sækir raunar áhrif sín mikið til tónlistar frá níunda áratugnum, en ekki svo að skír- skotanir verði of miklar eða greinilegar. Hann er einfaldlega of góður listamaður til að festast í einhverju stælingahlutverki og væri óskandi að fleiri tónlist- armenn af yngri kynslóðinni næðu að skapa sér svo sjálfstæðan stíl. Á eftir hinum ósungna og þriggja hljóma þrástefsópus, „Lost In Wonderland“, fer svo hver poppsnilldin á fætur annarri; „Every Time I Look In Your Eyes,“ „Ghosts From The Past“ og „Forever Now“ eru öll afbragð og í sama gæðaflokki og fyrstu tvö lög plötunnar. Þetta „eitís“ skotna popp er beinlínis bráðsmitandi og um leið laust við alla þá hallær- islegu fylgikvilla sem fylgdu á stundum tónlist þess tíma. „Don‘t Feel Ashamed“ er ní- unda lagið og ljúft. Barði semur það og flytur í félagi við Keren Ann Zeidel, en saman mynda þau jú dúettinn ágæta, Lady & Bird. Platan hefði að ósekju mátt enda á þessari fínu ballöðu því lokalögin tvö, „You Won‘t Get Out“ og „Stay Home,“ bæta engu við. Barði nýtur þar liðsinnis Anthony Gonzales við lagasmíðarnar, sem minna raunar svolítið á Angelo Badalamenti. Þá er klisjukenndur kraftkaflinn í seinni hluta fyrra lagsins til vansa og vont er til þess að vita að hljómsveitir á borð við Coldplay skyldu ekki endanlega hafa gert menn afhuga slíkum ófögnuði. Farsælast er jafnan að hætta leik þegar lagasmíðin nær ekki lengra. Ghosts From The Past er samt fyrsta flokks poppp- lata og fer ansi nálægt því að fá fullt hús. Áðurnefnd lokalög koma þó í veg fyrir það, auk þess sem söngtextar eru fráleitt í sama gæðaflokki og lagasmíðarnar. Fyrsta flokks popp TÓNLIST Geisladiskur Bang Gang – Ghosts From the Past bbbbm Orri Harðarson EKKI er enn búið að ráða í hlut- verk í forleik Hringadrótt- inssögu, The Hobbit, en ljóst er að sir Ian Holm endurtekur varla hlutverk aðalpersónunnar, Bilbo Baggins, enda er Bilbo 60 árum yngri þeg- ar Hobbitanum lýkur en þegar Hringadrótt- inssaga hefst. Breska dagblaðið Daily Express telur sig þó hafa öruggar heimildir fyrir því að skoski leik- arinn James McAvoy sé efstur á óskalista framleiðandans Peter Jackson og leikstjór- ans Guillermo Del Toro, en hann vakti ein- mitt fyrst verulega athygli í kvikmyndaheim- inum fyrir hlutverk annarrar ævintýraveru, fánsins Tumnus í Ljónið, nornin og skáp- urinn. Þeir Jack Black og Daniel Radcliffe (Harry Potter) eru einnig sagðir koma til greina ef ekki tekst að semja við McAvoy. Verður fánn- inn hobbiti? Hobbiti? James McAvoy þykir líklegur í hlutverk Bilbo Baggins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.